Dagblaðið - 03.01.1977, Page 14
DA(iBLAÐIÐ. MÁNUDACUR 3. JANÚAR 1977.
íþróttir______________íþróttir___________________íþróttir______________íþróttir
UVERPOOL KOMIÐ MEÐ
4 STIGA FORUSTU Á NÝ
—en hef ur leikið f jórum leikjum meira en Ipswich
Það var kaldasti dagur vetrar-
ins á Bretlandseyjuni á lauftardag
ug enn bitnaði kuldinn mjög á
knattspyrnuleikjunum. AUs var
31 frestað — og þeir. sem háðir
voru. voru leiknir við hinar erfið-
ustu aðstæður. Liverpool vann
sigur á neðsta liðinu í 1. deild.
Sunderland. 2-0 á Anfield og
hefur nú fjögurra stiga forustu á
Ipswieh og Manch. City. Það er
auðvitað góð forusta. en hins
vegar hefur Liverpool leikið
fleiri leiki. Fjórum fleiri en Ips-
wieh og tveimur fleiri en Manch.
City.
En þó flestum þýðingarmestu
leikjunum væri frestað var þó
einn stórleikur — Maneh. Utd. og
Aston Villa léku á Old Trafford í
Manchester. Þar voru 56 þúsund
áhorfendur í nepjunni og
skemmtu sér konunglega —
flestir — i fyrri hálfleiknum, því
Manch. Utd. lék þá Aston Villa
sundur og saman. Stuart Pearson
skoraði þá tvívegis fyrir heima-
liöið — fyrst á 16. mín., síðan
þeirri 23. Mörk United hefðu
getað orðið mun fleiri með smá-
heppni. Knötturin small í stöng-
um marks Aston Villa, bjargað
var á marklínu auk þess, sem
John Burridge, markvörður Villa,
varði oft vel. Hann lék í markinu
á ný — en er þó enn á sölulista.
í síðari hálfleiknum breyttist
leikurinn hins vegar algjörlega.
Leikmenn Villa komu þá mjög
ákveðnir til leiks og náðu frum-
kvæðinu. Sóttu lengstum, en vörn
Maneh. Utd. með fyrirliðann,
Martin Buchan, sem bezta mann,
var þétt fyrir. Þó fengu leikmenn
Villa sín tækifæri — en þá var
fyrir sá þröskuldur, sem þeir réðu
ekki við. Alex Stepney átti einn af
sínum stórleikjum. Þrívegis
bjargaði hann hreint meistara-
lega. í lokin gáfu leikmenn Aston
Villa eftir og þá fór Manch. Utd.
að sækja á ný. David McCreery,
sem hafði komið inn sem vara-
maður Stuart Pearson, lék eitt
sinn inn í vítateig Villa, en var
brugðið af Leyton Phillips. Víta-
spyrna dæmd á stundinni. Sammy
Mellroy tók vitaspyrnuna — en
framkvæmdi hana illa og
Burridge varði auðveldlega.
Leiknum lauk því með 2-0 sigri
United.
Þetta var annar sigur Manch.
Utd. á tæpri viku eftir slænit
gengi frá því í byrjun október.
Leikmenn liðsins hafa öðlazt
sjálfstraust á ný með endurkomu
fyrirliðans, Martin Buchan.
Varnarleikurinn er nú allt annar
og betri. Þar breytir líka miklu að
Stewart Ilouston er byrjaður
aftur að leika með liðinu sem
vinstri bakvörður eftir veikindi.
Ungu strákarnir í framlinunni
virka sterkari við það að hafa
Jimmy (ireenhoff við hlið sér —
leikmanninn reynda, sem keyptur
var frá Stoke. Kantmennirnir,
Steve Coppell og Cordon Hill,
hafa ekki í annan tíma leikið
betur á leiktimabilinu — og sem
íþróttir
miðherji á Stuart Pearson fáa
jafningja á Englandi. Hann
skoraði bæði mörkin, en 10 mín.
fyrir leiksiok féll hann illa og
varð að yfirgefa völlinn drag-
haltur. Ekki í fyrsta skipti í vetur,'
sem hann meiðist.
