Dagblaðið - 21.10.1978, Page 6
6
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978.
Sídhærö
sjómanns-
dóttir af
Vatnsleysu
ströndinni
KLUKKAN 15.00:
— með hár í f imm litum
Henna er duft sem blandað er 1 heitt vatn og borið i hárið. Það veitti ekki af þremur til að bera i Anne-May. Hendurnar á
John og Bill sjást til hægrí og vinstrí en aðstoðarstúlka i Iðnskólanum heldur upp lokki i miðjunni.
M KLLKKAN 17.00:
Loksins cr allur liturinn kominn í hárið.
Þctta eru Ijótu þyngslin! Og þetta
verður maður að sitja með í meira en
'' klukkutima i þurrku.
KLUKKAN 20.30:
Hvorki John né Bill höfðu nokkurn tima áður þvegið svona sitt hár og aðstæður voru
erfiðar, bara langur vaskur, en hvorki sturta né baðker. Til allrar gæfii höfðu þeir
kröftugan blásara til að þurrka það á eftir.
Og þarna flóir háriö eins og silkifoss — i fimm litum — niður um bakið á Anne- May.
DB-myndir Ragnar Th. Sigurðsson.
Enskir hágreiðslumenn, John og Bill,
hafa verið hér í nokkra daga til að kynna
Henna-jurtaliti frá Persíu sem sagðir eru
einstaklega hollir fyrir hár. Þeir voru að
svipast um eftir stúlkum sem þeir gætu
fengið sem módel. í diskótekinu
Hollywood fundu þeir Anne-May
Sæmundsdóttur, sem þangað hafði
skroppið til að sjá Baldur Brjánsson
gleypa eld. Hún hefur svo sitt hár að
hún getur setið á því, og Englending-
arnir fengu leyfi til að lita það 5-röndótt
fyrir hágreiðslunema i Iðnskólanum.
Það tók tímann sinn, en Ijósmyndari DB
fylgdist með verkinu frá upphafi til
KLUKKAN 15.05:
Hárinu skipt I rendur. Fremst hvorum
megin er koparrautt en siðan kemur
rauðbrúnt, grænbrúnt, mahóní og
kaffibrúnt.
ÞURFA EKKILENGUR SKÓ-
HORN TIL AÐ KOMASTINN
Það var lengi sagt um símstöðina á
Hellissandi að ef starfsfólkið þar gleymdi
skóhorninu heima kæmist það ekki inn I
húsið til vinnu sinnar. 1 þrjátiu ár hefur
stöðin verið í lítilli byggingu — sem
hefði öll komizt fyrir í fremri af-
greiðslunni á nýju símstöðvar- og póstaf-
greiðsluhúsi er tekið var í notkun sl.
fimmtudag.
Hefur þar orðið mikil breyting til
batnaðar og voru menn að vonum glaðir
í hófi, sem haldið var í tilefni
opnunarinnar, þar sem Kristján Helga-
son umdæmisstjóri Pósts og síma
afhenti Sveinbimi Benediktssyni húsið
formlega.
Bygging hússins hefur tekið liðlega
eitt ár en vélarhúsið hefur þó verið í
notkun síðan 1969. Nýja húsið er 254
fermetrar að flatarmáli á tveimur
hæðum, samtals 1347 rúmmetrar.
Byggingameistari hússins var Ragnar
Hjaltason í Hafnarfirði, arkitekt Jósep
S. Reynisson, rafvirkjameistari Óskar
Sveinbjörnsson, pípulagningameistari
Daníel Guðmundsson, múrverk
önnuðust Þráinn og Árni sf. og
málningu Sævar Þór Jónsson i Ólafsvík.
Innréttingar komu frá Pósti og síma.
ÓV/HJ, Hellissandi.
Nýja simstöðin á Hellissandi er hiö
reisulegasta hús — i hinum nýja
símstöðvastll.
DB-mynd Þórarínn Ólafsson.