Dagblaðið - 09.08.1978, Side 2

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 2
LLéCdSkÖLÍ BÚPU Bréfritari vill, að Sigurlaug Bjarnadóttir verði forsætisráðherra í utanþingsstjórn.'Gy herra og Jónas Haralz verði fjármálaráðherra. __________ utanríkisráð- Utanþingsstjórn Lesendur Dagblaðsins ekki í vandræðum með stjómarmyndun Böðvar Bjarnason frá Böðvarshoiti skrifar: Ég tel að á íslandi í dag sé algjör stjórnarkreppa, og eigi þvi forseti íslands ekki að láta pólitísku flokkana leika sér lengur að því að þykjast vilja leysa efnahagsvanda þjóðarinnar, því hjá þeim flestum er engin alvara á bak við að gera það mögulegt að mynda ríkisstjórn. Ég tel því nauðsynlegt að nú þegar verði skipuð utanþingsstjórn til 4 ára, sett bráðabirgðalög, sem banni Alþingi að flytja vantraust á hana svo áhrif þeirra ráðstafana, sem hún gerir, verði farin að koma i Ijós að þeim tíma liðnum. Nú kunna einhverjir að segja: Þetta er ólöglegt samkvæmt stjórnar- skránni. Ég svara því til: Það er oft farið i kringum stjórnarskrána og hún brotin í ónauðsynlegri tilfellum en nú er, þegar stjórnarflokkarnir hreinlega leika sér að þvi að hafa landið raun- verulega stjórnlaust svo dýrtið og vandamá! hlaðast upp. Ég ætla mér að ganga hreint að verki og benda á menn í utanþings- stjórn: 1. Sigurlaug Bjarnadóttir forsætisráð- herra og leiðandi hina nýju stjórn. Hún sýndi það síðasta kjörtímabil, að hún er þar fyllilega frambærileg. 2. Gylfi Þ. Gíslason utanríkisráð- herra, vel þekktur í vestrænni og norrænni samvinnu. 3. Jónas Haralz fjármálaráðherra. Ég tel hann heiðarlegan og þarf ekki að lýsa honum frekar. 4. Gunnar Guðbjartsson landbún- aðarráðherra. Ég tel hann manna fróðastan um öll landbúnaðarmál, tel engan hafa kynnt sér þau mál beturen hann. 5. Kristján Ragnarsson, formaður íslenzkra útvegsmanna, sjávarút- vegsráðherra. 6. Kristján Thorlacius atvinnu- og tryggingamálaráðherra. Báðir þessir nafnar eru kunnugir vanda- málum á þessu sviði og mundu reynast góðir, væru þeir gerðir ábyrgir. 7. Ármann Snævarr hæstaréttardóm- ari dómsmálaráðherra og þá menntamálaráðherra i leiðinni. 8. Davíð Scheving Thorsteinsson iðn- aðar- og orkumálaráðherra. Að sjálfsögðu má og verður að skipta ráðuneytum undir þessa ráð- herra á ýmsa vegu, og geta þeir gert það í sameiningu eftir að þeim hefur verið falið að mynda stjórn. Ég tel ekki rétt að ráðherrar verði nema 8, sitji ekki þirig heldur aðeins í ráðherrastólum. Ég verð nú að segja það að eftir að hafa heyrt forseta íslands fela Geir Hallgrímssyni að mynda stjórn eftir þá kosningaútreið sém hann fékk eftir 4 ára stjórnarsamvinnu með Fram- sóknarflokknum og þeim sterkasta þingmeirihluta, sem ríkisstjórn íslands hefur haft um ára bil, svo og það að annar stærsti stjómmálaflokkurinn hefur neitað að ræða við Sjálfstæðis- flokkinn um stjórnarmyndun, eins og allir vita, að Lúðvík Jósepsson gerði fyrir hönd Alþýðubandalagsins, tel ég vonlaust og fyllstu lítilsvirðingu að reyna slíkt. Vinstristjórnarhugmynd virðist al- gjörlega