Dagblaðið - 06.11.1976, Qupperneq 22
DA(iBLAÐIf). LAUCAKDACUR 6. NOVEMBER 1976.
( Bíéauglýsingar eru á bls. 20 } (j|
Utvarp
Sjónvarp
r
Útvarp kl. 20.35 í kvöld:
„Oft er mönnum í heimi hætt”
Neyzla amfetamíns:
EYKUR ÁRÁSARHÆTTU
— getur leitt til geðveiki á háu stigi
Þáttur um neyzlu ávana- og fíkniefna
Undanfarið hafa verið
miklar uniræður um neyzlu
ávana- og fíkniefna manna á
meðal. Menn eru ekki á eitt
sáttir um hvernig vinna eigi
bug á þessu geigvænlega
vandamáli.
Gísli Helgason og Andrea
Þórðardóttir hafa tekið saman
þátt um þetta efni og nefna
hann Oft er mönnum I heimi
hætt. Er fyrri hluti hans á dag-
skrá útvarpsins í kvöld kl.
20.35.
„í september fórum við
Andrea austur að Litla Hrauni
og ræddum við nokkra fíkni-
efnaneytendur. Varð það til
þess að við fórum að leita or-
saka þess af hverju menn byrja
á því að neyta fíkniefna," sagði
Gísli Helgason.
„Þá lögðum við leið okkar á
upptökuheimili ríkisins I Kópa-
vogi og athuguðum hvers vegna
piltar 13 og 14 ára gamlir eru
vistaðir þar. En talið er að
piltar sem lenda áslíkum stofn-
unum haldi áfram á afbrota-
brautinni. Forstöðumaður
Litla-Hrauns, sem var forstöðu-
maður á Jaðri þegar þar var
rekið upptökuheimili, sagðist
hafa mætt mörgum piltum sem
hefðu verið á Jaðri síðár þegar
hann var kominn að Litla
Hrauni. Við ræðum einnig við
fangelsisprestinn.
Kristján Pétursson tollgæzlu-
maður kemur fram í þættinum
en hann hefur einmitt rannsak-
að mörg fíkniefnamál. Hann
segir frá því hvenær þessi af-
skipti hans hófust. Kristján
heldur þvl fram að læknar eigi
mikinn þátt i að skapa
eiturlyfjaneytendur. Tekið
skal fram að það er tiltölulega
fámenriur hópur lækna sem
gefur út lyfseðla á fíknilyf.
Gísli Þorsteinsson geðlæknir
flytur mjög athyglisvert erindi
um eiturlyf og verkanir þeirra
og einnig kemur landlæknir
fram I þættinum og ræðir þá
gagnrýni sem læknar hljóta
fyrir útgáfu á eiturlyfjaseðlum.
Sækja verður um sérstakt
leyfi hjá landlækni til þess að
fá svokallaða „eiturlyfjapassa".
Nú þegar hefur landlæknir
gefið út á annað hundrað slík
leyfi en þeir sem fá sllkan
passa „ganga fyrir“
amfetamlni.
Samkvæmt staðhæfingu geð-
lækna Kleppsspítalans getur
amfetamín haft áhrif í þá átt að
auka árásarhvöt fólks og leiðir
oft á tíðum til geðveiki á háu
stigi. Maður veltir því fyrir
sér,“ sagði Glsli, „hvort land-
læknir hafi yfirleitt haft nokk-
urt samband við lækna Klepps-
spítalans um þessi mál, en þeir
eru einum rómi á móti „eitur-
lyfjapössunum", samanber það
sem Tómas Helgason prófessor
og yfirlæknir segir í þættinum
að öll slík efni eins og amfeta-
Það ætti að taka
amfetamín af
markaðinum
segir Tómas
Helgason
prófessor og
yfirlæknir
Kleppsspítalans
mín eigi að taka út af lyfja-
skrá.“
Gísli sagði ennfremur að
megnið af þeim föngum sem
sitja inni á Litla Hrauni vegna
fíkniefnaneyzlu, séu þar á lyfj-
um og hafi vistmenn sama
lyfjaskammtinn árið úm kring.
„Þetta virkar óneitanlega
skringilega á mann," sagði
Gísli. „Manni finnst að reyna
ætti að minnka lyfjaskammtinn
og venja þessa ógæfusömu
neytendur af lyfjunum. Læknir
vinnuhælisins, Brynleifur
Steingrímsson, svarar fyrir
þetta í þættinum," sagði Gísli
Helgason. — A.Bj.
sjálfum
Sjónvarp í kvöld kl. 21.35:
Vildi vistast hjá kölska
Þetta unga fólk leikur í kvikmyndinni sem er á dagskrá sjónvarpsins i
kvöld, en hvorki er okkur kunnugt um nöfn þess né heldur hlutverk í
myndinni.
