Dagblaðið - 24.09.1977, Page 7

Dagblaðið - 24.09.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1977. 7 - "" ....................... Flugleiðir f samkeppnina við Laker með „stand-by,f-fargjöldum —bjóða vestra Atlantshafsf lug fyrir 180 dali aðra leið og 330 dali báðar leiðir „Að hluta til má segja að algjört upplausnarástand sé rikjandi í fargjaldamálum flug- félaganna sem flytja farþega milli Evrðpu og Ameriku," sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flugleiða I viðtali við DB. „Samkeppnin er mjög harðnandi, ekki sízt með til- komu leyfisins til Lakers hins brezka, en hann býður ódýr- ustu fargjöld sem boðin hafa verið á flugleiðinni.“ Flugleiðir hafa nú fylgt I kjölfar annarra flugfélaga sem lækka fargjöld sín yfir Atlants- hafið. „Normal“-fargjöId hjá Flugleiðum yfir vetrartlmann verða á leiðinni frá New York til Luxemborgar 225 dalir aðra leiðina en 430 báðar leiðir. A Chicago-leiðinni verða fargjöld 245 dalir aðra leið en 460 báðar leiðir. Svar Flugleiða við undir- boðum Lakers og sex stærstu flugfélaga á flugleiðinni, sem hafa lækkað gjöld sin niður í það sama og Laker býður, eru svokölluð „stand-by“fargjöld. Þau verða 180 dalir aðra leiðina (New York-Lux), en 330 dalir báðar leiðir. „Stand- by“-fargjöldin ásamt áður- nefndum „normal“-gjöldum á leiðinni gilda 15. sept. til 31. mai á austurleiðinni en 15. október til 14. júní á vestur- leiðinni. Þessi „stand-by“ far- gjöld er hægt að panta hjá Flugleiðum 48 timum fyrir brottför frá New York, séu vélarnar þá enn ekki fullbókaðar, og 72 tímum fyrir brottför frá Lux, sé þá enn laust rúm i vélunum. Sveinn sagði að „normal“- gjöldin í vetraráætlun Flugleiða hefðu hlotið góðar viðtökur og miklar annir væru 1 vélunum. Fólki litist einnig vel á „stand- by“-gjöldin sem mikil óvissa fylgdi þó. Sveinn kvað feikna hala af skilyrðum fylgja f kaupum hinna ódýru fargjalda stóru flugfélaganna 6 sem lækkað hafa fargjöldin í 280 dali báðar leiðir, eða í sama gjald og Laker býður. Kaup farmiða verða að fara fram 21-28 dögum fyrir flugferð. Sfðan fær kaupandi ekki staðfestan flugdag heldur ÐOUGLAS SUPER DC-8 aðeins þá viku sem hann fær far í. Flugfélögin tilkynna svo handhafa ódýra miðans með 10 daga fyrirvara hvenær hann komist með og verður hann þá að taka það flug sem flug- félagið ákveður, hvort sem er að nóttu eða degi. Að öðrum kosti verður fólk að sæta þvl að kaupa farseðil eftir klukkan 4 að morgni og bfða svo í voninni um að fá eitthvert flug þann daginn. Sveinn kvað þvf fleygt beggja vegna Atlantshafsins að menn Lakers hefðu ekki búizt við að umsókn félagsins um hin lágu fargjöld yrði samþykkt. Sfðan hefði tfmi þeirra farið að miklu leyti f að fá kjörin til ódýra flugsins bætt. Þeim hefði orðið það ágengt að vélar Lakers myndu afgreiddar á Kennedyvelli vestra og Gat- wickvelli f Englandi en ekki flugvalla sem ennþá fjær eru þeim borgum, sem flugið tekur til. -ASt. Slapp með skrekkinn Drengur á ljóslausu reiðhjóli varð fyrir bíl á mótum Kirkju- lbrautar og Hilmisbrautar