Dagblaðið - 12.10.1978, Blaðsíða 28
Keflavíkurflugvöllur:
Vamarliðið dregur úr
öllum framkvæmdum
Nýja jarðstöðin á Keflavikurflugvelii, ein af nýrri framkvæmdunum þar.
DB-mynd Sv. Þorm.
Nýjar framkvæmdir varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli verða í algeru lág-
marki og því sem næst engar umtals-
verðar um óákveðinn tíma.
Viðhald verður eins og nauðsyn
þykir til en alls ekki meira, samkvæmt
áreiðanlegum heimildum, sem DB
hefur.
Meginástæðan fyrir þessu er þátt-
taka Alþýðubandalags í ríkisstjórn.
Það er stefna bandariskra stjórnvalda
og yfirmanna hermála, að vekja sem
minnstar deilur um gerð hernaðar-
mannvirkja þar sem varnarlið þeirra
hefur aðsetur um lengri tíma. Litlu
sem engu breytir í þessu efni, hvort
bækistöðvar bandarisks herliðs eru i
samningsbundnu bandalagslandi, eins
og íslandi, eða ekki. Frestað verður
öllum þeim framkvæmdum, sem beðið
geta án þess að öryggi Bandarikjanna
eða bandalagsrikja þeirra sé teflt í
hættu.
í þessu sambandi kemur bygging
væntanlegrar flugstöðvar fyrir
alþjóðlegt flug utan yfirráðasvæðis
varnarliðsins til umræðu. Slik bygging
Á siðasta sólarhring urðu alls 27
árekstrar í umferðinni, þar af 5 slysatil-
felli. Að sögn Guðmundar Hermanns-
sonar yfirlögregluþjóns er þessi árekstra-
fjöldi á einum sólarhring með almesta
móti. Fyrsta slysið var kl. 9.22 í
gærmorgun á mótum Sætúns og
Steintúns. Þar varð árekstur og öku-
maður annarrar bifreiðarinnar fluttur á
slysadeild. Síðan rak hver áreksturinn
annan allan daginn. Kl. 19.43 varð
árekstur á mótum Bústaðavegar og
Ásgarðs. Slysið vildi þannig til að barn
hljóp skyndilega fyrir bifreið og er öku-
maður hennar reyndi að forðast að
lenda á barninu lenti hann á öðrum bil
og var sjálfur fluttur slasaður á slysa-
deild. Kl. 20.27 varð mjög harður
árekstur á mótum Sogavegar og Réttar-
holtsvegar. Farþegi annarrar bifreiðar-
innar og ökumaður hinnar fluttir á
slysadeild. Aðeins þremur mínútum
síðar varð barn fyrir bifreið á mótum
Eyrarlands og Brautarlands og var flutt
eitthvað slasað á slysadeild og loks varð
slys kl. 00.32 á mótum Smyrilsvegar og
Suðurgötu. Bifreið lenti þar undir palli á
vörubifreið og voru kona og barn flutt á
slysadeild.
GAJ.
veldúr röskun á stöðu, sem verið hefur
um áratugaskeið. Þótt röskunin sé i þá
átt að skilja betur en verið hefur á
milli varnarliðsins sjálfs og íslenzks
umráðasvæðis, breytir það sennilega
engu. Ekki verður að svo komnu máli
hafizt handa um neinar framkvæmdir
í sambandi við hana.
Varnarliðið eða Atlantshafsbanda-
lagið þarf ekki að standa íslenzkum
stjórnvöldum skil á ástæðum fyrir
minnkandi framkvæmdum eða
samdrætti i þeim. Varðandi byggingu
flugstöðvar má minna á, að ennþá eru
ekki einu sinni til teikningar af henni,
sem samþykktar hafa verið.
Utanrikisstefna, sem talin er
vinsamleg Bandarikjunum, hefur og
engin áhrif á þennan gang mála.
Stefnan sem ræður, er sú, að gefa and-
stæðingum herliðs Bandarikjanna í
vinsamlegu bandalagslandi sem allra
minnst tilefni til umræðu eða gagnrýni
vegna vaxandi umsvifa.
Bandarisk stjórnvöld líta á aðild
Alþýðubandalagsins að ríkisstjórn
aðeins tímabundna Hægagangur
framkvæmda i skamman tima er mun
þýðingarminni en tilefni til fjandsam-
legrar umræðu og áróðurs.
Þessi stefna þýðir samdrátt i
umsvifum íslenzkra aðalverktaka, sem
gæti jafnvel leitt til þess, að þeir
leituðu aðildar að næstu stórverkefn-.
um á íslenzkum bygginga- og fram-'
kvæmdamarkaði.
- BS
frjálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 12. OKT. 1978.
Reytingur á
loðnunni
og sfldinni
Reytingsafli var hjá loðnubátunum
djúpt út af Horni í gær og í nótt og
fengu 13 bátar samtals 5250 tonn
síðasta sólarhring. Þá hafa sex bátar
tilkynnt um afla frá miðnætti, 3500
tonn.
