Dagblaðið - 06.03.1978, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 6. MARZ 1978.
13
. íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir
Víkingur missti niður 5
marka forustu gegn FH!
Víkingur bókstaflega kastaði
frá sér sigri gegn FH í 1. deild
íslandsmótsins í handknattleik á
laugardag — hafði örugga
forustu lengst af leiknum en bar-
átta FH setti Víkinga út af laginu
á iokakafla leiksins. FH sigraði
22-21. Þórarinn Ragnarsson skor-
aði sigurmark FH aðeins 13
sekúndum fyrir leikslok úr víta-
kasti og FH vann sinn fyrsta sigur
í fjórum leikjum, hefur nú
skotizt upp fyrir Víking með 11
stig að loknum 8 leikjum, Vík-
ingur hefur hlotið 10 stig úr 7
leikjum.
Víkingar geta engum nema
sjálfum sér um kennt hvernig fór
á laugardag gegn FH. Víkingar
höfðu undirtökin lengst af í leikn-
um — höfðu yfir þar til sex mín-
útur voru til loka leiksins. Á 10.
mínútu síðari hálfleiks hafði Vík-
ingur fjögurra marka forskot, 17-
13 og virtist stefna í öruggan
sigur Víkings — á 14. mínútu
hafði Víkingur enn fjögur mörk
yfir 18-14. En aðeins á fimm
mínútum breyttu leikmenn FH
stöðunni úr 18-14 í 18-17 — þrjú
mörk FH í röð. Þorbergur kom
Víking í 19-17 — en FH hafði
allan meðbyr með sér, og náði
forustu 20-19 með mörkum Guð-
mundar Magnússonar og Geirs
Hallsteinssonar. Skyndilega allt á
suðupunkti. Björgvin Björgvins-
son jafnaði 20-20 með laglegu
marki úr horninu en þegar hálf
þriðja mínúta var eftir skoraði
Guðmundur Árni Stefánsson —
21-20. Páll Björgvinsson jafnaði
enn fyrir Víking, 21-21 og ein og
hálf mínúta eftir.
FH með knöttinn — en þeir
misstu hann klaufalega. Víkingar
fengu því sókn — og Viggó
Sigurðsson fór inn úr horninu og
skoraði, en lína var dæmd á hann.
Það var mikill darraðardans stig-
inn lokasekúndurnar, í stað þess
að spila upp á jafntefli reyndu
Víkingar að ná knettinum — tveir
leikmanna Vikinga hlupu sam-
tímis úr vörninni og skildu Arna
Guðjónsson einan eftir á línunni
— hann fékk knöttinn og brotið
var á honum, víti dæmt. Þórarinn
Ragnarsson skoraði af öryggi og
aðeins 13 sekúndur voru eftir.
Víkingar gerðu örvæntingarfullar
tilraunir til að jafna, Þorbergur
fékk knöttinn á línu — en dæmt
var á brot áður. Víkingar fengu
aukakast eftir venjulegan leik-
tima — en vörn FH varði, leik-
menn FH fögnuðu mjög. Víkingar
að sama skapi niðurlútir. beirra
— og FH sigraði 22-21 — Sigurmarkið skorað úr vítakasti rétt fyrir leikslok
fyrsti ósigur í vetur í 1. deild. Þeir
geta engum nema sjálfum sér um
kennt hvernig fór — slökuðu á
þegar leikurinn virtist unninn.
Víkingur hafði yfirleitt 2-3 mörk
yfir i fyrri hálfleik og fjögur í
leikhléi, 13-9. Það reyndist ekki
nóg.
Víkingur leikur nú alls ekki
sannfærandi ef mið er tekið af
leikjum liðsins fyrir áramót, þá
var liðið yfirburðalið í 1. deild. En
Víkingur hefur misst tvo leik-
menn, lykilleikmenn, þá Ölaf
Einarsson og Kristján Sigmunds-
son. Eggert Guðmundsson varði
vel í fyrri hálfleik en markvarzla
hans datt alveg niður í síðari hálf-
leik, þá var nánast nóg fyrir FH
að hitta markið, jafnvel úr lók-
uðum færum, og í netinu hafnaði
knötturinn.
Leikmenn FH gáfust ekki upp
þó á móti blési lengst af — og
góður endasprettur þeirra færði
þeim dýrmæt stig. Mörk FH skor-
uðu Þórarinn Ragnarsson, 7-4 víti.
Geir Hallsteinsson 6, Guðmundur
Magnússon 3, Guðmundur Arni
Stefánsson 2 og þeir Tómas Hans-
son og Arni Guðjónsson 1 mark
hvor. Hjá Víking var Páll
Björgvinsson atkvæðamestur með
7 mörk, 3 víti. Viggó Sigurðsson
skoraði 6, Þorbergur Aðalsteins-
son 4 og þeir Árni Indriðason,
Magnús Guðmundsson, Ólafur
Jónsson og Björgvin Björgvinsson
skoruðu 1 mark hver.
Þeir Kristján örn og Kjartan
Steinbach dæmdu leikinn og
höfðu þann leiða ávana, eins og
raunar fleiri dómarar, að dæma
of fljótt — þannig að iðuiega
hagnaðist brotlega liðið.
H.Halls.
Efstu lið kvenna töpuðu
Forustulið 1. deildar fslands-
mótsins í handknattleik kvenna
— FH og Valur töpuðu bæði
leikjum sinum i deildinni um
helgina. Valur tapaði í gærkvöld
fyrir KR, 10-9 og FH.tapaði á
laugardag gegn neðsta liðinu í 1.
deild, Þór, 21-19. Þór hafði yfir í
leikhléi, 10-8 — og FH-ingum
gekk illa að ráða við Önnu Grétu
Halldórsdóttur en hún skoraði 10
mörk fyrir Þór. Liðin mættust
síðan aftur í gær í Bikarnum —
og þá komu FH-stúlkurnar
ákveðnar til leiks og sigruðu 17-
12 eftir að hafa haft yfir i leikhléi
8-5.
