Dagblaðið - 02.08.1978, Qupperneq 9
9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. AGUST 1978.
Fokið í flest skjól hjá
sparifjáreigendum:
Nú er deilt um það, hvort heimilt sé
að skattleggja verðbætur af spariskir-
teinum ríkissjóðs eftir sömu reglum og
gilda um skattlagningu á sparifé, enda
eru þau ekki framtalsskyld nema eins
og sparifé.
Frá því 1964 hafa verið gefnir út 25
flokkar slikra bréfa. Hinn síðasti nú
1978. Nafnverð þessarra 25 flokka er
kr. 8.363.000.000.00 þ.e. rúmir átta
milljarðar króna.
Kröfur, sem eigendur bréfanna eiga
á Seðlabanka íslands með vöxtum og
visitöluverðbótum miðað við 1. júlí sl.
nema 29 milljörðu.n ogl36 milljónum
króna. Þess ber að geta, að tveir fyrstu
flokkar bréfanna hafa verið innleystir
og margir flokkar eru að gjaldfalla
framyfiraldamót.
Sparifé forðað
undan
verðbólgubálinu
— Verðbæturnar
skattlagðar
Hvernig, sem á er litið, nema
skattar af verðbótum mjög verulegum
fjárhæðum, enda þótt með hana sé
farið eftir reglum um skattlagningu
sparifjár. Samkvæmt þeim er það hlut-
fall milli eigna og skulda sem ræður
þvi, hvort verðbætur eru skattskyldar
ásama hátt ogsparifé.
Skattstjórinn I Reykjavik hefur
úrskurðað að heimilt sé að skattleggja
verðbæturnar með þeim hætti, sem að
framan greinir. Slík skattlagning hefur
Spariskírteinin
gerð skattskyld?
hins vegar ekki verið kærð fyrr en
nýlega. Embætti rikisskattstjóra hefur
nú til umfjöllunar tvö slík mál. Er
annað þeirra mjög umfangsmikið.
Ríkisskattanefnd
hefur ekki
úrskurðað
Aðeins eitt slíkt mál hefur borið
undir rikisskattanefnd. Þá voru
ástæður þær. vegna ófullnægjandi
upplýsinga, að naumast er hægt að lita
á úrskurð, sem i málinu gekk, sem
niðurstöðu um algilda meginreglu.
Hefur ríkisskattanefnd þvi ekki ennþá
úrskurðað um almenna heimild til
skattlagningar.
Fyrsti flokkurs spariskirteina var
gefinn út 1964. Söluverð hans var 75
milljónir króna. Þau voru innlausnar-
skyld i janúar 1975. Ef engin þeirra
bréfa hefði verið innleyst fyrr en þá,
hefði nafnverð að viðbættum vöxtum
og verðbótum numið kr.
992.040,000.00 eða sem næst einum
milljarði króna. þ.e. sem hæst þrettán-
földu upphaflegu nafnverði.
Þegar þessi bréf voru gefin út var
grunnvisitala byggingarkostnaðar 220
en við innlausn 1455 stig, sem var
útreiknuð visitala hinn l.okt. 1974og
gilti enn i janúar 1975.
Verðmæti bréfanna sundurliðast
þannig miðað við 10 þús. kr. bréf:
Nafnverðkr. 10. þús. + lOþús. ivexti
+ 112.272.00 kr. t verðbætur. Vísitala
er reiknuð ofan á vaxtafjárhæð hverju
sinni.
Ríkið gefur og
ríkið tekur
Rikissjóður hefur gefið þessi bréf út
en Seðlabanki íslands hefur annast
meðferð þeirra, bæði sölu þeirra,
innlausn og allt annað I sambandi við
þau.
Þar sem bréfin skipta stöðugt um
eigendur. má líta á þau sem skuld eins
borgara við annan. Þar sem velflestir
eigendur bréfanna hafa með kaupunt
á þeini ætlað að varðveita sparifé sitt
fyrir verðbólgubálinu. er það vitanlega
stórmál. ef nálægt 20 milljarðar króna
sparifjár verða skattlagðar. Sú niður-
staða sýnir auðvitað aðeins fræðilegan
möguleika. Eigi að siður er hér stór-
mál á ferðinni. þótt skattlagning nái til
mun lægri fjárhæðar. BS.
