Dagblaðið - 09.08.1978, Side 11

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978. n tilheyra Búlgariu en ekki Júgóslavíu. Þetta er kjarni málsins. En það er misskilningur ef menn halda að Búlgarir hafi þegar blásið i herlúðra. Heimsvaldapólitíkin er leikin öðruvísi nú á dögum en þegar Alexander hinn mikli Makedóníu- konungur var uppi. Todor Zhivkov, leiðtogi Búlgara, lýsti því yfir í júlí síðastliðnum að hann væri reiðubúinn að fara tafar- laust til Belgrad og gefa þar út yfir- lýsingu með félaga Tító um að ríkin tvö virtu landamæri hvors annars. Júgóslavar tóku þessu boði fálega. Að þeirra dómi skiptir það höfuðmáli að Búlgarar fáist til að viðurkenna Makedóna sem sérstakt þjóðarbrot bæði innan Júgóslaviu og Búlgaríu. Það er skoðun fréttaskýrenda að Júgóslavar óttist að Rússar standi á bak við Búlgara. „Rússar eru stóri bróðir Búlgara og ef þeim líkaði ekki hegðun Zhivkovs þá mundu þeir láta hann vita af því og hann tæki tillit til þess,” er sagt í Júglósavíu. Ótti Júgóslava er ekki sizt sprottinn af óvissu þeirra um hvað við tekur þegar þjóðarleiðtoginn, hinn 86 ára gamli Tító forseti, fellur frá. Fráfall hans verður án efa mesta prófraun Júgóslaviu sem sambandsrikis. Haft er fyrir satt að ekki líði sá dagur að ekki heyrist óánægjurödd frá einhverjum landshlutanum. Aðeins eru liðin sjö ár frá því Tító varð að taka á öllu sínu til að halda þjóðernishreyfingu meðal Króata í skefjum. Kannski að raunsæi bjargi Júgóslaviu frá klofningi. „Samband’ lýðveldanna er eins og flest hjóna- bönd”, er haft eftir einum samstarfs- manna Títós. „Það er ekki ást sem heldur þeim saman, heldur sú tilfinning að ekki sé hægt að lifa öðruvisi.” Við þessar aðstæður geta afskipti útlendinga haft alvarlegar afleiðingar. Og það útskýrir kannski hina miklu viðkvæmni Júgóslava gagnvart Makedóníu. Ef Makedónar eru raunverulega Búlgarar, eins og fullyrt er í Búlgariu, gæti þá ekki verið að einhvern daginn eftir að Tító er allur muni þeir gera kröfur til Makedóníu. Gætu svo Rússar ekki notfært sér ástandið óbeint til að þrýsta á Júgóslava? Makedónar, ung þjóð á gömlum grunni Makedónar voru ein af síðustu þjóðum Evrópu til að rækta með sér þjóðerniskennd. Það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina að ritmál Makedóna varð til og fyrsta mál- fræðin var tekin saman. Á þeim tíma höfðu margir Makedónar þegar flutt úr landi. Á eftir höfuðborg Makedóníu, Skopje, er Toronto á ttaliu fjölmennasta borg Makedóna i heiminum. {sjálfri Makedóníu bjuggu árið 1971 um 1200 þúsund Makedónar. Makedónar eru grisk-kaþólskir og kirkjur þeirrar trúarstefnu hafa barizt fyrir sjálfstæði landins. En kirkjan i Makedóníu, sem stofnuð var eftir stríð og er undir áhrifum kommúnista, heldur þvi fram að hún sé algerlega óháð og stjórni sér sjálf. Það viðurkenna ekki aörar grisk-kaþólskar kirkjur. Búlgarar gera sér auðvitað mat úr þessu. Þeir segja að tunga Makedóna sé aðeins búlgörsk mállýzka og þjóðar- saga Makedóna sé ekkert frekar til en sérkirkja þeirra. Gallinn er bara sá að fyrir rúmum tuttugu árum viðurkenndu Búlgarar Makedóna sem sérstaka þjóð. 1 manntali þeirra frá 1956 eru 187.789 Makedónar skáðir i Búlgaríu sem þjóðarbrot. t nýjasta manntali Búlgara er hvergi á Makedóna minnzt. Svo virðist sem þeir hafi gufað upp á tuttugu árum! Júgóslavar telja að Sovétríkin eigi þarna hlut að máli. Það er alkunna að rígur hefur verið á milli Sovétríkjanna og Júgóslavíu um árabil eftir að Júgóslavar lýstu því yfir að þeir væru óháðir Kremlarvaldi. Fjandskapur landanna hefur orðið til að glæða vonir Búlgara um stærri Búlgaríu en þá sem stofnuð var eftir hrun tyrkneska heimsvaldsins á Balkan- skaga seint á siðustu öld. Hvað sem tortryggni Júgóslava liður sýnist afstaða Rússa ákaflega tvíræð. t deilum af þessu tagi er mál- fræði eins mikilvæg og bein vopna- skipti. Tungumál er prófsteinn á þjóð- erni. t þvi