Dagblaðið - 29.04.1977, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2». APRlL 1977.
9
Austra snúið frá Reykjavíkurhöfn vegna sprengihættu í farmi:
Fékk /egup/áss i
Hafnarfjaröarhöfn
—óhættað
takahann
þangaðeins
ogstör
olíuskip, segja
hafnsögumenn
FLUGLEIÐIRINNANLANDSFLUG
FLUGLEIÐIRINNANLANDSFLUG
Er flutningaskipiö Austri var á
leið austur með Suðurlandinu
fyrir skömmu með 150 tonn af
kjarnaáburði innanborðs varð
vélarbilun i skipinu er það var
statt mðts við Þorlákshöfn. Var
bilunin það alvarleg að kalla
þurfti björgunarskipið Goðann til
aðstoðar.
Tók Goðinn skipið í tog og
hugðist draga það til Reykjavikur
þar sem fyrirhugað var að viðgerð
færi fram. Er hafnaryfirvöld í
Reykjavík fréttu hvaða farmur
væri um borð neituðu þau skipinu
um viðlegupláss.
Að sögn hafnarstjóra í Reykja-
vik 1 viðtali við DB var þetta gert
af öryggisástæðum þar sem kjarn-
inn er ammoníak og getur sprung-
ið. Sagði hann að stðrtjón hafi
oftar en einu sinni hlotizt af þess
háttar sprengingum i erlendum
höfnum og mæltu öryggisreglur
Reykjavíkurhafnar svo fyrir að
skipi með yfir 25 tonna farm af
þessu efni væri ðheimilt að koma
inn í höfnina. Reglur þessar hafi
verið settar þegar Aburðarverk-
smiðjan i Gufunesi tók til starfa.
Áður fóru áburðarflutningar til
landsins að verulegu leyti um
Reykjavikurhöfn, en þá var
áburðurinn meira blandaður og
ammoníakshlutfall margfalt
minna en i hreinum kjarna.
Hins vegar fékk skipið leyfi til
að leggjast að bryggju í Hafnar-
fjarðarhöfn og er það þar nú. Að
sögn eins hafnsögumanna þar
mega skip koma þangað með 50
tonna farm af kjarna, eða
þriðjung þess sem er um borð í
Austra. Hins vegar sagði hann að
m .........>
Austri í Hafnarfjarðarhöfn með
ammoníaksfarminn sem hafnar-
yfirvöld i Reykjavfk vildu ekki fá
inn í höfnina af öryggisástæðum.
í Hafnarfirði getur skipið legið
fjarri öllum mannvirkjum nema
bryggjunni. DB-mynd Bj.Bj.
par sem skipið væri nú, sunnan- virkjum, ætti ekki að stafa hætta
megin hafnarkjaftsins við af þvi. Þar fengju t.d. stór oliu-
bryggju f jarri öllum mann- skip að leggjast upp ao. G.S.
NYTT SIMANUMER
Frumvarp á Alþingi
Ríkisstjórnin
bannar reykingar
— ívistarverum sem ætlaðar eru til
OKKAR:
FRA 0G MEÐl.MAI 1977
VERÐUR SÍMANÚMER
Enn meiri lán
— rní 2900 milljónir frá Bandaríkjunum
Enn tökum við lán erlendis. í
gær var gengið frá lántöku fyrir
ríkissjóð að fjárhæð 15 milljónir
dollara, eða 2900 milljónir ísl.
króna. Lánsféð verður endur-
lánað að hálfu til Sigölduvirkjun-
ar og að hálfu til Hitaveitu Suður-
nesja vegna yfirstandandi fram-
kvæmda við hana. Lánið er til 15
ára og er afborgunarlaust tyrstu o
árin, en endurgreiðist síðan með
jöfnum afborgunum á 10 árum
með 10% vöxtum. — Ekki er þess
nákvæmlega getið i fréttatilkynn-
ingu fjármálaráðuneytis hvaðan
lánið er fengið, — það kemur af
„bandariskum fjármagnsmark-
aði“. -JBP-
almenningsnota
„Eg er viss um að herferð
krakkanna í vetur gegn tóbaks-
reykingum hefur haft sin áhrif
á að nú hefur verið lagt fram á
Alþingi þetta stjórnarfrumvarp
um tóbaksreykingar," sagði
Þorvarður örnólfsson fram-
kvæmdastjóri Krabbameins-
félags Reykjavíkur í samtali við
DB. Þorvarður sagði að með
þessu frumvarpi hefði verið
stigið stórt skref og nú væru
reykipgavarnir taldar með
heilbrigðismálum almennt.
