Dagblaðið - 29.04.1977, Side 8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1977.
Júdódeild
Ármanns
heimsótt:
Karlarnir fá að
sprikla i hádeginu"
— þar er verðlaunað fyrir
góðarmætingar
Brynja Krisljánsson fékk verðlaun fyrir góðar mætingar, ferð til Kaupmannahafnar.
„Hér byrjuðu 14 konur fyrir
fimm árum en nú eru þær
orónar 500“, sagöi Sigríður
Lúthersdóttir, kennari hjá
Júdódeild Ármanns, í samtali
við DB. „Það var nauðsynlegt
að húsnæðið að Ármúla 32 nýtt-
ist sem bezt og þess vegna fór-
um við af stað með leikfimi
fyrir konur,“ sagði Sigríður.
Hún sagði að það væri mjög
kostnaðarsamt að fá hingað til
lands góða japanska þjálfara
„og það má segja að konurnar
eigi sinn þátt í því að við eigum
svona góða júdómenn“,
Verðlaun fyrir
góðar mœtingar
Margar konur, sem byrjuðu
fyrir fimm árum, eru ennþá í
leikfimitímum hjá Sigríði. Þar
er kennt frá klukkan hálfníu á
morgnana og fram til klukkan
sex á daginn. Þriðjudaga og
fimmtudaga er kennsla á kvöld-
in en þá eru júdómenn ekki við
æfingar i salnum. Hina daga
vikunnar æfa þeir frá klukkan
sex.
Veitt eru verðlaun fyrir
beztar mætingar og i fyrravor
var það Brynja Kristjánsson
sem fékk ferð til Kaupmanna-
hafnar fyrir góða ástundun.
Nemendur Sigríðar eru á öll-
um aldri en hún nefndi sérstak-
lega Þórdísi Davíðsdóttur sem
byrjaði hjá henni þegar hún
var um sjötugt. Hún slær ekki
slöku við og hefur verið í leik-
fimi í fjögur ár.
Sérstakir flokkar eru fyrir
konur sem vilja grenna sig og
sú sem duglegust var á síðasta
námskeiði léttist um 30 kíló.
Karlarnir koma
í hódeginu
Fljótlega eftir að konurnar
fóru að koma í leikfimitímana
fóru þær að sþyrjast fyrir um
hvort hægt væri að fá tíma fyrir
eiginmennina. Fór svo að þeir
fengu tíma í hádeginu þrisvar í
viku. Þeir virðast vera hæst-
ánægðir með kennarann, þó
hann sé kona. Sigríður kann
sitt af hverju í þrekæfingum
frá þeim tíma þegar hún var í
íslenzka kvennalandsliðinu í
handknattleik.
Farið í sólbað ó staðnum
Hægt er að fara í gufubað og
fá nudd í Ármúlanum. Líka er
jhægt að fara í sólbað á staðn-
'um, í góðum ljósalömpum. Eftir
tímana er svo öllum boðið upp á
kaffi á eftir, svona til þess að
hressa enn betur upp á mann-
skapinn. KP.
Þórdis Davíðsdóttir (sú sem situr) byrjaði i leikfiminni þegar hún var komin yfir sjötugt og vantar
varla í nokkurn tíma.
„og upp, alveg upp í loft.“ Sigriður er lengst til hægri.
Álafoss á. nú að freista gæfunnar íNígeríu:
Lagarfoss
enn kyrr
- ferðin líklegast lengsta ferð „fossanna” til þessa
Enn er óvíst um heimkomu
Lagarfoss frá Nígeríu, nema hvað
Eimskip fékk í gær skeyti frá
umboðsmönnunum í Nígeríu þess
efnis að losun lyki í dag og skipið
gæti þá haldið heim á leið. Að
sögn blaðafulltrúa Eimskips hafa
slíkar upplýsingar áður borizt
þaðan án þess að eiga við rök að
styðjast. Ekkert heyrðist frá skip-
stjóranum sjálfum í gær.
Lagarfoss var ferðbúinn full-
hlaðinn skreið 4. febrúar sl. en
lagði ekki úr höfn fyrr en 11.
marz. Eftir hálfsmánaðar siglingu
til Nígeríu þurfti skipið að bíða í
hálfan mánuð eftir að losun
hæfist, eða til 11. apríl. Fór losun
fram annað veifið til 18. apríl en
var hætt er 157 tonn voru enn
eftir í skipinu. Siðan hefur ekkert
frétzt þar tii skeytið kom í gær,
sem ekki er hægt að byggja fylli-
lega á.
Hafi skipið farið í gær eða fari
það í dag verður það ekki komið
hingað fyrr en undið miðjan maí
og verður þá hálfur fjórði
mánuður liðinn frá því lestun
hófst fyrir ferðina og þar til
skipið kemur. Mun það vera
lengsta eða ein lengsta ferð skips
frá Eimskip til þessa.
Álafoss er nú nýlagður af stað
til Nígeríu einnig og sagði blaða-
fulltrúinn, að vonazt væri til að
losun hans gengi betur. Þó vildi
hann ekki fullyrða að það væri
neitt öruggara en með Lagarfoss
nema hvað Álafoss væri minni og
möguleikar væru meiri á skjótri
losun þess vegna. Þá ætti hann að
losa í-Lágos en Lagarfoss er að
losa í Port Harcourt. Ástandið í
höfninni í Lagos mun þó lítið eða
ekkert skárra, en í Port Harcourt.
Skv. upphaflegum áætlunum
(væri a.m.k. þrem skreiðarferðum
lokið héðan til Nígeríu en önnur
ferðin er nú að hefjast og þeirri
fyrstu ekki lokið. G.S.
Brotizt inn
hjá AA
Innbrot var framið í hús
AA-samtakanna að Tjarnar-
götu 3C í fyrrinótt. Var
komið að útihurðinni brot-
inni og skemmdri í gær-
morgun. Ekki varð þess vart^
að nokkru hafi verið stolið
og ekkert orðið að utan úti-
dyrabrotsins. Er því ekki
ljóst eftir hverju innbrots-
maðurinn hefur verið að
slægjast — nema þá andleg-
um krafti helzt.
-ASt.
??Kúnstugur dagur í þinginu”
„STJÓRNIN ER
— sagði utanríkisráðherra
„Bétri stjórn en engin,“ sagöi
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra í ræðu á Alþingi í fyrra-
dag og Gils Guðmundsson (AB)
sagði að stemjna þyrfti stigu við
hernaðarbandalögum, Alþýðu-
bandalaginu og Varsjárbanda-
laginu! Þetta var því kúnstugur
dagur á þinginu.
Utanríkisráðherra sagði sem
svo að betra hefði verið að setja
BETRIEN ENGIN”
núverandi stjórn á fót en enga
stjórn. Hann sagðist vera
andvígur hersetu eins og
margir í lýðræðisflokkunum
svokölluðu. Þá sagði hann að
Grænland þyrfti að fá aðild að
Norðurlandaráði.
Þingmenn nlógu að 'fyrr-
greindum ummælum Gils en
hann sá ekki að honum hafði
orðið mismæli og sagt „Alþýóu-
bandalag" í stað Atlantshafs-
bandalags.
Ummæli utanríkisráðherra
vöktu að vonum mikla athygli.
HH