Dagblaðið - 02.01.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1979.
Spánn:
MANNLAUST RISAOLÍUSKIP-
» SIGUR NÚ TIL HAFS
—aðeins þrír komust af eftir olíuleka eld og sprengingar
Engu var líkara en yfirnáttúrleg öfl
væru að verki þegar grískt risaolíu-
flutningaskip sneri mannlaust frá
norðvesturströndum Spánar og út á
Atlantshafið. Gat hafði komið á
skrokk skipsins og hafði áhöfnin öll að
undanskildum þrem mönnum yfirgef-
ið skipið á björgunarbátunum. Hefur
ekki orðið vart við neinn þeirra tutt-
ugu og níu lifandi eftir það.
Samkvæmt siöustu fregnum sigldi
skipið í vestur átt á um það bil fjög-
urra hnúta hraða. Sjálfvirk stýring
mun vera í sambandi á skipinu.
Ástæðan fyrir að vél skipsins er í gangi
er sú að yfirvélstjóranum tókst að
gangsetja hana rétt áður en hann yfir-
gaf skipið síðastur þeirra þriggja sem
bjargaö var af þyrlu i gær.
í fyrstu var mjög óttazt að skipið
mundi bera að landi og menga fjörur á
Spáni og spilla dýra- og fuglalifi. Leit
stendur yfir að þeim, sem fóru I björg-
unarbátana en þar á meðal var tveggja
ára gamalt barn. Níu lík hafa þegar
fundizt. Er skipinu hlekktist á var mik-
ill sjór. Er talið að í það minnsta
fimmtiu þúsund tonn af hráolíu hafi
farið í sjóinn úr skipinu.
Herskip og dráttarbátar fylgjast
með oliuskipinu og er ætlunin að taka
það í tog, þegar veður batnar. Olíulek-
inn mun nú vera mun minni en i
fyrstu. Sú olia, sem barst i hafið berst
ekki til strandar Evrópu. Mikill eldur
kom upp I skipinu eftir að oliulekinn
hófst. Einnig urðu nokkrar sprenging-
ar. Yfirgáfu þá allir skipið nema þre-
menningarnir, sem síðan var bjargað.
Var eldurinn þá slokknaður. Andros
Patria en svo er gríska oliuskipið nefnt
tók tvö hundruð og átta þúsund tonn
af hráolíu í Rotterdam fyrir nokkrum
dögum.
Samningamál Egypta og Israelsmanna:
AÐILAR TILBÚNIR TIL
AÐ HEFJA VIÐRÆÐUR
Egyptar eru tilbúnir til að hefja aftur
viðræður um frið við Israel, segir i hálf
opinberu málgagni egypzku stjórnarinn-
ar Al-Ahrem i morgun. Segir þar að
samningar verði að fela i sér að réttindi
Palestínuaraba séu tryggð og að Egyptar
þurfi ekki að ganga bak orða sinna gagn-
vart öðrum arabaríkjum þó svo að þeir
geri friðarsamning við ísrael.
Koma þessar yfirlýsingar Egypta í
kjölfar yfirlýsingar ísraelsmanna frá því
á sunnudaginn um aö þeir væru reiðu-
búnir til frekari samningaviðræðna við
Egypta.
í öðru egypzku dagblaði Al-
Gomhouria, segir að afstaða rikjanna
tveggja sé mjög ólík i mikilvægum
atriðum og stjórnin i Kairo ætti ekki
vona á að til samninga drægi alveg á
næstunni.
í Al-Gomhouria sagði að Egyptarætl-
uðust til þess af Bandaríkjamönnum að
þeir tækju afstöðu til harðrar afstöðu
ísraelsmanna í samningamálunum.
Begin forsætisráðherra Israels sagði á
sunnudaginn að þeir féllust ekki á sér-
staka dagsetningu á hvenær sjálfstjórn
Palestinuaraba á vesturbakka árinnar
Jórdan hæfist né þeirra sem á Gaza-
svæðinu búa. Þessa hafa Egyptar kraf
izt.
Begin hefur einnig lýst sig andvigan
breytingum á svokallaðri grein sex i
Camp David samkomulaginu, svo tryggt
sé að gagnkvæmar skuldbindingar ísra-
els og Egyptalands brjóti ekki i bága við
skuldbindingar ríkjanna gagnvart
öðrum rikjum.
