Dagblaðið - 29.04.1977, Blaðsíða 20
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 29. APRlL 1977.
Veðrið
I Hœgviðri og lóttskýjaö um allt land,
I noröan gola og smáól austast á land-
I inu. Frost var um allt land
■ morgunsáriö, en hiti fer vel yfir
I frostmark um hádaginn og sums
| staöar á Noröurlandi. Búast má viö
I nnturfrosti í nótt. Í morgun var 4
I stiga frost í Reykjavík en um 5—6
Lstiga frost á Noröurtandi.
Geir Baldursson bifvélavirkja-
meistari lézt 11. apríl sl. Hann var
fæddur 23. apríl 1903. Geir var
sonur hjónanna Þórdísar Runólfs-
dóttur og Baldurs Benediktssonar
húsasmíðameistara, Hverfisgötu
88 hér í borg. Hann naut ekki
skólagöngu fram yfir það sem
venjulegt var, menntaði hann sig
sjálfur í tæknilegum greinum og
var völundarsmiður. Hann
stundaði vinnu til sjós og lands,
en gaf sig snemma bílaviðgerðum
og stundaði þær að mestu alla
ævi. Áhugi hans á efnafræði og
eðlisfræði var mikill og las hann
allt sem hann komst yfir um þau
efni. Fyrstu rennifluguna
smíðuðu þeir bræður, Geir og
Indriði veturinn 1930-1931. Þótti
þetta hið mesta afrek. Síðan stóðu
þeir fyrir smíði á fyrstu svifflug-
um Svifflugfélags Islands. Utför
Geirs verður gerð frá Fossvogs-
kapellu í dag.
Matthías Guðmundsson, Hátúni
8, andaðist í Borgarspítalanum
miðvikudaginn 27. apríl.
Regína Thorarensen, fréttaritari
DB á Eskifirði, á sextíu ára af-
mæli í dag. Regína hefur verið
búsett á Eskifirði í um það bil
fimmtán ár, en áður bjó hún á
Ströndum. Þá voru Morgunblaðs-
fréttir hennar frá Ströndum
„heimsfrægar“, eins og Dagblaðs-
fréttirnar hennar eru í dag^ Við
óskum Regínu hjartanlegá til
hamingju með afmælið.
Óskar Sigurhansson, fyrrum vél-
smiður í Vélsmiðjunni Magna
Vestmannaeyjum, er 75 ára í dag.
Óskar verður staddur í Hvann-
hólma 4 í Kópavogi eftir kl. 5 e.h.
í dag.
Neyzluvenjur og heilsufar
nefnist ráðstefna á vegum Lyflækningadeild-
ar Landspítalans og Efnafræðistofu
Raunvísindastofnunar Háskðla íslands,
haldin í Domus Medica í dag og á
morgun. Ráðstefnan var sett kl. 9.15 í morg-
un af dr. Sigurði Samúelssyni. Fundarstjóri
er Ólafur Ólafsson. Ráðstefnan er í fimm
liðum. Heilbrigðisástand á íslandi, neyzla og
heilbrigði, stjórnun neyzlu, lög og fræðsla og
almennar umræður. í morgun fluttu eftir-
taldir aðilar erindi: Nikulás Sigfússon um
rannsóknir hjartaverndar. Hrafn Túlinius
um tíðni og útbreiðslu krabbameins, Bjarni
Þjóðleifsson um þátt meltingarsjúkdóma,
Sigfús Elíasson um tannsýkissjúkdóma og
Bjarni Torfason um holdafar. Eftir hádegið
verður Snorri Páll Snorrason fundarstjóri
og þá verður dagskráin á þessa leið:
Neyzla og heilbrigði
14.00 Jón Óttar Ragnarsson.Fita.
14.20 Ársæll Jónsson. Kolvetni.
14.40 Jónas Bjarnason. Eggjahvíta.
15.00 Kaffi
15.30 Þorsteinn Þorsteinsson. Vítamín og
steinefni.
15.50 Bjarni Þjóðleifsson. Áfengi.
16.10 Almar Grímsson. Lyf.
Á morgun hefst þriöj þáttur ráöstefnunnar:
Stjórnun neyrlu. Fundarstjórí or Björn Sigur-
bjömsson. Laugardagur 30. apríl.
