Dagblaðið - 12.10.1978, Page 6
6
Bandaríkin:
Opnað fyrír raf-
reiknasölu til
Sovétríkjanna
Bandaríkjastjórn hefur aflétt banni
við sölu ýmiskonar rafreiknitækja til
Sovétríkjanna, sem staðið hefur um
nokkurt skeið. Má segja að þau tæki,
sem nú verða afhent sovézkum aðilum
hafi tvisvar áður verið stöðvuð af stjórn-
völdum vestra vegna þess að þau hafa
talið hættu á að notfæra mætti sér þau í
hernaðarlegum tilgangi að sögn.
Vitað er að er söluleyfið var veitt
losnaði um sautján sölusamninga að
upphæð um það bil tveggja milljón
dollara eða jafnvirði sex hundruð millj-
óna íslenzkra króna. Tækin munu ætluð
til starfa við gerð símreikninga, tölfræði
útreikninga, fjármálabókhalds svo eitt-
hvað sé nefnt.
Sadat forseti Egyptalands hefur helzt verið orðaður við friðar viðleitni undarfarna mánuði.Jafnvel hafa heyrzt raddir um að
hann sé verðugur friðarverðlauna Nóbels.Að hætti þjóðhöfðingja víða um heim á hann þó uppruna sinn l her landsins og á
myndinni sést Sadat við hcrsýningu, sem reyndar var honum til heiðurs eftir heimkomuna frá Camp David viðræðunum.
kcmur skapinu i lag
Nougal
Cokiail
Nokka
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. OKTÖBER 1978.
VANCE RÆfHR
VIÐ ARABÍU-
KONUNGINN
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna brá sér í gær í heim-
sókn til Khalids konungs Saudi-Arabíu
þar sem hann liggur á sjúkrahúsi í
Cleveland í Ohiofylki i Bandaríkjun-
um. Gekkst hann þar nýverið undir
hjartauppskurð og að sögn lækna fer
honum vel fram og þarf aðeins að
liggja nokkrar vikur til að hvíla sig.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins í
Washington sagði að Vance hefði ein-
göngu verið að sýna þjóðhöfðingja
vinaríkis virðingu. Ekki hafi verið um
neinar samningaviðræður að þessu
sinni. Bandaríski utanrikisráðherrann
var í Saudi-Arabíu í síðasta mánuði og
ræddi þá við konunginn og bróður
hans. Helzta erindið var að fá þá til að
fallast á samkomulagið í Camp David
milli þeirra Begins og Sadats. Tóku
Saudi-Arabiumenn þvi þunglega en
sögðust þó ekki mundu standa í vegi
fyrir að friður gæti komizt á milli
Egypta og ísraelsmanna. Saudi-Ara-
biumenn, sem eru trúaðir mjög að
múhammeðskum sið, voru meðal ann-
ars óánægðir með að heilagir staðir til
dæmis í Jerúsalem áttu ekki örugglega
að verða á yfirráðasvæði araba.
Miðdemókrat-
arstyðjaAnker
— efnahagsstefna hans þar með komin íhöfn
Miðdemókratarflokkur Erhards
Jakobsen ákvað í gær að styðja stjórn
Jafnaðarmanna í Danmörku og er þvi
Ijóst að Anker Jörgensen getur komið
efnahagsmálaáformum sínum i
gegnum þingið. Er hinir tíu þingmenn
Miðdemókrataflokksins bætast í fylk-
ingu hans hefur stjórnin þokkalega
góðan meirihluta.
Ríkisstjórnin hefur lagt fram frum-
varp þar sem miklar hömlur eru lagðar
á launahækkanir og gert ráð fyrir að
virðisaukaskattur — nokkurs konar
söluskattur — hækki ef launin hækki
meira en gott þykir. Mikið atvinnu-
leysi er í Danmörku. Samkvæmt opin-
berum skýrslum ganga tólf af hverjum
hundrað Dönum atvinnulausir um
þessarmundir.