Dagblaðið - 11.05.1976, Síða 9
I'Khj.U'dacuk i 1.
Söluhœsti
Tropicana-
kaupmaðurinn:
Fœr viku-
dvöl í
Florida í
verðlaun
— fyrir beztu sölu
áárinu 1975
Tropicanaumboðið Sól hf.
ákvað á síðasta ári að efna til
samkeppni meðal
kaupmanna og verzlana-
eigenda um það hver þeirra
yki hlutfallslega mest sölu á
Tropicana frá áramótum
1974 til áramóta 1975. í gær
voru úrslitin kynnt.
Hlutskarpastur varð Eðvarð
Friðjónsson verzlunarstjóri
Sláturfélags Suðurlands á
Akranesi.
Hann fær í verðlaun
vikuferð til Florida og
hyggst nota sér boðið ásamt
konu sinni næstkomandi
haust.
„Ég kiknaði hálfpartinn
hnjáliðunum, þegar Davíð
Scheving Thorsteinsson
framkvæmdastjóri Sólar hf.
tilkynnti mér um úrslitin,”
sagði Eðvarð Friðjónsson á
blaðamannafundi í gær.
„Maður er búinn að spila í
happdrætti í mörg ár an þess
að vinna nokkurn tíma og
svo berst manni þetta boð í
hendurnar svona fyrirvara-
laust.”
Eðvarð jók sölu sína á
árinu 1975 um hvorki meira
né minna en 174.44%. í
árslok '74 hafði hann selt
2.160 lítra af Tropicana og á
árinu 1975 jók hann söluna
upp i 5.928 lítra.
Þær verzlanir, sem næst
komu á eftir Sláturfélagi
Suðurlands, i söluaukningu,
voru Kaupfélag Árnesinga á
Selfossi og Verzlunin
Brekka á Akureyri.
Af þeim fjöldamörgu
verzlunum úti um allt land,
sem selja Tropicana, kom
söluaukning fram í nærri
þvi öllum. Vegna þessarar
góðu re.vnslu hyggst Sól hf.
efna til annarrar samkeppni
um mestu aukningu á árinu
1976.
-at-
MAl 1976.
Atkvœðatölur hjá Framsóknarflokknum:
Æðstu menn voru endur-
kosnir með yfirburðum
Æðstu menn Framsóknar-
flokksins voru endurkosnir
með yfirburðum á aðalfundi
miðstjórnar um helgina. Við
formannskjör fékk Olafur
Jóhannesson 88 atkvæði,
Helgi Bergs fekk 2, Stein-
grímur Hermannsson 1,
Þórarinn Þórarinsson 1 og einn
seðill var auður.
Steingrímur Hermannsson
var endurkjörinn ritari nteð 88
atkvæðum, Guðmundur G.
Þðrarinsson hlaut 3 atkvæði.
Jón Kjartansson 1 og einn var
auður.
Gjaldkeri var endurkjörinn
Tómas Arnason með heldur
færri atkvæðum en Olafur og
Steingrimur hlutu, eða 80. Guð-
mundur G. Þórarinsson fékk 5,
Halldör Asgrímsson 4, Helgi
Bergs 3, Kristinn Finnboga-
son 3 og einn var auður.
Einar Ágústsson var endur-
kosinn varaformaður með 83
atkvæðum. Helgi Bergs hlaut 5,
Þórarinn Þórarinsson 2,
Vilhjálmur Hjálmarsson 1,
Halldór E. Sigurðsson 1, Ingvar
Gíslason 1 og einn var auður.
Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir var endurkjörin vara-
ritari með 64 atkvæðum. Guð-
mundur G. Þórarinsson var
kjörinn varagjaldkeri í stað
Halldórs E. Sigurðssonar, sem
baðst undan endurkosningu.
Næsti maður fékk 11 atkvæði.
I framkvæmdastjórn varð sú
ein breyting að Hákon Sigur-
grímsson kom í stað Jóns
Skaftasonar sem baðst undan
endurkosningu. Aðrir voru
endurkjörnir, þeir Eysteinn
Jónsson. Helgi Bergs, Þórarinn
Þórarinsson, Erlendur Einars-
son, Guðmundur G. Þórarins-
sonb, Jónas Jónsson, Ragn-
heiður Sveinbjörnsdóttir og
Eggert Jóhannesson. 1 fram-
kvæmdastjórn sitia auk þeirra
formaður, ritari, gjaldkeri,
varaformaður og formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna.
Við kosningu níu manna
blaðstjórnar Tímans varð sú
ein breyting, að Magnús Bjarn-
freðsson kom í stað Óðins Rögn-
valdssonar sem baðst undan
endurkjöri.
-HH.
Firmakeppni
r
I
billiard:
H L JÓM PLÖTU ÚTGÁF AN
GEIMSTEINN SIGRAÐI
— Dagblaðið lenti íþriðja sœti
Og þá er að hitta. Kjartan Friðþjófsson, sem keppti fyrir Dagblaðið, miðar vandlega. Hann hafnaði í
þriðja sæti. DB-mynd Ragnar Th.
