Dagblaðið - 02.01.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANUAR 1979.
DB á ne vtendamarkaði
Sex manna fjölskyldan
hagstæðust í nóvember
Þá er lokið útreikningum á meðaltals-
kostnaði við heimilishaldið i nóvem-
bermánuði. í Ijós kom að hagstæðasta
fjölskyldustærðin þann mánuðinn var
sex manna fjölskyldan, með meðaltals-
kostnaðinn 18.303 kr. á mann I mán-
uðinum í mat og hreinlætisvörur.
Næst hagstæðasta útkoman var hjá
sjö manna fjölskyldunni, 20.179 kr. á
mann, síðan kom fimm manna fjöl-
skyldan með 20.246. Þar á eftir kemur
tveggja manna fjölskyldan með
21.489 kr. á mann, þá fjögurra manna
fjölskyIdan með 22.163 kr. og loks
þriggja manna fjölskyldan með 22.345
kr. á mann. Langflestir seðlar komu
frá fjögurra manna fjölskyldum, en
fæstir, ekki nema fjórir, frá sjö manna
fjölskyldum.
Innan fjölskyldustærðanna var
hæsti seðillinn frá fjögurra manna fjöl-
skyldu á Selfossi með 44.925 kr.
kostnað á mann. Lægsti seðillinn var
frá þriggja manna Hveragerðisfjöl-
skyldu með 9.237 kr. i meðaltalskostn-
að á mann. Sama fjölskylda var einnig
langlægst i októbermánuði (var þá
reyndar 2ja manna). Þrátt fyrir marg-
itrekaðar tilraunir til þess að ná sam
bandi við þessa fjölskyldu til þess að
athuga hvernig hægt er að vera með
svo lágan meðaltalskostnað á mann,
hefur það ekki tekizt. Hins vegar var
önnur fjölskylda í Garðabæ, einnig
þriggja manna, með mjög lágan
meðaltalskostnað, eða 13.937 kr. á
mann. Verður að telja að þarna sé
óvanalega vel á málum haldið.
Annar langlægsti seðillinn var frá
fimm manna fjölskyldu á Hvolsvelli
með 11.860 kr.ámann.
Mjög athyglisvert er hve sáralítill
munur er á milli fjölskyldustærðanna
að þessu sinni. Ekki munar nema rétt
um 4 þúsund krónum á hæstu fjöl-
skyldustærðinni (þriggja manna) og
þeirri lægstu (fimm manna).
Að þessu sinni var enginn seðill frá
eins manns fjölskyldu.
in var upphæðin 30.981 kr. og var sú
fjölskylda úr Reykjavik. Sú sem var
með lægstan meðaltalskostnað var
einnig úr Reykjavík, með 12.415 kr.
3ja manna
fjölskyldan
Þriggja manna fjölskyldan kom
óhagstæðast út I nóvember, var með
22.345 kr. i meðalkostnað á mann.
samband við Neytendasíðu Dag-
blaðsins, þegar þeir lesa þessi orð!
Næstlægsti seðillinn innan þriggja
manna fjölskyldunnar er upp á 13.937
kr., en sá seðill er úr Garðabæ.
4 manna
fjölskyldan
Langflestir seðlar bárust að þessu
sinni frá fjögurra manna fjölskyldum.
Meðaltalskostnaðurinn reyndist
22.163 kr. á mann. Nokkuð mikil
breidd var innan þessa hóps. Mátti sjá
ýmsar tölur. Hæsti seðillinn var frá
Selfossi, 44.925 kr., en lægsti frá
Blönduósi með 13.118 kr. á mann.
5 manna
fjölskyldan
Innan fimm manna fjölskyldunnar
reyndist meðaltalskostnaðurinn
20.246 kr. og er það næstlægsta
meðaltalið að jjessu sinni. Áður hefur
þessi fjölskyldustærð reynzt með
lægstan kostnað. Reykjavíkurfjöl-
skylda var með mestan kostnað,
27.998 kr., en lægst var fjölskylda á
Hvolsveíli með aðeins 11.860 kr.
meðalútgjöld á mann. Það er jafn-
framt langlægsta meðaltalið fyrir utan
sparsöntu fjölskylduna í Hveragerði.
