Dagblaðið - 21.10.1978, Page 11

Dagblaðið - 21.10.1978, Page 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978. II I Kjallarinn Gunnar Friðriksson — útkoman á þessu ári er enn skelfilegri, því að í lok ágústmánaðar — nýrri tölur hef ég ekki — voru slysin orðin 443, en urðu 324 á sama tíma í fyrra. Meiri háttar slys voru þá orðin 198, en 175 á sama tima í fyrra, svo að heildartala slysa jókst um 15 á mánuði en alvarlegu slysunum fjölgaði um 3 á mánuði hverjum. Þetta eru þurrar tölur — ég vil kalla þær frumtölur, þvi að þær segja aðeins upphaf hverrar sögu, en fram- haldið getur enginn reiknað í tölum, hvernig sem á er litið. Og það á bæði við það fjárhagslega tjón, sem einstaklingar og þjóðfélagsheild verður að sæta og þær mannlegu þjáningar, sem eru afleiðingar þess- aratalna. Þeir, sem sjá sjúkrahús landsins aðeins að utan, gera sér litla grein fyrir þeim harmsögum, sem gerast þar innan dyra fyrir marga einstaklinga og fjölskyldur — harmsögur, sem taka oft ekki enda fyrr en um leið og ævi viðkomandi lýkur og oft eftir margra ára kvöl. Ég hygg að ýmsum þyki hér hrotta- lega til orða tekið, en er sannleikurinn í þessum efnum þó ekki oft hrottalegri en svo, að fátækleg orð fái lýst? Þess vegna verður þjóðin nú að skera upp herör á ný — minnast 50 ára skipulags slysavarnastarfs hér á landi með linnulausri sókn gegn þeim voða í umferðinni, sem ekkert hefur megnað að stöðva á síðustu árum. Á aðalfundi SVFÍ á siðasta vori var samþykkt ítarleg ályktun, þar sem hvatt var til sameiginlegs átaks í þessum efnum af hálfu allra, er að þessum málum vinna. 1 samræmi við þá viljayfirlýsingu hafa deildir félagsins og stjórn unnið að ýmsum verkefnum á þessu sviði. Deildir hafa t.d. víða efnt til funda til þess að ræða málin og finna heppilegustu leiðir til úrbóta á vandanum á hverjum.stað. En stjóm SVFl er Ijóst að þótt þetta starf sé gott og nauðsynlegt, er meira — miklu meira — þörf. Þar af leiðandi hefur hún og deildirnar um land allt undirbúið enn frekari aðgerðir og er stefnt að þvi, að róðurinn verði hertur til muna, þegar vetur gengur í garð og hætturnar aukast enn í svartasta skammdeginu. Á vegum deildanna á Stór-Reykja- vikursvæðinu er í undirbúningi sér- stök umferðarvika, sem verður væntanlega um miðjan nóvember. Þá verður kappkostað að beina athygli almennings að ákveðnum þætti eða vandamálum í umferðinni á degi hverjum. Vikunni mun síðan ljúka með því að hópur félagsmanna í SVFl — konur jafnt og karlar — mun taka höndum saman viðlögregluna,fást við umferðarleiðbeiningar á götum úti.af- henda vegfarendum fræðslubæklinga og fleira, en SVFl treystir að sjálfsögðu á fulltingi og traustan stuðning fjölmiðla i þeirri lífs- nauðsynlegu sókn, sem nú er verið að undirbúa — og þá ekki sist Rikisút- varpsins, hljóðvarps og sjónvarps. Það er beinlinis skylda þeirra að beita hinum ótvíræða áhrifamætti sínum til að vekja þjóðina rækilega til umhugsunar um þetta mál, því að í þessu efni er hver einstaklingur að heyja varnarbaráttu fyrir sig og sína. Gunnar Friðriksson. v Sjónvarp Sigurður Guðjónsson leiki sem oftast er miklu sigurstrang- legri í rökræðrm en beinharðar stað- reyndir og sannanir — og fljótur að átta sig á ýmsum sálfræðilegum at- riðum i þrætuspeki. Þar er hann oft fimur. Á mig orkuðu orðaleikir hans þó fremur sem skýla yfir vanþekkingu, tiltölulega grunna athugunar- og hugs- unargáfu sem blandin var „hags- muna”eigingirni en birting á verulegri viöleitni til réttsýni. 