f Vest- mannaeyjum I gærkvöldi. Slapp' drengurinn, sem er tfu ára, með fótbrot frá árekstrinum, en hann var enn I sjúkrahúsi I morgun. -ASt. Keflvíkingar: hamrana við íþróttahúsið Smiðirnir við nýja íþróttahúsið I Keflavík vilja gjarnan fá al- menning til liðs við sig í dag. Allir íþróttasinnaðir menn eru beðnir að mæta við nýja íþróttahúsið með hamrana sina. Þar er glæsilegt hús að komast undir þak og nú rfður á að bjarga því 'að haustveðrin nái ekki að skemma húsið. Munu smiðirnir negla borðin á þakið með tveim nöglum en sjálf- boðaliðar festa þau endanlega. Mikið starf er fyrir höndum við húsið, bæði við þakið og utanhúss. Án efa munum við geta flutt fréttir eftir helgi um ótrúlega góða framvindu þessa máls. Þar sem margir vinna saman að málefni er sigurinn vfs. -JBP- VERK KJARTANS A STÓRA SVIÐINU „Týnda teskeiðin” frumsýnd á fimmtudag Húsavík: Týnda teskeiðin, nýtt leikrit eftir Kjartan Ragnarsson verður frumsýnt á stóra sviðinu f Þjóðleikhúsinu á fimmtudags- kvöldið. Verk þetta samdi Kjart- an sérstaklega með núverandi leikara Þjóðleikhússins f huga. Leikstjóri er Brfet Héðinsdóttir en leikmynd og búninga gerir Guðrún Svava Svavarsdóttir og er það frumsmfð hennar fyrir stóra sviðið. Hlutverk leiksins eru I höndum Þóru Friðriksdóttur, Róberts Arnfinnssonar, Gfsla Alfreðssonar, Flosa Ólafssonar, Randvers Þorlákssonar, Lilju Þórisdóttur og Jóns Gunnars. Leikritið gerist í Reykjavfk nútfmans. Kjartan Ragnarsson, sem áður hafði áunnið sér nafn sem leikari, fer nú hamförum f leikritagerð og slær f gegn með hverju nýju verki. Saumastofan, fyrsta leikrit hans, fer nú senn f sýningu þriðja árið f röð. Þá hefur hann samið Blessað barnalán auk nýja verksins og þátta fyrir útvarp og sjónvarp. -Ast. Deila sýslumanns og lögreglumanna úr sögunni „Deilan snerist um lögreglu- stjórastarf mitt sem er aðeins einn hluti af starfi mfnu,“ sagði Sigurður Gizurarson sýslumaður og bæjarfógeti á Húsavfk er hann var inntur eftir þvf hvert deilu- efnið hefði verið sem upp kom milli hans og lögreglumanna við sýslumannsembættið fyrr f sumar. Kom deilumálið m.a. til kasta dómsmálaráðuneytisins og voru tveir fulltrúar ráðuneytisins, þeir Þorsteinn A. Jónsson og Þorleifur Pálsson, sendir til Húsavfkur til að koma á sáttum. Var þetta f byrjun september. „Ekki var svo að ráðuneyti hefði eitthvað haft- við embættisreksturinn að at- huga,“ tók Sigurður fram, heldur hefðu málin nú verið leyst. Sigurður og lögregluþjónar þeir, er við var deilt, settust niður og ákváðu að útkljá málið sfn á milli, án afskipta utanaðkomandi aðila. -BH UTSJONVÖRPIN # Ein vönduðustu sjónvarpstœki sem völ er ó í dag. # Margra óra reynsla. Kalt kerfi inline-myndlampi. Tœkin eru byggð upp ó einingakerfi, sem auðveldar allt viðhald. Verð: 17“ kr. 236.000 20“ kr. 257.000 22“ kr. 276.000 26“ kr. 315.000 Staðgreiðslu- verð ó 17“ kr. 210 þús. • .. .. .• . . pQÖ Qt satt scm þú sévd í LOEWE OPTfl lit- sjónvörpanam Wgmm Sendum og setjum VITASTÍ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.