Dagblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 10
10
frjálst, úháð dagblað
Utgefandi Dagblaðið hf.
Framkvœmdastjori: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas krístjánsson.
Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrui: Haukur Helgason. Skrifstofustjórí ritstjórnar:
Johannos Reykdal. íþrottir: Hallur Símonarson. AAstoðarfróttastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón
Sævar Baldvinsson. Handrit: Ásgrimur Pálsson.
Blaðamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Ema V. Ingólfsdóttir. Gissur
'Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob Magnússon, Katrín Palsdóttir, Krístín Lýðs-
dóttir, Ólafur Jónsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lár. Ljósmyndir: Bjamleifur Bjamleifsson,
iHörður Vilhjálmsson, $voinn Þormoðsson.
Skrifstofustjori: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkorí: Þrainn t»orleifsson. Dreifingarstjóri: Már E.. M.
Halldórsson.
Askriftargjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60 kr. eintakið.
Ritstjórn Síðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og afgroiðsla Þverholti 2, sími 27022.
Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5.
Mynda-og plötugerð: Hilmirhf., Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skoifunni 19.
Fágæt stjórnvizka
Stundum detta íslenzk stjórn-
völd niður á skemmtilegar lausnir
á vandamálum, sepi gætu virzt
óleysanleg. Einkum á þetta við um
deilumál, þar sem fjölmennur
minnihluti er harðlega andvígur
skoðunum meirihlutans.
Nokkuð traustur meirihluti þjóðarinnar er
andvígur hundahaldi í þéttbýli og bruggun og
sölu áfengs öls. Skoðanakannanir hafa leitt í
ljós, að þessi meirihluti helzt óbreyttur ár eftir
ár.
Hins vegar benda niðurstöður skoðanakann-
ana til þess, að meirihlutamennirnir hafi ekki
meiri samanlagða sannfæringu en minnihluta-
mennirnir hafa. Bjarni Einarsson, fyrrverandi
bæjarstjóri á Akureyri, hefur hvað ölið snertir
sett fram athyglisverða túlkun skoðanakann-
ana einmitt í þessum dúr í Dagblaðinu.
Alténd er í báðum þessum málum ljóst, að
minnihlutinn er fjölmennur og harðákveðinn í
afstöðu sinni. Þess vegna þarf að taka tillit til
hans eins og venja er í lýðræðisríkjum, þótt
meirihlutinn fái meiru að ráða.
Stjórnvöld hafa reynt að leysa bæði þessi
vandamál með því að láta sjónarmið meirihlut-
ans gilda á yfirborðinu, en veita minnihlutan-
um um leið ýmsa undankomumöguleika. Þetta
veldur því, að báðir deiluaðilar eru tiltölulega
ánægðir með sinn hlut.
Bruggun og sala áfengs öls er bönnuð hér
á landi og sömuleiðis er hundahald í þéttbýli
yfirleitt bannað. Þar með hefur meirihlutinn á
báðum þessum sviðum haft sitt fram og getur
verið tiltölulega ánægður.
Hins vegar geta menn yfirleitt haft hunda í
þéttbýli þrátt fyrir bannið. í Reykjavík verða
menn þó að fara mjög gætilega og láta lítið bera
á hundum sínum. Lögreglan virðist ekki hafa
afskipti af öðrum hundum en þeim, sem valdið
hafa vandamálum.
í mörgum byggðum í nágrenni Reykjavíkur
er bannið mun mildara. Þar getur hver sem er
fengið undanþágu gegn banninu og látið skrá
hunda sína opinberlega gegn nokkuð háu
gjaldi. Þeir, sem eru hræddir um hunda sína í
Reykjavík, geta auðveldlega flutt sig um set í
einhvern svefnbæinn í nágrenninu.
Og menn geta líka haft sinn áfenga bjór þrátt
fyrir bannið. Menn geta í fyrsta lagi keypt
hann af farmönnum, sem undanþágu hafa. í
öðru lagi geta menn bruggað hann sjálfir úr
ágætum hráefnum, sem fást í flestum matvöru-
verzlunum. Og í þriðja lagi geta þeir hellt
örlitlu kláravíni út í venjulega ölið. Reynir
Hugason verkfræðingur skýrði þetta ýtarlega í
Dagblaðinu nýlega og rakti kostnað hverrar
leiðar fyrir sig.
Hvort sem um hunda eða áfengan bjór er að
ræða, þurfa menn að hafa örlítið fyrir hlutun-
um, ef þeir vilja komast undan hinu formlega
banni. Þessi fyrirhöfn gæti dregið úr fjölda
þeirra, sem annars mundu hafa hunda og
áfengt öl. Bannmenn á þessum sviðum þurfa
því ekki endilega aö vera óánægðir með undan-
þágurnar.
Hliðstæð dæmi eru fleiri. Formlega séð eru
prestar kosnir hér. En biskupsskrifstofan
hefur meo vaxandi árangri beitt sér fyrir því,
að ekki sé nema einn prestur í kjöri í hverjum
kosningum.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1977.
Prúðu leikararnir slá ígegn víðarená íslandi:
Elztu brúðumar
eru orðnar tvítugar
• Tvær elztu fígúrurnar i sýningu Prúðu
leikaranna eru skammtikrafturinn Fossi björn
og kynnirinn Kermit froskur. Kermit hefur til
dæmis verið sjónvarpsstjarna í 21 ár.
• Til hliðar: Grade lávarður „uppgötvaði“
Prúðu leikarana, ef svo má að orði komast.