sambandi er mikilvægt að hafa í huga að Rússar hafa nýlega gefið út rússnesk-makedónska' orðabók. Makedónskir fræðimenn hafa og farið reglulega til Sovétrikj- anna og flutt þar fyrirlestra um tungu Makedóna. Spyrja má hvort rússneskir fræði- menn aðhyllist ekki mjög svipaðar skoðanir á tungu Makedóna og margir fræðimenn á Vesturlöndum. Að vegna mállegra og félagslegra aðstæðna hafi tunga Makedóna verið lengi að taka á sig sérstakt form en hafi þó verið til frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Það má vel vera. En það þarf meira en fræðikenningar til að sannfæra Júgóslava um að vandamál Makedóniu verði ekki einhvern daginn notuð til að tefla öryggi Júgóslaviu í hættu og skaða valdajafn- vægið í Evrópu. 230 ÞÚSUND KRÓNUR A KLUKKUSTUND töldu sérfræðingar að nægilegrar reynslu hefði verið aflað til þess að frekari boranir gætu skilað árangri. Hola nr. 9, en það er sú sem mesta gufu gefur nú, hefur reynst vel eftir að svokallað efra kerfi var fóðrað af. Jafnframt telja þeir sem til borana þekkja, að ekkert háhitasvæði i heiminum sé þannig frá hendi náttúr- unnar, að þar sé hægt að benda á einhvern tiltekinn stað þar sem bora megi með fulkomnum árangri. Tilraunaboranir sé eina þekkta aðferðin til þess að kanna orkugjöf slíkra svæða. Það er verið að fjargviðrast út af kostnaði við bor- holur, en þær munu kosta 250—300 milljónir hver um sig fullfrágengin. Talið er að ekki þurfi að bora meira en 8—11 holur við Kröflu til þess að hægt sé að framleiða þau megawött til viðbótar sem annar hverfillinn afkastar. Og þeir pólitkíkusar sem stjórna þessum framkvæmdum, hafa fengið hland fyrir hjartað, ætla senni- lega að hlaupa frá öllu saman vegna þess að búið er að ljúga svo miklu i almenning að atkvæði þeirra eru i hættu.ef þau eru þá ekki þegar rokin út í veður og vind. Þetta er ábyrgðar- leysi gagnvart skattgreiðendum. Með þessu hiki er búið að sóa tveimur árum til einskis annars en pólitískra hártogana og loddarabragða, ekkert hefur verið borað við Kröflu, en þannig er hún dauðadæmd. Tvömál — bæði brýn Virkjanir á borð við Kröflu eru til ,viðar en á íslandi. í nágrenni San Fransisco eru 10 slíkar virkjanir i fullum gangi, á einhverju mesta hættusvæði vestan hafs með tilliti til jarðskjálfta. Kröfluvirkjun er, tækni- lega séð, fullfær um að framleiða raforku inn á sameiginlegt dreifikerfi. Þessarar orku er þörf, þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða. Þau 6 megawött sem nú eru framleidd hafa þegar gert það að verkum að ekki hefur þurft að skammta rafmagn á Norðurlandi. Á Vestfjörðum hefur verið orkuskortur fram að þessu, en rafmagn framleitt á heimsins dýrasta hátt með disilstöðvum þar vestra. Nýja Vesturlinan, sem á aðráðabótá þessu mikilvæga hagsmunamáli vest- firðinga, verður tæplega starfrækt með viðunandi árangri nema með hjálp raforku frá Kröflu, þótt ekki sé hún nema 6 megawött eins og sakir standa. Það þarf að vinda bráðan bug að því að fullgera orkuverið við Kröflu. Til þess þarf boranir, ekki pólitískar boranir heldur framkvæmdir í þágu al- mennings á íslandi, sem þarna á mestra og ótvíðræða hagsmuna að gæta. Það er rætt um að Krafla sé dýr og vissulega má það til sanns vegar færa. Þetta er djörf tilraun til þess að nýta þá gífurlegu orku sem felst í Kjallarinn LeóM.Jónsson jörðu hérlendis og það er ekki rétt að bera kostnað við virkjun á borð við Kröflu saman við kostnað við þær vatnsaflsvirkjanir sem eru taldar með þeim hagkvæmustu í heimi — Búrfell, Sigöldu og Hauneyjarfossvirkjun. Það felst áhætta í öllum framkvæmdum og hún mismikil. Ef frekari tafir verða á framkvæmdum við Kröflu verður tap þjóðarbúsins gífurlegt, en 2—3 milljarðar til viðbótar geta skipt sköpum. Ný ríkisstjórn mun þurfa að taka af skarið í þessu máli. Það fyrsta sem þarf að gera er að hreinsa burt þann pólitkíska ódaun sem hefur fylgt Kröflu frá upphafi og nauðsynlegt