1 heild var þáttur- inn mjög brotakenndur sökum þeirra afar ólíku áherslna er þátttakendur lögðu á hina ýmsu þætti þessarar þreytandi bruggunardellu. Ekki vantaði andstæður miklar og stórar, þó á annan hátt væri, í umræð- unum um starfshætti alþingis. í upp- hafi fannst mér gaman að gefa spenn- andi fyrirheit að horfa á fulltrúa „yngri” og „eldri” þingmanna sitja keika hvor framan í öðrum. En mér féll fljótlega allur ketill í eld vegna þeirra glæsilegu yfirburða er gömlu skröggarnir höfðu í flestum greinum yfir hina „ungu og upprennandi”. Þeir minntu mig stundum á gamla hunda sem virða fyrir sér hvolpakríli með lífsreynslulegu umburðarlyndi. Undir lokin flúði ég undir þá huggun að hinir ungu alþingismenn eigi „ýmislegt eftir ólært” en muni sækjast námið vel og greiðlega. Höfuðskepnur Gils Guðmundsson er fámæltur í svona kringumstæðum en hugsar vel það sem hann segir. Stundum lýsir hann upp flókin atriði í Ijósi smellinn- ar sögu eða skírskotana í liðna glæsi- tíð. Þetta gefur máli hans næstum list- rænt yfirbragð, stundum dramatiska dýpt, þegar hann Ijær kaldri rökhugs- un sinni þunga tilfinningaundiröldu með sérkennilegum og mjörg persónu- legum raddblæ. Vilmundur Gylfason er eins og allt önnur höfuðskepna. Ef Gils er hið þunga nið hafsins er Vil- mundur sem byljir vindanna. Stund- um hægur blær, svo ofsi og fár, skyndilega dúnalogn, aftur rokur úr öllum áttum. Þetta æsir í bili en gleymist fljótt eins og öll veðrabrigði. Það er afar erfitt að fá heila brú í rök- leiðslu þessa furðulega þyrilhugsuðar í óundirbúinni talaðri ræðu. Megin- hugsunin er hvað eftir annað rofin af aukaatriðum, útúrdúrum, nánari skýr- ingum, innskotum, endurtekningum og jafnvel málfræðilegum auka- og skýringarsetningum sem kubba og sundurtæta rökþráðinn. Út af laginu Þetta er ákaflega þreytandi. Það minnir stundum á drykkjuraus manns sem ætlar að segja einhverja sniðuga sögu en kemst ekki lengra en aftur og aftur aö byrjuninni. Friðrik Sophus- son var miklu skýrmæltari en óvenju- lega tvístígandi og hikandi, sem getur einfaldlega stafað af eðlilegri varfæmi að segja ekki meira en hann má, um efni sem hann er rétt að byrja að kynn- ast. Hins vegar sýndist mér Friðrik ekki alveg sneyddur skopgáfu. Hana skortir Ingvar Gíslason aftur á móti. Málfar hans er rútinerað stjórnmála- mál, safalaust og leiðinlegt en sæmi- lega skýrt og þjálfað af langri reynslu. En Ingvar er heldur ekki laus við ein- hvers konar tilgerð sem stundum nálg- ast keim af hroka og er sérlega lítið geðfellt. Loks vil ég stinga því aö Magnúsi Bjarnfreðssyni að fara hóf- lega en umfram allt af taktvísi i frammítökur, en þær settu Gils og Ingvar a.m.k. tvisvar nokkuð út af lag- inu. Sigurður Guðjónsson TIL HVERS ER HÚSNÆÐI? Á síðasta vori stofnuðu leigjendur hér á landi með sér félag, er hlaut nafnið