Dagblaðið - 29.04.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1977.
7
Olfugosié hætti í 30
sekúndur
—en hófst síðan að nýju
með endumýjuðum krafti
Tilraunir til að stöðva olíu-
gosió á Bravo borpallinum á
Norðursjó báru þann árangur í
gær, að gosið stöðvaðist í hálfa
mín., en hófst síðan að nýju.
Ástæðan fyrir því að aðgerð-
irnar mistókust var sú, að
öryggisloki hafði verið settur
öfugur á sinn stað á föstudags-
kvöldið síðasta.
Aðalhetjan í því að stöðva
olíugos, Paul „Red“ Adair
kemur á neyðarsvæðið í dag til
að líta olíugosið eigin augum.
Phillips olíufélagið, sem sér um
rekstur Bravo-oliuborpallsins,
segist hafa beðið Adair að koma
til að líta á vegsummerki. Það
var skýrt tekið fram að þarna
væri aðeins um reglulegt eftir-
lit að ræða, — en ekki van-
traust á björgunarlið Adairs og
sjálfboðaliða sem hafa barizt af
hörku við að reyna að stöðva
gosið.
Talsmaður Phillips sagði í
nótt, að í dag yrði reynt að
koma sérstökum pípuútbúnaði
um borð í Bravo. Útbúnaður
þessi er til þess gerður að
minnka gosbununa, sem í er
jarðolía, leir og mikil gufa.,
Þetta hefur einnig í för með
sér, að gasútgufun minnkar og
það þýðir minnkandi eldhætta.
— Þá var jafnframt tilkynnt að
hafizt yrði handa við að setja
upp nýjan olíuborpall skammt
frá Bravo. Það er gert til að
hægt verði að minnka spenn-
una undir hafsbotni. Jafnframt
á að kanna, hvort það hafi haft
örvandi áhrif á olíugosið að
aðrir borpallar olíufélagsins
hafa ekki verið í notkun síðan
óhappið átti sér stað.
Erlendar
fréttir
ÁSGEiR
TÓMASSON
Enn veikist staða brezku stjórnarinnar:
TAPAÐIENN EINUM MANNI
í AUKAKOSNINGUNUM í GÆR
Brezka Ihaldsflokknum jókst gær. Þingmannsefni hans í
enn megin í aukakosningum í Ashfield í Mið-Englandi bar
Eru skæruliðarnir
að deyja úr hungri?
Verjendur v-þýzku borgar-
skæruliðanna þriggja, Andreas-
ar Baader, Gudrunar Ennslin
og Jan-Carls Raspe, óttast að
þau séu að deyja úr hungri. —
Þau þrjú voru dæmd til lífs-
tíðar fangelsisvistar í gær fyrir
morð og sprengingar.
Skæruliðarnir þrir, sem eins
og kunnugt er, tilheyra Baader-
Meinhof samtökunum svoköll-
uðu, hafa nú setið í fangelsi
síðan í júní 1972. Þau hafa
verið í hungurverkfalli í mánuð
til að mótmæla aðbúnaði í fang-
elsum þeirra. — Einn félagi
þeirra, sem var settur í fangelsi
um svipað leyti, lézt í nóvember
1974 eftir 135 daga föstu.
Samkvæmt vestur-þýzkum
lögum þýðir lífstíðarfangelsi
það að fangar skuli sitja inni
þar til þeir deyja.
Andreas Baader. Hann og
félagar hans hafa nú svelt sig í
fjórar vikur, en félagi þeirra
héit hungurverkfali út í 135
daga áður en hann lézt.
sigurorð af manni Verkamanna-
flokksins. Aftur á móti tókst
Verkamannaflokknum að halda
sínu þingsæti í Grimsby, — sæti
Anthonys Crosland. — Þessi úr-
slit veikja enn ríkisstjórn Verka-
mannaflokksins, sem þó var orðin
völt í sessi fyrir.
