Dagblaðið - 17.05.1976, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 17. MAÍ 1976.
tískuverslun
fyrir börn
F
Tískufatnaöur
fyrir stelpur og stráka
(áöur Kastalinn)
BANKASTRÆTI, SÍMI 283 50
BREYTTUR
AFGREIÐSLUTÍMI
Skrifstofa okkar og vöruafgreiðsla
verður opin sem hér segir frá og með
mánudeginum 17. maí til föstudagsins
27. ágúst.
Mánudaga til föstudaga: kl.
8.00—12.30 og 13.00—16.00.
ROLF J0HANS0N & C0
Laugavegi 178.
Þróunarstofnun Reykjavíkurborgor
ARKITEKT
TÆKNITEIKNARI
Próunarstofnun Reykjavíkurborgar
óskar að ráða nú þegar arkitekt með
þekkingu á skipulagsmálum og tækni-
teiknara.
Umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist til
Þróunarstofnunar Reykjavíkurborgar
Þverholti 15.
/— ' ' , .............................
300 íbúðir sem láglaunaf ólk bíður eftir:
„FRAMKVÆMDUM
HALDIÐ ÁFRAM"
— segir Sigurður Jónsson, forstjóri hjá Breiðholti h.f.
„Við reynum að sjálfsögðu að
halda áfram með verkið,” sagði
Sigurður Jónsson, forstjóri
Breiðholts hf., þegar Dagbl.
innti hann eftir gangi mála í
byggingu verkamannabú-
staðanna í Breiðholti. Fyrir-
tækið er verktaki fyrir Verka-
mannabústaði Reykjavíkur, en
nú er risin deila vegna 28 millj-
ón króna reiknings frá Breið-
holti, og fæst hann ekki
greiddur.
Sigurður kvað það erfitt að
hætta vinnu við bústaðina, sem
svo mjög er beðið eftir að fá á
markaðinn. Þarna rísa íbúðir af
ýmsum gerðum fyrir 300 fjöl-
skyldur láglaunafólks, sumar
eru tilbúnar, aðrar uppsteyptar
og verkinu í heild á að ljúka
einhverntíma í október. Við
verkið hafa 150 byggingamenn
atvinnu.
Sigurður kvaðst undrandi
yfir greinargerð Karls Ömars
Jónssonar hjá Fjarhitun um
reikninginn umdeilda. „Eg fær
ekki séö hvernig hann getur
fengið þessa niðurstöðu, jafn-
vel þótt hann sé pantaður til
þess. Til þess að fá rétta niður-
stöðu hefur maðurinn ekkert
yfirlit yfir málin. Eg er veru-
lega undrandi á því að nokkur
skuli láta hafa sig út í nokkuð
þessu líkt,” .sagði Sigurður
Jónsson að lokum.
— JBP —
Engin úrlausn
Sparimerkjaeigendur hafa
enn ekki fengið neina úrlausn.
Myndin sýnir dæmi um einn
þeirra. Hann eignaðist alls
fimm sparimerkjabækur, og
eru færslur í þær allt frá ár-
inu 1961. Haustið 1970 tók hann
út 194 þúsund krónur, en fékk
aðeins rúmar sex þúsund
krónur í vexti og rúmar 25 þús-
und í vísitölubætur. Haustið
1974 fékk hann síðan um 14
þúsund I vísitölubætur og 6.700
í vexti. En þetta er býsna lítið
upp í verðbólgu umræddra ára.
Svipað er ástatt fyrir þúsund-
um manna, og er talið að þeir
ættu að fá samtals um einn
milljarð í bætur, ef dæmið yrði
gert upp.