Leigjendasamtökin. Mark- miðið með stofnun þessa félags var að koma á hérlendis svipuðu skipulagi og ríkir í þessum málum annars staðar á Norðurlöndum og reyndar í Vestur- Evrópu. Annars staöar frá hef ég þvi miður ekki glöggar heimildir um fyrir- komulag húsaleigumála. Tilgangurinn með því að reyna að ná þessu markmiði er að sjálfsögðu sá, að því fólki sem vill eða þarf að leigja sé tryggt viðunandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði og jafnframt að tryggja að samningar um húsaleigu séu gagnkvæmir viðskiptasamningar, en ekki einhliða fyrirmæli leigusala, svo sem nú er oft. Uppræta þarf þann neyðarmarkað sem hér er látinn ríkja i húsaleigumálum og koma á í staðinn nauðsynlegu jafnvægi. Þetta verður helst gert með þvi að taka myndarlega á því að reisa ibúðir á félagslegum grundvelli. Frá því Leigjendasamtökin voru stofnuð, hafa stöku sinnum skotið upp kolli i blöðunum skriffinnar, sem reynt hafa að gera samtökin tortryggileg og tilgang þeirra vonlausa vitleysu. Hér eru trúlega á ferðinni menn sem notið hafa þeirra forréttinda að fá að hagnast á leigjendum í skjóli ríkjandi ástands. Kannski óttast þeir að missa eitthvað? „Bullreikningurinn" Einn þessara manna kallar sjálfan sig Grunda og skrifar í Dagblaðið þann 12. okt. sl. undir þeirri fyrirsögn að Leigjendasamtökin verði varla leigjendum til framdráttar. Heldur hverjum? Það er vitaskuld ekki gerlegt að elta ólar við alla vitleysu sem mönnum dettur í hug að setja á prent, en vegna þess að með grein sinni birtir Grundi þessi bullreikning, sem á að sýna tap af reksti leiguhúsnæðis, þykir mér rétt að gera við greinina nokkrar athugasemdir. Bullreikningur Grunda á að sýna rekstrarreikning fyrir tveggja herb. leiguíbúð nýbyggða og nær yfir eitt ár. Hann telur eðlilegan byggingar- kostnað íbúðarinnar tíu milljónir og má það vera rétt. Síðan kemur reksturinn. Fyrning 500.000 kr. viðhald og viðgerðir 200.000 kt. fast- eigna- og brunabótagjöld 53.000 kr. vaxtakostn. 2500.000 kr. Niður- staða rekstrarkostnaðar samtals 3 milljónir tvö hundruö fimmtiu og þrjú þúsund krónur. Á móti kemur húsa- leiga fyrir þessa tveggja herbergja íbúð krónur 75 þús. á mánuði (sem er mun hærri upphæð en ég þekki dæmi um). Þetta gerir níu hundruð þúsundir yfir árið og þykir Grunda það engin býsn að borga. Tapið reiknar hann svo: 3.253.000 kr. mínus 900.000. Það gerir alls krónur 2.353.000. Ekki er furða þótt vanti húsnæði. Hver skyldi hafa efni á að tapa talsvert á þriðju milljón króna á ári á þvi að leigja út litla íbúð? Það er merkilegt að allir leigusalar skuli ekki löngu komnir á hausinn. Um reikning þennan mætti að sjálfsögðu ýmislegt segja, ef tími og pláss leyfðu, en ég skal reyna að vera ekki margorður. Ég hélt t.d. að fyming og afskriftir væru til að mæta viðhaldi og viðgerðum.