Dagblaðið - 12.10.1978, Page 11

Dagblaðið - 12.10.1978, Page 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12.0KTÓBER 1978. 11 SLYSINIUMFERDINNI Af hverju verður slys? Þetta er spurning sem leitar á marga þessa dag- ana. Slys er oftast afleiðing tilviljana eða keðju atburða. Það á sér orsakir. Ég ætla að ræða hér dálítið um gang- andi vegfarendur og stöðu þeirra í um- ferðinni. Alger forsenda fyrir því að fótgang- andi verði fyrir bíl er að leiðir þeirra liggi saman. Auðvitað fer bíllinn með „sigur” af hólmi úr þeim árekstri. Það er ekki hægt að likja 1000 kg af blikki Kjallarinn Óli Hilmar Jónsson á 50 km hraða við nokkra tugi kjöt- kílóa á gönguhraða. Spumingin er bara sú hversu illa fer fyrir kjötinu? En þeir sem verða fyrir bílum eru ekki bara nokkrir tugir kílóa af kjöti og beinum, heldur einstaklingar, dýrmætir þjóð- félaginu og kærir sínum nánustu. Hver slasaður kostar mikla peninga í hjúkrun og læknishjálp. Hver látinn er mikið fjárhagslegt tjón fyrir þjóð- ina, þótt meiðsl, örkuml og manna- missir verði raunar aldrei metið til peninga. Hér er samt um mikið þjóð- hagslegt spursmál að ræða. Hvað ber að gera? spyrja menn. Lögreglan, Um- ferðarráð og Slysavarnafélagið hvetja til varfærni og tillitssemi í umferðinni. Gamall söngur með sinu lagi, sem hljómar stutt og gleymist fljótt. Og slysin halda áfram að verða. Menn horfa hver á annan og segja: „Aldrei nógu varlega farið. Þetta var nú meiri óheppnin.” En fáum dettur í hug að líta dálítið í kringum sig og kanna hvernig er að gangandi vegfarendum búið í umferðinni. Eins og hér að framan segir, þurfa leiðir bíls og fótgangandi að liggja saman til þess að slys verði. Venjulega er það á götum. Það er því auðséð mál, að með því að skilja bíla og fótgang- andi að, hlýtur slysum að fækka. Það er að segja með þvi að búa betur að fótgangandi (og hjólandi), t.d. með því að. byggja sérstakt aðskilið kerfi göngugatna og tröppulaus undirgöng við hættulegustu göturnar, má draga stórlega úr slysahættunni. Nýlega urðu fimm börn fyrir bílum sama daginn í Reykjavík. Veður var hið bezta og allar aðstæður til aksturs góðar. Þannig er það nánast daglegt brauð að lesa um slys í dagblöðunum, þar sem ekið er á gangandi vegfar- endur og fólk fer að líta á slysin sem óhjákvæmilegan fylgifisk umferðar- innar. Slíikt er hættulegt og má ekki verða. Það er almennt viðurkennt á hinum Norðurlöndunum að aðskilnaður ak- andi og gangandi umferðar sé mikil- vægur þáttur i að tryggja öryggi hinna gangandi, enda gefa eftirfarandi tölur nokkra hugmynd um árangurinn af viðleitni yfirvalda þar í löndum til að Og slysin halda áfram að verða. Menn horfa hver á annan og segja: „Aldrei nógu varlega farið. Þetta var nú meiri óheppnin.” búa vel að léttri umferð. Tölurnar sem eru meðaltal áranna 1966—76 sýna hlutfallslegan fjölda meiddra eða lát- inna gangandi vegfarenda af heildar- fjölda meiddra eða*íátinna í umferðar- slysum. Svíþjóð 11,7% Danmörk 13,7% Finnland 16,6% Noregur 20,7% ísland 24,7% Þar sem bifreiðaeign er mjög svipuð á öllum Norðurlöndunum og raunar mest í Svíþjóð, getum við ekki gengið þegjandi framhjá þessum mikla mun. Er sökin hjá skipulagsyfirvöldum? Svo mætti spyrja. Ég veit að með stjórn skipulagsmála fara hinir mæt- ustu menn, sem leggja sig alla fram við að gera sitt bezta í þessum málum. En það er ekki alltaf til fé til fram- kvæmdanna. Sérstakt hjóla- og göngu- stígakerfi kostar mikla peninga. Það er þó mín skoðun, að dýrt sé að „spara” á kostnað gangandi vegfarenda. Og þess er ég fullviss, að ein höfuðorsökin fyrir hinni miklu bifreiðanotkun okkar bæjarbúa er vegna þess að „það er svo erfitt að komast gangandi og hættu- legt að ferðast hjólandi”. Óli Hilmar Jónsson arkitekt. Svör vegna spuminga um Sædýrasafnid í Dagblaðinu mánudaginn 25. september sl. birtist grein eftir Borgþór Kjærnested fréttaritara um Sædýra- safnið við Hafnarfjörð. Þar varpar hann fram