Stjórnun neyzlu
' 9.15 Páll Sigurðsson. Markmið í heilbrigðis-
málum.
9.35 Davíð Gunnarssoi\Ráðstöfun fjármuna
til heilbrigðismála.
9.55 Skúli Johnsen. Heilsuvernd á höfuð-
borgarsvæðinu.
10.15 Sveinn Tryggvason. Markaðsmál land-
búnaðarafurða.
10.35 Kaffi.
11.05 Georg Ólafsson. Verðlagsmál matvæla.
11.25 Óli Valur Hansson. P'ramleiðsla jurta-k
afurða.
11.45 Gunnar Bjarnason. Framleiðsla dýra-
afurða.
Fjóröi þáttur ráöstefnunnar hefst kl. 14.00
og veröur Davíö Davíösson fundarstjóri.
Lög og frœðsla
14.00 Ingimar Sigurðsson. Nútíma matvæla-
löggjöf.
14.20 Vigdís Jónsdóttir. Fræðsla innan skóla-
kerfisins.
14.40 Sigríður Haraldsdóttir. Fræðsla utan
skólakerfisins.
Fundarstjóri fimmta þáttar, sem eru almennar
umrœöur er Sigmundur Guöbjarnason.
Ráðstefnuslit eru kl. 1 7.00.
Útilífsróðstefna
verður haldin að Hótel Loftleiðum á morgun
og verður hún sett í fyrramálið kl. 9 af
formanni Landverndar Hákoni Guðmunds-
syni.
Dagskrá:
9.15 Þjóðin og landið. Eysteinn Jónsson.
9.30 Hollusta útilífs. Leifur Jónsson.
9.45 Almannaréttur. Sigurður Líndal.
10.25 Framkvæmdir í þágu útilífs. Jón E.
Isdal.
10.45 Gönguferðir. Guðmundur Sigvaldason.
11.05 Almenn ferðalög. Árni Reynisson.
11.25 Veiðar. Jón Hjartarson.
11.45 Umræður.
13.30 Hestamennska. Albert Jóhannsson.
13.50 Vetraríþróttir. Valdimar örnólfsson.
14.10 Hópstarf.
16.30 Skýrslur hópa.
17.30 Umræðnr
bkemmtistaöir borgarinnar eru opnir til kl. 1
e.m í kvöld, fötudag.
Glœsibœr: Stormar.
Hótel Borg: Haukur Morthens og hljómsveit.
Hótel Saga: Ragnar Bjarnason og hljómsveit.
Ingólfscafó: Gömlu dansarnir.
Klúbburinn: Dátar, Experimet og diskótek.
Leikhúskjallarinn: Skuggar.
Oöal: Diskótek.
Sesar: Diskótek.
Sigrun: Pónik, Einar, Ingibjörg og Ari.
Skiphóll: Lokað einkasamkvæmi.
Mólverkasýning
í Bogasalnum
Karl T. Sæmundsson sýnir 36 olíumálverk og
olíupastelmyndir í Bogasalnum. Myndirnar
eru málaðar á sl. tveimur^ og hálfu ári.
Sýningin er opin daglega kl. 14-22 til 1. maí.
Gallerí Sólon Islandus:
Sýning á grafík og keramik eftir Ingu S.
Ragnarsdóttur, Jenný Guðmundsdóttur,
Jónínu Ólafsdóttur og Sigrúnu Eldjárn.
Sýningin verður opin til 14. maí, daglega
kl. 14-18, en 14-22 um helgar.
Kjarvalsstaöir: Austursalur: Sýning á verkum
Jóhannesar Kjarvals. Vestursalur.- Sýning á
verkum Hauks Dór og Þorbjargar Höskulds-
dóltu r.
Sýnir í Neshaga
Ungur listamaður fra Kaliforníu, Joseph
Goldyne, hefur opnað málverkasýningu að
Neshaga 16. Hún verður opin til 15. maí frá
kl. 13 til 19 mánudaga til föstudaga og frá kl.
14 til 18 á sunnudögum.
íþróttir í dag.
Reykjavíkurmórtiö í knattspymu.
Ármannsvöllur kl. 19. 1. fl. Ármann—Fram.
Valsvöllur kl. 19. 1. fl. Valur—Leiknir.
