Dagblaðið - 10.08.1978, Side 12
■
SiiSS
MMÍMHÉtijk
Siglingamenn!
íslandsmótið
í siglingum Optimist verður 11. og 12. ágúst
og hefst kl. 17.00 þann 11. Fireball og Flipper
verður 18. til 20. ágúst.
Þátttaka tilkynnist í síma 13177 og 40145.
Mótsnefnd.
Björgvin þegar
í fyrsta sæti
— ásamt Sigurði Hafsteinssyni
á íslandsmótinu ígolfi
t gær voru fyrstu 18 holurnar spilaðar I öllum
flokkum á Íslandsmótinu i golfi og keppnin þegár
orðin tvisýn og spennandi.
Í mcistaraflokki karla var nokkuð vel leikið og
munar aðeins 7 höggum á 1. og 11. manni. Íslands-
meistarinn frá i fyrra Björgvin Þorsteinsson þykir
mjög sigurstranglegur og er þegar kominn i fyrsta
sæti ásamt Sigurði Hafsteinssyni en þeir léku 18
holurnar aðeins 1 höggi yfir pari.
Röð 11 efstu eftir fyrsta dag er þcssi: HÖGG
1—2 Björgvin Þorsteinsson GA 73
1—2 Sigurður Hafsteinsson GR 73
3—4 Þorbjörn Kjærbo GS 75
3—4Óskar Sæmundsson GR 75
5. Geir SvanssonGR 76
6. Sveinn Sigurbergsson GK 77
7—8. Hannes Eyvindsson GR 79
7—8 Hallur Þórmundsson GR 79
9—1 lGunnar Finnbjörnsson GK 80
9—11 Óttar Yngvason GR 80
9—11 Þörhallur Hólmgeirsson GS 80
I meistaraflokki kvcnna er einnig mikil barátta og
eru fimm efstu eftir 18 holur þcssar:
1. Jóhanna Ingólfsdóttir GR 80
2. Kristín Pálsdóttir GK 81
3. Jakobina Guðlaugsd. GV 84
4. Hanna Aðalsteinsdóttir GK 85
5. Sólveig Þorstcinsdóttir GK 86
1.11. kvenna:
1. Kristine E. Kristjónsson NK 92
2. Sigríður B. Ólafsdóttir Húsav. 97
3. Sjöfn Guðjónsdóttir GV 98
1. fl. karla
1. Jón Þór Ólafsson GR 80
2—3 Guðm. Þörarinsson GV 81
2—3 Viðar Þorstcinsson GA 81
II. fl. karla
1—2 Hannes Hall NL 83'
1—2 Jóhann Einarsson NL 83
3. Einar Guðlaugsson NK 84
III. fl. karla
1—2 Hclgi R. Gunnarsson GK 93
1—2 Stefán H. Stefánsson NK 93
3—4 Samóel P. Jónsson GR
3—4 Sigurður Runólfsson NK 95
HBK.
Nýjung hjá
Nesklúbbnum
Golfklúbbur Ness kemur skemmtilega á óvart með
þvi að veita svokölluð „surprise” verðlaun á hverju
kvöldi eftir að keppni lýkur. Það er ekki nokkur leið
að vita hver fær verðlaun i það og það skiptið þvi sú
reiknikúnst sem notuð er i dag gildir ekki á morgun.
Fyrsta dag mótsins fékk Sveinn Finnson GR
skemmtilega mynd I verðlaun fyrir að vera „maðurinn
með meðalskorið” og i gær fékk Kristin Einarsdóttir
GV tvo aðgöngumiða á lokahóf G.S.Í. vegna þess að
talan 8 kom óvenju oft við sögu hjá henni. Hvað
skeöur i kvöld veit enginn og verður gaman að fylgjast
með þvi.
Verðlaunaafhendingin fer fram á hverju kvöldi kl.
9,30-10. HBK
hissa
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1978.
Mac Wilkins þeytir kringlunni 66.90 m. Bezti árangur á íslandi.
DB-mynd Bjarnleifur.
