Dagblaðið - 09.08.1978, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978.
Formaiur verkalýðsfélagsins um atvinnuástandið á Suðumesjum:
ATVINNULAUSIR LEITA A VOLLINN
UM LEIÐ OG ATVINNULAUSIR
ÞAÐAN LEITA í DAUÐA FISKVINNU
„Þótt fólk sæki yfirleitt i frí á þessum
tíma held ég að atvinnuleysisskráningar
nú séu fleiri en áður enda hefur stöðvun
frystihúsanna um þetta leyti áður frem-
ur markazt af sumarleyfum en brostnum
rekstrargrundvelli. Nú er hins vegar ekki
nema svarta þoka framundan,” sagði
Karl Steinar Guðnason formaður verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur í við-
tali við DB í gær.
Karl Steinan Ofan á atvinnuleysið i kjöl-
far lokunar frystihúsanna bætast fjölda-
uppsagnir starfsmanna á Keflavíkurflug-
velli. DB-mynd Ari.
Heimsókn í ,Stóru milljón’:
Salurinn má muna
sinn fífil fegri
— Einn karlmaður Í40 kvenna sal
Er DB menn heimsóttu „Stóru millj
ón” eða Hraðfrystihús Keflavíkur hf.
var þar dauflegt um að litast. 1 vinnslu-
salnum, sem venjulega iðar af lífi og at-
hafnasemi, heyrðist ekkert nema renn-
andi vatn einhvers staðar.
Loks fundum við lifandi mann þar,
Magnús Guðnason, sem þar hafði enn
vinnu við eftirlitsstörf. Var hann að
vonum harla óhress með þetta ástand og
sagði er hann leit yfir auðan vinnslusal-
inn: „Hann má muna sinn fifil fegri með
a.m.k. 40 lifandi konum þegar allt er
eins og það á að vera.”
—G.S.
Svona var umhorfs i „Stóru milljón” Hraðfrystihúsi Keflavíkur hf um miðjan daginn í
.gær, þar sem annars hefðu a.m.k. 40 konur verið önnum kafnar. DB-mynd Ari.
Starfsmaður hjá Miðnesi hf:
„Við karlmennirnir
höfum vinnu áfram”
Ekki fisktitt að sjá í fiakimóttöku Miðness hf. í Sandgerði. Vinnslusalirnir voru
ámóta eyðilegir, likt og fólk hafi lagt á skyndilegan flótta. DB-mynd Ari.
„Við karlmennirnir höfum flestir
vinnu áfram við lagfæringar, breytingar
og viðhald eftir að konunum var sagt
upp,” sagði Ríkharður Hinriksson starfs-
maður Miðness hf. er DB menn hittu
hann á vinnustað i gær.
Þar var lítilsháttar vinna við pökkun
: tórlúðu auk þess sem unnið var að
breytingum og viðhaldi. Ríkharður er
nýfluttur til landsins og þvi litt kunnur
ástandinu hér.
Að ástandinu nú slepptu taldi hann
hinsvegar eðlilegt að hvert frystihús
legði niður vinnu einn mánuð á ári til
þess að gefa starfsfólki sínu sumarleyfi.
—G.S.
„Þá veldur það okkur áhyggjum að
um leið og hluti þessa fólks leitar eftir
vinnu á Keflavíkurflugvelli standa yfir
verulegar uppsagnir hjá verktökum þar
svo atvinnulaust fólk úr fiskiðnaðinum
hefur ekki í nein hús að venda og öfugt,”
sagði hann ennfremur.
Án þess að vera að gerast forsvars-
maður frystihúsaeigenda á svæðinu
sagði Karl að tal fólks um „Grátkór Suð-
urnesja” sem frystihúsaeigendur væru
gjarnan kallaðir, stafaði fyrst og fremst
af vanþekkingu. Uppistaða afla á Suður-
nesjum væri karfi og ufsi, óhagkvæmar
tegundir miðað við þorsk, auk þess sem
sá þorskur sem þar fengist væri yfirleitt
stórþorskur, 20% dýrari fyrir húsin en
milliþorskurinn annars staðar án þess að
meira fengist fyrir afurðir hans. Þá færi
afli vetrarvertíðar hríðminnkandi.
Einnig væri lánapólitikin gagnvart
húsum á SV-landi jafn óhagstæð og
gagnvart bátakaupum á þessu sviði, sem
leitt hafi af sér að hvergi á landinu væri
meðalaldur báta jafnhár og á Suðurnesj-
um.
