Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.05.1976, Qupperneq 13

Dagblaðið - 11.05.1976, Qupperneq 13
I)A(iBI,At)li). ÞHIÐJUDAGUK 11. MAÍ 1976. 13 — þegar hann varð Norðurlandameistari í kraftlyftingum. Hann og Brynjar Gunnarsson, formaður lyf tingasambandsins, misstu allan farangur sinn í hótelbruna Norðurlandametin fjögur hjá Skúla! Það var ekki nóg meó, að Skúli H. Öskarsson, Austfirðingurinn keppnisglaði, yrði Norðurlanda- meistari í millivigt í kraftl.vfting- um í Þrándheimi um helgina — heldur setti hann einnig fjögur ný Norðurlandamet í vigtinni. Tvíbætti eitt þeirra — og sýndi mikla keppnishörku, sem áhorf- endur hrifust af. Skúli átti í harðri baráttu við Svíann Lars Backlund — og fór þar með glæsilegan sigur af hólmi. Keppnin í millivigtinni hófst með hnébeygjulyftu — og Skúli reyndi fyrst við 235 kg. Það tókst vel — og þá var komið að Norðurlandameti hjá honum 242.5 kg. Það tókst ekki í fyrstu tilrauninni — en Skúli reyndi aftur og fór þá vel upp með þyngdina. Þar með var fyrsta Norðurlandametió staðreynd. Næst var bekkpressa — og þar bjóst Skúli ekki við að ná góöum árangri vegna meiðsla í öxl. Skúli reyndi fyrst við 115 kg en mis- tókst — en lyfti þeirri þyngd í annarri tilraun. Síðan náði hann einnig að lyfta 120 kg. En eftir þessa grein hafði Svíinn milli 30 og 40 kg forustu á Skúla, svo útlitið var allt annað en gott í sambandi við Norðurlandameist- aratitilinn. En þá kom keppnisharka Skúla vel í ljós — annaó hvort sigur eða ekkert! Hann bað því um 275 kg í síðustu keppnisgreininni, rétt- stöðulyftu, og ritarinn varð svo hissa, að hann marghváði. Svíinn Lars Backlund byrjaði á 250 kg sem hann tók — en missti síðan tvívegis 260 kg. Þá var komið að Skúla með sín 275 kg og hann fór létt með þau! — En það var ekki nóg tij að hljóta meistaratitilinn — og Skúli lét þyngja í 287.5 kg — aftur nýtt Norðurlandamet. Og upp fóru þau og svo mikil var keppnisharkan. hjá Skúla, að hann lét það ekki á sig fá, að blóðið spýttist úr nösum hans. En Norðurlandameistaratitillinn var hans — og nýtt Norðurlandamet í réttstöðulyftunni — og éinnig samanlagt eða 650 kg í millivigt- inni. Glæsilegur árangur. Samhliða Norðurlandamótinu, þar sem keppendur voru um 30, var landskeppni milli allra Norðurlandanna sameinaðra gegn Bretlandi. Urslit urðu þau, að Norðurlönd sigruðu með tveggja stiga mun. Þá má geta þess, að eftir að keppninni í milli- vigtinni lauk fékk Skúli aukatil- raun í hnébeygjulyftu, en hann hafði beðið um það strax í keppn- inni. Það voru 250 kg. og Skúli lyfti því — fjórða Norðurlanda- métið. Þegar Skúli og Brynjar Gunnarsson, formaður lyftinga- sambandsins, komu til Þránd- heims fengu þeir inni á Hótel Bristol. Á föstudag voru þeir rétt farnir af hótelinu, þegar það bein- línis sprakk í loft upp — og á örfáum mínútum var það brunnið Brynjar og Skúli hyggja að farangri sínum eftir brunann á Hótel Bristol. til grunna. Það var hrein tilvilj- un, að þeir félagar voru ekki í herbergjum sínum. Skúli hafði ætlað að hvíla sig — en svo ákváðu þeir allt í einu að fara út. Mannskaði varð ekki í brunanum, en þeir Skúli og Brynjar urðu fyrir miklu tjóni — misstu allan farangur sinn, og voru þeir með ýmsa verðmæta muni með sér. Charleroi bjargað I — La Louviere dœmt til að falla niður vegna mútumálsins og þjálfari liðsins dœmdur f rá knattspyrnu œvilangt Charleroi—liði Guðgeirs Leifssonar í Beigiu var í gær- kvöld bjargað frá falli í 2. deild þegar La Louviere var dæmt úr 1. deild vegna mútumáls er kom upp í vetúr. La Louviere iék þá gegn Berchem, sem þegar var fallið i 2. deild en ekki voru forráðamenn lá Louviere vissari en svo um að vinna Berchem að þeir buðu miklar fjárhæðir svo leikurinn mætti vinnast. Það gerðist — La Louviere sigraði en upp komst um