Dagblaðið - 02.01.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1979.
Ct
Utvarp
23
Sjónvarp
DJÁSN HAFSINS—sjónvarp kl. 20.30:
Undraheimur
kórallanna
í kvöld kl. 20.30 sýnir sjónvarpið átt-
unda þátt af þrettán í myndaflokknum
Djásn hafsins. Fræðsluþættir þessir eru
gerðir í samvinnu austurríska. þýzka og
franska sjónvarpsins og fjallar hver og
einn um hið heillavænlega og fjölskrúð-
uga lífriki hafsins.
Myndin i kvöld nefnist Undraheimur
kórallanna og fáum við þar að kynnast
hinni stórbrotnu jurt hafsins. Margireru
þeir sem kalla kóralinn jurt en aðrir vilja
meina að hann sé dýr sem líkist jurt.
Þátturinn i kvöld er tæplega hálfa
klukkustund að lengd og þýðandi og
þulurerÓskar Ingimarsson.
-F.LA
M
Úr hinu fjölskrúðuga lifríki hafsins.
Gunnar M. Magnúss rithöfundur les úr bök sinni „Þaö voradi vel 1904” í Kvöld
vöku i kvöld.
KVÖLDVAKA - útvarp kl. 21.00:
KVEDIÐ í GAMNI
0G ALVÖRU
Kvöldvaka er á dagskrá útvarpsins í
kvöld kl. 21.00. Meðal efnis er einsöng-
ur. Stefán islandi syngur nokkur lög við
píanóundirleik Fritz Weisshappel.
Það eru lögin Gígjan eftir Sigfús Ein-
arsson við texta Benedikts Gröndal.
Vögguljóð Rúnu eftir Sigurð Þórðarson
við Ijóð Guðrúnar Jóhannsdóttur og
Svanasöngur á Heiði eftir Sigvalda
Kaldalóns við Ijóð Steingrims Thor-
steinssonar ásarnt nokkrum lögum til
viðbótar.
Gunnar M. Magnúss les kafla úr bók
sinni „Það voraði vel 1904", sá liður er
kallaður i janúar fyrir 75 árum.
Kveðið i gamni ogalvöru. Egill Jónas-
son á Húsavík fer með nokkra kviðlinga.
Siðan er fyrri hluti frásagnar Stefáns Ás-
bjarnarsonar á Guðmundarstöðum i
Vopnafirði þar sem hann rekur bernsku-
minningarsínar.
Siðasti liður Kvöldvöku i kvöld er kór-
söngur. Það er Eddukórinn sem syngur
nokkur erlend og innlend jólalög. þar á
meðal frá Austurríki, Spáni og Þýzka-
landi. Stjórnandi er Friðrik Guðni Þor-
leifsson. Kvöldvakan er klukkustundar
löng. -F.l.A
Þriðjudagur
2. janúar
i 2.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Á frí-
vaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Á noróurslóöum
Kanada” eftir Farley Mowat. Ragnar Lárus-
son les þýðingu sina (4).
15.00 Miódegistónleikar: Fílharmoniusveitin i
Vin leikur þætti úr „Hnotubrjótnum” eftir
Pjotr Tsjaíkovský; Herbert von Karajan stj. /
Filharmoníusveitin i Lundúnum leikur „Ung-
verjaland”, sinfóniskt Ijóð op. 9 eftir Franz
Liszt; Bernard Haitink slj.
15.45 Til umhugsunar. Karl Helgason lög-
fræðingur flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).
16.20 Popp.
17.20 Tónlistartími barnanna. Egill Friðleifsson
stjórnar tímanum.
17.35 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Barnió og fjölskyldan. Dr. Björn Björns-
son prófessor fly tur erindi.
20.00 Tónlist eftir Johannes Brahms. a. Verk
fyrir kvennakór, tvö horn og hörpu.
Gáchingerkórinn syngur, Heinz Lohan, Karl
Ludwig og Charlotte Cassedanne leika. Stjórn-
andi: Helmut Rilling. b. Scherzo op. 4.
Claudio Arrau leikur á pianó. c. Trió fyrir
horn, fiðlu og píanó op. 40 (fyrsti þáttur).
Dennis Brain, Max Salpeter og Cyril Preedy
leika.
20.30 (Jtvarpssagan: „Innansveitarkronika”
eftir Halldór Laxness. Höfundurinn byrjar
lesturinn.
21.00 Kvöldvaka. a. Einsöngun Stefán íslandi
syngur Islenzk lög. Fritz Weisshappel leikur á
pianó. b. í janúar fyrir 75 árum. Gunnar M.
Magnúss rithöfundur les kafia úr bók sinni
„Það voraði vel 1904”. c. Kveóió I gamni og al-
vöru. Egill Jónasson á Húsavik fer með nokkra
kviðlinga. d. Raddir vindanna. Stefán Ásbjarn-
arson á Guðmundarstöðum i Vopnafirði
rekur bernskuminningar sinar; — fyrri þáttur.
c. Kórsöngun Eddukórinn syngur jólalög.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Víósjá: Ögmundur Jónasson sér um þátt-
inn.
23.05 Á hljóóbergi. Umsjónarmaður: Björn Th.
Björnsson listfræðingur. „Þótt ég fari um
dimman dal”: Judith Anderson les úr Davíös-
sálmum.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
\
Hin fræga fröken Svínka:
„BÝST VIÐ AÐ
NÁ í KERMir ’
Umboðsmaður Fröken Svinku er
froskurinn Kermit. Hún var spurð að
því hvort þau hjúin hygðu á hjóna-
band. „Ég býst við að ég geri það.
Spyrjið samt ekki Kermit." sagði hún
við fréttamenn. „Við þurfum að
komast að niðurstöðu um samband
okkar i heild. Ég vil eignast böm en ég
vil halda frama minum og Froskinn vil
ég fá. En i hvaða röð ég tek þetta er
ekkiennákveðið.”
Fyrir árið 1979 ætlar frökenin sét
að vera ögn kvenlegri en hún hefui
verið og ekki alveg eins ýtin. „Ef þaö
„Ég skammast mín ekkert fyrir að
viðurkenna að ég er stjarna." sagði hin
föngulega fröken Svínka við þjón sem
snérist i kringum hana á Savoy mat-
staðnum i London. Frökenin brá sér
þar til kvöldverðar á dögunum og var
óðar fest á filmu af blaðasnápum sem
snérust i kringum hana eins og óðir
rakkar.
tekst ekki brýt ég alla í tvennt þar til
ég næárangri."
Skáldkonan fræga. Barbara Cart
land. segir að Svínka gefi „vcnju
legum" konum nokkra von. Hún sc
ckki fríð sýnum en persónuleiki hcnn
ar sésvosterkur að útlitið glcymist.
Frægð frökenarinnar er cnda
nokkuð sem hægt er að státa af. Fyrir
leik sinn i sjónvarpsþáttunum Prúðu
leikurunum i þrjú ár og framkomu
sina i Prúðu kvikmyndinni hefur hún
fengið mikið lof og tilboð um leik í
fleiri kvikmyndum.
Styrkið og fegríð líkamann
Nýtt 4ra vikna námskeið í megrunar- og
frúarleikfimi hefst 8. janúar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
kl. 13—22 í síma 83295.
Sturtur — Ijós — gufuböð — kaffi — nudd
JúdódeildÁrmanns
Armúía 32