Ágústi Ágústssyni billiardleik-
ara tókst um helgina að sigra ís-
landsmeistarann, Sverri Þórisson,
i' úrslitaleiknum í fyrstu firma-
keppni í billiard sem haldin
hefur verið hér á landi. Ágúst
keppti fyrir Hljómplötuútgáfuna
Geimstein en Sverrir, sem lenti í
öðru sæti, keppti fyrir Tizkuverzl-
unina Faraó. Dagblaðskeppand-
inn Kjartan Friðþjófsson lenti í
þriðja sæti.
„Þetta var svo sannarlega
ströng helgi hjá okkur,” sagði
Kjartan Friðþjófsson er DB
ræddi við hann að keppninni lok-
inni. „Við spiluðum stanzlaust í
átta klukkutíma á laugardaginn
og sex tima á sunnudag.
Fyrri daginn voru keppendurn-
ir 16 í tveimur riðlum. Þrír efstu
mennirnir úr hvorum riðli kepptu
síðan til úrslita síðari daginn."
t úrslitakeppninni léku kepp-
endurnir sex allir við alla einu
sinni, — alls fimm umferðir. Að
þeim loknum voru Ágúst Agústs-
son og Sverrir Þórisson jafnir
með fjóra vinninga hvor. Kjartan
var með þrjá vinninga, Rafn Val-
garðsson með tvo og Haraldur og
Guðmundur Ringsted með einn
hvor. Ágúst og Sverrir léku síðan
til úrslita og sigraði Ágúst naum-
lega.
Fyrstu verðlaunin eru bikar,
sem Rolf Johansen gaf, auk 30
þúsund króna. Önnur verðlaun
voru 20.000 krónur og þau þriðju
10.000 krónur. Keppnin fór fram í
Billiardstofunni Júnó i Skipholti.
— AT —
Námslánin:
NÁMSMENN REYNA AÐ HINDRA
ALLT OF SKJÓTA AFGREIÐSLU
Námsmenn hafa undanfarið
haldið uppi miklum áróðri gegn
breytingartillögum ríkis-
stjórnarinnar við frumvarp um
endurskipulagningu námslána,
sem nú liggur fyrir Alþingi. Er
það að vonum vegna þess að
ríkisstjórnin hefur gert
verulegar breytingar á upphaf-
lega frumvarpinu.
Kjarabaráttunefnd náms-
mannasamtaka hefur sent frá
sér yfirlýsingu þar sem lögð er
sérstök áherzla á það að
greinilegt sé að ríkisstjórnin
ætli sér ekki að reyna að brúa
bil tekna og fullrar umfram-
fjárþarfar námsmanna eins og
þeir höfðu lagt til. Segir í frum-
varpi ríkisstjórnarinnar að
stefnt skuli að því en slíku vilja
námsmenn ekki una.
Eins eru gerðar verulegar
bre.vtingar við tillögur náms-
manna um endurgreiðslur á
lánunum sem þeir féllust á að
yrðu verðtr.vggð gegn þvi að
endurgreiðslur miðuðust við
vissa prósentutölu umfram-
tekna vissra árlegra lágmarks-
tekna.
Ráðherra hefur ákveðið i til-
lögum sinum að ofan á þær
föstu greiðslur korni a.m.k. 40
þúsunda greiðslur og hann vill
sjálfur fá að ákveöa hver
prósentutalan umfram lág-
markslaun verður.
Hyggja námsmenn nú á
miklar aðgerðir til þess að
reyna að koma i veg fyrir að
frumvarpi þessu verði „skellt í
gegn". eins og kornast ma að
orði. -HP.
Ný hlið á ef nahagsráðstöfunum:
NÚ FÁ KANARNIR EKKI
STEREÓGRÆJURNAR
— nema með mikilli
skríffinnsku
Ráðstafanir til að vernda
efnahag islenzku þjöðarinnar
koma víða við. Nú hafa meira
að segja verið settar hiimlur á
sölu hljómtækja frá radíó-
verzluninni á Keflavikurflug-
vclli til að erfiðara verði en
áður að smygla þeim út af
Vallarsvæðinu. Tæki þessi eru
tollfrjáls og því allnokkru lægri
i verði en þau hljómtæki sem
fást i íslenzkum verzlunum.
Nú gera aðeins hermenn og
nienn sem vinna hjá hernum
fengið útvörp og plötuspilara
keypta ef þeir frantvisa gildu
nafnskirtcini hermanna og auk
þess skömmtunarkorti. Ef
kaupa á fleiri en eitt tæki þarl
levfi frá iögfræðifulltrúa
hersins. Eiginkonur vallar-
starfsmanna þurfa einnig leyfi
þaðan.
Er tækin hafa verið keypt fa
menn stimpil um það í skömmt-
unarskirteimð sitt til að gela
ekki misnolað aðsiöðuna. - \T
Á morgun, 12. maí, kemur út bókin
„Refskákir og réttvísi"
eftir Ingveldi Gísladóttur. Bóksalar
og aðrir, sem vilja fá bókina, gjöri
svo vel að panta hana hjá höfundi í
síma 17919
INGVELDUR GÍSLADÓTTIR