Atök með Kínverjum
Lögreglan í Chicago hefur nú hafið
leit að hugsanlegum vitorðsmanni
með John Gacy, sem játað hefur á sig
morð á þrjátíu og tveimur piltum. sem
hann hafi áður misþyrmt kynferðislega.
Lögreglanerekki fullviss umaðGacy
hafi getað framið öll þessi voðaverk
einn síns liðs þó svo hann sé sterk-
byggður maður. Hefur verið hafin leit
og eftirgrennslan í þeim hverfum og
veitingastöðum, þar sem vitað er að
Gacy lokkaði til sin pilta.
Nú er búið að finna tuttugu og sjö
lik undir húsi Gacy í úthverfi Chicago.
Einnig er talið að hann eigi þátt í
dauða þriggja manna, sem fundizt
hafa I fljóti einu á siðustu þrem
mánuðum.
Lögreglan telur líklegt að einhverjir
kynferðislega brenglaðra félaga Gacy
hafi tekið þátt i morðunum eða þá
verið vitni að atburðunum. Hafa
nokkrir verið yftrheyrðir og eins
manns, sem áður fyrr starfði við
byggingarfyrirtæki Gacy, er sérstak-
lega leitaö. Eitt vitni hefur gefið sig
fram en hann mun hafa sloppið
naumlega úr greipum hans. Telur
vitni að annar maður hafi verið með í
spilinu í það minnsta i það skiptið.
Maðurinn Jeff Rignals, tuttugu og
sjö ára gamall, segir Gacy hafa
fengið sig upp í bifreið sína undir þvi
yfirskini að þar ætti að reykja
marijuana. Þar hafi Rignall verið
svæfður með klóróformi og síðan ekið
með hann til húss Gacy þar sem
honum var nauðgað og síðan
misþyrmt. Síðan var honum kastað
inn í almenningsgarð. Telur Rignall að
annar maður hafi verið viðstaddur er
þetta gerðist. Rignall hlaut nokkrar
fébætur frá Gacy siðastliðiö vor. Var
það mál afgreitt án þess að til dóms
kæmi.
John Gacy átti að koma fyrir rétt á
föstudaginn var en yfirvöld ákváðu á
síðustu stundu að fresta réttar-
höldunum. Var óttast, að Gacy
kæmist ekki klakklaust til dóms-
hússins þó hann væri í lögregluvernd.
leitað 27
Síðbúin
jólamynd
Tveir sótarar I Bandartkjunum gera
sér það til gamans um jólin að annar
þeirra klæðist jólasveinabúningi. Þeir
gera sig siðan Uklega til að fara niður
um strompinn á ibúðarhúsum eins og
jólasveina er siður þar i landi.
Chicago:
Vitorðsmanna morð-
ingjans
þegarfundin
lík
lögreglantelur
ólíklegtað JohnGacy
hafiveriðeinnað
Rannsókn á fjöldasjálfsmorðunum I Guyana stendur enn yUr og allt I mikilli
óvissu hvað þar raunverulega gerðist. Á myndinni sést Terri Buford, sem einu
sinni var fjármálastjóri trúflokks Jim Jones á meðan hann starfaði f San Fran-
sisco. Var hún að svara spurningum fréttamanna. Með henni er lógmaður trú-
flokksins, Mark Lane.
i Bandaríkjunum
Fastafulltrúi Peking stjórnarinnar
hjá Sameinuðu þjóðunum sagði i gær
að stjórn hans vonaðist til að megin-
land Kína og eyjan Taiwan samein-
uðust hið allra fyrsta. Chi Chu, en svo
heitir fulltrúinn, sagði þetta í ræðu,
sem hann flutti í New York i tilefni af
fullum stjórnmálasamskiptum stjórn-
anna í Peking og Washington. Jafn-
framt slitu Bandaríkjamenn stjórn-
málasambandinu við stjórnina á
Taiwan.
Sex hundruð lögreglumenn gættu
þess að hópum stuðningsmanna
Pekingstjórnarinnar og Taiwanstjórn-
arinnar lenti ekki saman en báðir fóru
í hópgöngum um kinverska hverfið í
borginni. Sömu sögu er að segja frá
San Francisco þar varð lögreglan að
gripa I taumana. Stuðningsmenn
stjórnarinnar I Taiwan báru skilti sem
á stóð til dæmis: Carter er lygari og
Bandaríkjunum er ekki treystandi.