Dagblaðið - 09.08.1978, Side 4
28311 28311
Fasteignasalan Eignavör
Hverfisgötu 16 A.
Höfum til sölu 1000 fermetra húsnæði í
Hafnarfirði á einni hæð. 6000 fermetra
byggingalóð fylgir húsinu. Upplýsingar á skrif-
stofunni eða i heimasimum.
41736 Einar Óskarsson
74035 Pétur Axel Jónsson lögf ræðingur.
28311
28311
Fasteignasalan Eignavör
Hverfisgötu 16 A.
Til sölu:
5 herbergja íbúð við Miklubraut.
4 herbergja góð íbúð í steinhúsi við Grundarstíg.
4 herbergja jarðhæð við Álfhólsveg.
3 herbergja efri hæð við Karfavog.
3 herbergja ris við Kópavogsbraut.
Sumarbústaður í Þrastaskógi. Möguleiki að taka bíl
upp í verðið.
Okkur vantar íbúðir í sölu og heimasímar
eru:
41736 Einar Óskarsson
74035 Pétur Axel Jónsson lögfræðingur.
Sumarhótelið IMesjaskóla
Hornafirði simi 97—8470
r-m~-rrr\
Gisting í björtum og rúmgóðum eins og tveggja
manna herbergjum.
Svejhpokapláss í herbergjum og í skólastofum.
Heitur og kaldur matur allan daginn.
Góð aðstaða til hvers kyns funda- og
ráðstefnuhalda.
Verið velkomin í Sumarhótelið Nesjaskóla Horna-
firði.
Hjúrkunarfræðingar
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæzlu-
stöðina í Árbæ, Reykjavik, er laus til um-
sóknar.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Æskilegt
er að umsækjandi hafi sérmenntun í heilsu-
vernd.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu fyrir 15. september 1978.
Heilbrigöis- og
tryggingamálaráðuneytið.
BILAPARTASALAN
Höfum iírval notaðra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, til dæmis:
Land-Rover '65, Chevrolet Nova '67,
Saab '68, Hillman Hunter '70, VW
1600 '69, Willys '54.
Einnig höfum vid úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendum um allt land.
0
BÍLAPARTASALAN
Höfiatúai 10 - Simi 11397
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGUST 1978.
DB é neytendamarkaði
Brennivínið er
dýrara en Campari
Miðað við alkóhóiinnihald og verð er Campari ódýrara enn brennivín.
Kristján Steinsson,
Reynimel, skrifar:
Ég var að lesa • um verð á áfengi á
Neytendasiðunni. Mér telst til að verð
á Campari (Bitter) sé ódýarast á
markaðinum. Flaskan kostar kr. 4400
einn lítri. Alkóhólinnihald er 29%.
Það væri gaman að fá samanburð á
verði á Campari og brennivíni, þegar
hlutfall milli þessara víntegunda hefur
verið reiknað út, en brennivinið er 3/4
lítri 39% alkóhól og kostar 5100 kr.
Það væri fróðlegt að fá upplýsingar
um hvor tegundin er dýrari, miðað við
alkóhólinnihald.
Með kærri kveðju og þökk fyrir góð
skrif um neytendamál.
P.S. Lengi lifi Dagblaðið!
Svar:
Við þökkum Kristjáni góðar óskir i
okkar garð og getum upplýst hann um
að miðað við alkóhólinnihald og verð
er Campari ódýrara en brennivín.
1 % af alkóhóli í Campariflöskunni
kostar 151,72 kr: en 1% af alkóhóli i
brennivinsflöskunni kostar 174.36 kr.
A.Bj.
Miðað við alkóhólinnihald og verð er
Campari ódýrara enn brennivin.
Raddir neytenda
Saltið kjötið eftir steikingu
Saltið aldrei kjöt áður en það er kjötinu og það er verra að brúna það
steikt. Saltið „dregur” safann úr saltað en ósaltað.
Saltið kjötið þegar þaðerbúiðað
brúnast.
Aldrei lok á feitispottinn
Þegar steikja á eitthvað í feiti,
franskar kartöflur, fisk eða kleinur,
má aldrei hafa lok á feitispottinum.
Feitin á að vera það heit að bláleitur
eimur stígi upp úr pottinum.
Stinga má eldspýtu ofan í feitina; ef
það sýður vel í kringum brennistein-
inn er feitin mátulega heit.
„Pólskur blómkáls-
réttur”
Nú er fyrsta islenzka blómkálið ný-
komið á markaðinn. Marga frábæra
rétti er hægt að búa til úr blómkáli.
Eini gallinn er sá, að það er enn sem
komið er nokkuð dýrt í innkaupi. Von-
andi fer á sömu leið og með tómat-
verðið, að það lækki þegar frá líður og
framleiðslan eykst. — Til er réttur sem
heitir „pólskur blómkálsréttur". Ekki
vitum við hvernig nafnið er tilkomið
en réttinn lærðum við að búa til i Dan-
mörku. Þetta er léttur og sumarlegur
réttur.
Stórt blómkálshöfuð (eða tvö minni)
(1260 kr.)
4—6 tómatar (ca 2—300 kr.)
Smjörliki
Ca4dlrasp.
Blómkálið er soðið í potti. Bezt er að
láta það snúa niður og skera kross í
stilkinn. Þegar stilkurinn er orðinn
meyr er kálið soðið. Brúnið smjörlikið
Uppskrift
dagsins
á pönnu og steikið raspið þar i. Þegar
það er orðið fallega Ijósbrúnt er kálið
fært upp á fat (helzt kringlótt), heitu
raspinu hellt yfir og tómatbátum
raðað í kring.
Verð: Um 1670 kr. eða 417 kr. á
mann.
A.Bj.
Dagblað
án ríkisstyrks
920 kr. en ekki 560 kr.
1 uppskriftinni okkar í gær að „Bita-
pikles” varð villa i verðútreikningnum.
í samlagningunni var aðeins gert ráð faernisvillu.
fyrir einu kg af agúrkum. Verðið á
allri uppskriftinni á að vera um 920 kr.
Við biðjumst afsökunar á þessari fljót-
A.Bj.