NAMSMENN
KREFJAST ÞESS,
AÐ AFGREIÐSLU
VERÐI FRESTAÐ
Eyjólfur K. Sigurjónsson
í stjórn Verkamanna -
bústaðanna:
Stjórnar-
formaður,
bók-
haldari,
endur-
skoðandi,
prókúru-
hafi og
gjaldkeri
I stjórn Verkamannabústaða
Reykjavíkur eru sjö menn og
eftir öruggum heimildum
blaðsins er starfinu mjög mis-
skipt milli stjórnaraðila. T.d.
er Eyjólfur K. Sigurjónsson úr
Kópavogi formaður stjórnar-
innar. Hann er einnig bókhald-
ari hennar, endurskoðandi og
jafnframt prókúruhafi og þá
um leið gjaldkeri og skrifar út
allar ávísanir stjórnarinnar,
sem veltir hundruðum millj-
óna árlega.
Ekki er óalgengt aó í litlum
fyrirtækjum hlaðist mörg störf
á eigandann en það mun hins
vegar fátítt ef ekki einsdæmi í
opinberri stofnun, að einn
aðili sinni svo mörgum
störfum sem í þessu tilviki.
— G.S.
Á mánudag mun frumvarp
rikisstjórnarinnar um nýskipan
námslána verða afgreitt sem lög
frá Alþingi. t frumvarpi ríkis-
stjórnarinnar hefur lítið tillit
verið tekið til tillagna náms-
manna og kjarabaráttunefndar
þeirra, sem þó unnu hvað mest að
tillögum um endurbætur og
féllust á það, að lánin yrðu verð-
tryggð, gegn því, að þau a.m.k.
brúuðu bilið milli tekna og um-
framfjárþarfar og að endur-
greiðsluskilmálum yrði verulega
breytt, en tillögur þessar hafa oft-
sinnis verið kynntar hér í
blaðinu.
í frumvarpi ríkisstjórnarinnar
er gert ráð fyrir að „stefnt skuli
að”, að umframfjárþörfin verði
brúuð, en ljóst er, að með því að
gert er ráð fyrir, að meginhluti
útlánaðs fjár sé endurgreitt í
fullu raungildi með lágmarks-
greiðslunum einum og að aukaaf-
borganir eigi síðan að sjá um að
skila Lánasjóðnum þvi fjármagni
sem eftir er, er greinilegt, að hér
er um að ræða einhver óhagstæð-
ustu lán, sem til eru á markaðn-
um og má nærri geta, að t.d. út-
gerðarmönnum myndi hrjósa
hugur við slíkum lánum.
Skýringu á því, að ekki var
tekið tillit til tillagna námsmanna
hefur menntamálaráðherra gefið
hér í blaðinu fyrir nokkru. Hann
segir, að með því, að endurgreiðsl-
urnar séu gerðar svona stífar, þá
sæki færri I lánin og því verði
hægt, að brúa bil umframfjár-
þarfar með því fjármagni, sem
Lánasjóðurinn hefur milli hand-
anna. Þeir sem skilja þessi rök,
hafa bent á, að hér sé alla vega
ekki verið að ræða um „jafn-
rétti til náms”.
Hafa námsmannasamtök öll I
landinu nú krafizt þess, að af-
greiðslu frumvarpsins verði
frestað, þar til nægar umræður
hafi farið fram um það, og efni
þess kynnt opinberlega, en það
hefur menntamálaráðherra ekki
gert, enn sem komið er.
— HP.
Óhrjóleg brffreið vakti athygli lögreglu
Heiaur óhrjáleg bifreið vakti
athygii lögreglunnar á Akra-
nesi aðfaranótt sunnudags.
Við nánari aðgavlu re.vndust
ökumaður og farþegar allir
undir sextán ára aldri.
Piltarnir höfðu fengið lykla
að bifreiðinni h.já ölvuðum
manni og brugðu sðr svo i öku-
ferð. Þeir óku út undir Akra-
f.jall, en þar veltu þeir ökutæk-
inu. Einhvern veginn tókst
þeim að gangsetja bifreiðina
aftur og héldu ökuferðinni
áfram. þar til lögreglan stöðv-
aði þá. Ökutækið má teljast
ónýtt. svo engin furða er að það
skuli hafa vakið ath.vgli lög-
reglu. Ungu mennirnir munu
hafa sloppið við alvarleg
meiðsli. sem betur fer.
— KP