GENGISSKRÁNING
Nr. 80 — 28. apríl 1977.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 192,30 192,80*
1 Sterlingspund 330,45 331,45*
1 Kanadadollar 183,30 183,80*
100 Danskar krónur 3225,20 3233,50*
100 Norskar krónur 3647,90 3657,40*
100 Saenskar krónur 4433,10 4444,60*
100 Finnsk mörk 4747,00 4759,30*
100 Franskir frankar 3877.40 3887,50*
100 Belg. frankar 533,90 535.30*
100 Svissn. frankar 7639,70 7659,60*
100 Gyllini 7847,40 7867,80*
100 V-þýrk mörk 8155,00 8176,20*
100 Lírur 21,70 21.76*
100 Austurr. Sch. 1148,10 1151,00*
100 Escudos 497,55 498,85*
100 Pesetar 279.80 280,50*
100 Yen 69,37 69,55*
* Breyting frá síAustu skráningu.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii
Framhald af bls. 23
Óska eftir aukavinnu
seinni part viku og um helgar,
einnig á kvöldin. Hef meirapróf
og réttindi á þungavinnuvélar.
Uppl. í síma 71547.
32ja ára kona
óskar eftir vinnu í verzlun hálfan
daginn, helzt fyrripartinn, heils-
dagsvinna kemur þó til greina, er
vön bæði við kassa og í kjötaf-
greiðslu. Uppi. í síma 84253.
Óska eftir að taka börn
í gæzlu eftir hádegi,er vestast í
vesturbænum. Uppl. í síma 16886
eftir hádegi.
Áreiðanleg unglingsstúlka
óskar eftir að gæta barns eða
barna í sumar.er vön. Uppl. í síma
36524 eftir kl. 5 í dag.
Tek börn í gæzlu
á aldrinum 2ja til 6 ára, hef leyfi.
Sími 21835.
Tek börn í gæzlu.
Uppl.í síma 27594.
Tapað-fundið J
Tapazt hefur
blekpenni á leiðinni frá Ból-
staðarhlíð að Kjarvalsstöðum,
merktur (Sófus Bender). Sími
37879.
Ýmisiegt
i
Vill einhver leigja hjolhýsi
í einn mánuð? Hjólhýsið yrði
látið standa á sama stað allan
tímann. Góðri umgengni heitið.
Uppl.ísíma 75491.
Tilkynningar
Skákmenn. Fylgizt með
því sem er að gerast í skákheimin-
um:
■ Skák í USSR mánaðarlega 2.100
kr/árs áskrift.
Skák Bulletin mánaðarlega, 2.550
kr/árs áskrift.
Skák hálfsmánaðarlega, 2.250
'kr./árs áskrift.
“64“ vikulega 1500 kr. árs áskrift.
Áskriftir sendar beint heim til
áskrifenda, einnig lausasala. Erl-
end tímarit, Hverfisgötu 50
v/Vatnsstíg, s. 28035.
Kennsla
ökukennsla
'Hreingerningar-Teppahreinsun
á íbúðum, stigagöngum, stofnun-
um o.fl. Margra ára reynsla. Uppl.
í síma 36075. Hólmbræður.
Tökum að okkur
hreingerningar á íbúðum og
stofnunum, vant og vandvirkt
fólk. Sími 71484 og 84017.
Lærið að aka nýrri Cortínu
Ökuskóli og prófgögn ef óskað er.
Guðbrandur Bogason, sími 83326.
Ökukennsla—Æfingatímar.
Kenni á Toyota Mark II árg. ’76.
Ökuskóli og prófgögn -fyrir þá
sem vilja. Nokkrir nemendur geta
byrjað strax. Ragna Lindberg,
sími 81156.
Blómaföndur
Námskeið í blómaskreytingum.
Lærið að meðhöndla blómin og
skreyta með þeim, lærið ræktun
og umhirðu stofublóma. Lærið
umhirðu og byggingu skrúðgarðs-
ins. Leiðbeinandi Magnús
Guðmundsson. Innritun og uppl. í
síma 42303.
Þýzka, enska, franska,
latína, málfræði. Tala á segul-
band skólaverkefni, ræður o.fl.
Dr. Fríða Sigurðsson, sími 25307
fyrir hádegi.
Námskeið í tréskurði
Fáein pláss laus i maí og júni.