Aston Villa tapaði þarna í ann-
að sinn í jólaleikjunum — en
sjaldan hefur lið leikið eins vel og
i síðari hálfleiknum á Old
Trafford án þess að uppskera
nokkuð. Liðin voru þannig
skipuð. Manch. Utd. Stepney,
Nicholl, Brian Greenhoff,
Buchan, Houston, Mcllroy,
Coppell. Jimmy Greenhoff, Pear-
son, Macari og Hill. McCreery
kom inn sem varamaður í lokin.
Aston Villa. Burridge, Smith,
Robson, Phillips, Nichols, Morti-
mer, Deehan, Little, Gray,
Cropley og Carrodus.
En við skulum nú lita á úrslitin
í þeim leikjum, sem háðir voru.
1. deild
Liverpool — Sunderland 2-0
Man. Utd. — Aston Villa 2-0
Middlesbro — Stoke 0-0
Norwich — Leicester 3-2
Tottenham — West Ham 2-1
Fram varð Reykjavíkurmeist-
ari í innanhússknattsp.vrnu í gær
er liðið sigraði Val 6-4 í úrslitum
— Fram hafði yfir í leikhléi 4-3
— mikil barátta og harka Fram
bar sigurorð af léttleikandi Vals-
mönnum — en þrátt fyrir sigur í
mótinu mátti Fram þola tap í
einum leik — gegn Þrótti 7-8 —
en hinum ungu Þrótturum tókst
ekki að nýta sér sigurinn gegn
Fram og tapaði dýrmætum stig-
um í undankeppninni.
Baráttan um þriðja sætið stóð á
milli Víkings og Þróttar — Vík-
ingur sigraði 8-6 — en lítum á
úrslit einstakra leikja í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu.
A-riðill
Fram — Þróttur 7-8
Leiknir — Ármánn 6-6
Fram — Árm^nn 11-4
Þróttur — Leiknir 6-8
Leiknir — Fram 3-11
Ármann — Þróttur 5-5
Staðan í riðlinum varð:
Fram 3 2 0 1 29-15 4
Þróttur 3 1 1 1 19-20 3
Leiknir 3 1 1 1 17-23 3
Ármann 3 0 1 2 15-22 1
Urslit i B-riðli:
KR — Fylkir 7-3
Valur — Víkingur 10-6
Fylkir — Valur 2-7
KR — Víkingur 3-4
Víkingur — Fylkir 7-5
Valur — KR 10-3
Staðan í riðlinum varð:
Valur 3 3 0 0 27-11 6
Víkingur 3 2 0 1 17-18 4
KR 3 1 0 2 13-17 2
Fylkir 3 0 0 3 10-21 0
()g Fram varð síðan Reykja-
víkurmeistari er liðið sigi raði Val
6-4 — Víkingur í þriðja sæti —
sigraði Þrótt 8-6.
2. deild
Blackburn — Nottm. For. 1-3
Blackpool — Hull 0-0
Bristol Rov. — Luton 1-0
Cardiff — Fulham 3-0
Chelsea — Hereford 5-1
Millvall — Wolves 1-1
Plymouth — Charlton 1-0
I skozku aðaldeildinni voru
tveir leikir. Rangers sigraði
Partich 1-0 á leikvelli sínum í
Glasgow, og Ayr sigraði Kilmar-
nock 3-1.
Rúmlega 45 þúsund áhorfendur
á Anfield voru mjög óánægðir ’
með leik Liverpool gegn neðsta
liðinu Sunderland. Liverpool náði
forustu á 16. mín. með marki Ray
Kennedy og loks á 69. mín. gátu
áhorfendur andað léttara, þegar
Phil Thompson skoraði annað
mark meistaranna. En á milli
hafði Sunderland-liðið sótt mjög
án árangurs. Góð tækifæri fóru
forgörðum og annað eftir því.
