Dagblaðið - 11.05.1976, Page 14

Dagblaðið - 11.05.1976, Page 14
14 IMCBI.AUIÐ. l>HIt).JlII)A(;UI{ 11. MAl 1976. Svona á madur art taka oina lúku af' fræi og strá yfir moldina. sem or bærti mild oa slótt o« ekki of riik. Síðan «>r sléttart yfir t.d. með sparta. .lá, þart er hetra art fylj’.jasl vel mert. Ha, má eiga börn framhjá? Já, en það eru sérstök börn Það eru sennileíía fæstir jafnilla að sér oj> undirritaður blaðamaður þejtar kemur lil tr.járæktar í einhverri m.vnd. Þekkir vart birki frá víði, en er þó viss um hvernÍK jólatré lítur út. Hún kom því næstum eins o'g af himnum send auj'lýsinf'in frá SkósræktarfélaKi Hafnar- f.jarðar um sýnikennslu á sán- ingu trjáfræs og meðferð trjá- plantna, þar sem öllum var heimil þátttaka. Þarna gæfist kostur á að fræðast ofurlítið um einföldustu atriði í skóg- rækt og um leið að miðla dálitlu af vizkunni til lesenda Dag- blaðsins. Við Bjarnleifur ljósmyndari brugóum undir okkur betri fæt- inum og komumst af stað eftir mikinn eltingaleik við að fá bíl, því að hvorugur fararskjóta okkar á fjórum hjólum re.vndist í lagi þann 1. maí, en þá fór kennslan fram. Menn muna að það var óvenjugott veður þennan dag þrátt fyrir smávætu, sem nægði þó til að rugla lagningunni í hárinu á kvenfólkinu. sem þarna var mætt með sínum ektamökum. Ölafur Vilhjálmsson for- maður Skógræktarfélagsins setti samkunduna og hafði orð á því að skipa þyrfti nemendum í bekki, því svona mörgum hefði hann ekki þorað að vonast eftir. Kennslan fór fram við græðireit félagsins við Hval- eyrarvatri og þar sem svona margir voru mættir voru í fyrstu vandræði með ræðupúlt, sem loks leystist þegar einn vit- ur kom auga á stóran trékassa. Ólafur byrjaði á að segja okkur frá hversu mikla ánægju maður hefði af því að sjá litlu angana rísa úr mold. þetta væri næstum eins og að alá upp sín ,,eigin börn”. Þetta væru líka einu börnin sem menn gætu leyft sér að eignast utan hjónabands. Til að fá þróttmikla afkomendur eiga könglarnir að vera brúnleitir og harðir Nú tók Jón Magnússon frá - Skuld einn af elztu stofnendum Skógræktarfélagsins völdin af Ólafi á kassanum og lýsti fyrir okkur hvenær tína ætti birki- köngla. Það er á haustin, i sept- ember eða byrjun október. Til þess að fá þróttmikla og fallega afkomendur eiga frækönglarn- ir að vera brúnleitir og harðir viðkomu, þá eru þeir bezt þroskaðir. Síðan eru könglarnir þurrkaðir í nokkrar vikur og fræin sem nú myljast auðveld- lega úr könglunum geymd í lér- eftspokum á þurrum stað. Sumir geyma þau í ísskáp. Fræin mega frjósa. en geta rnvglað í raka. Jón fór að einum græðireitn- um og sýndi nemendum hvernig ætti að taka lúku af fræjum og sá þunnu lagi ofan á moldina, sem verður að vera mild og slétt og ekki of rök. Þegar búið er að sá er sléttað með öfugri garðhrífu spaða eða einhverju öðru sléttu. Það mætti síðan bera sand yfir, sem næmi þá aðeins svo sem broti úr millimetra. Vökva verður vel strax á eftir og alla tíð. Kassarnir sem allra þéttastir Bezt er að sá í apríl eða byrjun maí og setja þegar plast yfir. Kassarnir eða reitirnir eiga að vera sem allra þéttaátir. Á ellefta eða tólfta degi ætti að fara að sjást að fræin eru að lifna. Það má lika gera tilraun með að sá fræjum í kassa i stofu- glugga og planta þeim síðan út. Sjálfsagt er að lofta í græði- reitunum öðru hverju og auka það eftir því sem á líður til þess að herða plönturnar, en í byrjun júlí eða um miðjan júli er plastið alveg tekið af. Jón frá Skuld sagði að algeng spíruhæfni fræjanna væri 40% jafnvel meiri, ef fræin eru góð allt upp í 80%. Hann hafði samt litla von um að þau fræ sem hann væri að sá í reitinn nú næðu meiri en 4%, þar sem sumarið í fyrra hefði verið sér- staklega slæmt. Bezti óburðurinn hrossatað Bezti áburðurinn er hrossatað og sagðist Jón setja einar hjólbörur af hrossaskít í græði- reit af stærðinni 3—4 fermetr- ar og vitanlega þarf að blanda honum vel saman við moldina. Á góðu sumri geta plönturn- ar orðið 30—40 sm háar og dæmi eru til þess að þær hafi orðið 60 sm á hæð á einu sumri. Ýmist eru plönturnar látnar vera í kassanum fram á næsta sumar eða að þeim er plantað í beð og eru þá látnar hálf liggja á hliðinni. Ölafur V'ilhjálmsson formartur Skógræktarfélags Hafnar- fjarðar býöur nemendur vel- komna. Jón Magnússon frá Skuld, einn af elztu stofnendum Skóg- ræktarfélags Hafnarf jaröar, sagði aö til merkis um hvað birkifræ gæti verið harogert hefði hann dreift því um grjóturð. holt og mela, þar sem hvorki skófla né haki kom að gagni viö að losa um jarðveg- inn. Hann gaf því lífrænan áburð og merkilega mörg festu rætur. Jonas Jónsson formaður Skóg- ræktarfélags tslands hvatti alla landsmenn til þess að ganga i skógræktarfélögin og klæða þar með landið. Grærtireitirnir eiga art vera sem allra þéttastir. Látið lofta um plönturnar örtru hverju, en plastirt tekirt af í júlí.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.