Kosningaþátttaka i Ashfield
var með eindæmum dræm, —
aðeins 59% kjósenda mættu á
kjörstað. I kosningunum í október
1974 hafði Verkamanna-
flokkurinn um það bil 23.000 at-
kvæða meirihluta. Nú hlaut þing-
mannsefni íhaldsflokksins 264 at-
kvæðum meira en Verkamanna-
flokkurinn. Sjónvarpsfrétta-
maðurinn Austin Mitchell sigraði
með aðeins 520 atkvæða meiri-
hluta í Grimsby. Crosland sigraði
þar árið 1974 með 6.900 atkvæða
meirihluta.
ErKarl
aðnásér
i kvon-
fang?
Karl Bretaprins og
Karólína prinsessa af
Mónakó snæddu kvöldmat
saman í gærkvöld í einu
flottasta hótefi Mónakó.
Blaðamenn, sem hafa verið
iðnir við að gifta Karl
hinum og þessum konum að
undanförnu, þóttust himin
höndum hafa tekið er þeir
fréttu af matarboðinu. Það
var bara einn galli á gjöf
Njarðar: Pabbi, mamma og
litli bróðir Karólínu voru
líka viðstödd.
Brezki prinsinn hefur
verið í skíðafríi í Frakklandi
að undanförnu. Hann er nú
29 ára gamall. Hann hefur
látið hafa það eftir sér að
hann telji hentugt að gifta
sig, þegar hann verði þrí-
tugur. Da, da ra da.
Páll páfi og erkibiskupinn af
Kantaraborg ræðast við
Eftir tilslakanir kaþólsku kirkj-
unnar árið 1966 var talið að Páll
páfi væri á móti frekari hreyting-
um deildarinnar við aðrar kirkju-
deildir.
Búizt er við þvi, að Páll páfi
sjötti og erkibiskupinn af
Kantaraborg gefi út sameiginlega
yfirlýsingu í dag um nýjar til-
raunir til að ná á sáttum milli
þeirra sex hundruð milljóna
manna, sem aðhyllast kenningar
kaþólsku kirkjunnar, og hinna 65
milljónanna sem teljast til bisk-
upakirkjunnar.
Páll páfi og Coggan erkibiskup
af Kantaraborg hittust í gær í
fyrsta skipti og ræddu saman
góða stund um að reyna að sam-
ræma betur kenningar kirkju-
deildanna tveggja. Embættis-
menn kirknanna, sem viðstaddir
voru hluta viðræðnanna, kváðust
í gærkvöld ekki geta sagt neitt
um, hvað leiðtogunum fór á milli.
Fréttamenn, sem fylgjast með
þessari hlið heimsmálanna, telja
þó að aðallega hafi verið rætt um
giftingar kaþólikka og meðlima
biskupakirkjunnar.
Árið 1966 slakaði kaþólska
kirkjan mjög á kröfum sínum um
blandaðar giftingar, eins og það
er nefnt. Þá var kaþólikkum leyft
að giftast fólki úr öðrum kirkju-
deildum án þess að sá fyrirvari
fylgdi, að hinn aðilinn mætti ekki
skipta sér af trúarlegu uppeldi
barna. Hingað til hefur verið talið
að Páll páfi væri ekki til viðræðu
um frekari tilslakanir fyrr en
hinir hefðu fellt sig við nokkur
átriði svo sem vald páfans og af-
stöðu til kvenpresta.
Gömlu kirkjuleiðtogarnir tveir
ræddust við í einkabókasafni Páls
páfa í Vatikaninu i gær. í dag
hyggjast þeir biðjast fyrir saman
og strax á eftir er búizt við að
erkibiskupinn efni til blaða-
mannafundar. Ilann ræðir við
leiðioga grísk-kaþólsku kirk.junn-
ar á morgun.
PATRIARCA
- finnsk lista hönnun, islensk listasmíó. Viö höfum yfir 40 gerðir
af sófasettum, Patriarca er aóeins
eitt af þeim. Dýrt? Þaó er álitamál.
Húsgagnadeild
Jón Loftsson hf.
L i Cj l2 r': r? :;i rm n Cí Lj 11_j’ • I 1 i-n-ijV u 11!!--
1 1 lllJIJI Tl' LITTT-
Hringbraut 121 Sími 2 860'