6 manna fjölskyldan
í nóvembermánuði reyndist sex
manna fjölskyldan vera langhag-
stæðust með 18.303 kr. i meðalútgjöld
á mann. Sá sem átti hæsta seðilinn í
Sáralítillmunurá
meðaltalskostnaði
hinna ýmsu
fjöiskyldustærða
þeirri fjölskyldustærð var úr Kópa-
vogi, sáralítið hærri en meðaltalið eða
með 20.684 kr. Lægsti seðillinn var úr
Reykjavík með 12.243 kr.
7 manna
fjölskyldan
Mannflesta fjölskyldustærðin var
sjö manna. Meðaltalskostnaður
reyndist 20.179 kr. Kannski ekki mjög
marktæk tala því það voru ekki nema
fjórir seðlar frá sjö manna fjölskyld-
um.
Þeir sem voru hæstir og Iægstir
voru úr Reykjavík með meðaltals-
kostnað uppá 24.686 kr. og 19.222 kr.
Vinningshafinn
Við höfum nú dregið úr innsendum
seðlum og reyndist vinningshafinn
tveggja manna fjölskylda í Reykjavík.
Hafdís Finnbogadóttir og Steinar
Sigurðsson Hjallavegi 35. Þau fengu
mánaðarúttekt fyrir tveggja ntanna
fjölskyldu sem reyndist vera 42.978
kr. — Sjá viðtal við Hafdisi á Neyt-
endasiðunni á morgun.
A.Bj.
2ja manna
fjölskyldan
Meðaltalskostnaðurinn hjá tveggja
manna fjölskyldunum að þessu sinni
reyndist vera 21.489 kr. Hjá þeirri fjöl-
skyldunni sem var með hæstu útgjöld-
Það eru miklar fúlgur tjár samtals sem
ganga yfir borðin milli viðskiptavina
og stúlknanna við kassana í matvöru-
verzlunum. Það er þvi fyllilega
ástæða til fyrir fólk að hafa gát á
eyðslu sinni. Það má gera með bú-
reikningshaldi m.a. Og staðreynd er
að verðskyn verður ekki byggt upp hjá
almenningi nema almenningur geri sér
grein fyrir hvað hver hlutur kostar.
DB-mynd Árni Páll
Mestur kostnaður var hjá Sandgerðis-
fjölskyldu með 35.680 kr., en lægstur
hjá Hveragerðisfjölskyldu með 9.237
kr. Það er nánast ótrúlega lágur
matar- og hreinlætisreikningur fyrir
heilan mánuð, en þessi sama fjöl-
skylda hefur áður sent inn mjög lága
kostnaðarseðla. Hins vegar hefur enn
ekki reynzt unnt að ná sambandi við
fólkið, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir,
eins og áður segir. Væri kannski ekki
úr vegi að biðja viðkomandi að hafa
Hérna kemur desemberseðillinn. Fyllið hann út sem allra fyrst og sendið til DB og
Vikunnar. Þetta er sjötti seðillinn sem sendur er út og fyrri hlið veggspjaldsins
góða á nú öll að vera útfyllt. Nú er um að gera að snúa spjaldinu við og byrja á
seinni helmingnum. — Við hvetjum alla til þess að vera með. Ekki veitir af að fá
meira fyrir mánaðarlaunin þegar alltaf er verið að auka álögur á þjóðina. Það er
lika til mikils að vinna, heil mánaðarúttekt fyrir viökomandi fjölskyldustærð!
- A.Bj.
SINE
verður í Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut fimmtudaginn 4. janúar kl. 14.
Fundarefni:
1. Breytingar á úthlutunarreglum.
2. Starfsemi sambandsins og SÍNE blaðið.
3. Venjuleg jólafundarstörf.
Afar mikilvægt er að allir félagar hér uppi
mæti.
S^órn SÍNE
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaöur í des. mánuói 1978
Matur og hreinlætisvörur kr____________________________
Annað kr.______________________
Alls kr.
m nK t Y
Fjöldi heimilisfólks