Dæmigert fyrir lið í neðsta sæti.
Ekkert heppnast.
Viv Busby hefur reynzt Nor-
wich vel síðan hann var keyptur
frá Fulham. Skoraði á laugardag-
inn öll mörk liðsins — þrjú tals-
ins, en inn á milli skoruðu þeir
Jon Sammels og Steve Earle fyrir
Reykjavíkurmeistarar í ein-
stökum flokkum urðn:
Kvennaflokkur: Fram — sigraði
Val 5-4
Leicester. Tottenham sigraði i
innbyrðis viðureign Lundúnalið-
anna þó svo Trevor Brooking
næði forustu fyrir West Ham
strax á 2. mín. Fimmtíu mín. síðar
jafnaði Keith Osgood úr víta-
spyrnu, sem dæmd var á
Bond. John Duncan skoraði sigur-
mark Tottenham. Stoke skoraði
ekki í fjórða leiknum i röð — en
náði þó stigi í Middlesbro. Stoke
hefur fengið enn einn „gamlan"
leikmann í sínar raðir. Keyptu
Alan Suddick frá Blackpool fyrir
15 þúsund pund. Kunnan leik-
mann, sem leikið hefur um 500
deildaleiki fyrir Newcastle og
Blackpool.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Liverpool 23 14 4 5 39-21 32
Ipswich 19 11 6 2 37-18 28
Man. City 21 9 10 2 28-16 28
A. Villa 21 11 3 6 47-26 25
Newcastle 19 9 6 4 32-23 24
Arsenal 19 9 5 5 36-29 23
Middlesbro 21 9 6 6 17-20 23
Birmingh. 21 8 5 8 32-28 21
Leicester 22 5 11 6 26-32 21
WBA 19 7 6 6 28-24 20
Leeds 19 6 7 6 24-25 19
Norwich 20 7 5 8 22-27 19
Man. Utd. 18 6 6 6 30-27 18
5. flokkur: Víkingur — sigraði
KR 7-2
4. flokkur: Valur — sigraði
Leikni 6-2
Coventry 18 6 6 6 24-23 18
Everton 20 6 6 8 31-38 18
Stoke 19 6 5 8 12-22 17
Derby 18 4 8 6 22-23 16
Tottenham 20 5 5 10 27-41 15
QPR 18 5 4 9 21-28 14
Bristol C. 18 4 5 9 17-22 13
West Ham 20 4 4 11 20-34 12
Sunderland21 2 5 14 13-33 9
2. deild Chelsea 23 13 6 4 41-31 32
Bolton 21 12 4 5 37-26 28
Wolves 21 10 7 4 51-27 27
Nott. For 21 10 7 4 45-24 27
Blackpool 22 9 9 4 32-23 27
Sheff. Utd. 20 7 8 5 24-22 22
Bristol R. 22 8 5 9 31-35 21
Millvall 19 8 4 7 29-23 20
Blackburn 21 8 4 9 22-30 20
Charlton 19 7 5 7 37-33 19
Luton 21 8 3 10 32-30 19
Hull 19 5 9 5 22-22 19
Fulham 21 6 7 8 29-31 19
Oldham 18 7 5 6 24-27 19
Cardiff 21 7 5 9 31-34 19
South’ton 21 6 7 8 34-38 19
Carlisle 22 6 6 10 25-39 18
Notts. Co. 18 7 3 8 26-31 17
Plymouth 21 4 9 8 25-32 17
Burnley 19 4 7 8 24-31 15
Orient 18 4 6 8 18-24 14
Hereford 20 3 5 12 28-49 11
.3. flokkur: KR — sigraði Víking
6-3
2. flokkur: Valur — sigraði Þrótt
11-3.
Fram setti Val út af
laginu með baráttu
—og uppskar Reykjavíkurmeistaratitilinn íinnanhússknattspyrnu
— Fram sigraði Val 6-4 f úrslitum