Hannes Flosason, símar 21396 og
23911.
Hreingerningar
9
Vanir menn,
fljót afgreiðsla, tökum einnig að.
okkur alls konar innanhúsbreyt-
ingar og lagfæringar. Örugg
þjónusta. Uppl. í síma 12158,
Bjarni.
Lærið að aka bíl
á skjótan og öruggan hátt. Sigurð-
ur Þormar ökukennari. Símar
40769 og 71641 og 72214.
Ökukennsla—Æfingatímar:
Aðstoða við endurnýjun ökuskír-
teinis, kenni á Allegro ’77, öku-
skóli og prófgögn ef óskað er.
Magnús Helgason, sími 66660.
Ökukennsla
Kenni á Cortinu. Nemendur geta
byrjað strax, einnig bifhjóla-
kennsla. Páll Garðarsson, sími
44266.
Ókukennsla—Æfingatímar.
Kenni á Austin Allegro ’77.
ökuskóli og prófgögn ef óskað er.
Nokkrir nemendur geta byrjað
strax. Gísli Arnkelsson, sími
13131.
Okukennsla — æfingatímar.
Geí bætt við mig nemend
Kenni á Mazda 616 árg. '76, öku-
skóli og öll prófgögn ef óskað er.
•Jóhanna Guðmundsdóttir, sími
30704.
Vanir og vandvirkir menn.
Uerum hreinar íbúðir og stiga-
ganga, einnig húsnæði hjá fyrir-
tækjum. Örugg og góð þjónusta.
Jón, simi 26924.
Gluggaþvottur.
Önnumst allan gluggaþvott, utan-
húss sem innan, fyrir fyrirtæki og
einstaklinga. Sími 26924.
Tökum að okkur
hreingerningar á íbúðum og stiga-
göngum, föst verðtilboð, vanir og
vandvirkir menn. Sími 22668 eða
44376.
Hreingerningastöðin
hefur vant og vandvirkl fólk til
hreingerninga, teppa- og hús-
gagnahreinsunar. Þvount hansa-
gluggatjöld. Sækjum, senduni.
Pantið í sima 19017.
Hreingerningafélag Revkjavíkur.
Teppahreinsun og hreingerning-
ar. Fýrsta flokks vinna. Gjörið svo
vel að hringja í síma 32118 til að
fá upplýsingar um hvað hrein-
'gerningin kostar. Simi 32118.
Okukennsla—Æfingatímar.
Kenni á Mazda 929 árgerð '77 á
skjótan og öruggan hátt.Ökuskóli
og öll prófgögn ef óskað er. Nýir
nemendur geta byrjað strax. Frið-
rik A. Þorsteinsson, sími 86109.
Mazda 323 de luxe
árg. ’77. Lærið að aka þessunt
lipra létta og kraftmikla bil. Öku-
skóli og prófgögn ef óskað er.
Vinsamlegast hringið og látið
skrá yður fyrr en seinna. Sigurð-
ur Gíslason. sími 75224
Okukennsla — Æfingatimar.
Kenni akstur og meðferð bifreiða.
kenni á Mazda 818 — ökuskóli og
öll prófgögn ásamt litmynd í öku-
skirteinið ef óskað et>. Helgi K.
Sesseliusson, sínii 81349.
Þjónusta
Tek að mér að losa
rotþrær. Uppl. í síma 84156.
DÖMUR—HERRAR.
Stytti, síkka, þrengi kápur og
dragtir. Sauma skinn á olnboga.
Peysur og jakkar, margir litir.
Herrar, margs konar breytingar.
Tekið á móti fötum og svarað í
síma 37683 á mánudags- og
fimmtudagskvöldum frá 19-21
(Ath. aðeins tekinn hreinn
fatnaður).
Húsbyggjendur ath.
Höfum til sölu milliveggjaplötur,
5, 7 og 10 cm steinrör til skolp-
lagna og gúmmíþéttihringi,
gangstéttarhellur, litaðar og
ólitaðar. Ekið til kaupenda á
Reykjavíkursvæðinu, Bjalli hf.
Steiniðja, Hellu, sími 99-5890.
Húsaviðgerðir, steypuvinna.
Önnumst ýmis konar viðgerðir,
glerskipti, þök og tréverk,
steypum einnig innkeyrslur og
helluleggjum. Símar 74775 og
74832.
