Dagblaðið - 09.08.1978, Side 24

Dagblaðið - 09.08.1978, Side 24
Geirfinnsmálið: Ríkissaksóknarí áfrýjar dómnum hinir sakfelldu óskuðu einnig áfrýjunar Ríkissaksóknari hefur nú áfrýjaö dómum sakadóms í Geirfinnsmálinu. Þeir menn fjórir, sem hlutu þyngstu refsidómana hafa einnig óskað áfrýj- unar. Af hálfu rikissaksóknara er áfrýjað til staðfestingar á dómunum yfir Kristjáni Viðari Viðarssyni og Sælvari Marinó Ciecielski. Þeir voru báðir dæmdir í ævilangt fangelsi. Þá er áfrýjað til þyngingar á dómunum yfir Tryggva Rúnari Leifssyni, sem dæmdur var i 16 ára fangelsi, og Guðjóni Skarphéðinssyni, sem dæmdur var í 12 ára fangelsi. Loks er áfrýjað til þyngingar á dóminum yfir Erlu Bolladóttur, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm, og Albert Klahn Skaftasyni, sem hlaut 15 mánaða fangelsisdóm. Dómar þessir voru kveðnir upp í Sakadómi Reykja- víkur hinn 19. desember sl. Rétt er að geta þess, að lögum sam- kvæmt er af hálfu rikissaksóknara skylt að áfrýja refsidómum, sem eru þyngri en fimm ára fangelsi. Enda þótt áfrýjaðsé til þyngingar, er alls ekki þar með sagt, að ríkissaksóknara þyki dómarnir of vægir. Heldur er krafan um þyngingu sett fram til þess að binda ekki hendur Hæstaréttar. Hann getur ekki þyngt refsingu, nema krafa um það komi fram. Þá reynir og á það, hvort Hæstaréttur dæmir vægari refsingu en undirréttur. Sú krafa verður eflaust gerð af hálfu hinna sak- felldu . Þegar geðrannsókn hefur verið gerð, vill Hæstiréttur yfirleitt að réttarmáladeild læknaráðs fjalli um úrskurð gcðlæknis um geðheilsu sak- borninga. Réttarmáladeild skipa land- læknir, Ólafur Ólafsson, forseti læknadeildar Háskólans, Ólafur Bjarnason, prófessor, og yfirlæknir Kleppsspítalans, prófessor Tómas Helgason. Réttarmáladeild lækna- ráðs er eins konar yfirmat á úrskurð, sem einn læknir stóð að á fyrra dómstigi. Dómurinn er um 800 blaðsiður. Hann var kvcðinn upp 19. des. sl. Mikið verk hefur verið að vinna úr dómsskjölum og búa dóminn til prent- unar. Hann barst Ríkissaksóknara þegar rétt vika var af júlímánuði sl. Áfrýjunarstefnur hafa nú borizt Sakadómi Reykjavikur til birtingar dómfelldu. BS í frfálst, nháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST1978. Tómatastríðið efldi Neytendasamtökin: Grænmet- issala og landbúnað- ur undir smásjánni „Það er ætlun Neytendasamtakanna að taka upp grænmetissölumálin á breiðari grundvelli en aðeins á sviði tómata- og agúrkusölu”, sagði Reynir Ármannsson form. samtakanna í símtali við DB. „Persónulega tel ég að í sam- bandi við grænmetissölumálin i heild séu ýmis vanhöld á og illa aö þeim staðið á ýmsan hátt. Um þessi mál verður fjallað í stjórn Neytendasamtakanna. 1 þessari viku er von á Jónasi Bjarnasyni varafor- manni samtakanna til landsins, eftir sumarlanga utanlandsvist. Hann býr yfir ýmsum niðurstöðum á könnunum sem hann hefur gert varðandi græn- metissölumálin, bæði hér heima og erlendis,” sagði Reynir. Reynir sagði að ýmis fleiri mál væru á döfinni hjá Neytendasamtökunum. Hafa m.a. farið fram viðræður við for- stjóra Osta- og smjörsölunnar varöandi neytendamál. Þá hefur komið í Ijós að fimm aðilar sjá um flutninga og dreif- ingu landbúnaðarvara á höfuðborgar- svæðinu og finnst Neytendasamtökun- um ástæða til að kanna þau atriði nánar, ef verða mætti til að draga úr dreifingar- kostnaði. ASL íbúarnir ráða hvort opnuð verður Á TVR-útsala — segir Jón Kjartansson „Af hálfu Áfengis- og tóbaks- verzlunar ríkisins er ekkert því til fyrir- stöðu að opnuð verði útsala á Seltjarnar- nesi ef meirihluti ibúa þar óskar þess. En það er ekki nóg að tilmæli komi frá bæjarstjórninni einni,” sagði Jón Kjartansson, forstjóri ÁTVR, i samtali við DB. Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær er meirihluti bæjarstjórnar Seltjárnarness samþykkur þvi að gefa Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins kost á áfengisút- sölu í nýrri verzlunarmiðstöð sem er að rísa í landi Eiðis. „Það verður fyrst að fara fram atkvæðagreiðsla meðal íbúanna áður en ákvörðun verður tekin um opnun útsölu,” sagði Jón Kjartansson. Jón sagði, að fyrir nokkrum árum hefðu komið fram óskir um opnun áfengfsútsölu í Hafnarfirði, en tillaga þess efnis hefði verið felld í atkvæða- greiðslu. GM Kaupið*Vx r5 TÖLVUR. gl IX OGTÖLVUUR_® BANKASTRÆTI8 Hálfdán Ingólfsson fór aftur með Dagblaösbikarinn vestur á Isafjörð. DB-mynd: Ari Torfi Andrésson frá Tálknafirði svífandi á dreka sínum á mótinu I gær. < t DB-mynd: Bj.Bj. 2.sumargetraun Dagblaðsins Við höldum úfrum með sumargetrauninu I blaðinu I dag. Kúnstin er aðfinna til- tekna fyrirsögn I blaðinu og skrifa númerið ú blaðsiðunni ú meðfylgjandi miða. Getraunin verður l nœstu 9 blöðum, og tiu miðum alls ú að skila i lok keppninnar. Verðlaun verða tveirfarmiðar til Grikklands I september nk. Dvalið verður ú glœsibaðströnd við hliðina ú Onassisfiölskyldunni, og slðan haldið I miklu sigiingu um Miðjarðarhafið í viku. Ekkisiœm sumariok fyrirþú les- endur, sem vinna ferðina. Þessa fyrírsögn er að finna í DB á bls..... í dag Unga kynslóðin og gömlu umbótatækin Klippið miðann út og geymið þar til allir tiu hafa birzt. m-----------------------► slífið í Grikklandi er meðal þess sem ferðafólk kann hvað bezt að meta. ísfirðingur sigraði á svifdrekamótinu í gær: HAFÐI BIKARINN AFTUR MEÐ SÉR VESTUR Á velheppnuðu íslandsmóti í svu- drekaflugi, því öðru i röðinni, sigraði Hálfdán Ingólfsson frá Isafirði en hann sigraði einnig í fyrra. Vann hann því aftur þann farandbikar, sem Dagblaðið gaf til keppninnar í fyrra. Reyndar sögðu sumir félaga hans að hann hafi verið að hugsa um að taka bikarinn ekkert með suður til keppninnar og kom á daginn að það var óþarfi, hann mun enn prýða hibýli hans í a.m.k. eitt ár. Næstur varð Torfi Andrésson frá Tálknafirði en þar i plássi er nú mikill áhugi fyrir þessu flugi. Þriðji varð Einar Jóhannsson, einnig frá Tálknafirði og 4. varð Einar Eiríksson frá Reykjavík. Keppnin er í því fólgin að kapparnir stökkva fram af hæð, í þessu tilviki Úlfarsfelli i Mosfellssveit. Eiga þeir að fljúga á sem mestum hraða uns þeir fljúga yfir tiltekinn punkt á jörðu niðri. Þaðan eiga þeir að fljúga á sem lengstum tíma að tilteknu marki og ienda þar. Reynir þetta verulega á flughæfileika þeirra og þekkingu á möguleikum drek- anna. Allt gekk vel og slysalaust fyrir sig enda er slíkt flug talið mjög öruggt og notuðu kapparnir nú aðeins hin beztu tæki. G.S.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.