DAGBLAÐIÐ
kynnir nýju
þingmennina:
Eiður Guðnason var kjörinn á þing í
Alþingiskosningunum 25. júní sl. fyrir
Vesturlandskjördæmi. Eiður var i fram-
boði á vegum Alþýðuflokksins. Hann er
fæddur 7. nóvember 1939. Að loknu
menntaskólanámi stundaði Eiður nám í
stjómmálafræðum i Bandarikjunum i
eitt ár, en hóf síðan nám við Háskóla
Íslands og lauk þaðan BA prófi í ensku
og landafræði. Með háskólanámi
starfaði hann sem blaðamaður og rit-
stjórnarfulltrúi við Alþýðublaðið. 1967
hóf Eiður störf sem yfirþýðandi hjá
Sjónvarpinu, þar sem hann hefur starfað
siðan sem fréttamaður og fulltrúi dag-
skrárstjóra.
Hugsaði sig um
1 verkfallinu
— Nú ert þú borinn og barnfæddur
Reykvíkingur og hefur alla tið átt heima
þar. Hvernig stendur á því, að þú fórst i
framboðí Vesturlandskjördæmi?
— Ég hafði engin sérstök persónuleg
tengsl við þetta kjördæmi, en jjegar
ýmsir forsvarsmenn Alþýðuflokksins
fyrir vestan fóru jjess á leit við mig, að
ég tæki þátt í prófkjörinu, það var vist í
október I fyrra, um það leyti sem verk-
fall opinberra starfsmanna var að
hefjast, þá hafði ég aldrei þessu vant
nægan tima til að hugleiða min mál.
Eftir töluverða umhugsun tók ég þá
ákvörðun að láta slag standa og verða
með. Ég var þá búinn að vera við frétta-
mennsku linnulaust að heita mátti í
sextán ár. Fréttamennska er krefjandi,
kannski ennþá meira en pólitik. og alltaf
hætta á að maður staðni. Það er
hverjum manni hollt að breyta til, og
takst á við ný verkefni. Ég geri ráð fyrir
að hætta hjá Sjónvarpinu með haustinu,
en starfið þar hefur sannarlega verið
ánægjulegur timi meðgóðu fólki.
— Þú ert fjölskyldumaður?
— Já, konan mín heitir Eygló Heiga
Haraldsdóttir, píanókennari. Við eigum
þrjú börn, dreng og tvær telpur, 6, 9 og
14ára.
— Hvað gerirðu i tómstundum?
— Það er nú svona sitt af hverju. Les
mikið bæði bækur og tímarit. Má heita
alæta á prentað mál. Á vetrum stunda
ég svolítið skíðagöngu til heilsubótar og
andlegrar upplyftingar. Svo kann ég lika
ágætlega við mig í eldhúsinu. Ég hef
nefnilega lúmskt gaman af þvi að búa til
mat.
Samgöngumál
— Aðstöðujöfnun
— Hver eru helztu áhugamál þin,
svona á opinberum vettvangi?
Eiður Guðnason, Vesturlandskjördæmi (A):
„Menn mega ekki einangrast
niður við Austurvöll”
er afstaða þin til bjórsins
margumtalaða?
— Ég hef í sjálfu sér ekkert á móti
bjórnum og sé ekkert þvi til fyrirstöðu
að hann sé seldur I áfengisverzlunum,
sem sclja núna bæði létt vín og sterk:
Eins ogcrgetur hver sem nennir fram-
leitt sinn eigin bjór átölulaust. Það
verður hver og einn að hafa vit fyrir sér
sjálfur í þessum efnum. Áfengislöggjöfin
hér ber allt of mikinn keim af hræsni og
yfirdrepsskap.
Nýsköpun hefði
verið æskilegust
— Hvað "m kjördæmamálið?
— Það er rétt að þar rikir atkvæða
misvægi. Um ýmsar leiðir er að velja, og
það er Ijóst að til einhverra breytinga
mun koma. Þær verða ekki auðveldar
og til þeirra verður að vanda.
— Nú eru stjórnarmyndunarvið-
ræður hafnar. Hver yrði bezta stjórnin
að þínumdómi.
