Dagblaðið - 09.08.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978.
5
DOLLARINN KOST-
AÐIUM 2000 KR.
þegar varan, sem kom flugleiðis til landsins, var komin íbúðarhillurnar
Þess eru dæmi í vöruinnflutningi til
landsins þar sem i neyð hefur verið not-
azt við flutninga í lofti að flutningsgjald
vörunnar hefur verið rúmlega þreföld sú
upphæð sem vörusendingin hefur kostað
þá er hún var komin á flugvöllinn er-
lendis.
1 þvi tilfelli sem hér um ræðir kostaði
varan á flugvelli erlendis 22 þúsund
krónur. Flutningsgjaldið fyrir pakkana
heim var hins vegar 68 þúsund krónur.
Hver bandarískur dollar I þessari
vörusendingu var kominn i 1116 krónur
þá er þessi litla sending var til íslands
komin. Þegar búið var að leggja á hana
önnur gjöld, s.s. tolla, vörugjald, álagn-
ingu heildsala og smásala og síðast sölu-
skatt var hver dollar í vörusendingunni
kominn fast að 2000 krónum.
í ýmsum öðrum tilfellum veit blaðið
dæmi þess að flugfraktin yfir hafið
nemur hærri upphæð en greitt er fyrir
vöruna sjálfa erlendis. Það mun tiltölu-
lega hagkvæmt að flytja dýra vöru flug-
leiðis til landsins. Má þar til nefna t.d.
demanta. Lítið magn af þeim ef nokkuð
mun flutt hingað til lands. Neyzluvara í
flugfrakt er hinsvegar óheyrilega dýr.
—ASt.
EKKIEINN TEKINN ÚR
UMFERÐ VEGNA VÍNNEYZLU
— mótið til fyrirmyndar um f lesta hluti
Ekki var sukksamt á öllum hátiða-
höldum verzlunarmannahelgarinnar. 1
Galtalæk þurfti engan mann að taka úr
umferð sökum ölvunar að sögn móts-
stjórans, Halldórs Árnasonar. „Áfengis-
notkun hjá okkur var sáralítil og mjög
litið bar á henni,” sagði Halldór.
Um 2000 manns munu hafa verið á
móti templaranna i Galtalækjarskógi
við Heklu. Halldór kvað þarna hafa ver-
ið marga aldurshópa en fjölskyldufólk
og unglingar hefðu verið hvað mest
áberandi.
„Það virðist vera að menn sem vilja
fara á fyllerí heimsæki ekki okkur leng-
ur,” sagði Halldór. „Þeir fara heldureitt-
hvað annað þar sem þeir telja að þeir
falli betur inn í umhverfið.”
Lögreglan frá Hvolsvelli, sem kom
öðru hvoru á mótsstaðinn á Galtalæk,
átti því náðuga daga á mótssvæðinu. Á
öðrum mótsstöðum var ekki svo góða
sögu aðsegja.
Halldór Árnason kvað einsýnt áð
haldið yrði áfram að halda mót i Galta-
lækjarskógi, svo góð væri reynslan sem
af mótunum hefði fengizt. Hinsvegar
mundi verða lögð enn ríkari áherzla á að
fólk skemmti sér sjálft í stað þess að fá
allt upp i hendurnar eins og tiðkazt
hefur með aðkeyptum skemmtikröftum.
Veður á mótsstaðnum var frábært um
helgina og skógurinn fallegur eins og
bezt verður á kosið. Umgengni um
svæðið kvað Halldór til algjörrar fyrir-
myndar og hreinsunarmenn hefðu átt
léttan eftirleik þegar mótinu lauk.
—JBP—
Guðmundur
Í2.‘4.sæti
Jóhann Hjartarson
vekurathygli
Grúnfeld frá ísrael er nú efstur
með 6 vinninga eftir 7 umferðir af
9 á Skandinavia Grand Prix skák-
mótinu sem nú er háð í Skien í
Noregi.
Guðmundur Sigurjónsson, Ö-
gard, Noregi, og Schússler, Sví-
þjóð, eru allir með 5 1/2 vinning.
jóhann Hjartarson, sem er einn
Islendinganna sent teflir þarna í
meistaraflokki, hefur hlotið 4 1/2
vinning. Hann er aðeins 15 ára
gamall og hefur frammistaða hans
vakiðmiklaathygli. BS.
Síðasta
Rauðhetta
aðsinni
Að sögn forsvarsmanna Rauð-
hettumótsins á Úifljótsvatni
verður þetta síðasta mótið, a.m.k.
aðsinni.
