Dagblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 1
dagblað
Uppsláttur hollenzku blaðanna á mánudag:
Pétur skrifaði undir
þriggja ára samning
Frétt DB á mánudag var rétt, að
því leyti að Feyenoord hafði
tilkynnt i Hollandi að Pétur hefði
skrifað undir samning við Feye-
noord. Kænskubragð Peter
Stephen, framkvæmdastjóra Feye-
noord, sem þannig vildi halda
öðrum félögum frá. Pétur skrifaði
undir I gær en er hann dvaldi í
síðustu viku I Hollandi vakti hann
þar mikla athygli. Viðtal við hann
I útvarpi, 10—12 ljósmyndarar
fylgdust með hverju fótmáli hans
og þrívegis sýnt í sjónvarpi er hann
var felldur innan vítateigs i EM-
leik Islandsog Hollands.
—Sjá íþróttir I opnu
Eftir að hafa skrifað undir I gær að
Hótei Loftleiðum. Pétur Péturs-
son, ásamt móður sinni, Guðriði
Jónsdóttur, Peter Stephen og
föður Péturs, Pétri Elissyni.
DB-mynd Bjamleifur Bjamlerfsson.
4. ÁRG. — FIMMTLDAGUR 12. OKTÓBER 1978 — 226. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11. — AÐALSÍMI 27022.
—17 ára piltur
lézt, tveir h
félagar hans
handteknir
Sautján ára piltur lézt á sjúkrahúsi I
Reykjavík I nótt af völdum falls í
gegnum þakglugga á nýbyggingu Kama-
bæjar við Austurstræti. Féll pilturinn
niður á steingólf og var látinn þegar
komið var með hann á sjúkrahús
skömmu síðar, skv. upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar.
Tveir félagar hans voru handteknir
um svipað leyti, grunaðir um innbrotstil-
raun i húsið. Annar þeirra lét vita af
slysinu. Þeir voru báðir ölvaðir í nótt og
hafði því rannsóknarlögreglunni ekki
gefizt tækifæri til að yfirheyra þá i
morgun þegar DB fór i prentun.
Það var kl. 01:26 í nótt að
Rannsóknarlögreglunni barst tilkynning
um slysið. Svo virðist, við skoðun á
ummerkjum á staðnum, sem pilturinn
sem lézt hafi ætlað að sparka glugganum
úr, en við það fallið í gegnum hann og
lent á steingólfinu. Um er að ræða kúlu-
laga glugga úr tvöföldu, þunnu plasti.
Fallið niður er um 3 metrar.
ÓV/ASt.
Glugginn, sem pilturinn féll I gegnum er
á þaki nýbyggingar bakhóss Karnabæjar
viö Austurstræti. Falliö niður er um þrír
metrar.
DB-mynd: Hörður.
Slælegur
frágangur
á Keflavíkur-
flugvelli:
Er vinnuflokkur Aðalverktaka var
að grafa fyrir afrennslisræsum frá
byggingum og brautum á Keflavíkur-
velli fyrir nokkru kom vinnufiokkur-
inn niður á einhvers konar olíudrullu
sem var samansöfnuð i jörðinni á
svæði við stóra fiugskýlið 885 og fiug-
vélastæðin við það.
Framkvæmdir við yfirborðsræsis-
lagnir voru þá stöðvaðar en hafizt
handa um að dæla upp olíudrullunni
OLIUSORIIJORDUI
NÁND VID VATNSBÓUN
og olíumengaður jarðvegur fjarlægður
ístórum stil.
Olíusori þessi. sem víst þykir að sé
uppsafnaður á mörgum árum, er ekki
' nema i eins til hálfs annars kílómetra
fjarlægð frá vatnsbóli Njarðvíkinga.
Hafa þeir að vonum gengið hart fram í
að komizt verði fyrir rót vandamáls-
ins.
Albert K. Sanders bæjarstjóri i
Njarðvík sagði að svo hefði verið frá
hnútum gengið við fiugskýlið og fiug-
vélaplanið að yfirborðsvatni hafi verið
beint i leiðslum út I opinn skurð og
leitt út í heiðina.
„Þetta átti bara að vera vatn,” sagði
Albert, „en þegar verið er að tappa á
vélar eða hreinsa þær getur olía auð-
veldlega blandazt vatninu. Leiðslur
virðast svo hafa stíflazt og olían setið
eftir og siazt út í jarðveginn i kring.”
Albert kvað Njarðvíkinga hafa kraf-
izt skjótra úrbóta af hálfu vamarmála-
nefndar og varnarliðs. Nú væri búið
að tilkynna að fjárveiting væri fengin
fyrir sérstökum oliuskiljum sem settar
yrðu á enda frárennslisleiðsla frá flug-
skýlum og flugvélaplönum svo að
tryggja mætti að olía kæmist ekki i
yfirborðsvatn.
„Við höfum stöðuga rannsókn á
vatnsbólum okkar. Hræðsla okkar við
olíumengun er áragömul. En það
hefur enn ekkert komið fram sem bent
gæti til mengunar vatnsbólanna. Þó
vatnsból Njarðvíkinga sé næst olíu-
staðnum nú, erum við á sama báti og
Kefivikingar og varnarliðið hvað
vatnsból snertir. Forðabúr bólanna
allra er eitt og hið sama.”
- ASt.
INNBROTSTILRAUN ENDAÐIMEÐ BANASLYSI
A