Dagblaðið - 12.10.1978, Qupperneq 26
26
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1978.
salur
Spennandi og bráöskemmtileg ísraelsk-
bandarísk litmynd með Robert Shaw,
Richard Roundtree og Barbara Seagull.
Leikstjóri Menahem Golan.
íslenzkur texti.
Bönnuðbörnum.
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11.
——....salur IB----------
Kvikmynd Reynis Oddssonar
Morösaga
Aðalhlutverk: Þóra Sigurþórsdóttir,
Steindór Hjörleifsson og Guðrún
Ásmundsdóttir.
Bönnuðinnan 16ára
Sýnd kl. 3.05, 5.05,7.05,9.05 og 11.05.
Ath. að myndin verður ekki endursýnd
aftur í bráð og að hún verður ekki sýnd i
sjónvarpinu næstu árin.
Átök í Harlem
st«m»o FRED WILLIAMSON (H®%|
ALarcoProduction COLOR by movielab
An American International Release
(Svarti guðfaðirinn 2)
Afar spenna/idi og viðburðarjk litmynd,
beint framhald af myndinni „Svarti guð-
faðirinn.
íslenzkur texti.
Bönnuðinnan 16ára.
Endursýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og
11.10.
• salur
Lucky Luciano
Spennandi og vel gerð ný ítölsk litmynd
með Gian Volonte og Rod Steiger. Leik-
stjóri Francesco Rosi.
Bönnuð innan 14ára.
íslenzkur texti.
Sýndkl. 3.15,5.15,7.15,9.15 og 11.15.
Skemmtileg og hrífandi ný kvikmynd
um JóhannStrauss yngri.
Horst Bucholz
Mary Costa
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Hörkuspennandi og viðburðahröð, ný
bandarísk litmynd, tekin í Hong Kong.
STUART WHITMAN,
PETER CUSHING.
Leikstjóri: MICHAEL CARRERAS.
Islenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
AUSTURBÆJARBÍÓ: Sekur eða saklaus? (Verdict)
Aðalhlutverk: Sophia Loren, Jean Gabin. Sýnd kl. 5,7
og 9. Bönnuð innan 14 ára.
GAMLA BÍÓrSjá auglýsingu.
HAFNARBÍÓ: Sjá auglýsingu.
HÁSKÓLABÍÓ: Saturday Night Fever. Aðalhlut-
verk: John Travolta. Sýnd kl. 5 og 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Dóttir hliðvarðarins kl. 5, 7, 9 og
11. Bönnuðinnan lóára.
NÝJA BÍÓ: Þokkaleg þrenning (Le Trio Infernal)
Aðalhlutverk: Michel Piccoli, Romy Schneider.
Leikstjóri: Francis Girod. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára.
REGNBOGINN:Sjáauglýsingu.
;STJÖRNUBÍÓ:Close Encounters of theThird Kind,
kl- 5,7.30og 10.
TÓNABIÖ: Enginn er fullkominn (Some like it hot).
Aðalhlutverk: Tony Curtis, Jack Lemmon og Marlyn
Monroe. Leikstjóri Billy Wilder. Sýnd kl. 5, 7.15 og
9.30. Bönnuðinnan 12ára.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Hrópað á kölska (Shout
át t\ie Devil), leikstjóri: Peter Hunt, aðalhlutverk:
Koger Moore, Ian Hilm og Lee Marvin, Kl. 9.
#WÓÐl£IKHÖSW
Sonur skóarans og
dóttir bakarans
í kvöld kl. 20.
laugardag kl. 20. Uppselt.
þriðjudag kl. 20.
Á sama tíma að ári
6. sýning föstudag kl. 20.
Kóta ekkjan
sunnudag kl. 20.
Næst síðasta sinn.
Litla sviðið:
Mæður og synir
sunnudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15—20.
Sími 11200.
blaðamaður segir skoðun
sína á útvarpi og sjónvarpi
Þarf að skipta um
yf irmenn ríkisf jölmiðlanna?
MÍN
SKOÐUN
Ómar Valdimarsson
Það verður að segjast eins og er:
mitt álit á efni sjónvarpsins er harla
lítið. Álit mitt á efni útvarpsins er
ennþá minna.
Það er þó ekki þar með sagt að dag-
skrá þessara fjölmiðla sé svona hræði-
lega vond. Ég hef bara ekki smekk
fyrir nema litlu af því sem boðið er
upp á. Og raunar þekki ég ekki marga
sem hafa smekk fyrir miklu sem boðið
er uppá.
Tvö fantagóð atriði vil ég þó nefna,
bæði úr sjónvarpi. Hið fyrra er Skolla-
leikur Alþýðuleikhússins. Ég man ekki
eftir að hafa séð betri útfærslu á is-
lenzku leikriti — og sagði þó einhver
leiklistarskríbentinn að upprunalega
sviðsetningin hefði verið miklu betri.