— Allir eru einhuga um að nú þurfi
sterka stjórn. Ég tel hiklaust að
svonefnd nýsköpunarstjórn hefði verið
æskilegust, en Alþýðubandalagið léði
ekki einu sinni máls á að ræða þann
möguleika. Sú neitun mælist held ég
ákaflega illa fyrir meðal almennings.
Næsti valkostur er að reyna svokallaða
vinstri stjóm, sem yrði töluvert veikari,
— því miður. Fylgishrun Framsóknar
hefur gert þahn flokk að litlum kaup-
félagsflokki, sem er með öllu áhrifalaus í
verkalýðshreyfingunni.
— Eitthvað að lokum?
— Ég hlakka sannarlega til að takast
á við málin á nýjum vettvangi. Það er
höfuðnauðsyn hverjum þingmanni að
hafa sem bezt samband við umbjóð-
endur sina. Hverjum alþingismanni er
það rik nauðsyn að fylgjast með því
hvernig fólk hugsar og mótar afstöðu
sina til þjóðmála, sem sagt vera i sem
nánustum tengslum við þjóðlifið. Þeirri
mikilsverðu staðreynd mega menn ekki
gleyma. Menn mega ekki einangrast
niður við Austurvöll. JÁ.
Dagblað
án ríkisstyrks
— Þar er nú af nógu að taka, ekki sizt,
þegar vandamálin eru jafnmörg og raun
ber nú vitni. í Vesturlandskjördæmi
hafa samgöngumálin með nokkrum
hætti orðið útundan, þrátt fyrir
byggingu ágætrar Borgarfjarðarbrúar.
Hún er góð. en mátti ekki verða á
kostnað allra annarra vegaframkvæmda
í kjördæminu. Simamál eru samgöngu-
mál. Þar hefur Vesturlandskjördæmi
líka dregizt aftur úr. Það er til dæmis
yfirleitt fljótlegra að hringja til Kaup-
mannahafnar eða London heldur en að
hringja vesturáSand.
— Önnuráhugamál?
— Það er þá helzt, að við þurfum að
jafna stöðu þegnanna i landinu án tillits
til búsetu. Þetta er stórt mál, sem vinna
verður að í áföngum, en þar verður að
fara að stíga stærri skref en gert hefur
verið. Nú, einnig gæti ég nefnt mál eins
og atvinnulýðræði, sem Alþýðuflokkur-
inn hefur beitt sér fyrir. Aðild starfsfólks
að stjórn fyrirtækja. Þar á að byrja á
rikisfyrirtækjum, til dæmis ríkisverk-
smiðjunum nú og auðvitað líka fyrir-
tækjum eins og útvarpi og sjónvarpi.
— Fyrst þú minnist á útvarpið, þá
minnist ég þess að hafa heyrt að þú
fengist við að þýða útvarpsleikrit?
— Ég hef alltaf haft heldur gaman af
að spréyta mig á þýðingum. Ég hef þýtt
nokkur leikrit fyrir útvarpið sitt af
hverju fyrir sjónvarpið, eina bók endur
fyrir löngu og svona eitt og annað. Aðal-
lega hef ég þýtt úr ensku, en einnig úr
Norðurlandamálum. Núna er útvarpið
að flytja framhaldsleikritið Leyndardóm
leiguvagnsins, gamaldags og töluvert
spennandi morðgátu.
„Hef í sjálfu sér
ekkert á móti
bjórnum"
—Eiður svo við víkjum að öðru. Hver
LITII1ÁTÍÐ
aö Úlfljótsvatní um verslunarmannahelgí
Forsala aðgöngumiöa er haf in
á ef tirtöldum stöðum:
REYKJA VÍK: í ARO-jeppabrfreið í Austurstræti. — Þar eru einnig
seidir Rauðhettubolir og hattar.
KEFLA VÍK OG SUOURNES: Hjá Steindóri og SBK.
EGILSSTÖÐUM, AKUREYRI, ÍSAFIRÐi OG VESTMANNAEYJUM: í
afgr. Flugfélagsins og veitir það einnig mótsgestum 15% afslátt á
flugferðum ti/ogfrá Reykjavík.
VERD AÐGÖNGUMIDA AÐEINS KR. 8000.-