Dagblaðið - 12.10.1978, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12.0KTÓBER 1978.
] DB á neytendamarkaði ■Pl
Hávaðinn á
heimilunum eroft
SKAÐLEGUR HEYRNINNI
Margir öfunda þá sem vinna heima
við og telja að þeir hljóti að vera al-
sælir að vera lausir við ys og þys hvers-
dagslífsins og sitja heima hjá sér í
kyrrð og ró. En á nútímaheimilum
með flóknum vélum er langt frá því að
vera kyrrð og ró. Hávaðinn er þvert á
móti mikill, oft skaðlega mikill.
Norska neytendablaðið (Forbruker-
Rapporten) lét gera hávaðamælingu
á algengustu heimilistækjum og fara
niðurstöðurnar hér á eftir. Ef til vill
eru aðstæður ekki alveg eins hér á
landi en þó eru þær eflaust mjög líkar.
Mjög misjafnt er hvernig fólk
bregzt við hávaða. Það má þó alhæfa
að eftir að fólk hefur tekið eftir honum
og fer að hugsa um hann finnur það
meira fyrir óþægindum. Mestu óþæg-
indin eru jafnan af óreglulegum
hávaða, s.s. þegar verið er að reka
nagla i vegg. En á heimilum er sá há-
vaði oftast það lítill að hann veldur
ekki skaða á heyrn. Sá hávaði sem þar
er aftur á móti mestur er frá heimilis-
tækjum sem suða jafnt og þétt og taka
menn oft ekki eftir hljóðinu. í norsjtri
byggingarsamþykkt eru ákvæði um að
i hverju heimilistæki megi ekki vera
meiri hávaði en sem samsvarar 35
framleiði upp í 85 dB hávaða. Sam-
svarar það þvi er vörubíll ekur fram
hjá í 7 metra fjarlægð. Mestur hávaði
er oftast þegar vélin þeytivindur og er
hægt að draga úr honum með því að
láta hana ekki standa á steyptu gólfi.
Einnig ætti fólk ævinlega að fá að
heyra í vélunum áður en það kaupir
þær til þess að geta valið um hver því
finnst valda minnstum hávaða.
Ryksugur hafa einnig anzi hátt, að
minnsta kosti sumar þeirra. Ekki er
óalgengt að hávaðinn sé ein 68 dB.
Fyrir utan þvottavélina er því ekkert
sem framleiðir eins mikinn hávaða.
Hávaðinn samsvarar því að síminn
hringi í tveggja metra fjarlægð frá
okkur. En hávaðinn frá ryksugunni er
góður að þvi leyti að hann fer lítt í
taugarnar á flestum. Flestir hreinlega
viðurkenna hann sem staðreynd en
þola mun verr hávaða sem þeir þekkja
ekki, þó hann sé minni.
Næst á eftir ryksugunni fylgir
hrærivélin. 62 dB er ekki óalgengur
hávaði frá hrærivél. Og það hljóð
finnst flestum óþægilegt. En langflest-
ir láta sig hafa það vegna þess gagns
sem hrærivélin gerir. Reyndar er það
svo aö nær öllum finnst bærilegri há-
því að börn þeirra á táningaaldri spila
plötur með ærandi hávaða. Ein aðal-
röksemdin gegn sliku er að þessi
hávaði sé hættulegur eyrum ungling-
anna. En sannleikurinn er sá að há-
vaðinn reynir meira á taugar eldra
fólksins en heyrn unglinganna. Þau
eru fá tilfellin þar sem hægt hefur
verið að sýna fram á að heyrnardeyfð
stafi af hljómflutningstækjum.
Baðið
Þó að flestum finnist sá hávaði sem
myndast við það aö vatn rennur í bað-
ker ekki mikill er hann oft verulegur,
og þá oft verri fyrir manninn í næstu
íbúð en fyrir þann sem baðkerið á. í
norskri blokk kom i ljós að hávaðinn
frá því er rann í baðker komst upp í 75
dB inni í baðherberginu og 52 dB í
næstu ibúð. Og þá er nábúinn ekki
sjálfráður um að minnka hávaðann
sem gerir taugaveiklun hans út af há-
vaðanum meiri en þess sem lætur
renna í baðið. Auðvelt er að minnka
hávaðann sem fylgir því er rennur í
baðið með því að smeygja slöngu upp
á kranann og láta hana ná niður á
botn kersins.
Komið hefur 1 ljós að hávaðinn frá
hljómflutningstækjum tekur meira á
taugar eldra fólksins en heyrn unga
fólksins.
Fæstir þola hávaðann af þvl er borað
er 1 vegg. Eina bótin er að það gengur
fljótt yBr.
