Dagblaðið - 10.11.1977, Page 10
24
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. NÖVEMBER 1977.
sem skrifstofur, einstaklingar og stofnanir þurfa á að halda,
Núáeinum stað.
Hallarmúla 2 — fyrir hornið á Hótel Esju
aö fá efni í byggingar. Einn
íbúinn í þessum húsum sagði, að
þegar hann hefði verið að koma
yfir sig þaki hefði ekki einu sinni
fengizt skólprör. Hann þurfti að
höggva grjót og búa þannig til
frárennslisrörin frá húsinu.
Fallega máluð hús með
blómagörðum í kring
Smátt og smátt varð þarna smá
byggðakjarni. Þarna stóðu vel
máluð hús með fallegum blóma-
görðum í kring. Húsin voru ekki
stór, eða nokkuð á við það sem
húsin eru þarna núna, en þau
voru snyrtileg og manneskjuleg,
ef til vill höfðu þau það fram yfir
þau sem standa þarna i dag.
Það voru ekki öll þessi hús sem
byggð voru þarna sett niður eftir
nákvæmlega gerðu skipulagi.
Sumir byrjuðu bara að byggja
þarna, aðrir fengu leyfi hjá við-
komandi yfirvöldum. Teikningar
af húsunum voru ekki fyrir
hendi; þau voru byggð mest eftir
hendinni, það réð mest um hvaða
efni var til í bygginguna.
Aðeins austur stóðu bragg-
arnir. Það var einnig búið í þeim í
mörg ár. Þeir voru málaðir. og
gert við þá eins og hægt var til að
gera þá vistlegri. Hins vegar voru
þeir ekki byggðir með það í huga
að standa áratug, svo að ekki hafa
þeir verið skemmtilegar vistar-
verur þegar árin liðu fram.
Braggarnir sjást ekki lengur,
þeir hafa vikið, en samt má sjá
einn bragga enn, sem stendur
fyrir neðan Ármúlann, rétt fyrir
austan Vegmúlann. Þetta eru
leifar sem minna okkur á að hér
bjó fólk einu sinni svo þúsundum
skipti í þessum vistarverum, sem
ætlaðar voru fyrir hermenn, og
varla var tjaldað nema til einnar
nætur.
Nú er talað um að það þurfi að
fá bragga upp í Arbæ sem eigi að
standa þar með öðrum gömlum
húsum sem minna á gamla
tímann. Ekki er hann kominn á
safnið enn, en hver veit. Það
getur eins verið að við sjáum þar-
Nissenhús áður en langt um líður.
KP
tlr Armúlanum um 1960.
Siöumúla15 simi 3 30 70
LANDSBANKINN
Múlaútibú Lágmúla 9, Reykjavík
Afgreiðslutímar 930-1530og 17-1830