sprungin. Ekkert er tekið al- varlega, heldur er alltaf verið að gera grín að dómgreind íslenzku þjóðarinn- ar. Ég spyr því: Hvar eru úrræðin? Nema að skipa utanþingsstjórn. Og ég held að þeir aðilar sem ég hef nefnt i utanþingsstjórn mundu reynast ábyrgir. Eigum við ekki að hætta að gera lítið úr dómgreind íslenzku þjóðarinn- ar. Það kann nú að vera að einhver segi um mig að ég sé orðinn elliær eins og Vísir sagði um Gunnar Thorodd- sen, en við erum á svipuðum aldri. Og að síðustu vona ég að stjóm- málaflokkarnir og alþingismennirnir, sem voru kosnir, sýni þann manndóm að leysa vandann og stjórnmálakrepp- una. LtíÐVÍK OG STEINGRÍMUR Snjall hagyrðingur hér í borg hefur ort allmargar visur fyrir og eftir siðustu alþingiskosningar, og fjallar hann þar um málin á gamansaman hátt. Er j ljós kom, að alþýðubandalags- menn móðguðust við Kristján Eldjárn forseta, þegar hann fól Benedikt Gröndal stjórnarmyndun, kom þessi vísa en seinni partur hennar Úömur athugið! LÍKAMSRÆKT JSB Byrjum aftur eftír sumarfrí 14. ágúst. • Llkamsrœkt og megrun fyrir dömur á öllum aldri. • Morgun-, dag- og kvöldtlmar. • Tlmar tvisvar eða fjörum sinnum I viku. • Sérstakur matarkúr fyrir þœr sem eru I megrun. • Vaktavinnufólk athugið „lausu ” tlmana hjá okkur. • Sturtur — sauna — tœki — Ijðs. • Munið okkar vinsœta Solarium. • Hjá okkurskln sólin allan daginn alla daga. I r,plýsingar og innritun í síma 83730 frð kl. 9 til jazztjqLLetöskóLi Báru mun lúta að „fáfræði” Lúðviks Jósepssonar um Moskvuréttarhöldin: Ula likar Lúðviki, langar hann i forsæti. Boó fékk hann frá Bresnevi að bregða sér i sauðs-reyG. Er Steingrímur Hermannsson kom til sögunnar sem oddviti framsóknar- manna í vinstri stjórnar viöræðunum, vék áðurnefndur hagyrðingur nokkuð að föður hans, Hermanni Jónassyni, sem eitt sinn var glímukóngur, og sagt er, að hafi einhverju sinni gefið formanni Kommúnistaflokks íslands „á’ann”: Stendur ógn af Steingrími, sterkt er mannsins faðcrni. Kannske á von á kjaftshöggi komma-goðinn austGrski. Ökukennsla Kennslubifireiðin er Toyota Cressida ’78 ogíennaðekki W Geir P. Þormar ökukatmari Sknar 19896 og 21772 (simsvarO. DAGBLADID. MIDVIKUDAGUR 9. AGUST 1978 „STJÓRNMÁLA- FLOKKARNIR BREGÐAST VONUM Sverrir Runólfsson skrifar: í Vísi sl. föstudag birtist viðtal við „reiðan kjósanda” með fyrirsögninni „Alþýðuflokkur hefur brugðist vonum okkar”. Þessi reiði kjósandi er líklega ungur að aldri því að hann er óánægður með svikin loforð stjórn- málaflokks. Sem sagt ekki orðinn samdauna stjórnmálakerfinu hér á landi. Hann segir að svarið sé að styðja Sjálfstæðisflokkinn og efla hann svo að hann fái meirihluta næst. Síðan ég kom heim frá langri dvöl erlendis hef ég fylgst vel með loforðum stjórnmálaflokka hér á landi og má ég til með að segja, að annað eins lýðskrum hef ég aldrei séð í þau yfir tuttugu ár sem ég dvaldist i Kaliforníu. Þar er nefnilega hægt að víkja hverjum sem er frá hvenær sem er. Stjómmálaflokkar hér á landi lofa öllu fögru fyrir kosningar en það er eins og það sé tekið