„Varð mjög
þegarég
frétti um nýja heimsmetið”
— sagði Mac Wilkins á Reykjavíkurleikunum í gær. Hefur keppt átta sinnum við Wolfgang Schmidt,
nýja heimsmethafann, en aðeins sigrað tvívegis
„Ég verð að viðurkenna, að ég varð
mjög hissa, þegar fréttin barst að Wolf-
gang Schmidt hefði bætt heimsmet mitt i
kringlukasti i Berlin. Það kom mér á
óvart því Schmidt hefur ekki áður kastað
yfir 69 metra, svo þarna var um mikla
framför að ræða. Schmidt átti bezt áður
68.92 metra. Bætti sig þvi um 2.24
metra. En hann er ákaflega sterkur
kringiukastari — hærri og þreknari en
ég, eða 1.95 cm á hæð en ég er 1.93 m,”
sagði Mac Wilkins eftir að hafa kastað
66.90 m á Reykjavíkurleikunum í gær.
Það er bezti árangur, sem náðst hefur
hér á landi. 10 cm betra en Svíinn Ricky
Bruck kastaði á Laugardalsvellinum
fyrir nokkrum árum. Wilkins stóð þvi
við þau orð, sem hann lét falla við DB á
mánudag.
„Ég reikna ekki með þvi að ná heims-
metinu aftur á þessu ári þó ég sé i góðri
æfingu. Tæknin góð. Ég á aðeins eftir að
keppa á þremur mótum. Á Reykjavikur-
leikunum í kvöld. í Kaupmannahöfn á
föstudag og síðan í Varsjá. — Þetta
hcfur verið erfitt ár hjá mér. Ég er
nokkuð ánægður með árangur minn hér
í Reykjavík — það vantaði vind til að ná
betri köstum. Kannski bæti ég mig
síðari dag mótsins ef einhver vindur
verður. Ef til vill verð ég þá nærri nýja
heimsmetinu.
Við Wolfgang Schmidt höfum keppt
saman átta sinnum og ég hef aðeins
unnið hann tvisvar. Á Olympiuleikun-
um í Montreal 1976 — og svo einu sinni
í sumar. Hann er mjög snjall kringlu-
kastari,” sagði Wilkins ennfremur.
Óskar Jakobsson, sem keppti með
þessum köppum á heimsleikunum i Hel-
sinki i sumar sagði, að það hefði verið
skemmtilegur aðdragandi að sigri Wilk-
ins þar. Schmidt hafði forustu 66.60
metra og hafði lokið keppni — en
Wilkins átti eitt kast eftir. Hann gekk þá
Þurfum fleiri áhorfendur
„Ég er ánægður með mótið og
aðstæður á nýja vellinum. Þetta var frá-
bært mót — og það má jafnvel búast við
enn betra móti í kvöld”, sagði örn Eiðs-
son, formaður FRÍ, og bætti við. „En
auðvitað hef ég áhyggjur. Þetta kostar
mikla peninga að fá alla þessa afreks-
menn hingaö til keppni. Við þurfum
fleiri áhorfendur svo ekki verði stórtap.”
Langt er þó siðan jafnmargir áhorf-
endur hafa verið hér á frjálsíþróttamóti.
1224 greiddu aðgangseyri, svo í allt
hefur verið um 1400 manns á vellinum.
Eiríkur Tómasson, formaður íþrótta-
ráðs Reykjavikur setti mótið. Heildar-
ksotnaður við nýja leikvanginn er nú
um 150 millj. kr. — þar af kostnaður við
gerviefni á hlaupa- og atrennubrautir
um 58 milljónir. Eirikur gat þess, að
stefnt yrði að því að Ijúka fram-
kvæmdum næsta vor. Þá verður efnt til
sérstaks vígslumóts 17. júní. Þá verða
liðin 20 ár frá vígslu aðalleikvangsins í
Laugardal.
Betra en heimsmetið
Tracey Wickham, Ástralíu, náði betri
tima en gildandi heimsmet i 400 m skrið-
sundi kvenna á Samveldisleikunum í
Kanada í gær. Synti á 4:08.45 sek.
Önnur gullverðlaun hennar. Það er þó
ekki bezti timi, sem náðst hefur. Um
helgina synti Kim Lenehan á 4:07,66 á
meistaramóti USA. Graham Smith,
Kanada, vann sjöttu gullverðlaun sin á
mótinu — f lauginni, sem skýrð er eftir
föður hans, alnafna — þegar hann var i
sigursveit Kanada 1 4X100 m boðsundi.
Ekki var keppt i frjálsum iþróttum í gær.
Eftir sjö keppnisdaga i Edmonton hefur
Kanada hlotið 30 gull, Ástralía 17 og
England 12.