Svipaða sögu má segja af sildveiðun-
um fyrir suðaustan land, en þar munu
um 50 reknetabátar stunda veiðar þessa
dagana. Algengt er að flotinn komi með
þetta um tvö þúsund tunnur að landi á
dag. Enn bólar ekkert á stóru
„áhlaupunum” eins og þau gerðust af og
til í fyrra og er heildaraflinn enn talsvert
minni en á sama tima þá.
G.S.
„Náin kynni”
útaf Langanesi:
Skipverjar
á Eyjabát
sáu skært
furðuljós
Að kvöldi þess dags sem sýningar
hófust hérlendis á kvikmyndinni Náin
kynni af þriðju gráðu, sem fjallar um
heimsókn geimvera til jarðarinnar, sáu
skipverjar á Vestmannaeyjabátnum
Hugin dularfullt ljós norðaustur af
Langanesi.
„Við sáum Ijósið mjög greinilega í
rúman klukkutíma,” sagði einn skip-
verja, Herbert Þ. Guðmundsson, i sam-
tali við fréttamann blaðsins.
„Það hreyfðist ekkert úr stað allan
timann, en var mjög skært og skipti
litum nokkrum sinnum. Það er útilokað
að þetta hafi verið flugvél, bátur eða viti,
við skoðuðum ljósið í kíki og auk þess
var skýjáð þessa nótt og Ijósið greinilega
undir skýjum en ofan sjávar."
Eftir um það bil fimmtán stundar-
fjórðunga dofnaði ljósið og hvarf síðan.
Það skyldi þó ekki vera, að vitsmuna-
verur utan úr geimnum hafi verið að
koma af frumsýningunni í Stjörnu-
bíói... ?
ÓV.
Ógnvænleg slysaalda: : 27 AREKSTRAR OG 5 SLYS
Átta stærðar-
og verðf lokk-
ar af rækjunni
Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvað í
gær verð á óskeHlettri rækju. Ákvarðast
það af fjölda í hverju kílógrammi. Hæsti
flokkurinn er með eitt hundrað og sextíu
stykki í kílógrammi. Alls er rækjan
flokkuð i átta fiokka og eru greiddar eitt
hundrað tuttugu og sjö krónur fyrir
lægsta fiokkinn.í hann á að setja rækju
ef 281 til 310 eru i hverju kílógrammi.
Flokkun rækjunnar á að vera í höndum
Framleiðslueftirlits sjávarafurða eða
trúnaðarmanns kaupanda og seljanda.
ÓG.
Skyndiverkfall í BÚR
— starfsfólk telur að verkstjórinn hafi verið rekinn fyrírvaralaust
Starfsfólk saltfiskvinnslu Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur við Meistaravelli,
um 80 manns, hóf ekki vinnu i
mörgun, en tók sér sæti í mötuneyti
stöðvarinnar. Ástæðan er að Matthías
Guðmundsson, yfirverkstjóri, mætti
ekki til vinnu í morgun og telur starfs-
fólkið að skrifstofustjóri BÚR hafi
vikið honum úr starfi í gær eftir orða-
sennu þeirra á milli. Það mun
Matthías einnig telja, en skrifstofu-
stjórinn ekki.
Dagsbrúnarmaðurinn Kristvin
Kristinsson, er trúnaðarmaður starfs-
fólksins gagnvart vinnuveitendum og
sagði hann á fundi með fólkinu i
morgun að hann teldi þetta setuverk-
fall ákafiega vafasamt og hvatti fólk til
að hefja aftur vinnu. Þess má geta að
Kristvin er einnig í Útgerðarráði BÚR,
og þykir sumum starfsmönnum því
hæpið að hann geti jafnframt verið
trúnaðarmaður starfsfólks.
Er DB menn voru á ferð í vinnslu-
stöðinni um kl. 9 í morgun, hafði
Kristvin ekki enn tekizt að fá fólkið til
vinnu, þrátt fyrir útskýringar sínar.
Fólkið heimtaði að fá Matthias
sjálfan til að skýra málið og er blaðið
fór í prentun var ekki Ijóst hvort það
tókst fyrir hádegið.
A.m.k. hluti deilumáls Matthíasar
og skrifstofustjórans er nafnlaust bréf
frá einum starfsmanni til stjómar
BÚR, þar sem starfsmaðurinn kvartar
yfir mötuneytinu á staðnum. G.S.
Trúnaðarmaðurinn og útgerðarráösmaðurinn Kristvin Kristinsson hvetur fóik til vinnu í morgun, — en það
vildi fyrst heyra frá verkstjóranum. DB-mynd: Bj.Bj.
Hún er Ijót þessi slysamynd frá í gær-
kvöldi. En svona eru slysin, og þau
verða oftast fyrir vangá einhverra
vegfarcnda. Hér er kona flutt af slys-
stað. Hún forðaði barni frá að verða
fyrir bil hennar, en lenti á öðrum bil i
staðinn. DB-mynd Sv. Þorm.