Dagblaðið - 12.10.1978, Side 17

Dagblaðið - 12.10.1978, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12.0KTÓBER 1978. 17 Ashkenasy og sinfónían -,a,míl enröngleið í Morgunblaðinu í fyrradag birtist þýðing á viðtali sem hið þekkta erlenda tónlistarblað Gramophone átti við Vladimir Ashkenasy nýverið og staðfestir Ashkenasy ummæli sín við blaðið. Þar segir hann m.a. um Sinfóníuhljómsveit tslands: „Stundum verður leikur þeirra áhugaverður, en tæknilega séð eru þeir ekki mjög færir. Það þarf að fara að þeim eins og börnum og gæta þess að ósiðir komist ekki upp í vana.” Segir Ashkenasy ennfremur að Sinfónían sé alls ekki nógu góð og telur meginástæðurnar þrjár: aukavinnu hljóðfæraleikara, misjöfn gæði þeirra og reynslu og svo stöðugar mannabreytingar. Nefnir hann einnig að samkeppni sé ekki nægileg á landinu og hljóðfæra- leikarar ekki nógu vel launaðir. Leiðindamál DB bar þessi ummæli Vladimirs Ashkenasy undir nokkra þá sem að staðaldri skrifa um tónlist í íslensk blöð. Það skal tekið fram að Sigurður Steinþórsson sem skrifar fyrir Tímann var að störfum við Kröflu og ekki hægt að ná í hann. Guðmundur Emilsson sem skrifar um tónlist fyrir Morgunblaðið hafði þetta að segja: „Þetta er leiðindamál. Það er margt um Sinfóníuhljómsveitina að segja, bæði gott og slæmt og hafa bæði ég og aðrir reynt að koma af stað umræðu um allan starfsgrundvöll hennar. En sú leið sem bæði Ashkenasy og hljómsveitin kjósa til skoðanaskipta er ekki sú rétta að mínu mati, þótt sannleika megi finna í ummælum beggja. Opinská skoðanaskipti Ashkenasy hefði átt að setjast niður og ræða þessi vandamál opinskátt við hljómsveitina og framkvæmdastjórn hennar meðan hann vann með henni, en ekki skjóta á hana utan úr heimi. Það er ekki nema von að hljóðfæra- leikararnir verði hissa og hneykslaðir. Þeir eiga þetta alls ekki skilið. En mál Sinfóníunnar, sem og tónlistarmál yfirleitt hér á landi, þarfnast rækilegr- ar endurskoðunar. Þetta var sem sagt óþarft atvik og skemmir aðeins fyrir ” Jón Ásgeirsson ritar tónlistar- gagnrýni í Morgunblaðið og sagði um þetta mál: „Jú, það má kannski segja að Ashkenasy hafi notað íslensku Sinfóniuhljómsveitina til að æfa sig i hljómsveitarstjórn. Getur ekki keppt við útlönd Ég skammaði hann oft fyrir að geta ekki stjórnað þvi hann kunni ekkert. En það er ekki bara tæknin sem skiptir máli, — það þarf einnig að koma til skilningur á skáldlegu inntaki tónlist- ar, sem Ashkenasy hefur í rikum mæli. Hann á eflaust eftir að verða góður hljómsveitarstjóri. En það er ekki hægt að bera okkur saman við stærri hljómsveitir úti í heimi, við getum ekki keppt við þær og það er ekki svo ýkja langt síðan við eignuðumst okkar fyrstu atvinnumenn í hljóðfæraleik. Svo er það spurningin um það hvað sé venjulegt I listum. Snilld 1 listum er nefnilega í hæsta máta óvenjuleg og óeðlileg. Meðalmaðurinn er eðlilegt fk AÐALSTEINN INGÓLFSSON Atriði úr Þess vegna skiljum við eftir Guðmund Kamban 1 meðförum Leikfélags Akureyrar, FRUMSYNING A AKUREYRI fyrirbæri og þess vegna skiptir það ekki máli hvort Ashkenasy kallar Sinfóniuna hálfgerða atvinnuhljóm- sveit eðaáhugafólk. Bót á kennslu Auðvitað má bæta hljómsveitina, en þar hefur annar tónsnillingur, Paul Zukofsky, lagt orð I belg og bent á hlutverk tónlistarskólanna, sjálfa undirstöðuna. Það er kannski