Dagblaðið - 10.08.1978, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978.
22ja feta Flugfiskbátur 220
með 105 ha Chrysler utanborðsmótor, dýptarmæli og
rafmagnslensidælu. Verðmæti kr. 2.550.000.
Fæst í skiptum fyrir góðan bíl, t.d. Citroen GS.
Sýningahölfínni við Bíldshöfða.
Símar 81199 og 81410
Einbýlishús
í austurbænum í Kópavogi hef ég til sölu.
Húsið er hæð og kjallari og á hæðinni eru 5
herbergi og eldhús en í kjallara er stór bílskúr
með geymslum og m. Hugsanlegt er að taka
3ja herb. íbúð upp í.
Baldvin Jónsson hrl.
Kirkjutorgi 6, sími 15545.
Tónmenntakennari
óskast að Grunnskóla Vestmannaeyja,
mikil vinna og góð aðstaða fyrir hendi.
Skólanefnd Grunnskóla Vestmannaeyja
Sérkennari
óskast að Grunnskóla Vestmannaeyja.
Lesver, athvarf og góð vinnuaðstaða.
Skólanefnd Grunnskóla Vestmannaeyja
Flísalagnir
Maður vanur flísalögnum óskast til
starfa strax við nýbyggingu fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað. Uppl. í
síma 97-7600 Neskaupstað.
Dráttarbrautin hf.
Atvinna í boði
Kennara vantar við grunnskóla Hellis-
sr.nds. UppL gefur formaður skóla-
nefndar í síma 93-6605, innanhússsími
54.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrvalnotadra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
l
Land-Rover '65, Chevrolet Nova '67,
Saab '68, Hillman Hunter '70, VW
1600 '69, Willys '54.
Einnig höfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfiatúni 10 Simi 11397
Danmörk:
Kaupmaimahöfn á
kúpunni og biður
umríkisstyrk
— tekjuháir íbúar flytja í hrönnum til
nágrannabyggðarlaganna
Slæm fjárhagsstaða Kaupmanna-
hafnar verður tekin til umræðu í
danska þinginu á næstunni. Vegna
stöðugt færri íbúa og vaxandi fjölda
aldraðra, hlutfallslega, þegar beztu
skattgreiðendurnir flytja til nágranna-
bæjanna, á borginviðmikinn fjárhags-
vanda að stríða. Sterkar raddir eru
uppi um nauðsyn þess að danska ríkið
verði að veita borginni sérstaka
aðstoð.
Talið er að Kaupmannahöfn fái í
það minnsta fimmhundruð milljónum
danskra króna minna en henni beri
raunverulega af opinberu fé. Er það
talið vera vegna þess að ekki sé
nægilegt tillit tekið til sérstakra félags-
legra vandamála sem þar séu.
Að sögn Egon Weidekamp, yfir-
borgarstjóra í Kaupmannahöfn, flytja
fimmtán þúsund manns á brott frá
borginni. Flestir eru hinir brottfluttu
hlutfallslega tekjuháir sem greiða ríf-
lega í sameiginlega sjóði. Kjósa þeir
fremur að búa i nágrannasveitarfélög-
unum, sem bjóða upp á lægri opinber
gjöld.
Eftir sitja fleiri og fleiri aldraðir
íbúar sem verða að taka á sig aukin
sameiginlegan kostnað.
Barbadoseyjar:
Hafna 750.000 dölum
fyrir herstöðina
— eru sagðir vilja fá tuttugu milljónir dollara
Stjórn Barbadoseyja i Karabíska
hafinu tilkynnti í gær að hún hefði
hafnað tilboði frá Bandaríkjunum um
.sjö hundruð og fimmtíu þúsund doll-
ara leigugjald fyrir herstöð á eynni
Saint Lucy. Jafnframt var tekið fram
að stjórn landsins væri reiðubúin til
frekari samningaviðræðna.
Samkvæmt fregnum frá Bridge-
Portúgal:
Eanesfelur
fyrrum iðnað- ‘
arráðherra
stjórnar-
myndun
Útnefning Eanes forseta Portúgal á
Alfredo Nobre Da Costa iðjuhöldi til að
reyna að mynda nýja ríkisstjóm i
landinu hefur vakið mikla furðu. Soares
fráfarandi forsætisráðherra telur út-
nefningu hans brot á þingræðisreglum
og Kommúnistaflokkur Portúgals hefur
lýst yfir vantrú sinni á að Da Costa
muni takast stjómarmyndun. Stjórnar-
myndunartilraunir eru þó ekki fyrstu
afskipti Da Costa af stjórnmálum. Hann
hefur verið iðnaðar- og tæknimálaráð-
herra í stjórn landsins. Stjórnarkreppan í
Portúgal hefur nú staðið í hálfan
mánuð.
Flórída: Rænf|u
öryggishólfin
undirforustu
ungrar Ijósku
Lögreglan i ferðamannabænum Long
Beach leitar nú ákaft rængingjahóps
sem undir forustu ungrar Ijóshærðrar
stúlku rændu í gær fimmtíu og níu
öryggishólf í hóteli einu. Á meðan á
verknaðinum stóð var starfsfólki haldið í
skefjum með byssum. Að sögn lögreglu
standa margir ferðamenn, bæði frá
Evrópu og Suður Ameríku, uppi vega-
lausir, hafa hvorki peninga né vegabréf.
Þeir sem rannsaka málið telja að
þjófarnir hafi komizt á brott með mikil
verðmæti.
town, höfuðborg Barbados, þá hefur
stjórnin þar farið fram á tuttugu millj-
ónir dollara fyrir herstöðina á Saint
Lucy. Sú upphæð hefur ekki verið
staðfest af opinberum yfirvöldum. Þau
hafa aftur á móti tekið fram að þau
væru ekki á móti afnotum Bandaríkj-
anna af herstöðinni ef fullnægjandi
skilmálar næðust. Auk þess ýrði að
tryggja fullt öryggi Barbadoseyjanna
og yfirráð þeirra óvéfengjanleg yfir
öllu sínu landi.
Bandaríkin hafa haft herstöð á
Saint Lucy eyjum síðan 1961 sam-
kvæmt samningi við stjórnina í
London en þá var Barbados brezk ný-
lenda. Sá samningur gekk úr gildi í
desember siðastliðinn.
Teitur á forsíðu
Teitur Þórðarson knattspyrnu-
maður frá Akranesi, sem undanfarin
ár hefur stundað atvinnuknattspyrnu í
Svíþjóð komst heldur betur í fréttirnar
þar i landi fyrir nokkrum dögum. Á
forsiðu dagblaðsins Dagens Nyheter
eins virtasta blaðs í Svíþjóð sem sumir
vilja telja meðal betri dagblaða í heimi,
var flennistór mynd af Teiti þar sem
hann var að skora afdrifaríkt mark í
leik liðs síns öster sem lék við Malmö í
það skiptið. Leiknum lauk með sigri
Östers I —0 og þótti Teitur hafa staðið
sig með ágætum. Svo merkileg þótti
þessi íþróttafregn að meira að segja
fregn af dauða Páls páfa sjötta, sem er
ofar á síðunni féll í skuggann.
xs-s;
Stridiii
kriiifí
torwu
i Luijil
50 proeent
fler ungn
utun urbete
Maniröm Si+tusk í’orrhi,
I9KI... tjumtiirt j pá bál
Utm raddtide AÍÍsvenskan
IIU.I IS IIIII
VW'*