Sögðu þeir að hin litla aðsókn
nú miðað við aðsóknina áður hafi
ekki komið þeint í opna skjöldu.
Slík mót væru aðeins í tízku í
skamman tíma á hverjum staðeins
og reynslan hefði sýnt annars stað-
ar.
Hafi þeir um tíma verið að velta
fyrir sér að hafa mótið í fyrra það
síðasta en svo ákveðið að reyna
einu sinni enn.
Á milli tvö og þrjú þúsund
manns sóttu mótið nú eða nálega
helmingi færri en í fyrra. Þrátt
fyrir það gerði gjaldkeri mótsins
sér vonir um að dæmið gengi upp,
skátahreyfingin tapaði ekki á mót-
Unga kynslóðin og
gömlu umbótatækin...
Sums staðar til sveita er enn i dag
talað um „farmallinn”. Það orð varð
viða fast i málinu á dögum mikilla um-
bóta i landbúnaðinum. Ástæðan var sú
að vinsældir Farmall-dráttarvélanna
urðu sllkar að vöruheitið festist á tæk-
in, jafnvel þótt þau væru af allt annarri
gerð.
Unga fólkið leikur sér viða að þess-
um tækjum þar sem þau standa e.t.v. i
hlaðvarpanum, — orðin hreinustu
minjagrípir eða fornminjar. Þótt þau
séu ekki eins vigaieg að sjá og nýjustu
dráttarvélarnar, módel sjötiu-og-átta,
þá stóð „farmallinn” sannarlega fyrír
sinu. DB-mynd Hörður.
Rafeindaklukkan
— vekjari, minnir á,
tekur tímann.
Hér er kottiinn þarfur þjónn, einstakleRa
þæRÍIegur í umgenj>ni. Klukka b>}ít»ð á raf-
eindatækni, genuur hljóðlaust fvrir rafmaRni.
Það trvuttir nákvæmni, endintju or fjölþættari
n()tkunarmó”ideika en annars er kostur.
— Vekjarinn }>efur frá sér ákveðin en þæ}»ilej>
hljóðnterki sem vekja með hægð. liallir þú
klukkunni kallar hún á þi}> aftur eftir 9
mínútur.
— Kafeindaklukkan }>etur minnt þi}> á hvað
sem er á heintili eða vinnustað: kakan sé
bökuð, }>óður þáttur að byrja í útvarpinu,
fundartími að nál}jast.
— Kafeindaklukkan getur svnt sekúndur 0}>
nvtist sem skeiðklukka ()}> tímamælir á þeint
fjrundvelli.
— Lýsandi tölur sýna tímann, Itæði í myrkri
o}j birtu.
Kafeindaklukkan er fáanlejj í 4 litum o” viðar-
klædd. Fallefj o}j vönduð íslen/k framleiðsla.
Ars áby rjjð.
Sendum gegn
póstkröfu.
Söluskrífstofa Ármúla 5,
105 Reykjavik. slmi 82980
OreifiaOiltir um laiutið
Óska eftir bæklintj um rafeindaklukkuna
Nal'n.........
Ilcimilisfanu .
Roykjuvik Úr og kluhkur Laugnvuyi 49. Peul E. HawJe úrsmúVir. GlieHifwe, ~
Storíó Hufnarttrasti 6. - Kópuvogur. RaftutkjavorHun Kópavog* Hamraborg 11. -
Hufnarfjörður Mngnúu QuÓlaugsfton urftntiAur Strandgötu 19, - MoftfaUuftvuit.
Samvirkinn bverholti, - Vofttmannauyjtir. Kjuml hf. Skólavogl 1. - Akureyri.
Hljóntver */f Qlorúrgotu 32. - Akranaft. Varzkmin Bjarg hf. SkólatKautZl. Seffo$».
Karí R. GuómuiKfsson úrsmióur Austurveg 11. * EgiltataÓir. Kaupfólag Hóraósbúa.
Stóóvarfjoróur. Kaupféiag StoÓfiröinga - Rauðilaukur. Kaupfélag Rangieinga,
útitoú. ~ HvoisvöUur Kaupfólag Rangæinga. útibú. - Siglufjörflur Rafbœr »/f
Aflaigótu 20. - Blönduflft. Kaupfólag Húnvetntnga. ~ Sauflórkrflkur Raríio og tjfln
varpsþjónustun og Kaupfólag Skagfirflinga