Hann er sagður sérstaklega naskur á að
uppgötva efni sem hinum almenna áhorfanda
feilur í geð. Sjálfur segir hann: „Ég hef
venjulegan smekk þvi að ég er venjulegur
maður.“ — Hann kynntist Prúðu leikurunum
fyrst er þeir voru gestir í skemmtiþætti Julie
Andrews.
t flestum löndum heimsins er
og var litið á leikbrúðusýningar
sem annars flokks skemmtiefni
fyrir börn. Sú skoðun er nú
ððum að breytast og er það
sjálfum Prúðu leikurunum að
þakka. Þeir eru nú sem ððast að
leggja heiminn undir sig, —
þegar þetta er skrifað hafa
sjónvarpsstöðvar i 100 löndum
keypt sýningarrétt á þáttum
Prúðu ieikaranna.
Þættirnir um Prúðu
leikarana nefnist „The Muppet
Show“ á ensku og er nafnið
samsett af orðunum Marionette
og puppet. Bandarískur
maður, Jim Henson, stendur að
baki sköpun þessara skemmti-
legu furðufugla, sem birtast á
sjónvarpsskjánum. Hann gerir
þætti sína í Englandi og þar
hafa þeir slegið í gegn svo að
um munar. Það eru ekki bara
börnin sem elska Prúðu
leikarana, — fullorðið fólk er
ekki síður hrifið af skratta-
kollunum. Fölk safnast saman
fyrir utan glugga sjónvarps-
verzlana þegar þættirnir hefj-
ast. Eitt sinn voru Prúðu
þættirnir færðir frá helgi fram
í miðja viku i Manchester.
Bálreiðir aðdáendur réðust að
sjónvarpsstöðinni og kölluðu
starfsfólkið alls kyns ónefnum,
svo sem morðingja Prúðu
leikaranna og annað í þeim dúr.
Þættirnir voru færðir á sinn
gamla stað í dagskránni.
Jafnvel gagnrýnendur, sem
þykja fremur fúlir í lund hvers-
dagslega, viðurkenna að sjón-
varpsþættir Prúðu leikaranna
séu skemmtilegir
Þó ;.ð Pruðuieikaraæðið sé
nokkuð nýtt af nálinni, fer því
fjarri að brúðurnar séu nýjar.
Kynnir þáttanna, Kermit
froskur, kom til dæmis fyrst
fram sjónvarpi í Bandaríkjun-
eru baktjaldafólkið, skemmti-
kraftarnir og áhorfendur.
Hver þáttur gengur út
á tilraunir og ' erfiðleika
brúðanna við að komast í gegn-
um öll atriði þáttarins. Jafn-
framt er fastur liður á dag-
skránni heimsókn eins gests úr
mannheiminum. Svo gífur-
legar eru vinsældir Prúðu-
leiksýninganna orðnar að fólki
eins og Twiggy, Peter Ustinov
og Paul Williams þykir
ávinningur að því að fá að koma
þar fram.
Viðtökur sjónvarpsáhorf-
enda við Prúðu leikurunum
virðast jafnvel enn meiri en
staðföst trú Grade lávarðar á
hæfileikum Jim Hensons. Þ6 að
þeir séu upphaflega hugsaðir
fyrir börn er gálgahúmorinn og
mannlegur breyskleiki
brúðanna þannig að hann
höfðar ekki síður til full-
orðinna. Fyrstu tíu vikurnar
sem þættirnir voru sýndir í
Bretlandi varð áhorfenda-
hópurinn sjö milljónir manns. I
byrjun þessa árs voru þeir
orðnir þrettán milljónir og fer
sífellt fjölgandi. — I síðasta
mánuði heiðraði brezka kvik-
myndaakademían Prúðu-
þættina með viðurkenningunni
„skemmtilegasta sjónvarpsefn-
ið“.
Grade lávarður sér ekkert
því til fyrirstöðu að haldið
verði áfram að framleiða
Prúðuleikaraþætti á méðan ein-
hver vill horfa á þá. Fyrstu
vikuna sem þeir voru sýndir í
Frakklandi og Þýzkalandi var
hrifningin gífurleg og í næsta
mánuði hefja Prúðu leikararnir
innreið sína í Sviss. Þannig á
áhorfendahópurinn vafalaust
eftir að fara stækkandi. — „Það
geta allir orðið prúðuleikara-
aðdáendur," segir Grade.
ASGEiR
TOMASSON
Svo var það loks fyrir tveim-
ur árum að Grade lávarður,
yfirmaður samtaka brezku
sjónvarpsstöðvanna,uppgötvaði
að Prúðu leikararnir gátu sem
bezt skemmt I sjálfstæðum
sjónvarpsþáttum. Hann náði
fljótt sambandi við höfundinn,
Jim Henson, og fékk hann til að
koma með allan hópinn og
aðstoðarfólk sitt til Bretlands.
Lávarðurinn segist vera þess
fullviss að Henson sé
snillingur.
Árangurinn varð röð sjón-
varpsþátta þeirra, sem jafnvel
tslendingar fylgjast með af at-
hygli annað hvert föstudags-
kvöld. Prúðu brúðurnar, sem
eru mjög misjafnar að stærð, —
allt frá fjórum metrum niður I
litlar handbrúður, — fau neð
öli hlutverk I þáttunum. Þær
um fyrir 21 ári. Hjarta-
knúsarinn ástsæli, Fossi björn,
og trommuleikarinn Dýri komu
fyrst fram fyrir löngu í barna-
tíma bandarískrar sjónvarps-
stöðvar. Fleiri dýr hafa verið
viðriðin alls konar skemmti-
þætti.