Dagblaðið - 09.08.1978, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978.
7
Cyrus Vancc fór með skilaboð frá Carter Bandarfkjaforseta þar sem hann bauð Sadat og Begin til fundar við sig. Á myndinni
er Moshe Dyan að taka á móti bandarfska utanrfkisráðherranum, er hann kom til tsrael.
Begin og Sadat
funda með
Carter
— fundarstaður Camp David
fimmta september.
Tilkynnt var í Hvíta húsinu í
Washington í gærkvöldi að Jimmy
Carter Bandaríkjaforseti mundi hitta
Begin forsætisráðherra ísraels og
Sadat forseta Egyptalands að máli í
næsta mánuði. Sérstaklega var tekið
fram að forsetinn gerði sér ekki vonir
um að á fundi þeirra þriggja geti tekizt
neinir friöarsamningar. Munu þjóðar-
leiðtogarnir hittast á sumardvalarstað
Bandaríkjaforseta, Camp David í
Maryland.
Menachem Begin, forsætisráðherra
lsraels, fagnaði boði Carters og sagði
það bera vott um mikið pólitískt hug-
rekki. Begin tók einnig fram að stefna
ísraelsmanna væri óbreytt hvað
varðaði friðarsamninga við Egypta-
land. Ibrahim Kamel, utanríkisráð-
herra Egyptalands, sagði að Egyptar
teldu Bandaríkjaforseta vilja með
heimboði sínu leggja sérstaka og
þunga áherzlu á að samningaviðræður
haldi áfram á milli Israels og Egypta-
lands.
„Ef þessi fundur verður árangurs-
laus,” sagði utanríkisráðherrann,
„verða Bandarikin að leggja fram eig-
in tillögur til lausnarí málinu.”
Jeremy Thorpe, fyrrum foringi Frjálslynda flokksins brezka, má muna timana
tvenna. Fyrir þrem árum var hann vinsælasti stjórnmálaforingi Breta en nú er
hann ákærður fyrir morðtilraun.
Hefja Frakkar
aftur flugtafir?
Franskir flugumferðarstjórar munu
í dag ákveða hvort þeir taki aftur upp
hægagangs afgreiðslu á þeim flug-
vélum sem um franskt flugstjómar-
svæði fara. Þeir stöðvuðu sams konar
aðgerðir um miðja siðustu viku er
flutningamálaráðherrann franski
lofaði að hefja viðræður við forustu-
menn þeirra. Helztu kröfur flugum-
ferðarstjóranna beinast að betri vinnu-
skilyrðum, hærri launum, meirastarfs-
liði og réttindum til að fara í verk
fall.
Talsmaður þeirra sagði I gær að
viðræðurnar við ráðherrann hefðu
ekki borið neinn árangur og engin
ástæða væri til bjartsýni vegna þeirra.
Byrjun þeirra lofaði ekki góðu. í mót-
mælaaðgerðunum sem flugumferðar-
stjórarnir frönsku stóðu fyrir og lauk I
siðustu viku töfðust þúsundir flugfar-
þega. Flestir þeirra voru á leið að eða
frá sumardvalarstöðum við Miðjarðar-
haf.
Enn barizt
í Beirut
Átök hófust aftur í Beirut, höfuðborg
Líbanon, snemma í morgun þegar sýr-
lenzkt herlið hóf skothríð og sprengju-
kast á borgarhverfi sem hægri sinnaðir
kristnir Libanir ráða. Þar með lauk
tveggja sólarhringa vopnahléi milli þess-
ara aðila, sem nú skiptast á skotum og
gagnkvæmum ásökunum. Saka hvorir
aðra um að vilja ná óeðlilegum áhrifum I
Libanon.
Erlendar
fréttir
OLAFUR
GEIRSSON
Friðar- og
vináttu-
samningur
milli Kína og
Japan ræddur
Utanríkisráðherrar Kína og Japan,
þeir Huang Hua og Sunao Sonoda
hittust í morgun í Alþýðuhöllinni i
Peking til að ræða nokkur atriði
væntanlegs friöar- og vináttusamnings
landa sinna. Japanski utanríkisráðherr-
ann kom til Peking í gær og mun aðal-
verkefnið vera að ræða hvemig skil-
greina eigi umráðasvæði einstakra rikja í
samningunum. Vilja Kínverjar hafa
ákvæði um það skýr og skorinorð en
Japanir aftur á móti kveða linar að orði.
Vilja hinir síðamefndu ekki styggja
Sovétmenn.
1X2 1X2 1X2
Getraunir hefja starfsemi sina á ný eftir sumarhlé meö
leikjum ensku deildakeppninnar hinn 27. ágúst.
Seðlar nr. 1 og 2 hafa veriö sendir aöilum utan Reykja-
víkursvæðisins. Félög í Reykjavík og nágrenni sæki
seðlana á skrifstofu Getrauna í íþróttamiðstöðinni.
Getraunir
Auglýsing
um aðalskoðun
bifreiða í Hafnarfirði,
Garðakaupstað og
Bessastaðahreppi
í ágúst og
september 1978.
Skoðun fer fram sem hér segir:
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Mánudagur
Þriðjudagur
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
14.8. G-5851 til G-6000
15.8 G-6001 tilG-6150
16.8. G-6151 tilG-6300
17.8. G-6301 til G-6450
18.8. G-6451 til G-6600
21.8. G-6601 til G-6750
22.8. G-6751 til G-6900
23.8. G-6901 tilG-7050
24.8. G-7051 til G-7200
25.8. G-7201 tilG-7350
28.8. G-7351 til G-7500
29.8. G-7501 tilG-7650
30.8. G-7651 til G-7800
31.8. G-7801 til G-7950
1.9. G-7951 tilG-8100
4.9. G-8101 tilG-8250
5.9. G-8251 til G-8400.
6.9. G-8401 til G-8550
7.9. G-8551 til G-8700
8.9. G-8701 til G-8850
11.9. G-8851 til G-9000
12.9. G-9001 tilG-9150
13.9. G-9151 tilG-9300
14.9. G-9301 tilG-9450
15.9. G-9451 tilG-9600
18.9. G-9601 til G-9750
19.9. G-9751 tilG-9900
20.9. G-9901 tiIG-10050
21.9. G-10051 tilG-10200
22.9. G-102001 onþaryfir
Skoðun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnarfirði
frá kl. 8.15 til 12.00 og 13.00 til 16.00 alla
framangreinda skoðunardaga.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við
skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki
fyrir því, að bifreiðaskattur og vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi. Athygli skal vakin á
því að skráningarnúmer skulu vera læsileg.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tíma, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðalögum
og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar næst.
Við fullnaðarskoðun bifreiða skal sýna ljósa-
stillingarvottorð.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að
máli.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu,
8. ágúst 1978.
Einar ingimundarson.