Dagblaðið - 12.11.1977, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. NOVEMBER 1977.
Loftleiðir GESTIR GETA HLUSTAÐ Á CAL-
Bahamaeyjar YPSOTÓNUST í GÓÐU TÓMI
—og jaf nvel unnið ferð til eyjanna
„Við erum búnir að reyna að fá lands um aillangt skeið, en það
þessa skemmtikrafta hingað til hefur ekki tekizt fyrr en nú,“
Styrkir til
Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna Noregs-
ferða 1978.
Samkvæmt skipuiagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auð-
velda tslendingum að ferðast til Noregs. í þessu skyni
skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipu-
lögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla
samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefn-
um eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhiiða grund-
velli. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga
eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.“
i skipulagsskránni segir einnig, að áherzia skuli lögð á að
veita styrki, sem renna til beins fcrðakostnaðar, en
umsækjendur sjálfir beri dvalarkostað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum,
sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið
um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og
tilgang fararinnar. Auk þess skal tilgreina þá upphæð,
sem farið er fram á.
Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, forsætis-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 15.
janúar nk.
Norski stjómmálafræömgurínn
WILLYÖSTRENG
heldur fyríríestur
laugardaginn 12. nóv. kl. 16.00:
„Norges politiske situasjon
eftervalget” Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
Úrsmiðir—
Viðgerðarþjónusta
ÓskR eftir að komast í samband við
úrsmið sem getur tekið að sér við-
gerðarþjónustu. Hér er um þekkt
merki. að ræða. Einnig kæmi til greina
að setja á stofn verzlun. Tilboð merkt:
„Úr og klukkur“ sendist til DB fyrir
næstkomandi fimmtudag.
ANANDA
MARGA
Jóginn Ac. DHARIVIATALA Brc. heldur fyririestra
þriðjudaginn 15. nóvember, miðvikud. 16. nóvcmber og
fimmtudaginn 17. nóvember kl. 20 í Iðnskólanum, 4.
hæð, stofu 401. Á þriðjudaginn verður kynning á jóga
og hugleiðslu.
A miðvikudag : Siðferði í mannlegu lífi.
Fimmtudag : Þjóðfélagsleg og andleg heimspeki.
Athugið! Hugleiðsla og jógaæfingar (ASANAS) verður
kennd öll kvöldin. Ókeypis kennsla. ANANDA MARGA
sagði Emil Guðmundsson að-
stoðarhótelstjóri á Hótel Loftleið-
um. Þar er nú nýhafin kynning á
Bahamaeyjum og í terigslum við
hana hefur verið fenginn hingað
Count Bernadino og hljómsveit
hans.
alt hljóðfæri — varð til upp úr
síðari heimsstyrjöldinni. Tón-
listarmenn í Karabíska hafinu
tóku þá til handargagns olíutunn-
ur, sem Bandaríkjamenn skildu
eftir, og bjuggu sér til trommur
úr þeim. Stáltromman var því
upphaflega olíutunnubotn en er
nú í dag orðin hin áheyrilegasta.
Emil Guðmundsson sagði í sam-
tali við Dagblaðið að væntanlega
yrðu svipaðar kynningavikur og
sú, sem nú stendur yfir, á dagskrá
Hótel Loftleiða í framtíðinni. í
lok janúar eða byrjun febrúar
verður Kenya til dæmis kynnt í
Víkingasalnum.
- AT-
Skipulagshugmyndir fyrir Mosf ellssveit
Gert ráð fyrir
flugbraut
—og sportbátahöf n í Leirvogi
Hljómsveit þessi hefur komið
fram á svipuðum kynningum
fyrir Flugleiðir í sumar vfða um
heim. Vegna annríkis getur hún
ekki staðið við hér lengur en
fimm daga, eða til 16. nóvember.
Auk hljómsveitar Count Berna-
dinos leikur tríó Björns R. Einars-
sonar fyrir dansi á Bahamaeyja-
kvöldunum. Borinn er meðal ann-
ars fram „conch fritters“, sem er
innmatur skeljar þeirrar sem
frægust er á Bahamaeyjum. A bar
Víkingasalarins verða framreidd-
ir drykkir eftir uppskriftum frá
eyjunum. Matarmiðar á skemmt-
anirnar gilda sem happdrættis-
miðar. Vinningur er ferð fyrir tvo
til Bahamaeyja.
Dagblaðinu gafst í gær kostur á
að hlusta á hljómsveit Count
Bernadinos. Víkingasalurinn
hafði verið skreyttur pálma-
blöðum og fleira skrauti og
Bernadino sjálfur lék þar á als
oddi. Hann kvaðst hafa hljóðritað
sjö hljómplötur og ferðazt víða
um heim, þar á meðal um Banda-
ríkin, Kanada og Evrópu. Tónlist-
in sem hljómsveitin flytur er
dæmigerð fyrir ríkin I Karabíska
hafinu. Þar gefur á að hlýða
calypso-tónlist, reggae og í raun
og veru alls konar tónlist sem
hefur yfir sér þann sérstæða blæ
sem einkennir tónlist þessa
heimshluta. Count Bernadino
leikur sjálfur á stáltrommu auk
ýmiss konar ásláttarhljóðfæra.