sjálfsagt að svikja flest fögru loforðin og kjósendur eru i vandræðum hvaða lista þeir eiga að kjósa næst. Nei, svarið liggur ekki i því að styðja Sjálfstæðisflokkinn. Heldur vinna ötullega innan flokks síns að því að við hættum að kjósa hrossakaupahagsmunahópa (lista) með því að taka upp einstaklings- bundnar kosningar. Það er auðvelt að krossa ekki við einstakling i stórum flokki ef hann hefur ekki staðið sig eins vel og hann lofaði í kosningabar- áttunni eftir að við fáum valfrelsi um frambjóðendur. En það er illmögulegt OKKAR” að losna við heilan stóran flokk, þó að hann standi ekki við gefin loforð. Ég skora því á kjósendur að verða virkari innan síns flokks og þrýsta svo á að í næstu kosningum veljum við einstaklinga en ekki hrossakaupahags- munahópa. t nýafstöðnum kosningum studdi ég Alþýðuflokkinn einungis vegna þess að hann er eini flokkurinn sem hefur baráttumál „Valfrelsis,” þ.e. persónubundnar kosningar og almennar þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg málefni virkilega á sinni stefnuskrá. Ég bið Dagblaðið að birta þessar fáu linur þvi mín reynsla af sumum dagblaðanna er sú að þau birta aðeins það sem þeim líkar og það sem er á þeirra „línu”, þó að þessi sömu blöð fái styrk úr rikiskassanum, sem einnig er minn vasi. Og kalla ég það misnotkun á almannafé. Raddir lesenda EIGA BÖRNIN OF MIKIÐ AF LEIKFÖNGUM? Einar Ingvi Magnússon skrifar: Kæri lesendadálkur. Mig langar til að koma á framfæri örlítilli athugasemd en þaö er þetta með fjölbreytileikann t eigum barna núádögum. Ég minnist oft sagnanna um börnin í sveitinni hér áður fyrr er þau léku sér með leggi sina og kindakjálka þegar ég virði fyrir mér leikföng barna í dag. Bréf þetta væri ég ekki að skrifa nema af þvi að allt þetta dótaflóð, sem eitt barn getur átt, hefur mjög skaðleg áhrif á þroska barnsins I að einbeita sér. Fæstir foreldrar virðast gera sér grein fyrir þessu. Ég vonast til að fólk taki almennt mark á þessum linum og fari eftir þeim vegna þess að með öllu þessu dótaflóði á barnið mjög erfitt með að einbeita sér, að festa hugann við það sem það er að gera. Að eiga of mikið af leikföngum getur því leitt til þess að bamið verði aldrei við leik sinn eða vinnu sem skyldi, byrjaði t.d. á einhverju og hlypi svo strax í annað þegar mesta gamanið væri búið, þar sem alltaf eitthvað nýtt og nýtt tæki athyglina og hugann frá þvi. Það gæti byrjað á einhverju en hætt við það i miðju kafi. Þar sem erfitt er að kenna gömlum hundi að sitja ætti fólk að íhuga þetta mál strax á meðan barnið er ungt og muna að tilgángurinn með leikföngum er m.a. sá að fá barnið til að einbeita sér við verk sitt og hugsun. Það gerir það bezt með því að skorða leik sinn við sem fæsta hluti. Foreldrar ættu einnig að muna, að fá leikföng kenna nægjusemi svo eitthvað sé nefnt og veita mesta ánægju. Gætum þess einnig að val leikfanga er vandaverk því með þeim búum við börnin undir lifið og innrætum þeim raunveruleikann, að miklu leyti.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.