ýmsum spurningum um dýragarðinn. í lok greinarinnar spyr hann hvað Samband dýraverndunar- félaga íslands hafi gert í málum Sædýrasafnsins. Til upplýsinga fyrir hann og aðra er áhuga hefðu á málinu skal eftirfarandi tekið fram: Miklar kvartanir hafa ævinlega borist stjórn S.D.l. vegna þessa dýra- garðs. Þær berast frá ýmsum aðilum, svo sem almenningi — foreldrum, sem segjast einfaldlega verða miður sín eftir för í Sædýrasafnið — að horfa upp á þrengslin og sóðaskapinn sem dýrin búa við. Erlendir ferðamenn, sem í dýra- garðinn koma, bera staðinn saman við dýragarða í sínu heimalandi og furða sig á að það skuli vera liðiö að staðnum sé haldið opnum. Erlendur dýralæknir, sem kom í Sædýrasafnið, sagði við mig berum orðum: Þetta er ormagarður. Hann átti við að dýrin, t.d. kindurnar, standa svo þétt að innyflaormar magnast upp í þeim — þær þrífast ekki. Þessu hafa líka íslenskir bændur tekið eftir ef þeir hafa komið í dýra- garðinn. Þeir bera sauðféð á drullugri steinstéttinni saman við frjálsar kindur heiðalandanna. Svona miklar og látlausar kvartanir er ekki hægt að sniðganga. Þvi hefur stjórn S.D.f. nú I nokkur ár reynt að fá aðbúnað dýranna bættan, að öðrum kosti verði Sædýrasafninu lokað. Stjórn S.D.Í. hefur ritað og rætt við fjölmarga aðila vegna þessa máls, svo sem stjorn Sædýrasafnsins, yfirdýra- lækni, héraðsdýralækni, yfirvöld í umdæminu, svo og alla þá aðila er halda Sædýrasafninu gangandi með því að ausa í það peningum. Það er t.d. Reykjavíkurborg og bæjarfélögin í var að það Úr Sædýrasafninu. nágrenni hennar. Viðbrögðin við þessum kvörtunum hafa verið á ýmsa lund. í svarbréfi yfirdýralæknis fagnar hann því að stjórn S.D.l. skuli nú „loks” sinna þessu „leiðindamáli” og segist sjálfur hafa margvarað við kostnaði og erfiðleikum við stofnum og rekstur slíkrar stofnunar, en litlu fengið áorkað til þessa. í menntamálaráðuneytinu margoft fullyrt — munnlega - Sædýrasafninu yrði lokað, því væri enginn fjárhagsgrundvöllur fyrir starfsemi þess og skuldir þess allt of miklar. En hvernig brást stjórn Sædýrasafnsins við þessum réttmætu kvörtunum? Með því að stefna for- manni S.D.Í. og krefjast einnar milljónar króna skaðabóta fyrir að hafa skaðað dýragarðinn fjárhagslega. Ekki einu af þeim bréfum sem stjórn S.D.Í hefur ritað stjórn Sædýra- safnsins hefur verið svarað. Mér er það óskiljanlegt hvernig for- ráðamenn Sædýrasafnsins geta ævinlega herjað út svona mikla peninga til starfseminnar. En þeir bera því við að þetta sé menningarstofnun og börn hafi svo gott og gaman af því að sjá dýrin. Vissulega hafa börn gaman af því að sjá dýr, en hafa þau gott af þvi að sjá dýr sem lifa við þessar aðstæður? Væri ekki nær að fara með skólabekki og leikskóladeildir á bóndabæi í nágrenninu og sýna þeim íslensku húsdýrin við eðlilegar aðstæður? Og varðandi þau dýr sem þarna eru sýnd af fjarlægum slóðum þá gerir sjónvarpið þeim góð skil i hinum ágætu dýralífsmyndum sem mikið er af í sjónvarpinu og eru teknar í eðlilegu umhverfi dýranna. Það er Kjallarinn Jörunn Sörensen ekki lengur viðurkennd skoðun erlendis að dýragarðar séu heppilegir til að sýna og kynna dýrin, lifnaðar- hætti þeirra og heg'ðun. Dýragarðar sýni þetta alls ekki. Þá er miðað við erlenda dýragarða með besta aðbúnaði, gott veðurfar og fjölmennt sérþjálfað starfslið. Hvað þá með Sædýrasafnið okkar? Getur menningarþjóð, eins og við íslend- ingar teljum okkur vera, látið þetta viðgangast endalaust? Ég ítreka hér það sem stjórn S.D.Í. hefur margoft látið koma fram við opinbera aðila, að sé ekki ákveðinn vilji fyrir því að hið opinbera taki að sér rekstur dýragarðs á besta hugsan- legan hátt með sérhæfðu starfsliði, þá verði Sædýrasafninu lokað. Það er ekkert að þvi að ýmis bráða- birgðastarfsemi sé rekin, en ekki ár eftir ár þegar dýr eiga í hlut. Jórunn Sörensen, formaður Sambands dýraverndunarfélaga íslands.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.