Dagblaðið - 12.10.1978, Side 14
14
1
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12.0KTÓBER 1978.
Iþróttir
Sovétmanna
íBúdapest
Ungverjar sigruðu Sovétmenn 2-0 i 6.
riðli Evrópukeppni landsliða í Búdapest i
gærkvöld. Sigur Ungverja fylgdi i kjölfar
ósigurs gegn Finnum i Helsinki. Þrátt
fyrir ósigur eru möguleikar Sovétmanna
enn mestir.
Sovétmenn voru slegnir út úr HM af
Ungverjum, í gærkvöld sóttu Sovétmenn
mun meira en Oleg Blokhin fór þrívegis
illa að ráði sínu. Á 25. minútu náðu
Ungverjar skyndisókn og Varadi
skoraði. Sovétmenn sóttu mjög en
Katzirz, markvörður Ungverja, var
snjall. Á 58. mínútu skoraði Szokolai
annað mark Ungverja og gulltryggði
sigur þeirra, 2-0. Áhorfendur voru 40
þúsund.
V-Þjóðverjar
sigruðu íPrag
V-Þjóðverjar sigruðu Evrópumeistara
Tékka 4-3 i vináttulandsleik Þjóðanna í
Prag 1 gærkvöld. V-Þjóðverjar höfðu
yfir, 4-1 í leikhléi en Tékkar komu tví-
efidir til siðari hálfleiks, skoruðu tvö
mörk, léku snilldarlega. En það dugði
ekki — þremur minútum fyrir leikslok
átti Zdnek Nahoda skalla í þverslá og
Þjóðverjar sluppu með skrekkinn.
Rudiger Abramczik náði forustu fyrir
V-Þjóðverja á 9. mínútu, og Ranier
Bonhof skoraði aftur aðeins tveimur
mínútum síðar, beint úr aukaspyrnu.
Frantisek Stambacher minnkaði mun-
inn á 15. mínútu en Bonhof úr víti og
Hansi Muller komu V-Þjóðverjum yfir í
4-1 fyrir leikhlé. Á 53. minútu minnkaði
Marian Masny muninn i 2-4, lagði síðan
upp mark fyrir Stambacher 3-4 á 63.
minútu en það dugði ekki til þrátt fyrir
mörg ágæt tækifæri. Áhorfendur voru
30 þúsund.
Celtic sigraði
Motherwell
Celtic sigraði Mothcrwell 4-1 I gær-
kvöld I skozka deildabikarnum í
Motherwell. Þar mcð komst Celtic
áfram, eftir 0-1 ósigur á Park Hcad —
vann samanlagt 4-2. St. Mirren og
Rangers skildu jöfn. 0-0, á Paisley og
Rangers komust því áfram, samanlagt 3-
2. Aberdeen vann Hamilton stórt, 7-1,
samanlagt 8 1. Ayr og Falkirk skildu
jöfn, 1-1, Ayr komst áfram, 3-1. Clyde-
bank og Hibernian skildu jöfn, 1-1 —
Hibernian sigraði samanlagt 2-1.
Montrose sigraði Raith Rovers saman-
lagt 5-1.
Finnar fengu
skell í Aþenu
Finnar komu niður með skelli i 6. riðli
Evrópukeppni landsliða er þeir töpuðu
8—1 I Áþenu gegn Grikkjum. llöfðu
áður sigrað í tvcimur fyrstu leikjum
sinum, Grikki 3—0 og Ungverja 2—1.
En í gærkvöld voru þeir yfirspilaðir af
Grikkjum, sem skoruðu fimm mörk í
fyrri hálfieik, þar af skoraði Mavros
þrívegis. Fjögur mörk á níu mínútna
kafia í fyrri hálfieik, 14. til 23. mínútu,
sökktu Finnum. Grikkir sóttu látlaust i
siðari hálfieik, og þrjú mörk fylgdu i
kjölfarið. Heiskenen skoraði eina mark
Finna í Aþenu en þá var staðan 6—1.
Mavros skoraði 4 mörk fyrir Grikki,
Nicoloudis, Dalakos og Delikaris 2
bættu við hinum. Áhorfendur í Aþenu
voru átta þúsuiKd.
