Dagblaðið - 12.10.1978, Side 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978.
— Tíu þátta sjónvarpsmynd sem endar á eldsumbrotum á íslandi gerð af sænska, danska og norska sjónvarpinu
Sænskir, norskir og danskir
sjónvarpsmenn hafa undanfarin þrjú
ár unnið að gerð myndar í tíu þátt-
um, sem hefur hlotið nafnið
Viðkomustaður jörðin, og fjallar í
aðalatriðum um stöðu mannkynsins í
dag og nauðsyn þess að mannfólkið
umgangist náttúruna af aukinni
varúð. Við gerð myndarinnar var
gengið út frá fimm höfuðpunktum —
Hvernig varð jörðin til? Hvernig
kviknaði líf á jörðinni? Samspil manns
og náttúru. Náttúruauðlindir og rán-
yrkja mannsins. Hvaða leiðir eru út úr
ógöngunum? Sýning á myndinni er nú
hafin í þessum þremur löndum.
Svíar gerðu fyrstu fjóra þættina, og
fjalla þeir um stöðu jarðarinnar í
sólkerfinu og vitneskju okkar og
tilgátur um myndun sólkerfisins,
þróun þess og stærð. Myndin hefst á
ferðalagi frá stað einhvers staðar úti í
óendanleikanum, og áhorfendur
fylgjast með því hvernig sólkerfið varð
til samkvæmt tilgátum visindamanna.
Ferðin heldur áfram í milljarða Ijós-
ára, þar til komið er aö lítilli
stjörnuþyrpingu sem nefnd er Vetrar-
brautin, en þar er að finna lítið korn
sem heitir Jörðin. Sviar hafa gert þessa
þætti af mikilli hugvitssemi, aðsagter,
og inn á milli skjóta þeir myndum frá
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notadra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Fíat 128 árg. 1972 1 Cortinaárg. 1968
Volvo Amazon árg. 1964 Escortárg. 1968
Taunus 17M árg. 1967 Willys V-8
VW1300 árg.1971 Land Rover
Einnig höfum við urval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
HöfiatúnilO - Súni 11397
Piltur eða stúlka,
17 til 20 ára með bílpróf, óskast til starfa við
sendi- og lagerstörf.
KRAFTUR HF.r
VAGNHÖFÐA 3, SÍMI85235.
Mr. Roman
Finnsk
úrvalsföt
■HERRA
©URINN
AílALSTfHETI 9 -
REYKdAVÍK-
SÍMI12234
tunglförum og öðrum geimrannsókn-
armönnum.
Það eru ekki „nema” þúsund ár frá
því maðurinn fann upp hjólið, en nú
hefur maðurinn þegar ekið farartæki á
sjálfu tunglingu. Ferðin til tunglsins
var stórkostlegt afrek, en ferðin
þangað var eins og lítið skref miðað
við fjarlægðimar í geimnum, sem eru
nánast óskiljanlegar. Með DC—9
flugvél geturðu ferðazt hálfa leið
kringum jörðina á nokkrum
klukkustundum, en ef þú ætlar með
sömu flugvél til þeirrar stjörnu, sem
næst er jörðu, myndi ferðin taka 5
milljónir ára! Ef við slepptum nú
[flugferöinni og slæium á þráðinn til
einhvers á stjörnunni, þá yrðum við að
bíða í meir en átta ár eftir að heyra
„halló” frá viðkomandi.
Sviar reyna að svara eftirfarandi
spurningum í þáttunum fjórum:
Finnast mannverur á öðrum stöðum
en jörðinni? Finnast dýr, bakteríur eða
vírusar á öðrum stöðum? Er jörðin
bara viðkomustaður á ferð lífsins í
gegnum óendanleikann? Munum við
eyðileggja allt líf á jörðunni með
ofnotkun skaðlegra efna?
1 norsku þáttunum þremur erum
við komin niður á jörðina; við fáum að
kynnast hvernig náttúran vinnur sitt
verk i friðuðum skógi í Noregi — eld-
gömul tré falla til jarðar vegna ágangs
skordýra og sveppagróðurs. Spætur
höggva göt í trjástofninn, ræturnar
visna og stormurirm rekur enda-
hnútinn á verkið. Þegar tréð er fallið,
byrja maurar og bjöllur á sínu verki,
tréð morknar smásaman og hverfur
ofan í svörðinn. Næstu tveir þættir
fjalla um norska greniskóginn og
„Hardangersvidda”, sem er stórt
Noregsbréf:
Maðurinn er kominn til tungisins en f sjónvarpsmyndinni er ferðazt milljónir Ijós-
ára þar til komið er að lítilli stjórnuþyrpingu sem nefnd er Vetrarbrautin. Þar má
Gnna Utið kom sem heitir Jörðin.
Sigurjón
Jóhannsson
friðaðsvæði á norska hálendinu.
Danir byrja sina þætti á að lýsa
nútíma þjóðfélagi, velferðar-
þjóðfélaginu, og gífurlegri orkunotkun
þess. Þeir sýna litla, forvitna veru sem
heitir „Snuden”. Snuden veit ósköp
litið um manneskjurnar og þarf þvi
margs að spyrja. Hann finnur m.a.
stóran gám, sem er fullur af varningi,
sem enginn vill lengur eiga, því allir
þurfa stöðugt að kaupa eitthvað nýtt.
Snuden hittir dreng og fer með honum
heim til hans. Þar kynnist hann
lifnaðarháttum nútíma fólks. Hann
heldur áfram ferð sinni um landið og
undrast meir og meir hvað fólkið not-
ar mikið af orku. Hann sofnar og
dreymir um nýtt og öðruvísi
framtiðarþjóðfélag. Danir ljúka sínum
þáttum með því að lýsa því, sem er að
gerast undir yfirborði jarðar. Þar
kemur ísland inn í myndina, en þar
eru teknar þær myndir, sem lýsa eld-
gosum og jarðhræringum.
Sýndar eru myndir frá eldgosum og jaróhræringum á tslandi. Er þaó i þeim kafla sjónvarpsmyndarinnar er lýsa á þvl sem
gerist undir yfirborði jarðar. Myndin er af eldgosi i Mývatnssveit. DB-mynd Hörður.