Dagblaðið - 29.04.1977, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. APRlL 1977.
Prentarar reyna stöðugt
að stöðva útgáfu Beríings
t fjórða skiptið í nótt urðu danskir lög-
regluþjðnar að sundra mannfjölda, sem safn-
aðist saman fyrir utan byggingu danska dag-
blaðsins Berlingske Tidende. Um það bil eitt
þúsund manns, atvinnulausir prentarar og
stuðningsmenn þeirra, söfnuðust saman við
innganga Berlingske hus. Ekki kom til átaka.
Berlingske Tidende kom út á mánudag-
inn í fyrsta skipti eftir þriggja mánaða verk-
fall. Prentarar sjá þó ekki um tæknivinnu
blaðsins, heldur verkstjórar. Blaðið er nú
sextán blaðsíður að stærð.
Bréfberar í Kaupmannahöfn hafa margir
hverjir neitað að bera út póst í eigu
Berlingska útgáfufyrirtækisins. Með því vilja'
þeir lýsa yfir stuðningi við baráttu prentara
gegn útgáfufyrirtækinu. Alls eru það um eitt
þúsund prentarar, sem var sagt upp störfum
á Berlingi eftir að þeir neituðu í þrígang að
hlíta úrskurði vinnumáladómstóls Dan-
merkur um að verkfall þeirra væri ólöglegt.
Anker Jörgensen forsætisráðherra Dan-
merkur, sagði i fyrrakvöld, að hann tryði því
ekki, að bað vx-ru prentarar, sem stæðu fyrir
ólátumog s'ieiiímdaverkastarfsemi fyrir utan
Berlingske hiis á nóttunni. ,,Það eru atvinnu-
menn í ofbeldisaðgerðum og ekkert annað,“
sagði Anker og var reiður.
bréfberar styðja þá íbaráttu sinni
1»
Forsætisráðherra Danmerkur kveður
ólátaseggina ekki vera prentara heldur at-
vinnumenn í að efna til óiáta.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
$e///ð Vikuna,
þaöborgarsig
Hringiö ísíma35320
og fáiö föst söluhverfi
VIKAN
Oft fylgir böggull skammrifi...
Erfðu miHjarða, —
fá ekki að nota þá
næstu 11 árin
Þýzki ríkisbubbinn Ernst-
Wilhelm Saehs, sem lézt um
páskana, hefur arfleitt þrjár
dætur sínar á aldrinum 14—18
ára að öllum fjármunum sínum
— um það bil 250 milljón
mörkum, sem nemur rúmum
tuttugu milljörðum islenzkra
króna. Sá böggull fylgir þó
skammrifi, að þær fá féð ekki
afhent fyrr en árið 1988.
Það var bróðir milljóna-
mæringsins, Gunther Sachs
glaumgosi, sem tilkynnti um
arfinn. Hann kvað fjárhalds-
mann mundu fara með pening-
ana næstu ellefu árin. Þangað
til hefðu stúikurnar þrjár
ekkert yfir peningunum að
segja og gætu engin áhrif haft
á, hvernig þeim væri ráðstafað.
Bandarísku forsetahjónin.Myndin var tekin kvöldið, sem Jimmy tók
við embætti forseta.
Frú Carter
gekkst undir
skuröaðgerö
Rosalynn, eiginkona Carters
Bandaríkjaforseta, gekkst
undir skurðaðgerð á brjósti í
nótt. Við venjulega læknisrann-
sókn í gær, kom í ljós, að æxli
hafði myndazt í brjósti hennar
og var það þegar í stað numið
burtu. Það reyndist vera
góðkynjað.
Forsetafrúnni var leyft að.
fara heim, þegar að aðgerð
lokinni. Blaðafulltrúi hennar
segir, að þetta atvik hafi engim
áhrif á dagleg störf frúarinnar.
I þessu sambandi má geta
þess að annað brjóstið var tekið
af Betty Ford, fyrrverandi for-
setafrú, á meðan hún bjó í
Hvíta húsinu. Fyrrverandi
varaforsetafrú Bandaríkjanna,
Happy Rockefeller, hefur þurft
að láta taka af sér bæði ui jóstin
eftir að uppgötvaðist að i;ún
var með krabbamein.
Suður-Afríka:
Nakti
apinn
bannaður
Yfirvöld í Suður-Afríku
hafa bannað að bókin Nakti
apinn eftir Desmond
Morris verði höfð til sölu I
landinu. Ástæðan er sögð sú,
að ritskoðarar telji bókina
„óæskilega".
Á forsíðu bókarinnar er
mynd af nöktum manni,
konu og barni, sem snúa
baki við lesandanum. Þessi
mynd er meðal annars talin
ærin ástæða fyrir banninu.
— Nakti apinn hefur
fengið mjög góðar viðtökur
um víða veröld.
Lissabon:
Lögreglan
handtók
29
dópista
Lögreglan í Lissabon í
Portúgal tilkynnti í gær-
kvöld, að hún hefði hand-
tekið 29 eiturlyfjaneytendur
í borginni kvöldið áður og
lagt hald á mikið magn af
marijuana og öðrunt eitur-
lyfjum. Meðal hinna hand-
teknu voru tólf konur. Hinir
voru ýmist stúdentar eða
flóttamenn, srm nýlega
höfðu komið til Portú^al frá
gömlu nýlendunum, Angola
og Mosambik.
Að sögn lögreglunnar var
þessi handtaka liður i hert-
um aðgerðum gegn vaxandi
eiturlyfjaneyzlu og -sölu í
Lissabon.
REUTER