Staðan í 6. riðli er nú:
Finnland 3 2 0 1 6—9 4
Grikkland 3 10 2 8—6 2
Ungverjaland 2 10 1 3—2 2
Sovétríkin 2 10 1 2—2 2
Ép
Iþróttir
Iþróttir
Iþró
Pétur til Feyenoord
—skrifaði undir samning í gær til þriggja ára. Feyenoord
kemur hingað til lands næsta sumar auk þess að leikmenn
og þjálfarar fá að dvelja íHoliandi — ÍA að kostnaðarlausu
„Ég er mjög ánægður með samning
minn við hollenzka liðið Feyenoord,
bæði fyrir mig og félag mitt. þetta er
aðeins byrjunin, mikil vinna framundan
hjá mér. En ég vona að ég leiki marga
landsleiki fyrir tsland, verði ég valinn og
eins að ég eigi eftir, þó síðar verði, að
klæðast peysu Skagamanna,” sagði
Pétur Péfursson, Skagamaðurinn ungi,
19 ára, eftir að hann hafði undirritað
samning við hollenzka stórliðið Feyen-
oord i gær að Hótel Loftleiðum.
Samningur Péturs Péturssonar við
Feyenoord er honum mjög hagstæður,
enda stórt félag Feyenoord. Ekki hafa
veriö gefnar neinar tölur — slikt er
trúnaðarmál leikmanns og félags en
samningurinn mun mjög hagstæður. Þá
er samningurinn og mjög hagstæður fyrir
ÍA. Feyenoord greiðir ÍA ekki beinar
peningagreiðslur — en engu að siður
koma Skagamenn mjög vel út, fjárhags-
lega og félagslega. Það er gert ráð fyrir
— eins og sagt var í DB í gær — að
Feyenoord komi hingað næsta sumar og
leiki við Skagamenn, þeim alveg að
kostnaðarlausu. Allar tekjur renni
óskiptar til í A. Þá er einnig möguleiki að
leikið verði við islenzka landsliðið, en
um það á eftir að semiast.
„Framkoma Feyenoord hefur öll
verið til fyrirmyndar. Aðalatriðið af
okkar hálfu var að Pétur fengi góðan
samning, það var númer eitt — númer
tvö var í A,” sagði Gunnar Sigurðsson í
gær. „Ég er ánægður með samning
Péturs, og veit að Akurnesingar eru allir
ánægðir fyrir hans hönd. Bæði félags-
lega og peningalega er samningurinn
góður. Samningurinn gerir ráð fyrir að
ÍA geti sent allt að þrjá leikmenn árlega
í þrjá mánuði til Feyenoord á samnings-
tímabilinu og tvo þjálfara í allt að 45
daga til náms og þjálfunar.
Það ber að virða við Pétur og föður
hans, Pétur Elísson, að aldrei kom til
mála að Pétur færi út á meðan keppnis-
tímabilið íslenzka stæði yfir. Við vildum
frið á meðan á því stóð— þeir vildu frið.
Svo var þó ekki alltaf, ásælni erlendra
félaga, svo og manns hér á landi. Brott-
för leikmanna erlendis hefur verið I
sviðsljósinu undanfarið, 2 leikmenn
farið út á miðju keppnistímabili. Það á
ekki að geta gerzt, má ekki gerast og KSÍ
verður að binda endaá slíkt með því'áð
taka málin föstum tökum. Það er óvið-
unandi að íþróttaforustan skuli ekki hafa
tekið þessi mál föstum tökum þegar,”
sagði Gunnar Sigurðsson að lokum.
„Á síðasta þingi KSl var sett klausa
um þessi mál en þvi miður hefur hún
reynzt með öllu máttlaus,” sagði Gylfi
Þórðarson en hann ásamt Alberti Guð-
mundssyni var Skagamönnum mjög inn-
an handar við samningsgerð við Feyen-
oord. Það er greinilegt að um margt
markar samningur Skagamanna og
Feyenoord tímamót. Hann er mun hag-
stæðari en samningar Vikings og Vals
við Lokeren. Að vísu er ekki saman að
jafna, annars vegar Lokeren — hins
vegar stórlið eins og Feynenoord. Skaga-
menn koma mjög vel út fjárhagslega,
það er ljóst, einnig og ekki síður félags-
lega þar sem eru samskipti Feyenoord og
ÍA. Þessum samningi ber að fagna.
