Dagblaðið - 09.08.1978, Page 16

Dagblaðið - 09.08.1978, Page 16
16 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1978. Myndlist HRAFNHILDUR SCHRAM r ............. Margrét Reykdal að Kjarvalsstöðum: STEMMUR LANDSLAGS- Það er jafnan nokkur viðburður þegar nýr liðsmaður bætist í hinn fá- menn hóp íslenskra kvenna sem ástunda myndlist. Á síðustu árum hefur sorglega stórt skarð verið höggið í þann skörulega hóp, þar sem Nína Tryggvadóttir, Gerður Helgadóttir, Barbara Árna- son, Eyborg Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ream hafa horfið af sjón- arsviðinu á þeim aldri t>egar listamað- urinn hefur öðlast fullan þroska og mest er af honum að vænta. Margrét Reykdal er ungur listamað- ur sem dagana 28. júlí—6. ágúst sýndi málverk og vatnslitamyndir í vestursal Kjarvalsstaða en salnum skipti hún með þeim félögum Steingrimi Eyfjörð og Friðriki Friðrikssyni. Þegar þessar línur eru skrifaðar er sýningu Mar- grétar að Ijúka og ekki víst að þær nái að komast á prent áður en sýningunni lýkur, vegna fridags verslunarmanna og annarra tafa. Að Kjarvalsstöðum dró Margrét saman 29 málverk og 10 vatnslitamyndir og eru þessi verk trú- lega afrakstur námsáranna í Noregi þar sem Margrét hefur dvalist um all- langt skeið. Þó er Margrét ekki alls ókunn reykviskum sýningargestum því hér heima hélt hún sína fyrstu einkasýningu að Hamragorðum 1974. Einnig mun hún hafa átt verk á haust- sýningu FÍM og sýnt úti í Noregi, á samsýningum bæði i Ósló og Stav- angri. Með vissri alhæfingu má segja að málverk Margrétar skiptist i tvö horn, annars vegar er um að ræða ljóðrænar landslagsstemmur, ekki landslag i eig- inlegri merkingu heldur hughrif um landslag og hins vegar manneskjur í landslagi. Ljóðrænn þokki Virðist mér af þessum verkum að dæma að þarna sé Margrét komin í hóp þeirra myndlistarmanna íslenskra sem aðhyllst hafa Ijóðræna myndlist eins og t.d. Júlíana Sveinsdóttir, Snorri Arinbjarnar og Ágúst Petersen. Þessir listamenn mála ekki landslag og fjalla- náttúru í naturalískum stíl, heldur miklu heldur landslagsstemmur og reyna á léreftinu að túlka áhrif lands- lags og náttúruafla. Oft verður útkom- an ljóðrænar hugleiðingar um næsta hversdagsleg myndefni þar sem út- linur leysast upp og litir renna saman og aðaláhersla er lögð á heildina. Viðfangsefni Margrétar eru aðal- lega opið landslag þar sem nálægð hafsins er skynjuð I andrúmsloftinu. Hvort hughrifin eru íslensk eða norsk má einu skipta. Sérlega vel orkaði á mig mynd nr. 7, lítið hús með rauðu þaki, haf, himinn og grænt tún. Þegar Margrét fjallar um manneskj- una í umhverfi hennar verður manni ósjálfrátt hugsað til Munch og norskr- ar myndlistarhefðar, og þetta segi ég á engan hátt Margréti til lasts. Ekkert er eðlilegra en að listamaður þiggi áhrif umhverfis þess sem hann nemur og vinnur. í. Mig minnir að Þorvaldur Skúlason hafi getið þess í sjónvarps- viðtali fyrir fáeinum dögum hve tamt norðmönnum á skólaárum hans í Nor- egi hafi verið að mála manneskjuna í umhverfi hennar og virðist vera enn. Nótt í Lofoten nr. 6 er heilsteypt verk og sannfærandi en í myndunum Ævintýri nr. 8 og Umhverfi nr. 18 er eins og