Ólafsvíkur-Víkingar standa vel að vígi
Nú standa Ólafsvíkur-Vikingar vel að
vígi í C-riðli 3ju deildar eftir sigur 2—1
gegn Aftureldingu úr Mosfellssveit í
Ólafsvfk i gær. Víkingur á einn leik eftir
— við Óðin 1 Rcykjavík — og hefur
16 stig. Afturelding 15.
Vikingar byrjuðu með krafti. Strax á
fyrstu mín. skoraði Atli Alexandersson.
Jóhannes Kristjánsson kom Víking í 2—
0 en rétt fyrir hálfleik skoraði Hafþór
Kristjánsson fyrir Aftureldingu. 18.
mark hans i keppninni. Vikingar sóttu
stift f fyrri hálfleik en I þeim siðari
jafnaðist leikurinn. Bæði liö fengu góð
tækifæri til að skora en fleiri urðu
mörkin ekki. Afturelding á eftir að ieika
við Leikni.
S.kr.
til Schmidt og sagði: „Nú sigra ég þig.”
Fór í hringinn og þeytti kringlunni 66.66
metra.
Hinn 24ra ára Schmidt bætti heims-
metið á móti i Austur-Berlín í gær. Bætti
met Wilkins um 30 sm. Átti góða kast-
seríu. Eitt risakast en árangur hans var
þessi: 68.14 — 71.16 — 67.72 — 67.16
— 65.78 — 68.34 og var því aðeins með
eitt kast betra en áður. Fyrra Evrópu-
met hans var 68.92 metrar.
— hsím
Brautin fín,
lognið bezt!
— sagði Jón Diðriksson eftir að hafa
sett nýtt íslandsmet í 1500 m. hlaupi
,Jú, brautin er fin — en lognið var
bezt. Maður er svo óvanur þvi að hlaupa
i logni á tslandi,” sagði Borgfirðingur-
inn snjalli, Jón Diðriksson, eftir að hafa
sett nýtt íslandsmet i 1500 m hlaupi á
Reykjavikurleikunum i gær. Hljóp á
3:44.4 mín. og það eru margir áratugir
sfðan íslandsmet hefur veriö sett á milli-
vegalengdum á íslandi. Jón bætti met
Ágústs Ásgeirssonar um nákvæmlega
tvær sekúndur. Það var sett á Olympíu-
lcikunum i Montreal 1976. Jón átti bezt
áður 3:46.6 mfn. Bætti sig um 2.2 sek.
„Þetta met er aðeins áfangi — ég verð
ekki ánægður fýrr en ég er búinn að
kiippa 2—3 sekúndur af þessum tima.
Vona jafnvel að ég komist niður undir
3:40 f sumar. Ég hef æft eftir þýzku pró-
grammi sföasta mánuðinn — og árang-
urinn er að lagast mjög,” sagði Jón enn-
fremur. í Sviþjóð fyrir nokkrum dögum
hljóp hann fyrstur íslendinga innan við
1:50 — eða á 1:49.3 sek. Jón hefur nú
alveg söðlað um i námi. Hættur i há-
skólanámi á Englandi en byrjar þess í
stað i haust á iþróttaháskólanum i Köln i
Vestur-Þýzkalandi. Hann hefur alla
möguleika á þvi, að stórbæta þann
árangur, sem hann hefur nú náð.
Jón varð fjórði í 1500 m í gær. Hann
keppti við flmm snjalla Bandaríkjamenn.
Tiny Kane vann á 3:41.0 mfn. eftir frá-
bæran endasprett. Mike Manke annar á
3:41.2 mín. Þá George Malley á 4:43.7
mín. Sfðan kom Jón á nýja íslandsmet-
inu. Doug Brown varð fimmti á 3:45.4
mín. og Craig Virgin sjötti á 3:47.2 mfn.
Hann er með beztan árangur allra þess-
ara hlaupara á vegalengdinni. Hefur
hlaupið innan við 3:40.
„Það er gott að halda i við þessa
hlaupara, sem allir hafa hlaupið á 10
sek.,” sagði Vilmundur Vilhjálmsson.
