Dagblaðið - 09.08.1978, Side 1

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 1
RITSTJÖRN SÍÐÍJMÚLA 12. AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — ÁÐALSÍMI27022. Þorír enginn í stjóm? „Allir flokkar eru tregir til að fara í stjórn,” sagði maður úr forystuliði eins flokksins í morgun. Hann taldi, að tregðan vasri nú óvenjulega mikil. Stjórnarflokkarnir vildu helzt ekki hafa áfram forystu vegna taps i kosn- ingunum. Alþýðubandalagið teldi hag- stæðast að vera utan stjórnar. Alþýðu- flokkurinn vildi helzt ekki verða ein- hver viðauki við núverandi stjórn. DB skýrði frá þvi fyrir um viku, að þingmenn töldu „engar líkur fyrir þjóðstjórn”. Nú mun þeim tilraunum hætt og farið að athuga möguleika á stjóm Sjálfstæðis-, Alþýðu- og Fram- sóknarflokks. Mikil tregða er í slíkri stjórnarmyndun. Alþýðuflokksmenn eru klofnir í afstöðu til hennar. „A síðasta fundi miðstjórnar og þingflokks var okkur Geir Hallgrims- syni veitt viðtækt umboð. Það var ekki takmarkað,” sagði Gunnar Thorodd- sen í viðtali við DB í morgun. Hann kvað nú hafa verið kannað, hvort grundvöllur væri fyrir þjóð- stjórn. „Mér virðist ekki vera grund - völlur fyrir henni. Það er ekki að kenna neinum einstökum flokki,” sagði Gunnar Thoroddsen. Nú er gert ráð fyrir að næsta skref verði að kanna mögu|eika á stjórnar- myndun Sjálfstæðisflokks, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks. „Á þingflokksfundinum, sem ákveðið var fyrir viku að halda i dag, skýrum við Geir frá gangi viðræðn- anna. Að öðru leyti er, eins og nú háttar, ekki annað um þetta mál að segja,” sagði Gunnar Thoroddsen. „Ég er ekkert hissa á því, þótt aflýst verði tilraun til stjórnarmyndunar allra flokka,” sagði Steingrímur Her- mannsson. „Alþýðubandalagsmenn hafa sagt það mikið,” bætti hann við, er fréttamaður átti tal við hann í morgun. Að öðru leyti kvað hann Framsóknarflokkinn nú biða átekta. Umboð fulltrúa Framsóknarflokksins i viðræðum um stjórnarmyndun var bundið við meirihlutastjórn. HH/BS Súper- markaður haldinn í höfninni „Við höfum óþarflega mikið af mat- vælum um borð og viljum gjarnan létta á skútunni,” sagði eini enskumælandi skipverjinn á frönsku skútunni „Le Steph” er tíðindamenn Dagblaðsins spurðu hvers vegna þeir væru að selja hluta af matarbirgðum sínum. Útsala þessi átti sér stað á einni bryggjunni á Grandagarðinum. Útsölu- stjórarnir voru fjórir franskir sjómenn frá Lyon sem hér eru staddir á leið sinni til Nýfundnalands. Þarna gerði margur Reykvíkingurinn góð kaup og má nefna sem dæmi að dósin af hakkabuffi fór á 200 krónur. Frakkarnir halda frá Reykjavik og mun útsölunni nú lokið. - GAJ Á útsölu Frakkanna I Reykjavíkurhöfn kenndi margra grasa. DB-rnynd Bjarnleifur Kærði rán í Hollywood Um klukkan ellefu í gærkvöldi kærði einn af gestum í Hollywood árás á sig og þjófnað á veski sínu. I þvi segir hann að hafi verið 45 þúsund krónur í peningum og ávísanahefti á Búnaðarbankann. Ekki náðust árásarmennirnir og þjófarnir. Allmikið „fjör” var i og við Hollywood í gær. Skömmu áður hafði kona gengið berserksgang skammt frá eða við Ármúla nr. 1 og 3. Var hún handtekin eftir að hafa brotið rúðu i fyrrnefnda húsinu með tréskósinum. ASt. V ✓ „Meira fyrir mánaðarlaunin" Hver fær mánaðarúttekt? Nú eru áskrifendur DB farnir að senda okkur inn útfyllta seðla með kostnaðinum við heimilishald sitt. — Þessa dagana er innheimtufólk DB að innheimta áskriftargjald blaðsins og eiga að taka við útfylltum miðum frá áskrifendum. Við viljum minna þá, sem ætla að taka þátt i að fá „Meira fyrir mánaðar- launin”, með okkur, að fylla seðlana út samvizkusamlega og afhenda inn heimtufólkinu — eða koma þeim á skrifstofu eða ritstjórn DB. Það er ekki einungis að við spörum stórfé með þvi að halda búreikninga, heldur er þarna tækifæri til þess að vinna sér inn mánaðarúttekt. Munið að það er aldrei of seint að byrja. Finansbankinn danski snýr sér að vestur- þýzkum fjáreigendum þegar íslenzkir, sænskir og norskir bregðasf. — sjá erl. fréttir bls. 6 og 7 Han ráddade Allsvenskan — segja Svíar um Teit Þórðarson en hann skoraði sigurmark Öster gegn meisturum Maimö og héit þar með spennunni í Allsvenskan sjá íþróttir bls. 12, 13 og 15 Hér vantar 40 konur! Aö ganga um frystihúsin á Suöurnesjum i gær var einna likast þvi sem maöur getur imyndaö sér aö hafi veriö aö fara um bandarisku gullgrafar- bæina eftir að ævintýrið var úti og allir flúnir. Vinnslusalirnir bergmáluðu af tómlæti og maður heyrði til sjálfs sin þótt um miöjan vinnudag væri. Hundruö starfsfólks úr þessum húsum sitja nú iðju- laus heima hjá sér á atvinnuleysisskrá og stjórn- endur húsanna sjá sér ekki fært að hefja aftur rekstur fyrr en stjórnvöld hafa tryggt rekstrar- grundvöll — en þaö eru bara engin stjórnvöld til að taka á vandanum þessa stundina — sjá viötöl viö fólk á Suöumesjum • GS/DB-mynd Ari Sjá bls. 8

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.