Hann er öllum aðilum til sóma, ekki sizt
Pétri sjálfum, sem sýnt hefur félagi sinu
mikinn trúnað. Nýtt tímabil tekur nú
við hjá honum — hinn harði skóli at-
vinnumennskunnar.
H Halls.
Pétur getur orðið meðal
þeirra beztu í Evrépu
„Pétur hefur allt til að bera til að ná
fremstu röð knattspyrnulega séð. Hann
er eitt mesta efni I Evrópu í dag — og
hafi hann einnig bein til að standast hinn
erfiða skóla atvinnumennskunnar getur
hann náð á toppinn i Evrópu I dag. Með
félagi eins og Feyenoord hefur hann allar
aðstæður til þess,” sagði Peter Stephan,
framkvæmdastjóri Feycnoord i gær á
Hótel Loftleiðum eftir að Pétur Péturs-
son hafði skrifað undir atvinnusamning
við Feyenoord.
„Ég tel að Feyenoord, lA og Pétur
Pétursson hafi staðið rétt að málum hér.
Við höfðum samand við tA, sem er rétta
leiðin, og eftir að hafa fengið leyfi þeirra,
töluðum viö við Pétur. Feyenoord er
| stórt félag og vant að virðingu sinni,”
sagði Stephan ennfremur og hann bætti
við: „Það er eðlilegt að félag hans hér
heima fái eitthvað fyrir þá peninga, sem
það hefur lagt í leikmenn hér. 1 þessu
! tilfelli var ekki um beinar peninga-
| greiðslur að ræða, heldur kemur Feyen-
oord hingað upp næsta sumar, Skaga-
mönnum að kostnaðarlausu og leikur
hér — allur ágóði rennur til ÍA og hann,
; vona ég að verði sem mestur. Þá varður
hægt að telja þá peninga, sem ÍA fær.
— sagði Peter Stephan í gær
Síðan eru félagsleg samskipti IA og
Feyenoord og þau tel ég mikilvæg.
Meðallaun góðs atvinnumanns eru á
bilinu 100 þúsund gyllini til 300 þúsund
(15—45 milljónir) — og þegar í hlut á
leikmaður eins og Pétur verður að greiða
honum vel. Við höfum einnig áhuga á
Karli Þórðarsyni, kona hans á von á
barni um þessar mundir. Við munum fá
hann út síðar en hann er einn bezti leik-
maður er ég hef séð í langan tíma. Ég er
mjög ánægður með að fá Pétur, hann er
einn sá bezti af hinum yngri. Okkur i
Hollandi furðar hve ísland á marga góða
leikmenn og hver standardinn i knatt-
spyrnu er hér þrátt fyrir allar þær erfiðu
aðstæður sem þið verðið að glíma við,"
sagði Peter Stephan að Iokum.
Búlgarar jöf nuðu
—2-2 á Idrætsparken
Danir og Búlgarar skildu jafnir I
Kaupmannahöfn, 2—2, í 1. riðli Evrópu-
keppni landsliða i gærkvöld. Búlgarar
jöfnuðu 6 mínútum fyrir leikslok i Kaup-
mannahöfn en aðeins 1600 áhorfendur
voru I Kaupmannahöfn, á Ir.drætspark-
Danir byrjuðu vel gegn Búlgörum,
voru hættulegir í sókninni og náðu
forustu á 17. mínútu. Benny Nielsen,
Anderlecht, skoraði gott mark eftir góða
sendingu frá Frank Arnesen, Ajax. En
Arnesen urðu á mikil mistök, og Panov
komst í gegn og skoraði, 1—1.
Á 63. minútu náðu Danir aftur
forustu, nú var félagi Arnesen Sören
Lerby á ferðinni, skoraði gott mark. En
sigurinn átti ekki að verða Dana, á 84.
mínútu jafnaði Iliev, 2—2. Jafntefii —
annað jafntefii Dana, áður gegn írum en
Danir biðu ósigur I Kaupmannahöfn
gegn Englendingum. Danir voru án leik-
manna sinna frá Borussia
Mönchenladbach, Allan Simonsen og
Carsten Nielsen.