Hann varð fjórði í 100 m á 10.7 sek. Ör-
lítill mótvindur kom í veg fyrir góða
tíma. Charlie Wells, USA, sem Villi
sigraði í fyrra, vann nú á 10.5 sek. Hann
þjófstartaöi í fyrstu tilraun, þegar aörir
hlupu í gegn — nema Sigurður Sigurðs-
son. Hlaupið var þvi endurtekið. Wells
alveg hvildur. Steve Riddick varð annar
á 10.6. Bill Collins 3ji á 10.7 — Vil-
rnundur sjónarmun á eftir. Sigurður
hljóp á 10.8 sek. Það kom á óvart að
smádæld var á 100 m brautinni.
Þá hljóp Vilmundur 400 m á 47.9 sek.
— á bezt 47.1 sek. — eftir harða keppni
við Tony Darden, USA. Hann hljóp á
47.3 sek. Á bezt 45.3 sek.
Spurningin hvað
ég kemst langt
— sagðiHreinn
„Það styttist óðum i 21 metra —
spurningin er nú bara hvað ég kemst
langt,” sagði Hreinn Halldórsson eftir
að hann hafði varpað 20.56 m í kúlu-
varpi i gær. Bezti árangur hans i sumar
— 26 sentimetrum lengra en áður.
Hreinn bætir sig á hverju móti og nú ætti
verðlaunasæti á EM i Prag að vera inn-
an seilingar. Þá varpaði Hreinn einnig í
gær 20.32 m og 20.20 m.
Óskar Jakobsson, hinn 22ja ára ÍR-
ingur, stórbætti sinn árangur. Varpaði
lengst 18.73 m. Átti bezt áður 18.51 m.
Annar bezti árangur íslendings.
Guðmundur Hermannsson varpaði
lengst 18.48 m. Óskar kastaði kringlu
60.40 m. Þar varð Norðmaðurinn Knud
Hjeltnes annar á eftir Wilkins með 63.72
m. Varð einnig annar í kúluvarpi 19.64
m. Þar varð Walahanowitsch, Sovét,
fjórði með 18.51 m og Guðni Sigfússon
náði sínum bezta árangri 17.84 m, „þó
ég gerði allt rangt, þegar ég varpaði kúl-
unni," sagði Guðni á eftir. Það var
ánægjulegt afrek hjá Guðna. Hann slas-
aðist mjög illa á fæti fyrir tveimur árum.
Af öðrum árangri á Reykjavíkurleikunum vakti há-
stökk Ben Fields, USA, mikla athygli. Hann stökk
2.21 m, það langHæsta, sem stokkið hefur verið hér á
landi (2.15 áður) Stefán Friðleifsson UÍA, stórbætti
árangur sinn. Stökk i fyrsta sinn fyrir 2 metra. Sigriður
Kjartansdóttir, Akureyri, setti stúlknamet í 400 m.
Hljóp á 56.9 sek. — stúlka, sem á framtiðina fyrir sér.
Reykjavíkurleikarnir halda áfram i kvöld. Þá verður
aftur keppt í kringlukasti og kúluvarpi. 200 og 800 m
hlaupin ættu að geta orðið stórskemmtileg. Fleira gott
verður á leikunum, sem hefjast kl. 19.30, m.a. stangar-
stökk. Larry Jessee USA keppir. Hann á bezt 5.61
metra!! — hsím
Skagamenn í úrslitum
Bikarsins í
íslandsmeistarar Skagamanna
tryggðu sér sæti i úrslitum bikarkeppni
KSÍ i níunda sinn með 1-0 sigri á neðsta
liðinu i 1. deild, Breiðabliki i Kópavogi, i
gærkvöld. Skagamenn mæta bikarmeist-
urum Vals i úrslitum — tvö yfirburðalið i
íslenzkri knattspyrnu. Skagamenn og
Valur berjast um meistaratign og úrsiita-
leikur þeirra i Bikarnum staðfestir enn
þá yfirburði er þessi tvö lið hafa i is-
lenzkri knattspyrnu i dag.
Skagamenn mæta Valsmönnum i úr-
slitum í Bikarnum í fjórða sinn og hafa
ávallt tapað. Raunar hafa Skagamenn
leikið átta sinnum i úrslitum í Bikarnum
en ávallt beðið lægri hlut — og marka-
talan er ekki glæsilkeg, skorað 10 mörk
en fengið 28! Skagamenn ættu þvi, hefð-i
inni samkvæmt, ekki að eiga mikla'
möguleika gegn Val, sem hefur skorað
14 mörk gegn ÍA í úrslitum en aðeins'
fengið á sig fjögur. Sorgarsaga Skaga-
manna í Bikarnum hlýtur að taka enda
einhvern timann — verður það í ár?
