Dagblaðið - 12.01.1979, Side 3

Dagblaðið - 12.01.1979, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979. 3 Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvöll — Sími 14181 landi á nærbuxun- Getum flutt úr um og auralausir Sigga flug finnst' litið varíð i að flytja úr landi á nxrbuxunum einum fata. En ef það eru islenzkar uilarbuxur má fara anzi langt án þess að verða kalt. DB-mynd: Bjarnleifur. fsland er stór eyja, norðarlega í Atlantshafinu, langt frá öðrum löndum. Eitthvað likt þessu stendur í landa- fræði þeirri er við lásum þegar við vor- um ungir. Þetta mun hafa verið landa- fræði Karls Finnbogasonar, sem sjálf- sagt fyrir löngu er hætt að nota og nýrri og fullkomnari bækur komnar í staðin. Það er þó eitt sem ekki hefur breyst þrátt fyrir nýjar bækur, en það er lega landsins, sem enn er nokkuð stór eyja, norðarlega í Atlantshafinu,langt frá öðrum löndum. Lega landsins hefur það m.a. í för með sér, að við eigum ekki landamæri að nokkru öðru landi á þurrlendi og finnst sumum, þar á meðal mér, að við séum afar einangraðir og langt frá öðrum löndum. - Þetta hefur ýmislegt skringilegt í för með sér, þ.á.m. að bifreiðaeign lands- manna er mjög mikil, og finnst mörg- um að um algert óhóf sé að ræða. Þetta hefur aftur á móti eðlilegar skýringar að minu áliti. Það hefur lengi viljað loða við alla eyjarskeggja að þeir væru svolitið und- arlegir, ómannblendnir og innhverfir. Þeir liðu af svokallaðri „Claustropho bia” sem orðabók Websters skýrir sem „hræðslu við að vera í lokuðum (af- girtum) plássum (places)”, eða liðu af innilokunarkennd, sem við mundum þýða svo á íslenzku. Hér hefur bíllinn heldur en ekki bætt um fyrir mönnum Heimilisbíllinn, sem stendur fyrir framan íbúðarhúsnæðið leysir þennan vanda, því fólki finnst það hafa þarna tæki sem það getur hvenær sem er far- ið upp i og ekið út í buskann (innanlands aðeins). Þetta vcitir mönnum þá tilfinningu um frjálsræði, að nokkru, sem svo mjög er sótzt eftir. og sem háttvirtur forsætisráðherra landsins gerði að nokkru að umræðuefni I áramótaræðu sinni. Forsætisráðherra þótti sem við hefðum nóg frelsi, og því væri ekki rétt af þjóðinni að vera sifellt að kvarta. Þetta getur vel verið, að hans mati, en með sífelldum afskiptum hins opinbera er þessu frelsi stefnt I hættu, og það er þessari hættu sem við viljum bægja frá, áður en það er orðið um seinan. í skjóli þess, að við erum langt frá öðrum löndum og eigum ekki landa- mæri á þurrlendi að öðru ríki er margt hér öðruvísi en hjá öðrum þjóðum. Við búum hér við eldgamalt (50 ára eða svo) haftakerfi, sem á nokkurra ára fresti er verið að lappa upp á af eintómri sýndarmennsku. í raun og veru er alltaf verið að bæta gamla flik með nýrri bót, og áður en varir er ekkert eftir nema bæturnar, en upp- runalega flikin löngu týnd. Þannig getur farið með frelsið okkar, að það týnistáðuren við fáum rönd við reist. 1 skjóli þess að ísland á engin aðliggjandi landamæri á öðru landi ríkir hér haftafargan. Landsmönnum er skammtað hve mikið þeir fá að eyða i utanlandsferðir, hvort sem um er að ræða sumarleyfisferðir, námsferðir, eða þá ef menn óska að flytja úr landi og taka eigur sínar með sér. Við tölum oft um þennan svo- kallaða HELSINKISÁTTMÁLA, og alveg sérstaklega þegar að okkar dómi eitthvað óréttlæti hefur bitnað á ein- hverjum þeim, er hefur viljað flytja frá Sovétríkjunum. Þá er af miklum fjálg- leik talað um að USSR hafi undirritað þennan sáttmála en framfylgi honum ekki. Maður líttu þér nær, liggur i götunni steinn, segir einhvers staðar. Hvernig stendur á þvi, t.d. að mönnum er gert ókleift að flytja úr landi, nema þá á nærbuxunum, einum fata, auralausir. Hvers vegna er ekki hægt að veita ákveðnum fjölda manna brottfararleyfi á ári hverju, og þá þannig að þeir er þess æskja fái fluttan gjaldeyri til annars lands, t.d. eftir að hafa selt fasteign eða annað? Það er mörgum hér á landi mikið íhugunarefni hve okkur hefur verið stjórnað illa á undanförnum árum. Margur maðurinn er mjög viðkvæmur fyrir þessu, og það svo, að oft hafa menn orðið fyrir geðrænum truflunum og þurft að gista sjúkrahús af þeim sökum. Margir gætu sjálfsagt hafið nýja tilveru erlendis ef þeim væri leyft að setjast að í öðru landi (flytja) með eitthvað af þeim eignum sem þeir ættu. Það kostar eitthvað um 60.000.00 fyrir hið opinbera að hafa sjúkling liggjandi á sjúkrahúsum rikisins á dag. Á ársgrundvelli, eins og það er nefnt, erþetta dágóðurskildingur. BERLÍNARMÚRINN var byggð ur til þess að gera fólki ókleift að kom- ast til vestursins. Fólkið í Austur- Þýzkalandi var þar með orðið fangar i sinu eigin landi og ófrjálst ferða sinna. Getur það verið að við séum búnir að koma okkur upp slíkum vegg hér á Íslandi? Mér datt þetta (svona) í hug. SIGGI flug. 7877—8083. Hringið ísíma 27022 miili kl. 13 og 15, eða skrifið NY SENDING Teg. 500. Skinnfóðraðir ogmeð leðursóla. Litir: Drapp leður eða vínrautt leður. Stæðir: Nr. 36—41. Verðkr. 22.685.- Teg. 401 Litur: Beinhvrtt leður. Fóðraðir. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 18.925. Teg. 503 Skinnfóðraðir og með leðursóla. Litur: Koníaksbrúnt leður. stærðir.Nr. 36—41. verðkr. 22.685.- Teg.402 Lhur: Svartleður. Fóðraðir. Stærðir: Nr. 36—41. Verðkr. 18.925.- Hvert myndirðu fara ef þér byðist frí ferð til útlanda? Jósef Þrastarson: Það væri gaman að fara til Afríku, Úganda eða eitthvert þangað suðureftir. Sólin, já, hún freistar manns. Svo eru stelpurnar þarna falleg- ar... Spurning dagsins Daniel Kristinsson: Það er ómögulegt að segja, maður. Ég veit ekki. Það er margt hægt að fara. Sólina? Nei, sízt af öllu myndi ég fara til sólarlanda. Til noðurlanda,? Já, ég myndi fara þangað. Birgir Guðlaugsson: Til Austurríkis. Já, það hlýtur að vera skemmtilegt. Skiði og túristaskemmtanir. Sigurður Þorsteinsson: Ekkert. En mig langar i hringferð kringum landið, tsland. Magnús Jakobsson: Til Norðurlanda fyrst og fremst. Af hverju? Þar er fallegt og skemmtilegt að vera. Krístján Leifsson: Miami Beach. W) eina sem mig langar til að faia.«g,áafttir að fara.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.