svikamyliuna. Dómurinn í þessu mútumáli féll í gær, La Louviere var dæmt til að leika í 3. deild og þjálfari liðsins var dæmdur frá þjálfun í knattspyrnu ævilangt. La Louviere, Beringen og Charleroi hafa háð hatramma baráttu í vetur um að forðast fall en í Belgíu falla þrjú lið í 2. deild. Þegar eru fallin í 2. deild Berchem og Malines. Staða Charleroi var erfiðust hjá liðunum þremur — liðið var stigi á eftir Beringen og þremur stigum á eftir La Louviere. En sem sagt — Guðgeir þarf ekki lengur að óttast fali í 2. deild. Standard Liege heldur áfram að byggja. upp lið sitt eftir magurt ár í belgískri knatt- spyrnu. Liðið keypti í gær þýzk- an leikmann frá La Louviere að nafni Gras. Gras þessi er mark- hæsti leikmaður La Louviere og leikur vinstri útherja. Eins og Ásgeir sagði — Gras er topp- leikmaður og við hyggjum á stóra hlúti næsta keppnistíma- bil. h.halls. álfari, Stefán Halldórsson. Adolf Guðmundsson, Magnús Bárðarson, Gunnlaug- aaber, Bergþór Jónasson, Sigurður Gunnarsson og Asgrímur Guðmundsson agnús Þorvaldsson, Diðrik Olafsson, Eiríkur Þorsteinsson fyrirliði, Jóhannes bezta knatt- Reykjavíkur! iik Reykjavíkurmótsins í gœrkvöld hreint ótrúlegir. Valsmenn áttu alltaf í vök að verjast og hinir ungu sóknar- menn Vals sáust varla i leiknum og til hreinna undantekninga heyrði ef Valur komst yfir miðju i síðari hálf- leik þegar liðið lék gegn kaldanum, slíkir voru yfirburðir Víkings. Valur fékk óskabyrjun — Ingi Björn Albertsson skoraði þegar á 2. mínútu. Hann fékk knöttinn eftir innkast Atla Eðvaldssonar og skoraði auðveldlega framhjá Diðriki Ólafssyni í marki Víkings. Mikill misskilningur varð i vörn Víkings og virtist hver halda að annar hafí átt að gæta Inga Björns. Hina góðu byrjun náðu Valsmenn ekki að nýta sér, Víkingar náðu smám saman tökum á leiknum — réðu lögum og lofum á miðjunni þar sem Gunn- laugur Kristfinnsson, Eiríkur Þor- steinsson og Adolf Guðmundsson áttu alla bolta og á 34. mínútu uppskáru Víkingar laun erfiðis síns. Öskar Tómasson lék á Vilhjálm Kjartansson í vitateig Vals en Vilhjálmur brá Óskari og víti var dæmt. Nokkuð harður dómur en sjálfsagt réttmætur. Eiríkur Þorsteinsson skoraði örugglega fram- hjá Sigurði Dagssyni í marki Vals. Skömmu áður en Víkingur fékk vítið hafði Diðrik varið göðan skalíabolta frá Guðmundi Þorbjörnssyni og var það raunar eina tækifæri Vals sem hægt var að tala um. í siðari hálfleik urðu yfirburðir Víkings enn ljósari en illa tókst þeim að opna þétta vörn Valsmanna. Það var á 65. mínútu sem það tókst þó — Stefán Halldórsson lék á varnarmann Vals — gaf góðan bolta á Gunnlaug, er aftur gaf á Stefán í gegnum opna vörn Vals og Stefáni urðu ekki á nein mistök.með góðu skoti, sérdeilis fallegt mark. ' Þegar Stefán skoraði mark sitt meiddi hann sig og varð að fara út af, í hans stað kom Kári Kaaber. Það sem eftir var leiksins sóttu Víkingar látlaust án iþoss þó að skapa sér veruleg marktæki- Ifibrt. Ástandið var svo slærtit hjá Val að i hverl sinn sem Valur náði boltanum hafnaði knötturinn utan vallar — áreiðanlega lakasti leikur Vals það sem af er, þó greinilegt sé að margt býr í hinu unga Valsliði. Að loknum leik afhenti Ólafur Þórðarson kampakátum Víkingum bikarinn en þetta er í annað sinn á þremur árum að Víkingur vinnur titil- inn „bezta knattspyrnulið Reykja víkur.” Lokastaðan í Reykjavíkurmótinu varð: Víkingur Valur Fram KR Þróttur Ármann 12—3 11—5 10—4 7—7 3—13 2—13 h.halls. Landslið-Pressan Landsliðið leikur í kvöld við pressuliðið og fer leikurinn fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði og hefst kl. 19.30. Eins og kunnugt er neitaði KRR skipt- ingu fjár af leiknum og því verður ekki af leiknum á nýja Laugardalsvellinum eins og þó hafði verið vonazt eftir.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.