Ekki ef dæma á eftir leik Skagamanna
gegn Blikunum í Kópavogi. Sigur að
visu en Skagamenn voru allt annað en
sannfærandi, þrátt fyrir að sigurinn væpi
verðskuldaður. Leikmenn virtust ekki
taka á, léku á hálfum hraða og með hálf-
um huga. Slíkt kann ekki góðri lukku að
stýra. Hvort hinum snjalla þjálfara lA,
George Kirby, tekst að berja eldmóði i
Skagamenn fyrir leikinn gegn Val skal
ósagt látið en ekki vinna Skagamenn
Bikarinn i ár með því að sýna jafn slakan
leik gegn Val.
Skagamenn náðu sér aldrei á strik í
Kópavogi en þrátt fyrir það unnu þeir
auðveldan sigur. Staðreynd, sem stað-
festir djúp milli efstu og neðstu liða, um-
hugsunarefni vissulega. Karl Þórðarson
skoraði eina mark leiksins — fallegt
mark. Markið kom á 40. mínútu fyrir
hálfleiks, Árni Sveinsson gaf út’S vinstri
vænginn til Matthíasar Hallgrimssonar
sem lék laglega á varnarmann Blikanna,
upp að endamörkum og gaf góða send-
ingu fyrir. Þar kom Karl Þórðarson á
fullu og þrumuskot hans úr teignum
hafnaði í netmöskvunum án þess að
Sveinn Skúlason kæmi vörnum við, 0-1.
Eftir það var aldrei spurning um hvort
liðið sigraði — einungis hve stór sigur
Skagamanna yrði. Þrátt fyrir að þeir
réðu meiru áttu Blikarnir tvívegis skot i
hliðarnetið og Hákon Gunnarsson
komst á auðan sjó i vítateig ÍA en Jón
Þorbjörnsson varði vel — eftir mikil mis-
tök í vörn tA vegna kæruleysis. Já, það
voru kærulausir Skagamenn sem léku í
Kópavogi — þeir voru heppnir hve
Blikarnir hafa veriö slakir í sumar, og
lánlausir. Gegn sterkari andstæðingi
hefði kæruleysið aðeins þýtt tap og ekk-
ert annað.
Leikurinn í Kópavogi var ákaflega
daufur, Skagamenn þurftu lítt að taka á
til að sigur næðist og slíkt eru hættu-
merki í íslenzkri knattspyrnu — sýnir
hina gífurlegu yfirburði ÍA og Vals yfir
önnur lið. tslenzkir áhorfendur geta þó
litið með bjartsýni til úrslitaleiksins —
sýningarleiks islenzkrar knattspyrnu í
ár.
H Halls
Stórtap gegn
Englendingum
en Ragnar Ólafsson stóð sig vel
Meistaraliö Evrópu í golfi með Ragnar Ólatsson
innanborðs tapaði með miklum mun gegn Englend
ingum 2 1/2 á móti 12 1/2f holukeppni sem fram fór í
gær. Ragnar átti 3ja bezta árangur i sinu liði og tapaði
3—2 og samanlagt tap hans og Acutis, en þeirra
árangur er lagður saman var aðeins 2—1. Ragnar lék
mjög vel á brautunum en púttaði illa og gerði það
gæfumuninn. #
Næst á dagskrá hjá honum er 2X18 holu högglcikur
og komast 40 fyrstu menn áfram í unglingameistara-
mót Englands, ef Ragnar næði þvl, væri það stórkost-
legur árangur til viðbótar við mjög góða frammistöðu
hans nú þegar. HBK
fí
i
i
í
i
i
i
BIABIB
frjálst, óháð dagblað
Óskum eftir góðum
starfskröftum
við almenn
skrifstofustörf.
Uppl. f síma
27022.
Jón Diðriksson, Borgfirðingur, eftir aö hann setti nýtt íslandsmet í 1500 metra
hlaupi á Rcykjavíkurleikunum í gær. Jón bætti metið um tvær sekúndur — sinn bezta
tima um 2.2 sekúndur. í Svíþjóð setti hann met i 800 m og hljóp þá fyrstur íslendinga
innan við eina og fimmtíu. DB-mynd Bjarnleifur.