skynsamlegri gagnrýni. En það er I sjálfu sér gott að Ashkenasy skuli hafa sagt þetta. Það vekur fólk til umhugsunar. Viðbrögð hljóðfæra- leikaranna eru ósköp mannleg. En skyldu þeir ekkert hafa lært af honum? Og svo skulum við minnast þess að Ashkenasy „fékk” að stjórna Sinfóníunni vegna þess að hann tók ekkert fyrir. Svona er nú hugsunar- hátturinn hér á mörgum sviðum.” Ekkiaf- gerandi ummæli Ríkharður Örn Pálsson, tónlistar- gagnrýnandi Þjóðviljans, mælti svo: „Þetta er heldur ómerkilegt mál I það heila og ég held að ummæli Ashkenasys séu ekki afgerandi á neinn hátt. Hann er ekki sérfræðingur I hljómsveitarstjórn og þess vegna held ég að ekki verði mikið mark á þessu tekið erlendis. Það er að visu margt satt í öðru sem hann segir, en um þau atriði hafa menn vitað og skrifað. Ég vil einfaldlega taka undir það sem Helga Hauksdóttir sagði í Morgunblaðinu.” A.I. Næstkomandi föstudagskvöld frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikritið Þess vegna skiljum við eftir Guðmund Kamban. Haukur Gunnarsson leikstýrði verkinu og teiknaði búninga en Jón Þórisson gerði leikmyndina. Viðamikil hlutverk eru nokkuð mörg og eru helstu leikendur þau Þórhalla Þorsteins- dóttir, Marinó Þorsteinsson, Björg Baldvinsdóttir, Gestur E. Jónasson, Aðalsteinn Bergdal, Svanhildur Jóhannesdóttir, Anna I. Jónsdóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir, Theódór Júlíusson, Þráinn Hallsson, Sigurveig Jónsdóttir og Kristjana Jónsdóttir. ................... Rösklega unnið DB hafði samband við Odd Björns- son leikhússtjóra og spurði hann tíðinda af leikritinu og starfinu yfir- leitt. Oddur sagði að hann hefði tekið til starfa heldur seint, en mjög rösk- lega hefði verið unnið og væri hann sannfærður um að allt mundi smella saman. Æfingar á leikriti Kambans hefðu gengið ágætlega og hann hefði orðið var við mikinn áhuga á verkinu í bænum. Sjálfur væri hann þeirrar skoðunar að leikstjórinn Haukur Gunnarsson hefði sett saman mjög fallega sýningu og áhrifamikla. Ætti leikurinn að gerast á árunum 1927—8 og væri öll leikmynd og búningar með tilheyrandi sniði. Stuðningur við íslenska leikritun Sagði Oddur að erfitt væri að nálgast leikrit Kambans á annan hátt sökum þess mikla raunsæis sem þar gætir. Oddur var því næst inntur eftir þeirri ákvörðun Leikfélagsins að leika nær einvörðungu íslensk verk á þessu starfsári. Sagði hann þá ákvörðun hafa verið tekna á grundvelli þeirra miklu vinsælda sem íslensk leikritun hefði aflað sér siðastliðin ár og með því gæfist einnig tækifæri til að styðja við bakið á íslenskum leikritahöfund- um. Hvað aðrar nýjungar snerti sagði Oddur að ákveðið hefði verið að setja upp málverkasýningar I anddyri leik- hússins í tengslum við hverja leik- sýningu og mundi Óli G. Jóhanns- son ríða á vaðið með málverkum sínum. A.I. Ashkenasy — meðan allt lék i lyndi. Upplýsingasedill til samanburöar á heimiliskostnaöi Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvaö kostar heimilishaldiö? Vinsamlegast afhendið þennan svarseðil um leiö og þér greiðió áskrift næst. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Kostnaöur í septmánuöi 1978 Matur og hreinlætisvörur kr.__________________________ Annað kr______________________ Alls kr. W I /It l Y Fjöldi heimilisfólks

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.