Pétur Pétursson, atvinnumaður með Fe;
ásamt framkvæmdastjóra Feyenoord, Pete
HOLLAND
SVISS
— 3-líEvrópul
Holland sigraði Sviss 3—1 í Evrópu-
keppni landsliða í Bern i Sviss. Það var
ekki fyrr en á síðustu minútunni að
Hollendingar gátu andað léttar, er Ruud
Geels gulltryggði sigur Hollendinga með
marki á síðustu mínútunni. Svisslend-
ingar sóttu mjög lokakaflann I von um að
jafna. Piet Schrijver, markvörður
Hollands bjargaði snilldarlega skalla
Bizzini á 88. minútu og skömmu siðar
komst varamaður Sviss, Raimondo
Ponte í gegn en Schrjiver varði skot hans
— Hollendingar náðu skyndisókn og
Ruud Geels gulltryggði sigur Hollands,
3-1.
Svisslendingar sýndu mjög góðan leik
í Bern, ákaft hvattir af 23 þúsund
áhorfendum. Þeir sóttu mjög og komu
vörn Hollendinga iðulega í vandræði.
Hollendingar náðu forustu á 19. mínútu
er þrumuskot Piet Wildschut hafnaði í
netinu, þrumuskot af löngu færi er fór i
vamarmann og breytti um stefnu. Sviss
lendingar lögðu þó ekki árar í bát. Náðu
Uppsláttur hollenzku blaðanna sl. mánudag:
Pétur skrifaði undir samning
við Feyenoord til þríggja ára
„Það var skýrt frá þvl I öllum dagblöð-
unum hér i Hollandi á mánudag — með
miklum uppslætti f þeim flestum — að
Pétur Pétursson hefði á sunnudag
skrifað undir samning til þriggja ára við
J Feyenoord. Einnig var skýrt frá því i
hollenzka útvarpinu og sjónvarpinu með
tilheyrandi myndum frá athöfninni.
Fréttir fjöimiðlanna hér byggðust á
opinberri tilkynningu frá Feyenoord, að
: Pétur hefði skrifað undir samning við
; félagið til þriggja ára — og um leið
' notuðu blaðamennirnir tækifærið til aö
ræða við framkvæmdastjóra Feyenoord
og stjórnarmenn um Pétur og framtíð
hans hjá félaginu,” sagði iþróttaritstjóri
Dagblad de Telegraaf i Hollandi, þegar
undirritaður ræddi við hann i síma um
þessi mál fyrri vikunni.
„Það er engum blöðum um það að
fletta að Pétur hefur skrifað undir samn-
ing við Feyenoord á sunnudag — og þvi
koma mér þessar fréttir frá íslandi tals-
vert á óvart að enn hafi ekki verið
gengið frá samningum milli Péturs og
Feyenoord,” sagði ritstjórinn, þegar við
skýrðum honum frá gangi mála hér
heima. „Á sunnudag voru forráðamenn
Feyenoord mjög ánægðir að gengið
hafði verið frá samningum við Pétur,”
sagði Hollendingurinn.
Okkur hér á DB fannst rétt að birta
þessa frétt ekki fyrr en allt var komið á
hreint hér heima i sambandi við mál
Péturs og Feyenoord. Vildum ekki spilla
á neinn hátt fyrir góðum samningi
Péturs Akurnesinga og Feyenoord, sem
nú er orðinn staðreynd, einnig hér á
íslandi.
Hins vegar staðfesta þessi ummæli
hollenzka ritstjórans alveg þá frétt Dag-
blaðsins sl. mánudag, að Pétur hefði
skrifað undir samning við Feyenoord.
Undirritaður hringdi á skrifstofu
Feyenoord i Rotterdam og ætlaði að tala
við P. Stephan. Fékk þá þær fréttir á
skrifstofunni að Stephan og Pétur væru
farnir til íslands. Þá ræddi ég við fram-
kvæmdastjóra félagsins — spurði hvort
Pétur hefði skrifað undir samning við
Feyenoord. Tvitók spurninguna og fékk
i bæði skiptin játandi svar. Fram-
kvæmdastjórinn hafði engu að leyna.
Digurbarkaleg ummæli í Tímanum að
ákveðinn maður undrist stórlega frétt
DB og sé ekki sáttur við slíka blaða-
mennsku vísast því til föðurhúsana.Hins
vegar kemur ekki á óvart, að þeir sem
stjórna íþróttaskrifum Timans skilji ekki
þessa blaðamennsku.
Fréttir hollenzku blaðanna voru
bornar undir Stephan, stjóra Feyenoord,
í gær. „Það er nokkur sannleikur í
skrifum hollenzku blaðanna,” sagði