myndefnisþættirnir vinni á móti hvorum öðrum og að þar sé skortur á viðleitni til að virkja allt myndrúmið sem samræmdan áhrifa- vald en það er algjör forsenda fyrir þvi að þessi tegund myndgerðar heppnist. Annars virðast vinnubrögð Margrétar ákaglega vönduð, hún nálgast við- fangsefnið af innlifun og tilfinningu og með jafnalhliða listnám og hún hefur að baki virðist veganestið harla gott og kæmi það mér ekki á óvart þótt Mar- grét ætti eftir vinna á þegar fram í sækir. Margrét hjá mynd sinni Nótt i Lofoten. Hrafnhildur Schram. Nýkjörin hrepps- nefnd Árneshrepps í hreppsnefnd Árneshrepps voru oddviti, Páll Sæmundsson eftirlits- sýslunefnd Guðmundur Jónsson kosnir 25. júní síðastliðinn Eyjólfur maður Djúpavík, Torfi Guðbrandsson bóndi og hreppsstjóri Munaðarnesi. Valgeirsson bóndi Krossnesi, Gunn- skólastjóri Finnbogastöðum, Adolf steinn Gíslason kaupfélagsstjóri og Thorarensen flugvallarstjóri Gjögri. 1 Regína Thor/abj. Viðskiptafulltrúi íslands í Evrópu nýtt embætti við sendiráðið íParís Utanríkis- og viðskiptaráðuneytin hafa ákveðið að stofna embætti við- skiptafulltrúa í Evrópu. Hefur Sveinn Björnsson deildar- stjóri i viðskiptaráðuneytinu verið ráð- inn til starfans'og hefur hann aðsetur hjá sendiráðinu í París. Sveinn er 36 ára með viðskipta- fræðipróf frá Háskóla Islands 1970. Áður hafði hann dvalizt veturlangt við spönskunám I Barcelona. Hann hefur verið fulltrúi og síðar deildar- stjóri í viðskiptaráðuneytinu frá 1970. Fyrir tveimur árum dvaldi hann í fjóra mánuði í Frakklandi og kynnti sér fiskiðnað og fiskverzlun þar i boði stjórnvalda. Embættið verður kostað af því fé sem veitt er til markaðsmála á fjárlög- um. ÓV. i DAGBLAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ SIMI 27022 ÞVERHOLTI i Til sölu i Barnastóll frá Krómhúsgögnum og ljóst hjónarúm með áföstum náttborðum til sölu. Uppl. í síma 73461. Til sölu vegna brottflutnings, borðstofuborð og 6 stólar, svefnbekkur og barnasvefnbekk- ur, eldhúsborð og ísskápur. Uppl. í síma l3451. 6 hesthúsbásar til sölu í Kópavogi. Uppl. i síma 30218. Til sölu cr tvíbreiður svefnsófi, flöskugrænn. Verð kr. 10 þús. og þýzkt drottningarfuglabúr á grind, hæð ca 170 cm, hvítt, verð 15— 20 þús. og dökkbrúnt burðarrúm, vel með farið, ca 5 mán. gamalt, verð 5 þús. Uppl. í síma 51436. Til sölu nýtt svefnherbergissett, snyrtiborð, dýn- ur (palesander), einnig notaður vel með farinn 2ja hurða kæliskápur með frysti að neðan, Atlas, stofukæliskápur úr tekki, einnig Atlas, svefnsófi m. pluss- áklæði, 2ja manna, 2ja sæta sófi og stóll plussáklæði og vinyl. Uppl. i síma SÁÁ vantar 2 stórar frystikistur, 2 skrifborð, ritvél, reiknivél, lítinn læstan skáp, hrærivél, ryksugu, áleggshníf og kaffivél. Allir hlutirnir verða að vera i sæmilegu ásig- komulagi og á hóflegu verði. Uppl. hjá SÁÁ í sínia 82399. Hjólhýsi. Til sölu hjólhýsi, Cavalier 200 T árg: ’74. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—119. Litið armlaust sófasett til sýnis og sölu að Reynigrund 41 Kóp. Verð 20 þús.’ Flugtimar í flugskóla Helga Jónssonar. Uppl. í síma 37269 milli kl. 5 og 10. Til sölu næstum ónotuð Toyota prjónavél. Selst ódýrt. