Dagblaðið - 27.08.1977, Page 23

Dagblaðið - 27.08.1977, Page 23
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 27. AGUST 1977. 23 I Utvarp Sjónvarp Sjónvarp íkvöld kl. 22.05: Símastúlkuna dreymir um framtíðina Þrír vonbiölar nefnist bíó- myndin sem er á dagskrá sjón- varpsins i kvöld kl. 22.05. Er þetta bandarísk mynd frá árinu 1941 og nefnist á frummálinu Tom, Dick and Harry. Með aðal- hlutverkið fer Ginger Rogers og með henni leika George Murphy, Burgess Meredith og Alan Marshall. í kvikmyndahandbókinni okkar fær þessi mynd beztu einkunn sem þar er gefin eða fjórar stjörnur. Þar segir einnig að þetta sé prýðisgóð gamanmynd. Ekki er nú samt alveg víst að hægt sé að treysta kvikmynda- handbókinni, en oft hefur komið fyrir að myndir frá þess- um tíma falli nútímafólki vel í Myndin fjallar um unga símastúlku, sem lætur sig dreyma um hve lífið gæti verið skemmtilegt ef hún ætti sér næga biðla. Þýðandi myndarinnar er Kristmann Eiðsson. Sýningar- tími er ein klukkustund og tuttugu og fimm minútur. geð. Ginger Rogers er fædd árið 1911, þannig að hún var búin að slita barnsskónum eins og sagt er. Hún var aðallega fræg fyrir frábæra danshæfileika sina og hefur hún stigið margt dans- sporið með hinum fræga Fred Astaire. Ekki er þó svo vel að hún sýni danskúnstir i mynd- inni sem okkur er boðið upp á i kvöld. -A.Bj. Sjönvarp annað kvöld kl. 20.55: Rósa fær biðil Barnahælið sem segir frá i sjðnvarpsmyndinni annað kvöld er i einni af útborgum London, er nefnist Wandsworth. Sjónvarp annað kvöld kl. 21.45: FORELDRARNIR VILDU EKKI VITA AF BÖRNUM SÍNUM 1 þættinum Húsbændum og hjúum annað kvöld er það þjón- ustustúlkan Rósa sem er aðal- persónan. Hún er send með köku til vinkonu frú Bridges. Á leiðinni í sporvagninum dettur eiginlega ofan á hana ókunnug- ur maður með þeim afleiðing- um að kakan eyðileggst. Maðurinn býðst til þess að kaupa handa henni aðra köku og þau fara saman í brauðbúð. Síðan býður hann Rósu upp á tebolla og þau spjalla saman. 1 ljós kemur að þetta er ástr- alskur fjárbóndi sem er staddur i London I heimsókn. Hann er á förum eftir fáeina daga. Hann biður Rósu að giftast sér ef hún geti hugsað sér að setjast að í Ástralíu. Allir á Eaton-torgi leggjast gegn þess- um ráðahag, en Rósa sjálf... Þýðandi myndaflokksins er Kristmann Eiðsson. Myndin er send út I lit. - A.Bj. „Myndin er tekin á barna- heimili og eru um tuttugu börn á heimilinu. Það eru börn sem átt hafa foreldra sem hvorki hafa viljað heyra börnin eða sjá,“ sagði Öskar Ingimarsson- þýðandi myndarinnar Barna- hælisins sem er á dagskrá sjón- varpsins annað kvöld kl. 21.45 og nefnist Barnahælið. „Sum barnanna eru illa farin, taugaveikluð og alla vega brengluð. Hælið er i Wands- worth-hverfinu í London og rekið á vegum bæjarfélagsins. Þar er líka skóli fyrir sum barn- anna sem ekki geta sótt al- menna skóla og verða því að læra innan hælisjns. Leggja skólayfirvöld til kennara. 1 myndinni er aðallega sagt frá fjórum börnum og hvernig á því stendur að þau eru þarna komin. Einnig segja bæði fóstrur og fóstrar frá reynslu sinni. Athyglisvert er að hver hefur sína sögu að segja og hver er með síhu móti,“ sagði Öskar. Myndin er frá brezka sjón- varpinu og sýningartimi hennar er ein klukkustund. - A.BJ. Sjórtvarp Laugardagur 27. ógúst l'J.OO Íþróttír. UmsjSnarmaður Bjarni Felixson. Hlé. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Augtýsingar og dagskré 20.30 Albart og Herbert (L). Sænskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 20.55 Auðnir og Óbyggöir. 1 þessum þætti er skyggnst um í Ofenokee-fenjunum í suðurhluta Bandaríkjanna. Þýðandi og þulur Ingi Karl Jóhannesson. 