Dagblaðið - 12.01.1979, Page 4

Dagblaðið - 12.01.1979, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1979. DB á ne ytendamarkaði Gríðarlegur verðmunur á bflavarahlutum: 35.932 kr. hjá umboðinu en 9.800 á ..frjálsunV7 markaði Citroöneigandi kom að máli við blaðið og vildi fá hjálp þess til að finna út af hverju mjög mikill verðmunur væri á sams konar varahlutum. Varahlutirnir sem um ræðir eru bremsuklossar i framhjól á Citroen CX 2000. Klossar þessir eru með inn- byggðum rofa, sem gerir viðvart er klossamir slitna og þurfa endurnýjun arvið. Eins og lög gera ráð fyrir fór bíleig- andinn fyrst i bílaumboðið til að leita varahlutanna þar og voru þeir til. 1 framhjól (bæði) kostuðu klossarnir samtals 23.308 kr. en í afturhjól kr. 12.624 kr. eða samtals 35.932 kr. i all an bílinn. Þetta fannst bíleigandanum há upp- hæð og fór á stúfana til þess að leita eftir bremsuklossum annars staðar. Klossar af þessari gerð, kanadiskir, voru til hjá fyrirtækinu Álímingum sf. og kostuðu 1 framhjól 6.200 kr. og i afturhjól 3.600 kr. eða samtals 9.800 kr. i allan bílinn. Einnig voru til klossar hjá Bílanausti og kostuðu þeir í allanbílinn 15 500 kr. Þessi mismunur á samsvarandi vöru, kr. 35.932 kr. fyrir bremsukloss- ana hjá Globus og svo hins vegar 9.800 kr. hjá Álimingum fannst bíleig- andanum of mikill þótt í öðru tilfellinu sé búið að pakka varahlutunum i pakka merktan bílaverksmiðjunum. ‘»ÍI’*EtP‘JtDEaj» Ucmu i - m - u mm (« Núm*r Stk. Art.: Varahl. Tjtm'r>9°. ^,rnólaj 2 666 \2\ pevjý! l89lKS tt 5S%SS%r ..- ,tötev"0 — 000656^. JpíÁæö f |0'D' - V«r8 Kiótunr \ ’ \ \: . \ \ P \ ntcd* Reikningarnir fyrir bremsuklossum 1 framhjól á Citroén CX 2000, kr. 23.308 frá Globus hf. og 6.200 kr. frá Álimingum sf. Frá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur Athygli samlagsmanna skal vakin á því að Ásgeir Karls- son læknir hefur látið af sérfræðingsstörfum fyrir sam- lagið frá og með síðustu áramótum. Reikningar hans eru því ekki lengur endurgreiddir af hálfu SR. Sjúkrasamlag Reykjavíkur Reyðarfjörður Nýr umboðsmaður Dagblaðsins er Árni Elísson, Túngötu 5, sími 97-4265. BIADIB ENDURSKINS- MÉRKI ERU NAUÐSYNLEC FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ Montemario Handsaumaðar; ítalskar leður- karlmannamokkasínur Fást bœði með leður- Sérlega mjúkar og vandaðar. Litir: Brúnt og svart. Kr. 14.640. } Skór í sérstökum gæðaflokki ^ Opið föstudag til kl. 7, ) laugardag 9—12. ^ ‘V gúmmísóla Vl/. yy. o.u. v>xw.v/. Minni pakkinn er merktur Citroén-verksmiðjunum en sá stærri er frá kanadiskri verksmiðju. DB-mynd Hörður „Milliliðakostnaður, gengisbreytingar, smæð maHtaðarins og verðlagsákvæði” DB leitaði til fyrirtækjanna Globus hf. og Álimingar sf. og spurðist fyrir um þennan verðmismun. Globus hafði eftirfarandi um málið að segja: Vegna fyrirspurnar yðar varðandi verð á bremsuborðum, viljum við taka fram eftirfarandi: Hér er ekki um sambærileg gæði að ræða og munar þar miklu. Þeir bremsuborðar sem við seljum hafa reynzt áberandi betri en þær eftirlík- ingar sem hér eru á markaðinum. Auk þess eru allir varahlutir sem við seljum frá Citroén með 6 mánaða ábyrgð. Bremsuborðarnir sem koma upphaf- lega i Citroén bílunum eru framleiddir í Þýzkalandi en ekki hjá Citroen verk- smiðjunni og höfum við ávallt flutt inn bremsuborða frá sömu verksmiðju gegnum Citroen verksmiðjuna. Þetta hefur í för með-sér þó nokkurn milli- liðakostnað sem erfitt hefur verið að komast hjá sökum smæðar íslenzka markaðarins og verðlagsákvæða. Þá getur skipt miklu máli hvenær varan kemur til landsins með hliðsjón af gengisskráningu islenzku krónunn- ar, vegna gengissigs og gengisfellinga. Til marks um þetta má geta þess að verð á þessum sömu bremsuborðum var um mitt síðasta ár kr. 23.000. Að lokum skal þess getið að verk- stæðisformaður þjónustuverkstæðis okkar hefur reynt flestallar gerðir af bremsuborðum sem hér eru á mark- aðinum fyrir Citroén og hefur hann eindregið ráðið okkur frá því að nota aðrar gerðir af bremsuborðum en þá sem hér um ræðir. Virðingarfyllst, f.h. Globus hf., Guðjón Jónsson, deildarstjóri. (sign) „Varahlutirnir alltaf dýrari hja bflaumboðunum” „Við höfum verið með þessa vöru i mörg ár og mér finnst alveg fráleitt að ætla að halda því fram að þessir bremsuklossar séu einhver eftirlíking,” sagði Elsa Lorange verzlunarstjóri hjá Álímingum sf. er við bárum undir hana hvort bremsuklossamir sem kosta 9.800 kr. undir bílinn, séu eftir- líking. „Fjölmargir leigubilstjórar eru með bremsuklossa frá okkur og vilja alls ekki annað. Það er af og frá hjá bíla- umboðunum, að halda þvi fram að þeirra varahlutir séu eitthvað betri en annarra sem framleiða þá. Það er einnig vitað mál að bílaverksmiðjurn- Laugavegi 69 simi168bU. ar sjálfar framleiða ekki varahluti í bíla sína. Þá er það líka alkunna að þeir vara- hlutir sem b.ílaumboðin hafa á boðstól- um eru alltaf dýrari en þeir sem fást annars staðar,” sagði Elsa. Rétt þykir að taka það fram að verðið á bremsuklossunum frá Álim- ingum sf. var frá þvi fyrir síðustu gengisfellingu. i svari Globus kemur fram að um mitt síðastliðið ár var verð á bremsu- klossunum 23.000 kr. en þrátt fyrir það er þetta nokkuð mikill verðmunur eða 13.200 kr. A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.