er að einhverjum hlutlausum aðila verði falið að fræða þjóðina um læknilega stöðu þessarar stórframkvæmdar, hvernig henni er ætlað að afla þeirra tekna sem tryggt gætu skattgreið- endum einhverja endurgreiðslu og hve miklu fjármagni muni þurfa að veita itil þess að því markmiði megi ná. Ný ríkisstjórn. ef samtryggingin ríður ekki röftum. ætti að skipa sér- staka nefnd á borð við rannsóknar- nefndir bandarisku öldungardeildar- innar, til þess að rannsaka þá pólitjsku stjórn sem að baki Kröflu hefur staðið — til þess að rannsaka rekstur þessarar framkvæmdar fram á þennan dag og skýra afdráttarlaust frá þvi opin- berlega hvort sú gagnrýni á við rök að styðjast, sem fram hefur komið lát- laust á Kröflunefnd, formann hennar og Alþingi. Það er búið að mata þjóðina það lengi með tvíræðum upplýsingum, dylgjum. pólitískum loddaraskap, undanbrögðum og lygi í sambandi við Kröfluvirkjun, að hún þarf nauðsyn- lega að fá upplýsingar sem hún getur treyst. Án þeirra er hætt við að það sem þegar hefur verið lagt í þetta merkilega mannvirki sé á glæ kastað, nógerilltsamt. LeóM. Jónsson tæknifræðingur Ofbeit — offramleiðsla nákvæmar upplýsingar um dreifingu beitarfénaðar en það kemur þó glögg- lega I ljós að verulegur hluti sauðfjár I landinu gengur I heimalöndum allt sumaríð. Þetta er þó mjög breytilegt eftir sveitum. Þegar á heildina er litið virðist um eða innan við helmingur alls sauðfjár landsmanna ganga I afréttum. Raunar virðist það heldur hafa færst i vöxt á seinni árum að fé sé haft í heimalöndum sumarlangt, t.d. á Suðurlandi, en áætlað er að í Árnes- og Rangárvallasýslum gangi aðeins um 20% af fénu í afréttum á sumrin. Um hrossin er það að segja að þeim er flestum beitt I heimalönd. Víðast hvar er upprekstur hrossa í afrétti ann- að hvort bannaður eða takmarkaður verulega og segja má að yfirleitt sé hrossabeit i afréttum litil sem engin nema i Skagafjarðar- og Húnavatns- sýslum. Hvað heimalönd varðar hefur það komið glögglega í Ijós í könnun minni að vetrarbeit fyrir sauðfé heyrir nú að mestu fortíðinni til I flestum sveitum landsins. Með auknum kröfum til af- urðasemi hefur vetrarfóðrun batnað, fé er tekið fyrr á gjöf á haustin og er yfirleitt ekki sleppt eins snemma á vorin og áður tíðkaðist viðast hvar. Auk þess er beitt töluvert mikið á ræktað land, bæði vor og haust. Almennt er viðurkennt að þessar breytingar i búskaparháttum verki mjög jákvætt á gróðurfar úthaga, ekki síst þar sem um kjarr eða skóglendi er að ræða. Víða á láglendi er gróður ekki mikið bitinn, t.d. á mýrlendi, og í flestum tilvikum virðast heimahagar hóflega nýttir. Samt sem áður er full ástæða til að vera vel á verði, einkum þar sem land er viðkvæmt fyrir miklum ágangi, og mætti í því sam- bandi nefna sumar hrossagirðingarnar sem eru oft mjög mikið beittar. Stjórn á beitinni „En hvað hefur þá verið gert til að hafa stjórn á afréttarbeitinni?” kunna sumiraðspyrja. Áður var þess getið að í flestum sveitarfélögum væri farið að takmarka verulega eða banna upprekstur hrossa í þeim tilgangi að draga úr beitarálagi í þeim afréttum sem taldir eru fullnýtt- ir. Þeim sveitarfélögum hefur og farið fjölgandi sem setja reglur um upp- rekstur eða flutning sauðfjár í afrétti sína. Algengast er að banna upp- rekstur fyrr en seint I júni eða byrjun júlí, fylgst er með fjárfjölda við af- réttagirðingar síðla sumars, og rekið til byggða ef þurfa þykir í lok ágúst eða byrjun september og í mörgum sveitarfélögum hefur göngum og réttum verið flýtt. í heild hafa slíkar ráðstafanir orðið til þess að stytta beitartima á afrétti frá því sem áður ar, þannig að dregið hefur úr beitar- álagi. Einnig ber að minnast þess að í mörgum sveitum nýtir aðeins hluti fjárins afréttabeit svo sem áður var getið um. Skipulegri ítölu hefur þó lítið verið beitt til þessa. Með Landgræðslu ríkisins og fjöl- mörgum sveitarfélögum í landinu er ágæt