Dagblaðið - 12.01.1979, Síða 1

Dagblaðið - 12.01.1979, Síða 1
5. ÁRG. — FÖSTUDAGLR 12. JANÍJAR 1979 — ÍO.TBL. RITST.IÓRN SÍDl'Ml I A 12. AIK.I.ÝSINGAR OG AKíREIÐSI.A ÞVKRHOLTI 11.—ADALSÍMI 27022. Stjömumessa79: GLÆSILEGASTA SKEMMTUN ÁRSINS Stjörnumessa Dagblaösins og Vik- unnar hefst stundvislega kl. 19 næst- komandi fimmtudagskvöld að Hótel Sögu. Hefst skemmtunin með þvi, að borinn verður fram drykkur á Mlmis- bar um leið og gesti ber að garði. en Gunnar Axelsson pianóleikari mun leika létt lögá flygilinn. ■<------------------------ Álsteypumót verðlaunagrips Stjörnu- messunnar búið til I Málmsteypunni Hellu i gær. Steypa gripanna er þegar hafin — þótt enn sé ekki Ijóst hve margir þcir verða né hverjir hljóta þá. -DB-mynd R.Th. Borðhald hefst kl. 20.30. Sögubændur hafa að vanda lagt mikla alúð við matseðil kvöldsins og reyna að tengja hann listamannalifi og tónlist. Aðalréttur kvöldsins verður Escalope de boeuf du Restaurant Bré- bant. Rétturinn samanstendur af mjög þunnum sneiðum af nautalæri. sem skellt er á pönnu rétt áður en þær eru bornarfram. 'v. Réttur þessi er kenndur við veit- ingahúsið Brébant-Vachette í lista- mannahverfinu Montmartre í Paris. 1 eftirrétt verða bornar frani Profiteróles Othello. Það eru vatns- deigsbollur fylltar konditorikremi. fjórar til fimm mismunandi bragðteg- undir. Rétt áður en bollurnar eru bomar fram á fati er hellt yfir þær heitri súkkulaðisósu. Carl Billich leikur létta tónlist á flygilinn í Súlnasalnum á meðan á borðhaldi stendur. Skömmu eftir kl. 22.00 hefst verð- launaafhending Stjörnumessunnar. Blaðamennirnir Ásgeir Tómasson, Helgi Pétursson og Ómar Valdimars- son munu kunngjöra úrslit vinsælda vals blaðanna og afhenda þeim lista- mönnum, sem sigrað hafa i hverjum flokki, verðlaunastyttur til minningar um sigurinn, en listamennirnir munu skemmta áhorfendum við undirleik Stjörnuhljómsveitarinnar. Er verðlaunaafhendingu lýkur rnun verða stiginn dans til kl. 01 við undir- leik hljómsveitar Ragnars Bjarnason ar. Miðasala á Stjörnumessuna hefst kl. 14.00 á morgun að Hótel Sögu. Miðaverði hefur mjög verið stillt í hóf, hver miði kostar 11.000 krónur og innifalið í því er drykkur á Mímisbar, og matur í Súlnasal. Borðapantanir fara fram á sama tima og stað. -HP. „ÉG VERD AÐ TAKA ÞESSA ÁHÆTTU” — segir Benedikt Gröndal um spurninguna um, hvort Færeyjasamningarnir hafi þingmeirihluta — skiptar skoðanir að minnsta kosti í Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi „Ég verð að taka þá áhættu, að vera kunni, að ekki sé þingmeirihluti fyrir Færeyjasamningunum,” sagði Benedikt Gröndal utanrikisráðherra í morgun. „En ég trúi þó ekki, að það sé rétt hjá Ólafi Ragnari Grimssyni að samning arnir njóti ekki meirihlutafylgis.” DB greindi frá þvi i gær, að sumir þingmenn efuðust um. að ráðherrar Alþýðuflokksins hefðu haft umboð til að gera samningana og að þeir nytu meirihlutafylgisá Alþingi. f " "IBI * Kemur bjórinn? — sjá kjallaragrein Friðriks Sophussonar abls. 10-11 Alþjóðlegar ráðstef nur í nýja Borgarleik- húsinu? Út íhött, segir Vigdís — sjá bls. 8 „Svargrein til Guðmundarí Bæ, sem alltaf fórað gráta þegarégvar * búin aðtalaá aðalfundum Kaupfélags Strandamanna” — eftirRegínu Thorarensen — sjá bls. 2-3 „Það er mælt í fáfræði. þegar efazt er um heimild ráðherra til að gera slíka samninga. Stjórnarskrá kveður svo á, að forseti íslands skuli gera samninga við aðrar þjóðir og þvi ráðl.eirar fyrir hans hönd. Ég hafði lagt málið fram í rikis stjórn og þótti eðlilegast, að það færi fyrir utanríkismálanefnd. Ég sagði nefndinr.i i byrjun desember að vera við- búinni að ræða þctta frekar. Nefndin var kölluð á ftmd i siðustu viku og málið rætt itarlega. Þar kom l'ram. að þótt ég hefði beðið um, að málið yrði rætl hafði ekki vegna jólaanna gefizt tinti til að ræða það loiinlega i neiiiuin þingliukki. Allir nefndarmenn nema kannski einn voru á því, að á málum yrði haldið eins og við gerðum i samningunum. Ég hafði skýrt nefndinni frá, að i tveimur flokkum að minnsla kosti væru skiptar skoðanir. Alþýðuflokknum og Alþýðubanda- laginu. Ég leitaði eins náins samráðs og hægt var og mæltist meðal annars til, að formaður utanrikismálanefndar Einar Ágústsson yrði í samninganefndinni og gæti hann kvatt nefndina til fundar fyrirvaralitið, ef þurfa þætti. Þá hafði ég náið samband við forsætisráðherra, meðan viðræður stóðu," sagði Benedikt. Benedikt sagði, að menn í færeysku nefndinni hefðu einnig efað, að samningarnir fengju meirihluta á Lög- þinginu, þar sem þeir væru harla óhag- stæðir Færeyingum. -HH. Þær voru glaðlegar og ánægðar I frostinu i gær. Mesta trost á landinu I gær var 22 stig á Grimsstöðum á Kjöllum, en pao stóð stutta stund og lækkaði sfðan örlitið. Heldur gæti hlvnað hér næsta sólarhring, skv. upplýsingum Vcðurstofunnar I morgun. Lægð er á leiðinni að landinu með vaxandi vestanáti. Það gæti haft i för með sér einhverja snjókomu. DB-mynd: Ragnar Th. Ættgengir æðahnútar og dulinn lekandi — sjá svör heimilis- læknis DB á bls. 5 Viðhaldsdeild Flugleiðaá VeHinumá1 hrakningum undan hernum — ogstórverk- efni aðflytjast úrlandinu Sjábls.9 A

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.