Sprunguviðgerðir.
Þéttum sprungur í steyptum
veggjum með silicon, k.itti, tökum
einnig að okkur ýmsar breytingar
og glerísetningar. Uppl. i síma
22992 eftir kl. 7.
Málningarvinna úti og inni,
greiðslufrestur að hluta. Uppl. í
síma 86847.
Trésmiður vill
taka að sér alls konar húsavið-
gerðir, utanhúss og innan enn-
fremur skápasmíði, hurða-
ísetningar og fleira. Uppl. í síma
22575.
Hraunhleðslur—lóðastand-
setning.
Tek að mér að skipuleggja lóðir.
Sé um hraunhleðslur. brotsteins-
veggi, legg stéttir, snyrti garða,
klippi runna og annast alla al-
menna garðvinnu. Föst tilboð eða
tímavinna. Uppl. i síma 83708.
Hjörtur Hauksson, garðyrkju-
maður.
Vantar þig aðstoð
í garðinn? Veitum alhliða garð-
þjónustu. Látið fagmenn vinna
verkið. Uppl. í síma 35596 eftir kl.
19.
Teppalagnir, viðgerðir
og breytingar, vanur maður.
Uppl. í síma 81513 eftir kl. 7 á
daginn.
Húsbyggjendur ath.
Höfum til sölu milliveggjaplötur,
5,7 cm steinrör til skolplagna og
gúmmíþéttihringi, gagnstéttar-
hellur, litaðar og ólitaðar. Ekið til
kaupenda á Reykjaví.. æðinu.
Bjalli hf. steiniðja Heltu. simi
99-5890.
Bólstrun, síml 40467,
Klæðum og gerum við bólstruð
húsgögn, úrval af áklæðum. Uppl.
í síma 40467.
Leigi út
loftpressur í múrbrot, fleiganir,
boranir og ýmislegt fleira. Uppl. í
síma 41834. Vélaleiga Snorra
Magnússonar.
Höfum opnað
fjölritunarstofu að Efstasundi 21,
vönduð fjölritun, smækkum,
stækkum. Fljót og góð afgreiðsla.
Offsetfjölritun hf, Efstasundi 21,
sími 33890.
Húsdýraáburður.
Ökum húsdvraáburði á lóðir.
Odýr og góð þjónusta. Uppl. í
síma 28195.
Húsbyggjendur ath.
Höfum til sölu milliveggjaplötur,
5,7 og 10 cm steinrör til skolp-
lagna og gúmmíþéttihringi, gang-
stéttarhellur, litaðar og ólitaðar.
Ekið til kaupenda á Reykjavíkur-
svæðinu. Bjalli hf. steiniðja,
Hellu. sími 99-5890.
Húsdýraáburður til sölu,
gott verð, dreift ef óskað er.Uppl.
í síma 75678.
Garðeigendur athugið.
Utvega húsdýraáburð, dreift ef
óskað er. Tek einnig að mér að
helluleggja stéttir og laga. Uppl. í
síma 26149.
Húsdýraáburður.
Ökum húsdýraáburði í garða og á
lóðir, dreift úr ef óskað er. Uppl. í
síma 38998.
Husdýraáburður til sölu
jCreift úr ef óskao er. Góð
umgengni. Sími 42002.
Garðeigendur.
Tek að méT vegghleðslur í skrúð-
görðum, útvega hraunhellur,
einnig brotstein, 2 gerðir, litaða
og ólitaða, hentugir í blómaker og
veggi. Tilboð eða tímavinna. Árni
Eiríksson, sími 51004.
Málningarvinna.
Öll málningarvinna, flísalagnir og
múrviðgerðir. Upplýsingar í sima
71580 eftir kl. 6 e.h.
Sjónvarpseigendur atn.
Tek að mér viðgerðir í heimahús-
um á kvöldin, fljót og góð þjón-
usta. Pantið í síma 86473 eftir kl.
5 á daginn. Þórður Sigurgeirsson,
útvarpsvirkjameistari.
Ilúsaviðgerðir.
Tökum að okkur gluggaviðgerðir,
glerísetningar og alls konar inn-
anhússbreytingar og viðgerðir.
Uppl. i síma 26507.