í stað þess að bætast þar við. Tvö hundruð þúsundir króna á ári í viðhald er hærri upphæð en ég þekki af reynslu minni sem leigjandi. Hér er um nýtt húsnæði að ræða. En látum svo vera, það er gott ef húsið fær nauðsynlegt viðhald. Kostnaö vegna skemmda á sá að greiða sem skemmir. Meiru en þetta skiptir þó sú vitleysa að reikna kostnaðinn við að eignast íbúðina sem reksturskostnað. Vaxta- kostnaður (sem er frádráttarbær til skatts) er að sjálfsögðu ekki rekstrar- kostnaður, heldur hluti af stofn- kostnaði. Grundi sýnist vilja gleyma því að eign hefur myndast og fátt hefur þótt tryggja betur fé í okkar Kjallarinn Jón frá Pálmholti verðbólgubrjálaða samfélagi en hús- eignir. Vitaskuld þarf að fjármagna íbúðabyggingar og fjármagnið kostar eitthvað. Sama hvert eignarformiðer. Hinn kapítalíski hugsunarháttur Ég skal ekki segja hvort hálf milljón króna geti talist eðlileg upphæð i fymingu, en sé það látið standa verður rekstrarkostnaður þessarar litlu íbúðar kr. 46 þús. á mánuði eða kr. 553.000 yfir árið, samkvæmt þessum Grunda- reikningi. Eigandi hefur komið sér upp fasteign, sem væntanlega þjónar mörgum kynslóðum. Þar kemur að eignin verður skuldlaus, og hér á landi gerist það á furðu stuttum tima oft og tíðum, ef menn á annað borð fá fjár- magn til bygginga. Enn einn vandinn er sá að fjármagn liggur ekki á lausu. Engin lánastofnun hefur viðurkennt byggingu leiguíbúða sem atvinnu- grein. Húsnæðismálastjórn lánar t.d. ekki til leiguíbúða, nema eftir sér- stökum lögum um ibúðir á vegum sveitarfélaga. í dæmi sínu ætlar Grundi leigjendum fyrstu áranna að borga fjármagnskostnaðinn allan, það er i raun að gefa eiganda kostnaðinn við að eignast ibúðina. Eftir nokkur ár getur eigandi svo flutt sjálfur inní skuldlausa eign sina, eða sama sem. Leigjandinn er búinn að borga allt saman. Ekki skal haldið lengur áfram talna- leik hins kapítaliska husunarháttar þar sem húsnæði er talið markaðsvara, en ekki nauðsyn. Við gætúm vissulega sett upp annað dæmi, sem sýndi tap af séreignaríbúð. Við getum t.d. spurt sem svo: Skyldi borga sig fyrir eigna- lausa leigjendur, sem borga reglulega i sinn lífeyrissjóö, að fé þessu skuli varið að stórum hluta til að standa undir lánveitingum til byggingu einbýlis- húsa og annarra séreignaribúða, sem þeir hafa enga möguleik á að eignast. Spyrja má líka: Hefur hin mikla fjár- festing hér í verslunar- og skrifstofu- húsnæði borgað sig fyrir alþýðu? Hefur borgað sig fyrir fólk að festa sig varanlega í skuldabasli og allt að takmarkalausri yfirvinnu, til að komast yfir litla íbúð? Ársleiga fyrirfram Grundi hamrar á því eins og fleiri hans likar, að hækka þurfi lán Húsnæðismálastjórnar. Sjálfur gerir hann ráð fyrir að vaxtakostnaður af tveggja herbergja íbúð sé 2 1/2 milljón króna. Þá eru aðrar afborganir eftir. Með hverju á fólkið að borga þessi lán? Eða kosta lán til séreignaríbúða ekki neitt? Víst er að hér tiðkast leiguokur í skjóli rikjandi ástands. Margir leigu- salar eru þó heiðarlegir í viðskiptum. Okurleiga er eitt af áhyggjuefnum leigjenda, en hreint ekki eina áhyggjuefnið. Fyrirframgreiðslukerfið er kannski enn meira áhyggjuefni. Hér í Reykjavík þarf fólk oftsinnis að snara út fyrir ársleigu svipaðri upphæð og dugir sums staðar annars staðar til aö festa sér eignaríbúð. Verst er þó öryggisleysið, sem leigjendur búa hér við, ekki síst leigjendur með börn á skólaaldri. Leiguhúsnæði hér i borginni er aö mínu viti einkum hús í gömlu hverfunum í eigu eldra fólks og ný hús sem utanbæjarfólk