samvinna um markvissar gróður- verndar- og uppgræðsluaðgerðir af ýmsu tagi. Má í því sambandi nefna áburðardreifingu, einkum á mörkum áfrétta og heimalanda, t.d. á Suður- landi, sem hefur borði góðan árangur. Með því að græða upp gróðursnauð svæði fæst betri dreifing á fénað, beitarálag verður jafnara og minni hætta er á að fé safnist saman við af- réttargirðingar síðla sumars. Gott dæmi um þetta er að finna í neðan- verðum Biskupstungnaafrétti, ofan Sandár. Við slíkar aðgerðir setur Landgræðsla ríkisins það skilyrði að hross gangi ekki á landinu og í samráði viö viðkomandi sveitarfélög eru settar reglur um afréttamýtingu sauðfjárins eftir þvi sem þurfa þykir í hverju til- viki. Á mörgum stöðum hefur þurft að alfriða land með girðingum og hefur landgræðslan viða unnið stórvirki við heftingu uppblásturs og sandfoks. Um það þarf ekki að fjölyrða. Þótt ég hafi aðeins verið stuttan tima í þessu starfi hefi ég nú þegar mætt góðum skilningi bænda viða um land á nauðsyn þess að varðveita og bæta sumarbeitilönd, hvort sem er í heimahögum eða afréttum. Gróður- verndarnefndir eru starfandi í öllum sýslum landsins og geta þær gegnt veigamiklu hlutverki með því að fylgj- ast stöðugt með ástandi gróðurlenda í samvinnu við Landgræðsluna, Land- vernd og Búnaðarfélag íslands. Raunar hlýtur skipuleg og hófleg nýt- ing úthaga að byggjast á góðu sam- starfi og gagnkvæmu trausti hinna ýmsu aðila sem um málin fjalla. Sanngirni Um árabil hefur verið unnið merkt brautryðjendastarf við ýmis konar rannsóknir á beitilöndum og gerð gróðurkorta á vegum Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins og fleiri aðila. Enn skortir þó ýmsar veiga- miklar visindalegar upplýsingar á þess- um sviðum, gróðurkort vantar af stórum hlutum landsins og þörf er á endurnýjun eldri gróðurkorta. Mikils er vænst af hinum umfangsmiklu beitartilraunum sem nú er unnið að bæði á hálendi og láglendi og hafa þær nú þegar gefið mjög gagnlegar vis- bendingar um ýmis atriði. Þess ber að geta að vaknað hafa efasemdir hjá ýmsum aðilum um nákvæmni útreikn- inga á beitarþoli landsins með hliðsjón af þeim breytingum sem orðið hafa á nýtingu úthaga siðustu árin og drepið var á hér að framan. Virðist fyllilega tímabært að endurskoðun fari fram á öllum forsendum beitarþolsútreikn- inga, þannig að renna megi styrkari stoðum undir skipulega og hóflega nýtingu beitilanda. Þeirri skoðun er stundum haldið á lofti að heilar sýslur, jafnvel heilir landshlutar, séu ofbeitarsvæði. Að minum dómi er þetta mjög ýkjum blandið og hygg að nær sanni sé að ræða um einstaka hreppa eða afmörk- um svæði í þessu sambandi. Það sést best þegar farið er um landið. Þótt gróðureyðing og uppblástur eigi sér stað á ákveðnum svæðum gefur að líta önnur svæði, þar sem gróðurfars- ástand virðist fara batnandi, og mikið af landi hefur verið grætt upp með sáningu og áburðardreifingu. Enginn vafi er á þvi að árferði hefur mikil áhrif á gróðurinn. Þannig hafa síðustu árin verið gróðri hagstæð og spretta mikil en i vor greri seint og spretta var með minna móti fram eftir sumri vegna kulda og jafnvel þurrka í sumum landshlutum. t umræðum um beitarmálefni, sem og aðra þætti land- búnaðarmála, verður að beita sann- girni og benda ekki aðeins á það sem miður fer, heldur einnig það sem vel er og horfir til framfara. Ljóst er að í framtíðinni þarf að miða val á bú- greinum og uppbyggingu á jörðum meira við stærð og gæði heimalanda og afrétta heldur en gert hefur veirð til þessa. Til dæmis geta margar landlitlar jarðir með góð ræktunarskilyrði hentaö vel til mjólkurframleiðslu og jafnvel kjötframleiðslu af naut- gripum, en ekki til verulegs sauðfjár- búskapar. Slík sjónarmið hljóta að verða ofarlega á baugi á komandi árum, enda nátengd skynsamlegri nýt- ingu beitilanda. Ólafur R. Dýrmundsson landnýtingarráðunautur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.