Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 7

Dagblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12.0KTÓBER 1978. Líbanon: Leyniskyttur fella enn þá sem skjót- ast iír skjóli — Beirút eins og púðurtunna þar sem hver ögrar öðrum Enn hafa skot leyniskyttna hafið glymjanda sinn í hverfi kristinna hægri manna í Beirút í Libanon. Er mikil spenna í borginni eftir að kunn- ugt varð um áætlanir Sarkis forseta landsins um hvernig leysa mætti úr hinum stöðugu skærum, sem þar hafa verið að undanförnu. Báðir aðilar, sýrlenzka gæzluliðið og skæruliðar kristinna, saka hvor annan um að hafa rofið vopnahléið sem sett var á laugardaginn var. Vitað er um i það minnsta fjórtán manns, sem hafa fallið fyrir skotum leyni- skyttna, er þeir hafa reynt að komast út úr rústum heimila sinna. Hverfi kristinna er að sögn sjónarvotta að mestu í rúst eftir stórfelldar eldflauga- og stórskotaliðsárásir Sýrlendinga. Utvarpsstöð i Líbanon sagði frá því í gærkvöldi að systir eins frambjóð- andans i forsetakosningunum árið 1976 hafi meðal annarra særzt í átök- unum. Hafi hún verið að aka bifreið sinni yfír gatnamót er kúlnahriðin hafi skollið á henni og bifreiðinni sem end- aði ferð sína á næsta húsvegg. Ástand mála er óljóst en vitað er um ráðagerðir Sýrlendinga um að draga til baka herlið sitt og skipa palestínskum hermönnum til stöðu á hernaðarlega mikilvægum stöðum nærri hverfi kristinna hægri manna i Beirút. Hefur þetta valdið miklum ótta hinna siðastnefndu, sem telja slikt ögrun við sig. Einnig eru þessar að- gerðir taldar eiga að draga úr Sarkis forseta varðandi hugmyndir hans um að kalla gæzlulið Arababandalagsins á brott frá hluta Beirútborgar. Erlendar fréttir REUTER FEKK EMBÆTTIÐ MEÐ FRIÐI Það þykir tiðindum sæta ef forsetis Afríkuríkis tekur við völdum á friðsamlegan hátt. Þaö varð þó i Kenya i fyrri viku, þegar Daniel Arap Moi tók við embætti af Jomo Kenyatta forseta sem nýlega er látinn. Moi var áður varaforseti en átti við þann vanda að striða, að vera ekki af rikjandi þjóðflokki i Kenya. Málin þróuðust samt þannig að hann hlaut stuðning áhrifamikilla stjórnmála- manna i hinum gamla flokki Kenyatta og þar var ákveðið að hann tæki við embættinu.Enginnannar vartormlega i kjöri enda ekki leyfður annar stjórn- málaflokkur i landinu. Á myndinni sést hinn nýi forseti undir stórri mynd af landsföðurnum Jomo Kenyatta. — komst til læknis eftir þrjá daga Danski rithöfundurinn Joseph Heller gekk óvart inn um opið lyftuop og féll niður fimm hæðir, þó ótrúlegt sé. Hann er daufdumbur og gat því illa látið vita af sér. Tókst honum ekki að gera vart við sig fyrr en eftir þrjá daga en þá hafði honum tekizt að drag- ast brotinn og- bramlaður í gegnum vörugeymslu þangað sem mannaferðir voru. Að sögn lækna er óskiljanlegt hvernig rithöfundurinn lifði fallið af og enn furðulegra að hann skyldi lifa af þriggja daga baráttu einn og yfirgef- inn. Eins og sjá má er hann með hand- leggi í fatla auk þess föngulegt víra- virki heldur kjálkanum við höfuðið. Lifði fall af fímmtu hæð - mmm A-ÐALSTRfETI 3 REYKdAVÍK SIMI12E34 % (y/7niefvrnb jfntertuMfmaS

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.