Dagblaðið - 12.01.1979, Síða 5

Dagblaðið - 12.01.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. JANUAR 1979. HEIMILISLÆKNIR SVARAR Ættgengir æðahnútar og dulinn lekandi í minni ætt er mikið um æðahnúta á fótleggjum. T.d. eru báðir foreldrar minir með æðahnúta. Mig langar því að spyrja heimilislækni: Er eitthvað, sem ég get gert, svo ég fái ekki æða hnúta? Kærar kveðjur, Ein lóára, Akureyri. Svar: Rétt er að æðahnútar eru ættgengt fyrirbæri. Þó er sitt af hverju sem þú getur gert til að forðast þá. Sennilega er mikilvægast að þú hreyfir þig hæfi- lega mikið. Langar stöður eru afleitar. Sund, göngur og alrnenn líkamsrækt geta hindrað myndun æðahnúta lengi. Þá er og nauðsynlegt að gæta að þyngdinni. Of þungu fólki hættir fremur við kvilla þessum. Margar og tiðar barneignir eiga hér einnig verulegan hlut að máli. Alténd er heppilegra að láta a.m.k. 3 til 4 ár líða milli fæðinga, þ.e. ef æðahnúta- sjónarmið fá að ráða. Loksins er hugsanlegt að getnaðarvarnapillan auki iíkur á myndun æðahnúta, en það er flókið mál og þú þyrftir að ræða það við þinn heimilislækni þegar þú þarft á getnaðarvörn að halda. Geta kvenmenn gengið lengi með lekanda án þess að verða fyrir óþæg- indum? Ef svo er, hve lengi? Hver eru fyrstu einkennin og hvernig þróast Þau? M.D. Svar: Konur geta geta gengið með lek- andabakteríur í mánuði, jafnvel ár, án þess að hljóta af nokkur óþægindi, en geta þó smitað aðra allan þennan tíma. Algengustu einkenni eru aukin út- ferð úr leggöngum, oft aðeins lítillega aukin. Slík útferð stafar þó oftast af öðrum orsökum. Stundum eru þvag- rásareinkenni líkt og hjá karlmönnum, þ.e. tíð og sár þvaglát og útferð úr þvagrás. Fyrir kemur að engin einkenni koma fram fyrr en bakteriurnar hafa ráðizt inn í leg og eggjaleiðara. Af þvi leiðir kviðverki. oftast með háum hita og verulegri hættu á ófrjósemi i kjöl- farið. Meðferð er fremur einföld. Því er enn sorglegra að hugsa til þeirra kvenna sem beðið hafa varanlegt heilsutjón af völdum lekanda. Fólki sem stundar skyndimök er ávallt hættast við smiti og skal hér enn Skrifið: Heimilislæknir svarar Dagblaðið Síðumúla 12 Reykjavfk eða hringið: Raddir lesenda Sími 27022 Kl. 13—15 virka daga. bent á þá vörn gegn,lekanda sem verjur (smokkar) og sæðisdrepandi krem veita. Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Nemendur komi í skólann mánudaginn 15. jan. kl. 10, að sækja stundaskrár og fá bóka- lista. Nýnemar eiga að standa skil á gjöldum til skólans. Gjöld til nemendafélagsins hækka og skal mismunur greiddur við afhendingu stundaskránna. Kennsla hefst þriðjudaginn 16. jan. kl. 8.30. Skólameistari. Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 Geon samábyroð (ÍAlrlrsnHa RAUN ER ÞUBRU l. "n |;« — ' mm VIÐ STÆKKUM1 0G BREYTUM bjóðum við flestar byggingavörur á sama stað í nýinnréttuðu húsnæði á 1. og 2. hæð, samtals 600 m2. Komið og skoðið. — Það er hagkvœmt að verzla allt á sama stað. Útveggjasteinn Þakpappi Eldhúsinnréttingar Veggfóóur Milliveggjaplötur Múrnet Plaströr & fíttings Veggstrigi Spónaplötur Rappnet Gluggaplast Gólffíisar Grindaefni Skrúfur Álpappir VeggfUsar Plasteinangrun Þakrennur Garðastál Lím Glerullareinangrun Hreinlætistæki Lamir & skrár Gólfdúkur Steinullareinangrun Blöndunartæki Rafmagnsverkfæri Korkflísar Glerullarhólkar ViðarþUjur Máiningarvörur Saumur Þakjárn Baðskápar Verkfæri ALLT UNDIR EINU ÞAKI BYGGINGARVÖRUDEILD JÓN LOFTSSON HF. HRINGBRAUT121

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.