Þegar við sturtum niður úr klósett-
inu getur hávaðinn komizt upp í 70
dB. Það er þess vegna sem bannað er í
mörgum blokkum i Reykjavík að
sturta niðureftir miðnætti.
Hitaveitan
Oft hvín leiðinlega í hitaveitupípun-
um og tökum við sérlega eftir því á
nóttunni. í blokkum kemur það fyrir
aö hávaði úr íbúð þar sem skrúfað er
frá krana heyrist um alla blokk. Við
þessu er fátt hægt að gera. Kannski
dugar þó eitthvað að setja fleiri pípur
en smærri í húsið.
Viftur
Hávaðinn sem fylgir viftum á þak-
inu getur verið illþolanlegur. Slikar
viftur eru ekki mjög algengar á lslandi
en þekkjast þó til þess að lofta út úr
ÞvottavéÚn er það heimilistækl sem skapar mestan hávaða. Allt upp i 85 dB.
Þegar rennur i baðið getur nágranninn
Uka orðið fyrir óþægindum.
desibelum séu tækin í þeim herbergj-
um sem dvalið er í og ekki meiri en 40
dB í eldhúsum. Ekki var öryggiseftir-
liti ríkisins kunnugt um að neinar
slikar reglur væru i gildi á íslandi.
Hávaöi í
heimilistækjum
Við skulum byrja á þvottavélinni.
Ekki er óalgengt að sjálfvirk þvottavél
Eldhúsviftan skapar svipaðan hávaða
og er i stórverzlun.
vaði frá tækjum sem þeir geta sjálfir
slökktogkveiktá.
Á eftir hrærivélinni fylgja eftirfar-
andi tæki: uppþvottavél með 60 dB,
samsvarandi hávaði og samtal í metra
fjarlægð, eldhúsvifta með 42 dB,
svipaður hávaöi og í stórverzlun, og
djúpfrystir með38dB.
Hljómflutningstæki
Margir foreldrar ergja sig mjög yfir
Hávaði f rá
umhverfinu
Þegar reist eru íbúðarhús og at-
vinnufyrirtæki í sama hverfi er oft
mikill hávaði, þó ekki sé af öðru en ný-
lenduvöruverzlun. Meira að segja á
nóttunni þegar bílarnir loksins eru
hættir að skarka í grenndinni þagna
kæli- og frystigeymslur búðarinnar
aldrei. Þar sem hávaðinn er lágur er þó
oft erfitt að koma kaupmanninum í
skilning um að þarna sé vandi á
ferðum. En sem betur fer eru þau tæki
sem nýjust eru á markaði mun
hávaðaminni en gömlu kælarnir og
frystarnir.
Hávaði frá næstu nágrönnum getur
oft verið illþolanlegur. Sérlega á þetta
þó við er þeir halda veizlur eftir mið-
nættið og fólk dansar og syngur við
undirleik grammófónsins. Hér er ekk-
ert annað en aukin tillitssemi sem
getur leyst máiið og þá er gott að lita í
eigin barm fyrst.
Hvert á að kvarta
í Noregt er það þannig að fólk
getur kvartáð til yfirvalda yfir óþægi-
legum hávaða og menn eru sendir til
þess að mæla hvort rétt sé. Hér á landi
er enginn slikur aðili, það er við bezt
vitum. Öryggiseftirlitið skiptir sér bara
af vinnustöðum, heimilin koma því
ekki við. Eina ráðið virðist þvi vera að
kvarta beint til jress sem hávaðann
fremur, senda lögguna á hann ef allt
annað bregzt. Það mun ekki vera óal-
gengt um helgar að kvartað sé til lög-
reglu ef hávaðinn frá nágrönnunum er
óbærilegur og komið undir morgun.
En hávaðann inni i eigin ibúð verða
menn að reyna að minnka sjálfir.
• DS
Hávaðinn frá uppþvottavél samsvarar
mannamáú 1 metra fjarlægð.
dB hávaði. Lyftan getur lika skapað
mikinn hávaða ef hún er staðsett
þannig að innréttingin i húsinu syngur
með henni. Sorplúgurnar skapa lika
mikinn hávaða séu þær óeinangraðar.
Mælzt hefur 92 dB hávaði af sorplúgu
sem skellur til og frá. Auövelt er að
koma i veg fyrir þetta með gúmmiein-
angrun.
gluggalausum baðherbergjum í blokk-
um. Hávaðinn er oftast jafn og lágur
en getur farið óskaplega i taugarnar á
sumum. Fæstir taka þó eftir þessum
hávaða í byrjun en smátt og smátt
siast hann inn í meðvitundina.
Útihurð sem skellur
Þegar við komum út fyrir okkar
allra helgasta er líka hávaði þar. Til
dæmis fylgir hurð sem skellur um 80