Stáltromman er ekki ýkja gam-
Upp ur aramótunum verður
efnt til verðlaunasamkeppni um
heildarskipulag fyrir Mosfells-
sveit. Verðlaun verða það há
að forráðamenn sveitarfélagsins
gera sér vonir um góða þátttöku
arkitekta og skipulagsfræðinga.
Þessar upplýsingar komu fram
á fundi sem Junior Chambers í
Mosfellssveit efndi til en þar
hafði Jón Guðmundsson oddviti
hreppsnefndar framsögu um
hreppsmálin.
Fram kom að íbúar I Mosfells-
sveit munu nú vera 2200 til 2300
og hefur fjölgað nokkuð ört.
Skipulagssamkeppnin sem boðin
verður út á næsta ári mun taka til
allmikils flæmis lands. Land Mos-
fellshrepps er um 25 þúsund
hektarar að stærð eða u.þ.b.
þrisvar sinnum stærra en land
Reykjavíkur. Mikill hluti lands
Mosfellssveitar er heiðalönd.
Byggð í Mosfellssveit hefur
mjög þanizt út á undanförnum
árum. Mest hefur verið byggt af
einbýlishúsum og blokkir fyrir-
finnast þar vart eða ekki.
Meðal þess sem Mosfellingar
hafa áhuga á að tillit verði tekið
til í skipulagstillögunum er nýt-
ing Leirvogsins fyrir strandsvæði
og einnig til sköpunar aðstöðu
fyrir sportbáta. Þá verður
væntanlega óskað eftir þvi að í
skipulaginu verði gert ráð fyrir
flugbraut. Margir áhugamenn um
flug búa í Mosfellssveit og hafa
leitað fast eftir að flugbraut verði
í byggðarlaginu. Aðrir hafa horn í
síðu flugs nálægt byggð þar og
finnst oft ógætilega flogið og
glannalega nálægt byggð I litlum
flugvélum.
- ASt.
FÆRÐIVANGEFNUM SUMAR-
BÚSTAÐ SINN AÐ GIÖF
Sveinbjörg Klemenzaottir,
fyrrum kaupkona I Reykjavík,
hefur fært Styrktarfélagi vangef-
inna að gjöf sumarbústað sinn,
Rjóður í Varmadalslandi á Kjalar-
nesi ásamt einum hektara leigu-
lands.
Sveinbjörg afhenti gjöf þessa á
þriðjudaginn var til minningar
Söngleikurinn Loftur var frum-
sýndur á Akureyri 4. nóvember
sl. Sýningin gekk mjög vel og var
sneisafullt hús og mikil stemmn-
ing á sýningunni. Auglýstar
höfðu verið sýningar um síðustu
helgi en þeim varð að aflýsa
vegna veikinda eins leikarans. Nú
eru sýningar hafnar aftur, var
sýning í gærkvöldi og aftur á
sunnudag. Aðgöngumiðar sem
seldir höfðu verið á sýningarnar
sem aflýsa varð giltu í gærkvöldi
og á sunnudag.
um eiginmann sinn, Guðmund
Magnússon kaupmann.
Sveinbjörg var einn af stofn-
endum Styrktarfélags vangefinna
fyrir tæpum 20 árum og hefur
alla tíð unnið gott starf fyrir
félagið svo og fyrir Kópavogs-
hælið.
Sveinbjörg keypti Rjóður fyrir
Hafnar eru æfingar á næsta við-
fangsefni Leikfélags Akureyrar,
sem verður nýtt leikrit eftir
Baldur Georgs. Sagði Erlingur
Gíslason aðstoðarleikhússtjóri að
það væri leikrft bæði fyrir börn
og fullorðna og í því væri mikið
um galdra og skemmtilegheit,
eins og nærri má geta. Eftir 18.
hefjast æfingar á barnaleikritinu
Snædrottningunni. Þórunn
Sigurðardóttir er leikstjóri.
- A.Bj.
tveimur arum í þeim tilgangi að
skapa sumardvalaraðstöðu fyrir
vangefna. Hefur vistfólk á Kópa-
vogshæli og Skálatúni notið þess
framtaks Sveinbjargar sl. tvö ár.
Stjórnendur Styrktarfélags van-
gefinna fluttu Sveinbjörgu hug-
heilar þakkir fyrir gjöfina og
hennar starf fyrir samtökin.
ASt.
<C
Sveinbjörg afhendir Magnúsi
Kristinssyni form. Styrktarfélags
vangefinna gjafabréfið. Gunnar
Þormar form. Þroskahjálpar er
viðstaddur. — DB-mynd Hörður.
Vantar þig
vettiinga
fyrir
veturinn?
Ef þig vantar 'goða
vettlinga, trefil eða annað
prjónakyns ættirðu að líta
inn á Hrafnistu á sunnu-
daginn eftir klukkan 2. Þá
opnar sala á ýmsum munum
sem gamla fólkið, er að
Hrafnistu dvelst, hefur
unnið í handavinnu.
Þarna kennir margra
grasa en þyngstur á vogar-
skálunum er prjóna-
fatnaðurinn. Þarna verður
hægt að fá ýmsa góða hand-
unna hluti fyrir rýmilegt
verð um leið og gamla fólkið
fær svolítinn aukaskilding
fyrir handavinnu sína.
ASt.
Akureyrar: Sýningar á Lofti
aftur ífullum gangi