Útvarp í dag kl. 17.30: Framhaldsleikritið:
ANDRI VERDUR FRÆGUR í DAG
„Andri verður frægur“ heitir
þriðji þáttur framhalds-
leikritsins Skeiðvöllurinn eftir
Patriciu Wrightson sem er á
dagskrá útvarpsins í dag kl.
17.30. Þýðandi er Hulda Valtýs-
dóttir og leikstjóri Þórhallur
Sigurðsson.
Annar þátturinn nefndist
„Leyndarmálið mikla.“ Þar
gerðist það helzt að gamall
flöskusafnari bauðst til að selja
Andra Beecham skeiðvöllinn
fyrir 3 dali. Andri á ekki nema
2 dali I sparibauknum sínum en
með ýmsum ráðum hefur hon-
um tekizt að ná I þennan eina
dal sem á vantar. Hann ræður
sér ekki fyrir fögnuði þegar
flöskusalinn segir honum að nú
eigi hann skeiðvöllinn.
Félagar Andra sjá að hann
býr yfir leyndarmáli en hann er
ófús á að ljóstra því upp. Loks
fer hann með þeim eitt kvöldið
og sýnir þeim skeiðvöllinn og
segir þeim að hann hafi keypt
hann fyrir 3 dali.
Félagar Andra segja honum
að enginn geti keypt slíkt
mannvirki fyrir svo litla
upphæð. En Andri er
sannfærður um að hann eigi
skeiðvöllinn með hlaupa-
brautunum, áhorfendapöllun-
um, hestunum og allri ljósa-
dýrðinni.
Félagar hans sjá ekki annað
ráð en að bíða og vona að sann-
leikurinn renni upp fyrir
honum fyrr eða síðar.
Með aðalhlutverkin í fram-
haldsleikritinu fara Árni
Benediktsson, sem leikur
Andra, Einar Benediktsson
leikur Mikka, Stefán Jónsson
leikur Jóa, Þórður Þórðarson
leikur Matta, Erlingur Gíslason
leikur Bent Hammond,
Valdimar Helgason leikur
mann, Guðrún Alfreðsdóttir
leikur konu og sögumaður er
Margrét Guðmundsdóttir.
Flutningstími leikritsins er
hálf klukkustund.
-A.Bj.
Laugardagur
6. nóvember
7.00 Morgunútvarp. Veðurfrejínir kl.
7.00, S.15 <>g 10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 (>n 9.05. Fréttir kl. 7.30, S. 15 (<>*»
forustu«r. da«hl). 9.00 «j» 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund
bamanna kl. S.00: Kristln Sveinbjörns-
dhttir les s<>«una. ..Áröru <>« pabba"
<‘ftir Anne-Cath. Vestly (fi). Tilkynn-
ingar kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Barnatími kl. 10.25: Kaupstaðir á ls-
landi. Ágústa Björnsdóttir stjórnar
tímanum sem fjallar um Neskaupstað.
Meðal annars er frásögn Loga
Kristjánssonar bæjarstjora. Líf og lög
kl. 11.15.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar.
13.30 Á soyöi. Einar örn Stefánsson
stjórnar þættinum.
15.00 I tónsmiðjunni. Atli Heimir Sveins-
son sér um þáttinn (3).
lfi.OO Fréttir.
IB.15 Veðurfregnii*. íslenzkt mál. .Jón
Henry Van Cleve, sem er
látinn, kemur til kölska og vill
gerast vistmaður hans. Kölski vill
ekki vista hann nema fá fyrst að
heyra hvað hann hefur afrekað á
lífsleiðinni.
Þetta er efni bíómyndarinnar,
sem er á dagskrá sjónvarpsins kl.
21.35 og heitir í íslenzkri þýðingu
„Hæg er leið...“, Heaven can wait.
Myndin er bandarísk, gerð árið
1943. Leikstjóri er Ernst Lubitsch
en með aðalhlutverkin fara
Charles Coburn, Don Ameche og
Gene Tierney.
Myndin fær þrjár stjörnur í
kvikmyndahandbókinni okkar og
þar segir að hún gefi góðar vonir I
upphafi en botninn detti hálfgert
úr henni. Þetta sé gamanmynd
góð á köflum, en skili sér þvi
miður ekki vel.
Sýningartíminn er ein
klukkustund og fjörutíu og fimm
mínútur. Þýðandi er Ellert Sigur-
björnsson.
-A.Bj.
Aðalsteinn Jónsson cand.mag. talar.
16.35 Lótt lög
17.00 Endurtekið efni: Frá Istanbul. Alda
Snæhólm Einarsson segir frá (Áður
útv. í febrúar 1975).
17.30 Framhaldeleikrt barna og unglinga:
„Skeiðvöllurínn" eftir Patriciu Wríght-
aon. Edith Ranum færði I leikbúning.