Án nokkurrar feimni sagði Karl að
verkalýðshreyfingin á Suðurnesjum
gerði sér grein fyrir að beina yrði fé til
endurbóta og tryggingar rekstrar frysti-
húsa á því svæði i þágu verkalýðsins og
þjóðarheildarinnar. —G.S.
atvinnuöryggið á Keflavfkurflugvelli.
DB-mynd Ari.
Formaður
verkakvennafélags
Keflavíkurog
Njarðvíkur:
Völlurinn
virkar nú
sem segull
á konurnar
— eru orðnar þreyttar
á öryggisleysi
fiskvinnslunnar
„Undanfafin 2 til 3 ár hefur verið
áberandi hvað konur hafa leitað hingað
með fyrirspurnir um vinnu á Keflavikur-
flugvelli vegna hins ótrygga atvinnu-
ástands í fiskvinnunni enda er kvenfólk-
inu gjarnan sagt upp fyrst án tillits til
þess hvort það er fyrirvinna síns heimilis
eða ekki,” sagði Guðrún Ólafsdóttir for-
maður Verkakvennafélags Keflavíkur
og Njarðvíkur í viðtali við DB í gær.
Sagðist hún ekki annað sjá en að með
þessu áframhaldi misstu Suðurnesja-
menn allt sitt bezta kvenfólk á völlinn
vegna öryggisleysis í atvinnulífinu ann-
ars staðar.
Um stöðvun frystihúsanna nú sagði
hún að fiskvinnslufólk tæki sumarleyfi
sin gjarnan um þetta leyti og þá í sam-
ráði við vinnuveitendur og gjarnan með
hliðsjón af samdrætti í rekstri um tíma.
Fyrirtækin hafi hins vegar ekkert get-
að sagt um framtíð sina í vor og því hafi
allmargar konur verið búnar að taka
sumarleyfi sín og snúið svo aftur heim,
— beint i atvinnuleysi. G.S.
Fiskurinn drepinn fyrir
norðanáðurenhann
kemst hingað
— þar gengur smáfiskur úr togurum fyrir
góðfiski úrtrillum
„Á meðan við gátum ekki losnað við
stórþorsk, sem var um 70% afla okk-
ar, gat heimatogarinn landað afla sem
við hefðum vart þorað að bera að landi,”
sagði Ólafur Daviðsson trillueigandi í
Sandgerði. Hafði hann nýlega keypt
trillu frá Hofsósi og hugðist gera út það-
an en losnaði ekki við ágætan afla sinn
vegna togaraaflans.
„Ég held að sumir þessara ungu tog-
araskipstjóra viti ekki hvernig góður
þorskur lítur út,” sagði hann. Hyggst
hann nú hefja skak frá Sandgerði og ótt-
ast ekki að losna ekki við aflann. Vildi
hann ekki trúa að það gæti orðið erfitt
þótt hann gerði sér grein fyrir erfiðari
aðstöðu frystiiðnaðarins á Suðurnesjum
miðað við aðra landshluta.
Var hann að vonast til að þetta stopp
nú væri fremur fyrirsláttur en alvara þar
sem þetta væri bezti timinn fyrir húsin
til lagfæringa og bezti tíminn fyrir stærri
báta að fara í slipp. Þó fannst honum
verri blikur á lofti nú en oft áður.
—G.S.
Ólafur Daviðsson: Verri blikur á lofti en
áður.
DB-mynd Ari.
Ásta Grétarsdóttir og Guðrún Brynja Jóhannesdóttir skrá sig atvinnulausar hjá
Svölu Björgvinsdóttur, starfsmanni á bæjarskrifstofunni í Keflavik. DB-mynd Ari.
Meðal atvinnuleysingja í Keflavík:
Skömmumst okkar
fyrir atvinnuleysi
Hundruðir manna á Suðurnesjum eru
nú atvinnulausir vegna stöðvunar frysti-
húsanna, einkum kvenmenn. DB mönn-
um gekk erfiðlega að ná tali af þessu
fólki undir nafni enda hálfskammaðist
það sín fyrir að vera atvinnulaust þótt
það gæti engu um það breytt á skákborði
peningavaldsins í landinu.
í gær var fólk að skrá sig á atvinnu-
leysisskrá á bæjarskrifstofunum og ann-
að var þangað komið til að fá daglegan
stimpil í skírteini sin um atvinnuleysi til
að fá styrk sinn greiddan á föstudaginn
kemur.
Var það fremur hnípinn hópur og
margir hörfuðu undan ljósmyndavélinni
er til stóð að taka myndir. Ekki var að
merkja fjandskap út í fyrirtækin sem
slík, fólk virtist skilja að þau væru ekki
aðlokaaðgamnisinu. — G.S.