Dagblaðið - 09.08.1978, Side 6

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978. eftir að íslendingar, Svíar og Norðmenn hættu viðskiptum Brask Thomsen bankastjóri Finans- bankans danska hefur nú vakið athygli fyrir óvenjulega auglýsinga- mennsku bæði í Bandaríkjunum og Vestur-Þýzkalandi. Að sögn vestur- þýzka tímaritsins Der Spiegel þá hafa vestur-þýzk yfirvöld gert nokkrar athugasemdir við auglýsingaaðferðir Finansbankans. Til þessa ráðs munu stjórnendur bankans hafa gripið er nær algjörlega tók fyrir viðskipti hans við sparifjár- eigendur í Noregi, Svíþjóð og íslandi vegna óvæntra afskipta skatta og gjaldeyrisyfirvalda viðkomandi landa af málinu. Vestur-þýzk yfirvöld hafa meðal annars bannað Finansbankanum að auglýsa þar í landi að inneignir I bankanum væru 100% öruggar. Nokkrar fyrirspurnir hafa borizt til opinberra aðila um áreiðanleik bankans og hvort inneignir væru þar öruggar. Hefur kveðið svo rammt að slíkum fyrirspurnum að útbúið hefur verið fjölritað svar. í þvi segir í kulda- legum kanselístíl að Finansbankinn sé háður dönskum lögum og eftirliti. Það merki aftur á móti á engan hátt það sama og að ríkisábyrgð sé fyrir inn- eignum viðskiptamanna bankans. Ekki þykja auglýsingaaðferðir Finansbankans á erlendri grundu beint í hinum hefðbundna virðulega bankaanda. Forsvarsmenn bankans láta sér það í léttu rúmi liggja enda hefur stjórnandi utanríkisviðskipt- anna látið svo ummælt að þeir reki sín viðskipti eins og hvert annað þvotta- efnafyrirtæki. Samkvæmt útreiknifigum Der Spiegel hafa vestur-þýzkir sparifjár- eigendur sem lagt hafa fé sitt inn I Finansbankann ekki borið mikið úr býtum og sumir jafnvel tapað. Ástæðan fyrir þeirri niðurstöðu er óhagstáeð staða dönsku krónunnar gagnvart vestur-þýzka markinu. Til dæniis er tekið að þeir lágmarksvextir, sem bankinn tryggi hafi ekki dugað til að vega upp á móti falli dönsku krón- unnar milli 1977 og 1978. Lágmarks- vextir í Finansbankanum eru 10% en danska krónan seig um 10,8% á árinu. Erlend viðskipti Finansbankans munu hafa gengið vel að undanförnu og samkvæmt dönskum heimildum er Mikið er um dýrðir enda tilefnið ærið. Finansbankinn er að opna nýtt útibú. Líklegast mundi heyrast hljóð úr horni ef þessir siðir yrðu teknir upp hér á landi. Danmörk: talið að inneignir Bandaríkjamanna og Vestur-Þjóðverja í bankanum nemi mörg hundruð milljónum króna. Gangandi auglýsing frá Finansbank- anum danska í Vestur-Þýzkalandi. Við höfuð mannsins sér i skiltið á skrif- stofu bankans. Finansbankinn snýr sér til bandarískra og v-þýzkra sparifjáreigenda ítalía: Kista Páls páfa flutt til Rómar Kista Páls páfa sjötta verður flutt i dag frá sveitasetri hans til Rómar en þar Frakkland: Eldur á sólarströnd Hundruð manna flýðu heimili sín og sumardvalarstaði við frönsku Miðjarðarhafsströndina, sem nefnd er Cote D’azur, er skógareldur lagðist yfir veginn sem liggur þaðan til Saint Tropez. Vindur var óhagstæður á þessum slóðum. Barizt var við eldinn bæði á jörðu niðri og með aðstoð flug- véla. Á timabili var óttazt að um það bil fimmtiu íbúðarhús á ströndinni væru 1 hættu. Mjög margir sumargestir eru á þessu strandsvæði eins og annars staðar á suðurströnd Frakklands um þetta leyti árs. verður hann lagður til hinztu hvíldar í Péturskirkjunni á laugardag. Þúsundir manna höfðu safnazt saman meðfram hinni þrjátíu kilómetra leiðsem kistunni verður ekið, til að votta hinum látna trúarleiðtoga virðingu sína. Margir þjóðarleiðtogar munu verða viðstaddir útför Páls páfa. Rosalynn,« eiginkona Carters Bandaríkjaforseta, verður fulltrúi manns sins við athöfnina. Fyrsti fundurinn til undirbúnings kjöri nýs páfa var haldinn í gær. Mikil óvissa ríkir um hvaða kardináli verður kjörinn en þeir eru eitt hundrað og fimmtán sem kosningarétt og kjörgengi hafa. Páll páfi hefði að þvi er talið er ekki látið eftir neinar óskir um eftirmann. Slikt mun Jóhannes páfi tuttugasti og þriðji, for- veri Páls, hafa gert. Tók páfakjör þá þvi óvenju stuttan tíma, eða þrjátiu og sex klukktistundir. I REUTER i Smurbrauðstofan BJORNINN NjóUgötu 49 - Simi 15105 London: Viltu veðja um rigningu í London? Nú gefst Bretum kostur á að veðja um veðrið. Einn helzti veðmangari þar í landi hefur boðið hverjum sem vill að segja til um veðrið í London næstu tvo sólarhringana eftir að veðurstofan þar í borg tilkynnir þurrk. Ekki hefur rignt meira að sumarlagi síðastliðinn áratug i London heldur en í sumar. Þeim sem vill reyna sig við að geta til um veður- farið og veðja við veðmangarann gefst kostur á likunum fimm á móti einum. Þannig að ekki hefur hann ýkja mikla trú á að uppstytti. Að sögn sérfræðinga hafa ekki liðið tveir sólarhringar án þess að regn hafi vætt götur Lundúnaborgar síðast- liðnar tvær vikur. Rétt er að taka fram að veðmál eru lögleg í Bretlandi innan vissra marka. Fyrir þá sem kynnu að hafa hug á að taka tilboði hins brezka veðmangara skal upplýst að síðustu veðurspár gera ráð fyrir mikilli rigningu í London. Kristina Onassis gekk að eiga Sovétmanninn Sergei Kauzov í Moskvu á dögunum. Myndin er frá þeirri athöfn er þau hjóna- kornin gengu i borgaralegt hjónaband samkvæmt venjum þar eystra.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.