Þrjú lið hafa nú tapað 6 stigum
í 1. deild — íslandsmeistarar
Fram, Valur og FH.
Björgvin Björgvinsson kominn í skotfæri — Janus Guðlaugsson náði
ekki að stöðva hann en Magnús Ólafsson varði skot Björgvins. Þeir
Skarphéðinn Óskarsson og Þorbergur Aðalsteinsson fvlgjast með.
DB-mynd Bjarnleifur.
VALSMENN NALGAST NU F0R-
USTUUÐIN í 1. DEILDINNI
Valur nálgast nú efstu lið 1.
deildar — sigruðu KR 25-24 i 1.
deild fslandsmótsins í Laugar-
dalshöli í gærkvöld. Raunar var
sigur Valsmanna meira sannfær-
andi en tölurnar gefa til kynna —
þegar rúmar tvær minútur voru
til leiksloka höfðu Valsmenn yfir
25-22 en tvö mörk Símonar
Unndórssonar í lokin, hið síðara
10 sekúndum fyrir leikslok,
minnkuðu muninn í aðeins eitt
mark.
Valur hefur nú náð sér upp úr
þeirri lægð er liðið var í fyrri
hluta mótsins — þrír sigrar i röð
og íslandsmeistarar Vals eru
farnir að blanda sér í toppbarátt-
una. KR-ingar brugðu á það ráð
að leika vörnina mjög framarlega
— og tóku um tíma tvo leikmenn
Vals úr umferð. Við þetta losnaði
um Steindór Gunnarsson og hann
nýtti það mjög vel — skoraði 7
mörk af línunni — átti sinn bezta
leik í vetur.
Það var fyrst og fremst mjög
góð byrjun er skóp sigur Vals-
manna — þeir komust í 10-4 og
virtust stefna í öruggan sigur. En
leikmenn KR neituðu að gefast
upp og komu forustu Vals niður í
fjögur mörk, 10-6 en staðan í leik-
hléi var 14-9. Val í vil. Þegar
aðeins 6 mínútur voru af síðari
hálfleik skildu tvö mörk, 15-13 —
en í kjölfarið fylgdi góður sprett-
ur Valsmanna — komust í 20-15.
KR-ingar neituðu að gefast upp
gegn hinum sterku og stæðilegu
Valsmönnum — og þegar 10
mínútur voru til leiksloka skildu
aftur tvö mörk, 21-19, KR-ingar
,keyrðu mjög út á móti Valsmönn-
um og Steindór skoraði þrjú mörk
af línu fyrir Val en Símon svaraði
tvívegis fyrir KR. Þegar þrjár
mínútur voru til loka skildu enn
tvö mörk, 24-22 — en Jón Pétur
Jónsson innsiglaði sigur Vals með
góðu marki og þrátt fyrir tvö
mörk Símonar Unndórssonar á
lokakaflanum dugði það KR ekki
— sigur Vals, 25-24.
Maður leiksins var Steindór
Gunnarsson — nýting hans af
línu var mjög góð og 7 sinnum
sendi hann knöttinn í netið. Þor-
björn Guðmundsson skoraði 6
mörk. Jón Pétur, 4, Gísli Blöndal
og Jón Karlsson 3 og Björn
Björnsson 2. Valsliðið leikur nú
sem ein heild — og sér i lagi er
varnarleikurinn traustur.
Simon Unndórsson skoraði 8 af
mörkum KR, Haukur Ottesen 4,
Þorvarður Höskuldsson 3, ásamt
nafna sínum Guðmundssyni.
Friðrik Þorbjörnsson skoraði 2
ásamt Sigurði Óskarssyni. Þeir
Kristinn Ingason og Björn Péturs-
son skoruðu 1 mark hvor.
Leikinn dæmdu þeir Jón
Friðsteinsson og Geir Thorsteins-
son.
H.Halls.
mmmt
CENTURY-ÚRIN ERU MEÐ FUÓT-
ANDi LJÓSABORÐI SEM SÝNIR:
1. Stundir — mín. — sek.
2. Mánuð — mánaðardag.
3. Rafhlaða endist í 12 mán.
4. Nákvæmni er ++2 mín. á ári.
5. Sjálfvirkt dagatal i 4 ár.
6. Ljósahnapp fyrir álestur í myrkri.
7. Rvðfrítt stál — hert gler.
8. Vatnsvarið — höggvarið
9. Með skeiðklukku nr. 1 og 4.
10. 1 árs ábyrgð. Faglærðir menn.
FULLKOMIN VIDGERÐARÞJÓNUSTA
KAUPIÐ ÚRIN HJÁ ÚRSMIÐ.
Höfum einnig glæsilegt úrval af
TÖLVU-ÚRUM FRÁ:
Pierpont, Delma og Favre-Leuba.
CENTURY
VERÐ 28.395.-
með skeiðklukku
1/100 úr sek.
VERÐ 24.890.-
með sek.teljara.
Skífa svört.
GEYMIÐ AUGLYSINGUNA
Utsölustaður á Húsavík
RAFTÆKJAVINNUSTOFA
GEIRS OG ÁRNA. S. 41600
VERÐ 29.270
Gylltur kassi
Skífa brún.
VERÐ 23.140.-
Skífa blá.
VERÐ 28.395.-
Með skeiðklukku
1/100 úr sek.
VERÐ 29.000
Skífa brún + blá.
Dömu.
Skífa svört.
Póstsendum
Ur og skartgripir - Jón og Oskar - Laugavegi 70 - Sími 24910