3ji þáttur .Ai.dr vcrðui fr.egur
1»\>i.n1111 llulda Valtýsdóttir. Leik-
stjóri: hórhallur Sigurðsson. Per-
sónur og leikendur: Andri-Árni
Benediktsson, Mikki-Einar Benedikts-
son. Jói-Stefán Jónsson, Matti-Þórður
Þórðarson, Bent Hammond-Erlingur
('iislason, Maður-Valdimar Helgason.
í kvSld kl. 21.10:
JAZZLEIKARAR í SJÓNVARPSSAL
Jazztónlist nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir og á
skömmum tíma hafa verið haldin ekki færri en þrjú jazzkvöld hjá
ýmsum félögum. — í kvöld gefst tækifæri til að sjá og heyra fjóra
gamalkunna jazzara leika saman í sjónvarpssal. Þeir eru Guðmund-
ur Steingrímsson, Gunnar Ormslev, Karl Möller og Árni Scheving.
Saman kalla þeir sig hljómsveit Guðmundar Steingrímssonar.
Kynnir í þessum skemmtiþætt.i er Bergþóra Árnadóttir söngkona
og húsmóðir frá Stokkseyri. Hún syngur auk þess tvö lög. Þá kemur
Svala Nielsen og syngur einnig tvö lög.
Tage Ammendrup stjórnaði upptöku þáttarins.
-ÁT-
Kona-Guðrún Alfreðsdóttir, Sögu-
maður-Margrét Guðmundsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Úr atvinnulífinu. Þáttur um útgáfu-
starfsemi í umsjá rekstrahagfræðing-
anna Bergþórs Konráðssonar og
Brynjólfs Bjarnasonar, sem ræða við
Jóhann Briem framkvæmdastjóra og
Markús örn Antonsson ritstjóra.
20.00 Þaattir úr óporettunni „Sumar i
Týrór* oftir Bonatzky. Flytjendur:
Andy Cole, Mary Thomas, Rita
Williams, Charles Young ásamt kór og
hljómsveit Tonys Osbome.
20.35 „Oft or mönnum i hoimi haatt" Þátt-
ur um neyzlu ávana- og fikniefna.
Andrea Þórðardóttir og Gísli Helga-
son taka saman — fyrri hluti.
21.35 Slavnoskir danaar" oftir Antonín
Dvorák. Sinfóníuhljómsveitin í
Lundúnum leikur; Willi Boskovsky
stj.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danalög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. nóvember
8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður Páls-
son vígslubiskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Út-
dráttur úr forustugr. dagblaðanna.
8.30 Lótt morgunlög.
9.00 Fréttir. Hvor er i símanum? Arni
Gunnarsson og Einar Karl Haraldsson
stjórna spjall- og spurningaþætti í
beinu sambandi við hlustendur á Eski-
firði.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar.
11.00 Messa i Innra-Holmskirkju (hljóðr.
24. f.m ). Prestur: Séra Jón Einarsson
í Saurbæ. Organleikari: Baldur Sigur-
jónsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.15 HvaA or fiskihagfrœði? Gylfi Þ.
Gíslason prófessor flytur þriðja há-
degiserindi sitt: Sjávarútvegur 1
Evrópu.
14.00 Miðdegistónleikar: Frá hátíóartón-
leikum i Salzburg í ár, — fyrrí hl.
15.00 Þau stóðu í sviðsljósinu. Þriðji
þáttur: Brynjólfur Jóhannesson. Vig-
dís F'innbogadóttir leikhússtjóri tekur
saman og kynnir.
16.00 íslenzk einsöngslog. Einar
Kristjánsson svngur; Fritz Weiss-
happel leikur á píanó.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Á bókamarkaðinum. Lestur úr nýj-
um bókum. Umsjónarmaður : Andrés
Björnsson útvarpsstjóri. Kynnir: Dóra
, Ingvadóttir. Tónleikar.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „óli frá
Skuld" oftir Stefán Jonsson. Gísli Hall-
dórsson leikari les (7).
17.50 Stundarkom með kanadiska sembal-
loikaranum Kenneth Gilbert. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Tilkvnningar.
19.35 Orðabelgur. Hannes Gissurarson
sér um þáttinn.
20.00 Frá hátiðartónleikum i
Salzburg í ár, — siðari hluti: Filhar-
monlusveitin i Vín leikur ..Myndir á
sýningu" éftir Mússorgski. Hljóm-
sveitarstjóri: Riccardo Muti.
20.35 Dagskrárstjórí i klukkustund.
Hertha Jónsdóttir hjúkrunarkennari
ræður dagskránni.
21.40 „Requiem" eftir Pál P. Pálsson.
Pólýfónkórinn syngur. Söngstjóri:
Ingólfur Guðbrandsson.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi
Þorgilsson danskennari velur lögin og
k.vnnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.