Dagblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12-OKTÓBER 1978
3
íslenzki málaliðinn í Ródesíu:
Breytast menn í óargadýr?
Móðir skrifar:
Mann setur hljóðan eftir að lesa frá-
sögn ungs landa okkar af stríðsað-
gerðum suöur í Mosambique í Afríku.
Hvernig getur ungur og siðmenntaður
maður breytzt i annað eins óargadýr?
Við íslendingar getum hrósað happi
yfir þvi að þekkja ekki annað til hern-
aðar en það sem blasir við augum á
Keflavíkurflugvelli.
Hvernig skyldi það vera suður þar?
Ætli ungum og efnilegum piltum
vestan úr Ameríku sé breytt i þessi
skrimsl, sem líta á mannlíf rétt eins og
lif meindýrs eða pöddu?
Allur hernaður er ógeðfelldur, og
birting á frásögn íslendingsins unga
var að þvi leyti gagnleg að hún opnaði
4
augu fjölmargra Islendinga fyrir ógn-
inni. Allir hlusta á útvarpsfréttir dag
eftir dag, svo og svo margir fallnir —
en eru þær fréttir ekki hættar að
komast inn fyrir hauskúpu flestra?
Þessi mynd var tekin á Keflavikurflug
velli af varnarliðsmönnum á hergöngu.
— Húsmóðir spyr hvort striðsafskipti
breyti ungum, siðmenntuðum mönnum
í óargadýr.
Raddir
lesenda
Frændi minn, Jón
Ilulda \ uldimarsdóttir skrifar:
\ fimmtu siðu Daghlaðsins þ. 3. októher »ar grein um tvö 18 ára skáld
á röndóttum husum. Blaðainenn héldu társt að þeir væru Hihurarar af þti
háðir toru grannir. fölir ug með gleraugu, en stn tar nú ekki „nenta htað
Jón Sigurðsson forseti" (og retndar lika frændi hréfritara) „tar
ættfaðir þeirra heggja". Sto imirg toru þau on\. Kn htemig á Jon frændi
Sigurðsson að geta terið ættfaðir nokkurs þar sem hann álti engin horn
sto titað sé til? — I n sem betur fer átti Sigurður palilii hans liann og
hlessuð sé niinning þeirra.
STUn BRÉF OG
FULLT NAFN
Enn skal það brýnt fyrir lesendum
að láta fullt nafn og heimilisfang
fylgja bréfum. Ef bréfritari óskar
eftir að nota dulnefni skal þess
getið. Vinsamlega hafið bréf eins
stutt og mögulegt er. Dagblaðið
áskilur sér rétt til þess að stytta
lengri bréf.
JH
Áskorun til sjónvarpsins:
Komið með landsleik
Tjalla og Bauna
rigrib skrifar:
Ég og félagar mínir vorum svo
heppnir að fá aðgöngumiða að leik
Dana og Englendinga á Idrætsparken í
Kaupmannahöfn um miðjan siðasta
mánuð. Hvílíkur leikur! Við skorum
nú á sjónvarpið að afla sér filmu af
þessum leik. Hann mun svo sannar-
lega verða áhugamönnum um knatt-
spyrnu — og þeir eru margir — hin
bezta skemmtun. Tjallamir voru
þarna fjölmennir í áhorfendahópi og
létu ófriðlega, en Baunarnir stóðu sig
meðeinstakri prýði.
Þór Vigfússon, formaður umferðarnefndar, er reiðhjólamaður i umferðthni og býr
I gömlum bæ i vesturborg Reykjavikur. Hér hellir hann upp á kaffisopann. DB-
mynd R. Th. Sig.
Nýr tónn í umferðinni
Ökumaður skrifar:
Mér lízt vel á eina breytingu i
stjórnun borgarinnar eftir að „rauða”
stjórnin tók við — aðrar breytingar
hafa enn ekki látið á sér kræla — það
er hinn nýi tónn í æðstu stjórn
umferðarmála.
Eftir að hafa hlýtt á sunnudags-
erindi Þórs Vigfússonar fyrir nokkrum
Heimilis-
læknir
svarar
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislæknir svarar" í síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
vikum síðan og lesið viðtöl við hann,
sé ég i hendi mér að þar er góður
maðurí réttu starfi.
Vildi ég óska þess að Þór og
félögum hans í umferðarnefnd borgar-
innar takist að skapa nýjan og betri
hugsunarhátt meðal ökumanna. Ekki
mun af veita því hvergi í veröldinni
fyrirfinnast jafn margir „kaldir” og
„öruggir” klaufar i umferðinni eins og
einmitt í Reykjavik.
Nóg k jöt á
Reyðarfirði
Jón Guðmundsson kjötiðnaðarmaður
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa Reyðarfirði
hringdi:
í grein, sem Herdís Hermóðsdóttir
skrifaði í DB nýlega, sagði að ekki
hefði þýtt fyrir Eskfirðinga að leita til
Reyðfirðinga til þess að fá kjöt á lága
verðinu, þar sem þeir hefðu selt það til
Færeyinga. Þetta er ekki rétt. Þegar
verð var lækkað á kindakjöti átti
Kaupfélagið á Reyðarfirði um 900
skrokka. Síðan hefur verið selt látlaust
kjöt, m.a. til Eskifjarðar, en enn eru
eftir á annað hundrað skrokkar hjá
kaupfélaginu.
Þessi staðhæfing hinnar ágætu
konu á Eskifirði hefur þvi verið sett
fram að ókönnuðu máli.
✓
Tekur þú þér
vetrarfrí?
Sölvi Eliasson bílstjóri: Nei, ég ætla ekki
að fara i frí i vetur. Ég hef aldrei farið í
frí um vetrarmánuðina. Ég fer í sumarfrí
og líkar það vel. Ég ferðast um Island
yfirleitt um miðjan júlí og fer þangað
sem sólin er.
Sigurgeir Svelnbergsson matreiðslu-
maðun Nei, það geri ég nú ekki. Ég er
nýkominn úr fril. Ég ferðaðist um
meginlandið og likaði það vel.
Geir Gunnlaugsson nemi: Nei, ég fer
ekki í vetrarfri, þar sem ég er að læra.
Tek mér sumarfrí i staðinn, og vinn ég
gjarnan í þvi.
Guðrún Árnadóttir húsmóðir: Nei, ég fer
aldrei í fri. Ég hef ekki farið í fri i nokkur
ár.
Sigurður Bergsson stöðumælavörður:
Ég hef ekki tekið mér sumarfri. Hvað þá
að ég fari að taka mér vetrarfrí. Ég ætla
mér ekki i neitt frí vegna þess að efna-
hagur minn leyfir það ekki.
Óskar Erlingsson nemi: Nei, það vært
þá ekki nema að ég færi í jólafrí. Ég er
að læra og þess vegna er ekki hægt að
taka sér fri í vetur. Ég tók mér hins
vegar sumarfrí og fór ég til Þýzkalands.