Arnar Jónsson var hreinlega stórkost-
legur.
Hitt atriðið er bandariska kvik-
v___
myndin sem sýnd var sl. laugardags-
kvöld. Það var mögnuð sýning sem
hélt manni negldum fyrir framan kass-
ann.
Ég ætla ekki að hrósa fréttunum.
Þær eru yfirleitt hrútleiðinlegar. í
starfi blaðamanns spillir ekki að fylgj-
ast vel með fréttum en það er nánast
alveg ónauðsynlegt að fylgjast með
fréttum sjónvarpsins. Það gegnir öðru
' máli um fréttir í útvarpinu.
Ekki veit ég gjörla hver er ástæðan
fyrir dauðyflishætti ríkisfjölmiðlanna
en maður nokkur, sem hefur unnið við
sjónvarpið frá stofnun, sagði við mig
ekki alls fyrir löngu: Það sem er að
keyra allt um koll hér er sú einfalda
staðreynd að frá stofnun þessa fyrir-
tækis hefur starfsfólkið lært mjög
mikið — það er að segja allir nema
æðstu yfirmennirnir. Við ættum að
skipta þar um menn. Svipaða sögu hef
ég heyrt úr útvarpinu.
Og í lokin langar mig að geta þess
að það er víðar en á íslandi sem engil-
saxneskt efni tröllriður öllu. í sumar
var ég staddur í Póllandi og beið þar á
járnbrautarstöð eftir lest til Prag. Það
var fjöldi fólks á stöðinni, ys mikill og
þys. Allt í einu var allt tómt. Ég vissi
ekki hvaðan á mig stóð veðrið — var
kannski búið að loka öllu úr því komið
var kvöld?
Þegar ég leit betur i kringum mig sá
ég allan mannfjöldann — eða því sem
næst — inni i veitingastofunni sem
raunar var búið að loka. Þangað fór ég
og komst að raun um hvað hafði
svona mikið aðdráttarafl: það var tíu
ára gamall bandariskur glæpona- og
njósnaþáttur, Mission Impossible. En
amerísku spíónarnir töluðu pólsku.
ÚTVARPSLEIKRITIЗí kvSld kl. 21.05:
GUD OG LUKKAN
—eftir Guðmund G. Hagalín
Útvarpsleikrit kvöldsins er eftir Guðmund G. HagaUn. Á myndinni sjáum við hann, þar sem hann spilar Olsen, ólsen við
eiginkonu sina.
Leikrit vikunnar er að þessu sinni
eftir Guðmund G. Hagalín, sem
áttræður varð sl. þriðjudag. Leikritið
nefnist Guð o§ lukkan og er það flutt í
tilefni af afmæli höfundar. Leikstjóri
er Steindór Hjörleifsson en með
aðalhlutverk fara Bessi Bjarnason, Jón
Sigurbjörnsson, Gisli Alfreðsson,
Soffía Jakobsdóttir og Klemenz Jóns-
son.
Leikritið er skrifað í gamansömum
tón og helztu persónurnar skýrt
dregnar. Fólk kveður fast að orði og
málfarið er hrjúft og hressandi.
Leikurinn fjallar um Einar nokkum
sem er óðalsbóndi. Hann stendur i
stappi við Jónas bónda á Mávabergi
og Gunnar son hans út af jörðinni.
Kona Gunnars á von á barni, og odd-
vitanum finnst mesta fjarstæða að
fara að hlaða niður ómegð á þvi
heimili. Hann neytir ýmissa bragða, en
þó Gunnar þyki ekki stíga í vitið, er
hann ekki auðveldur viðfangs, enda
hefur hann sóknarprestinn með sér.
Höfundurinn, Guðmundur G.
Hagalin, er fæddur 10. okt. 1898 í
Lokinhömrum i Arnarfirði. Hann
stundaði nám I Núpsskóla og víðar,
fékkst við sjómennsku, blaðamennsku
o. fl. til ársins 1929 en gerðist þá bóka-
vörður á ísafirði. Jafnframt því
stundaði hann kennslu og starfaði
mikið að stjórnmálum og félags-
málum. Var hann bókafulltrúi ríkisins
um árabil. Guðmundur hefur skrifað
um 40 bækur, en auk þess fengizt við
þýðingar og skrifað greinar í blöð og
tímarit. Hann er nú búsettur í Borgar-
firði.
Meðal leikrita, sem útvarpið hefur
flutt eftir hann og gerð eru eftir
sögum hans, eru Kristrún í Hamravík
og Fornar dyggðir. Flutningur leiksins
í kvöld tekur rösklega klukkustund.