21.25 Haatwava (L). Þáttur frá þýska sjónvarpinu með samnefndri hljóm- sveit. 22.05 Þrír vonbiMar. (Tom, Dick and Harry). Bandarísk gamanmynd frá árinu 1941. Aðalhlutverk Ginger Rogers. Myndin er um unga stúlku, sem á þrjá biðla, en hún getur ekki ákveðið, hverjum þeirra hún á að ját- ast. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 23.30 Dagskrértok. Sunnudagur 28. ógúst 18.00 Simon og krítarmyndimar. Breskur myndaflokkur. Þýðandi Ingi Karl Jóhannesson. Sögumaður Þórhallur Sigurðsson. 18.10 Sögur dr. Sauss. Bandarísk teikni- mynd. Hér er því lýst, hverjar afleið- ingarnar geta orðið, ef trén í skógin- um eru felld, án þess að nýjum hrísl- um sé plantað f staðinn. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. Áður á dagskrá á gamlársdag 1976. 18.35 BétsferA um Kanada. Sfðari hluti myndar, sem tekin var í ferð fjögurra ungra Svfa um Norður-Kanada. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 20.00 Fréttir og veöur. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Verkmenntun. Eru undirstöðu- menntun og starfsþjálfun f þágu at- vinnuvcganna hornrekur menntakerf- isins? Stjórn upptöku Rúnar Gunnars- :;on._ .20.55 Húsbœndur og hjú (L) Breskuj; myndaflokkur. Ókunni maöurinn. Þýð- andi Kristmann Eiðsson. 21A5 Barnahœliö. Mynd frá breska sjón-* varpinu um börn. sem þurfa af sér- stökum ástæðum að búa á upptöku- heimili. 22.45 Aö kvöldi dags. Séra Sigurður II. Guðmundsson, sóknarprestur i Vfði- staðaprestakalli í Hafnarfirði, flytur hugvekju. 22.55 Dagskrárlok. Útvarp annað kvöld kl. 20.30: Dagskrárst jóri í DAG ÞURFA ALLIR AÐ HRISTA SIG Á SVIÐINU — segir Haraldur Á., sem er dagskrárstjóri á morgun Einhver snjallasti gaman- leikari sem uppi hefur verið á Islandi, Haraldur A. Sigurðs- son, er dagskrárstjóri í eina klukkustund í útvarpinu annað kvöld kl. 20.30. „Ég skirskota nú mest til gamla fólksins," sagði Haraldur i viðtali við DB. „Leiknar verða gamlar plötur og þar að auki lesið úr ýmsu gömlu. M.a. verður lesin sagan Fyrsti laxinn sem ég veiddi eftir sjálfan mig og eri það Knútur Magnússon sem aðstoðar mig við upplestur í þættinum. Ég mun segja aðeins frá Harry Lauder, sem var einhver bezti gamanleikari sem Skotar hafa átt og leiknar verða plötur með honum, einnig plötur með Paul Robeson. Þá syngur Guð- mundur Jónsson vísur sem Brynjólfur Jóhannesson söng fyrir löngu siðan. Loks verður leikin plata með Ernst Rolf, sem var sænskur og einhver K Haraldur Á. var einn af beztu gamanleikurum okkar og gat fengið hvern sem var til þess að veltast um af hlátri. allra bezti gamanvísnasöngvan sem uppi hefur verið í Skandi- naviu. Hann var með eigin revíuflokk með tiu leikurum og kórdömu. Þá verður lesið um leikara frá því i gamla daga og lifið f dag borið saman við það sem þá var, eftir Kristján Linnet, sem samdi margar vísur undir höfundarnafninu Ingimundur," sagði Haraldur. — Saknarðu ekki að vera ekki lengur i revíunum? „Æ-i nei, ég held ekki. t dag þurfa allir að hrista sig á svið- inu og vöxtur minn leyfir það ekki. Eg er líka orðinn svo gam- all.“ — En finnst þér ekki hálf- aulalegt að ekki skuli vera samdar revíur i Reykjavík i dag? „Það væri sjálfsagt ekki hægt. Það yrði svo dýrt og kostaði margar milljónir. En í gamla daga þekktu allir alla sem spaugað var með i reviun- um. Svo var maður alltaf með svo dæmalaust góðu fólki. Höfundarnir voru alveg frá- bærir eins og Tómas vinur minn Guðmundsson og Emil Thoroddsen, Indriði Waage, Bjarni Guðmundsson og Guð- mundur Sigurðsson, en þeir eru hú allir látnir," sagði Har- aldur A. Sigurðsson. . A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.