Stjórnvöld hyggjast með
þessu frumvarpi um tóbaks-
reykingar afla sér heimildar til
að banna tóbaksreykingar í
þeim vistarverum sem ætlaðar
eru til almenningsnota. Einnig
er í ráði að herða enn meir á
auglýsingabanni um tóbaks-
varning. Verður þá komið í veg
fyrir það að auglýsendur geti
farið í kringum lögin i. þessu
tilliti.
Það er ráðherra sem er
heimilt að banna reykingar í
byggingum sem notaðar eru
fyrir almenning. Eigendum og
stjórnendum skal tilkynnt um
aðgerðir og þeir hafðir með í
ráðum, áður en til reykinga-
banns kemur.
Öll farartæki sem rekin eru
gegn gjaldi skulu lúta reglum
um reykingabann að nokkru
eða öllu leyti.
Ráðherra er heimilt að skipa
nefnd, sem sér um framkvæmd
þessar laga og einnig um ýmsar
aðrar aðgerðir gegn tóbaks-
reykingum.
Stefnt er að því að afgreiða
þetta frumvarp á þessu þingi.
-KP
Það er reykl í þinginu eins og víðar, — kannski þurfa þingselar
cinhvern tima að bregða sér út til að fá sér reyk? —
Týndur taflmaður
Eftir maraþoneinvígið komst
einn þátttakenda að því að tafl-
mönnum hans hafði fjölgað um
einn. Gerðist petta meðan næst
síðasti hópurinn tefldi við Hort.
Telur hann að sessunautur
hans eigi taflmanninn. Vill
hann nú koma manninum til
síns „heima“. Sá sem saknar
manns úr tafli sínu er béðinn
að hafa samband við Dagblaðið,
sem mun sjá um að koma
hlutunum i lag.
-JBP-
íslendingar í bjórborginni MUNCHEN:
VILJA ÍSLENZKAN BJÓR -
STERKAN 0G LÍKA ÓDYRAN
Miinchen-búar búa líklega við
bezta bjór I veröldinni. Það er því
ekki að undra þótt Islendingar
þar í borg hafi myndað sér skoðun
á bjórmálum almennt. Félag
Islendinga í Mtinchen hefur
fjallað um málið á fundum sínum
og samþykkt ályktun.
Þeir telja að með því að aflétta
banni á sölu áfengs bjórs verði
„aflétt neyzlubanni, sem beinzt
hefur gegn þeim fjölda lands-
manna, er vilja neyta léttra,
áfengra drykkja, auk, eða í stað,
sterkra drykkja.“
Telja þeir að misnotkun
áfengis sé ekki nægileg ástæða
fyrir algjöru eða afmörkuðu
banni á neyzlu áfengra drykkja.
Benda þeir á að misnotkun fylgi
flestri neyzlu, t'.d. lyfja, kaffis og
sælgætis. Sé þó ekki brugðist við
með róttækum aðgerðum gegn
þessum vörutegundum. Álítur
fundurinn að bjór gæti dregið
verulega úr heiisuspillandi
notkun á svefnlyfjum, róandi,
töflum, kaffi og gosdrykkjum.
Þá telur fundur Islendinganna
í bjórborginni að óhóflag verð-
lagning bjórs, ef leyfður yrði á
Islandi, væri ólýðræðisleg athöfn
stjórnvalda gagnvart neyzluvenj-
um hluta landsmanna.
„Flest þau vandamál, sem
fylgja áfengisneyzlu, eiga rætur
sínar að rekja til félagslegra
' vandamála, sem ekki verða leyst
með boðum og bönnum, segir i
ályktuninni. Þá er fundurinn
sammála um að í áliti and-
stæðinga bjórsins komi fram
furðanlegt vantraust á siðþroska
og dómgreind Islendinga. Hvetja
landar í MUnchen bjórmenn að
fylkja liði og sýna meiri sam-
stöðu. JBP