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—159. Til sölu Westinghouse kæliskápur, 270 lítra, einnig stórt Raleigh kvenreiðhjól, vel með farið. Uppl. í síma 37472 eftir kl. 18. Mávastel). 12 manna mávakaffistell og mávamatar- stell, 6 manna, með gullrönd til sölu. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—162. Járngríndarhlið, nýtt, fyrir port til sölu, stærð 160x350. Timbur í stærður 2x7 og 2 1/2x7 og stærra. Uppl. í síma 32326. Ignis þvottavél til sölu. Uppl. i sima 14949. Til sölu vegna flutnings sjálfvirk þvottavél með þurrkara, krónur 50 þúsund, Pioneer hátalarar, 18 þús- und og sjónvarp, 18 þúsund. Uppl. i síma 13938. ^ Vel með farínn nýlegur ísskápur til sölu. Hæð 152, breidd 62 cm ásamt hringlaga eldhúsborði með hvítri harðplastplötu ogsímastóll. Uppl. I síma 26633. Vegna flutninga er til sölu borðstofuskenkur og 2ja manna svefnsófi, 2 fiskabúr, 300 lítra og 60 lítra, einnig 2 dekk af Saab. Uppl. í síma 44819. Túnþökur Til sölu vélskornar túnþökur. Uppl. í síma 99—5072. Túnþökur. Til sölu vélskornar túnþökur. Heim- keyrsla. Uppl. í símum 99—4424 og 25806. Til sölu stór Frigidaire frystiskápur. 2ja ára. Verð 100 þús. Kóngarúm með hand- stönguðu teppi. Verð 100 þús. Nýr svefnbekkur á 35 þús. Sófaborð og tvö innskotsborð á 50 þús. Uppl. í síma 92— 3285 eftir kl. 18. Massey Ferguson B. 50 grafa árg. 1973 til sölu á góðu verði, m/opnan-| legri framskóflu, þarfnast viðgerðar. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H—1270. Til sölu er vel með farið hjónarúm með dýnum og lausum náttborðum. Ennfremur tví- breiður svefnsófi með rúmfatageymslu. Selst ódýrt. Uppl. í síma 24219. Nýtt, gamalt nýlegt. Alls konar dót til sölu að Laufásvegi 1 kjallara. Ágóðinn rennur til dýra- verndar. Opið frá 2—6 virka daga. Samband dýraverndunarfélaga Islands. 30549. Úrvals gróðurmold til sölu, heimkeyrð. Uppl. í sima 73454. Úrvals gróðurmold til sölu, heimkeyrð. Uppl. í síma 38813. Óskast keypt Óska eftir að kaupa eldgamla saumavél og gömul húsgögn. Uppl. í sima 86853. Óska cftir að kaupa múrpressu. Helzt Biab. Á sama stað er til sölu steypuhrærivél. Uppl. í síma 54226. Steypuhrærívél óskast. Uppl. í síma 99—4212 Hveragerði eftir kl. 20. Notuð sjálfvirk þvottavél, 3—5 kílóa. óskast keypt sem fyrst, verður að vera í góðu ástandi. Uppl. hjá auglþj. DB í síma 27022. H-872 Notað timbur óskast. Uppl. i síma 25310. Verzlun Tónaval auglýsir. Ódýrar nýjar hljómplötur á aðeins 3950 kr., Abbey Road, Let it be„ Rubber Soul, S.G.T., Peppers lonely hearts club band með Bitlunum, Some girls með Rolling Stones. Kaupum einnig vel með farnar hljómplötur á hæsta verði. Tóna- val, Þingholtsstræti 24. Verksmiðjusala. Peysur á alla fjölskylduna. Bútar, garn og lopaupprak. Opið frá 1 til 6.Les-Prjón Skeifunni 6. x Veiztþú, að stjörnumálning er úrvalsmálning og er seld á verksmiðjuverði milliliðalaust beint frá framleiðanda, alla daga vik- unnar, einnig laugardaga, í verksmiðj- unni að Höfðatúni 4. Fjölbreytt litaval, einnig sérlagaðir litir, án aukakostnaðar. Reynið viðskiptin Stjörnulitir sf„ máln- ingarverksmiðja, Höfðatúni 4 R. Sími 23480.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.