hefur látiö reisa til að festa fé og til að skapa sér og börnum sínum meira öryggi i fram- tíðinni. Sumir leigja líka íbúðir sínar vegna tímabundinnar fjarveru. Ris og kjallaraíbúðir í húsum ungs fólks veit ég ekki mörg dæmi um, enda eru ris og kjallarar sjaldnast í nýrri hverfunum. Þvi er nú ver. Hin IMorðurlöndin Grundi spyr um húsaleigu annars staðar á Norðurlöndum. Hún er mjög misjöfn og þar tiðkast víðast einhvers konar flokkun húsnæðis eftir aldri, stærð, staðsetningu o. fl. Hámarks- leiga er síðan reiknuð út eftir þar til gerðum reglum og leigjendum tryggður réttur, líkt og t.d. ábúendum jarða hér á landi. Leiguupphæðir er erfitt að bera saman landa á milli, enda verður þá að taka tillit til almennra lífskjara. Mestu skiptir i þessu efni að annars staðar er húsa- leiga miðuð við laun, þannig að leigjandi greiðir ekki nema visst hlut- fall launanna í leigu. Sé leigan samt sem áður hærri, og það getur hún verið, kemur húsaleigustyrkur til, eftir þar til gerðum reglum. 1 Svíþjóð fá þó allir húsnæðisstyrk svonefndan, hvort sem þeir leigja eða ekki, séu tekjur þeirra innan ákveðins hámarks. Húsa- leiga getur því i þessum löndum numið hærri upphæð en þeirri sem leigjandi greiðir. Þetta kerfi er að sjálfsögðu reist á því að húsnæði er nauðsyn öllum í samfélaginu og lausn þessara mála kemur öllum við. 1 því ljósi hlýtur sú spuming að verða fáránleg hvort það borgi sig að byggja hús. Er ekki ódýrara að reisa bara tjöld yfir fólkið? Svona spurningar bera þeir einir fram, sem skortir félagslegan þroska og félagslegan skilning. Við getum t.d. allt eins spurt hvort borgi sig að hafa götur og gangstéttir, vegi og skóla, vatnsleiðslur og sjúkra- hús. Borgar sig yfirleitt að uppfylla þarfir manna, ef séð er frá hreinu kapítalisku sjónarhorni? Og nú er skammt í spurninguna til hvers við séum að lifa? Minnst byggt á íslandi I opinberum skýrslum er frá því greint að árið 1970 voru reistar hér á landi 6,2 ibúðir á hverja þúsund íbúa. Svíar reistu það ár 13.6 ibúðir á hverja þúsund. Þaö er vel helmingi fleiri en hér. Samsvarandi hlutfallstölur frá öðrum löndum Vestur- og Norður- Evrópu eru 10 til II ibúðir á hverja þúsund ibúða, víðast hvar. Bretar eru lægstir með tæpar sjö íbúðir, þ.e. næst fyrir ofan okkur. Minnst var byggt af ibúðum hér á íslandi. Viða annars staðar eru í notkun gömul hús, jafnvel mjög gömul. Hér bjó stór hluti þjóðarinnar í lekum torfbæjum fyrir nokkrum áratugum. Varla hefur þetta ástand breyst mikið frá 1970. For- stjóri steypustöðvar B.M. Vallá segir í Morgunblaðinu nýverið að steypusala hér hafi dregizt saman um 23% frá þvi 1976. Er við öðru að búast en þetta komi niður á einhverjum. Og auðvitað kemur það helst niður á þeim sem hvergi fá lán, þeim sem ekkert hafa að veðsetja og standa höllum fæti, eins og sagt er. Að lokum. Hvers vegna má ekki nota eitthvað af fjármagni lífeyris- sjóðanna til byggingar leiguíbúða, eða íbúða með einhverjum viðráðanlegum kjörum, úr því sjóðirnir eru á annað borð látnir standa undir íbúða- byggingum hér að miklu leyti???? Jónfrá Pálmholti, form. Leigjendasamtakanna. —

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.